Morgunblaðið - 25.06.2002, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.06.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Vegna styrkingar krónunnar og lægra dollaraverðs lækka Viking fellihýsin um 100.000 kr. Verð nú 759.000 með bremsum • Tæki sem brenna gasi eiga að vera CE merkt • Netsalan ehf. Garðatorgi 3, 210 Garðabæ, símar 565 6241 og 893 7333, Fax 544 4211, netfang: netsalan@itn.is Opið Virka daga frá kl. 10-18. Laugardag frá kl. 10-16. Lokað á sunnudögum ,,ÉG tel að það sé skylda mín sem utanríkisráðherra að fjalla um þau vandamál sem við stöndum frammi fyrir í sambandi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið,“ segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra er borin voru undir hann þau ummæli Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra í Morgunblaðsviðtali á sunnudag, að hann væri ekki ánægður með endurteknar yfirlýs- ingar Halldórs um kosti aðildar að ESB. Það mál sem mest er rætt í Evrópu ,,Ég tel jafnframt að það sé ekki hægt að ræða framtíð þess samn- ings án þess að fjalla um kosti og galla hugsanlegrar aðildar að Evr- ópusambandinu. Þetta er það mál sem er mest rætt í Evrópu í dag og það er engin leið að komast hjá því að við gerum það einn- ig og ég mun halda áfram að gera það,“ segir Halldór. Í viðtalinu fjallaði forsætisráðherra m.a. um EES-samninginn og Evrópusambandið og sagði að utanríkis- ráðherra virtist alger- lega ónæmur fyrir öll- um göllum þess. ,,Það er alveg ljóst að allar lausnir fyrir okkur hafa bæði kosti og galla og það höfum við reynt að draga fram. Hins vegar verður ekki horft fram hjá ýmsum vandamálum sem eru uppi við núverandi stöðu okkar og það er það sem við höfum verið að fjalla um og mun- um halda áfram að gera það,“ segir utan- ríkisráðherra. Í Morgunblaðsvið- talinu gagnrýndi for- sætisráðherra hve erf- iðlega gengi að fá einhverja efnisum- ræðu um Evrópumál- in. Aðspurður um þetta sagðist Halldór ekki vita hvað forsætisráð- herra væri að tala um. ,,Hann verður að út- skýra það,“ sagði Hall- dór. Forsætisráðherra sagðist einnig í viðtalinu ekki hafa neina trú á að þjóðin muni hafa áhuga á að gera hugsanlega aðild að Evrópusambandinu að kosninga- máli í komandi alþingiskosningum. ,,Hvorki ég eða aðrir ákveða hvaða mál verða kosningamál. Það eru þau mál sem fólki finnst skipta mestu máli fyrir framtíðina og þetta er eitt af þeim málum sem hefur mikla grundvallarþýðingu fyrir íslenskt þjóðfélag um langa framtíð,“ sagði Halldór er þetta var borið undir hann. ,,Ég hef ekki trú á öðru en að það verði þar á dagskrá, en hversu veigamikið það verður, get ég að sjálfsögðu ekki sagt um,“ sagði Halldór. Hann var einnig spurður hvort yfirlýsingar Davíðs í viðtalinu um Evrópumálin og ágreiningur þeirra hefði áhrif á samstarf þeirra í rík- isstjórn og svaraði Halldór því til að hann legði ekki í vana sinn að vera með palladóma um einstök við- töl. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um ummæli forsætisráðherra Mun halda áfram að ræða kosti og galla aðildar að ESB Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra „LÚPÍNAN er dálítið eins og eld- urinn, það þarf að fara varlega með hana, hún getur eftir að- stæðum bæði haft góð og slæm áhrif á gróður,“ segir dr. Borgþór Magnússon, plöntuvistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og formaður undirbúningsnefndar fyrir Alþjóðlegu lúpínuráðstefn- una sem haldin var á Laugarvatni dagana 19.–24 júní. „Alaskalúpínan sem notuð hef- ur verið til uppgræðslu hér á landi hefur þann kost að hún vex vel í ófrjóum söndum og öðru eyðilandi en vegna þess hve hún er hávaxin og breiðumyndandi getur hún einnig kæft annan gróður, til dæmis í mólendi,“ út- skýrir Borgþór. Hann bendir á að lúpínur þurfi yfirleitt ekki áburð til að vaxa, bakteríur í rótum hennar bindi nitur úr loftinu og þannig framleiði hún sjálf nægan áburð til að geta vaxið við afar erfið skilyrði. Hann segir rætur og köfnunarefnisnám lúpínu ein- mitt vera eitt af því sem til um- fjöllunar hefur verið á ráðstefn- unni en af öðrum viðfangsefnum nefnir hann sjúkdóma sem herja á lúpínur, erfðafræði og kynbætur og jarðrækt og fóðurfræði. Alþjóðalúpínusamtökin standa fyrir ráðstefnunni á Laugarvatni en þau eru félagsskapur vísinda- manna, ræktenda og áhugamanna um lúpínur. Auk Borgþórs hafa samstarfsmenn frá Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins, Land- græðslu ríkisins og Skógrækt rík- isins unnið að undirbúningi ráðstefnunnar. Um 120 manns frá 23 þjóðlöndum eru komin hingað til að taka þátt í ráðstefnunni, meðal annars frá Chile, Ástralíu og Rússlandi og eru hér fimm er- lendir gestafyrirlesarar. Slík ráð- stefna er nú haldin í tíunda sinn en undirbúningur hennar hefur staðið yfir í um eitt og hálft ár að sögn Borgþórs. „Sérstök áhersla hefur verið lögð á fjölærar lúp- ínur, vistfræði þeirra, nýtingu til landgræðslu og áhrif í nýjum heimkynnum. Andrea Pickart vistfræðingur frá Bandaríkjunum fjallaði þannig um áhrif runnalúp- ínu í nýjum heimkynnum í Kali- forníu og hvernig reynt hefur verið að koma í veg fyrir að hún eyddi þar sérstæðum strand- gróðri.“ Lúpínurækt mest í Ástralíu Lúpínur eru nýttar á marg- víslegan hátt, til dæmis eru ein- ærar lúpínur ræktaðar í dýrafóð- ur, að sögn Borgþórs. Hann bendir á að mest sé ræktað af lúpínu í Ástralíu þar sem einær lúpína er ræktuð á einni milljón hektara. „Lúpínufræið eða baun- irnar eru nýttar í mjöl sem fer að mestu leyti í fóðurblöndur.“ Hann nefnir dæmi um margvísleg önnur not. „Í Tasmaníu eru framleidd um 1.500 tonn af lúpínufræi á hverju ári sem menn borða sem snakk, gjarnan þegar þeir sitja og kneyfa öl. Í Chile er lúpínumjöl líka gjarnan notað í deig við kökubakstur til þess að fá ákveðna áferð á kökur.“ Þá eru lúpínur víða notaðar í sáðskiptum t.d. með byggi til að viðhalda frjósemi jarðvegs og draga úr notkun á tilbúnum áburði, að sögn Borgþórs. „Í líf- rænum búskap þar sem tilbúinn áburður er ekki notaður er einær lúpína gjarnan ræktuð þriðja hvert ár til að undirbúa jarðveg- inn fyrir annars konar ræktun. Eiginleikar hennar til að binda nitur nýtast þá gróðrinum sem ræktaður er næsta ár á sama akri.“ Borgþór segir ráðstefnugestina meðal annars hafa skoðað lúpínu- breiður og uppblásin svæði í Þjórsárdal. Hann bætir við að ráðgert sé að halda næstu alþjóð- legu lúpínuráðstefnu í Mexíkó að þremur árum liðnum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Lúpínan er notuð á margvíslegan hátt, t.d. eru fræ einærrar lúpínu mikið notuð í fóðurblöndur. Hér er mikil lúpínubreiða við Golfvöllinn í Garðabæ. Notuð í bakstur og borðuð sem snakk Alþjóðlega lúpínuráðstefnan haldin hér á landi SÖFNUN sem vinir og að- standendur Davíðs Tong Li, sem missti eiginkonu sína, son og foreldra í hörmulegu slysi við Blöndulón að kvöldi 17. júní sl, hefur gengið vonum framar að sögn Sveins Óskars Sigurðs- sonar, eins aðstandanda söfn- unarinnar. Sveinn segir Davíð Tong Li vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem hafa stutt hann með fjárframlögum og öðrum hætti. Þá vill hann þakka íslenska sendiráðinu í Kína, Útlendingaeftirlitinu og sendiráði Kína á Íslandi fyrir veitta aðstoð og stuðning. Sveinn Óskar segir tilgang söfnunarinnar vera þann að reyna að koma í veg fyrir að fjárhagsáhyggjur bætist ofan á aðrar áhyggjur vegna þess mikla missis sem Davíð hefur þurft að þola. Ríkar skuldbindingar við tengdaforeldra sína Sveinn Óskar segir að búast megi við að Davíð fari á heima- slóðir sínar í Kína til að ná átt- um í lífinu. Þá segir hann að eiginkona hans, Jing Li, hafi verið einkabarn foreldra sinna og þar af leiðandi hafi Davíð ríkar skuldbindingar gagnvart tengdaforeldrum sínum í fram- tíðinni. Útför Jing Li, Alberts Junc- hen Li, tæplega árs gamals son- ar þeirra Davíðs, og foreldra hans, Shouyuan Li og Xiuping Lin, fer fram í dag, þriðjudag. Davíð rekur veitingastaðinn Rikki Chan á Smáratorgi í Kópavogi. Þeir sem vilja sýna stuðning sinn með fjárframlögum er bent á reikning í Búnaðarbanka Íslands á Smáratorgi sem hægt er að leggja inn á. Reikningur- inn er nr. 328-13-888. Söfnunin gengur vonum framar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.