Morgunblaðið - 25.06.2002, Page 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞJÓÐAHÚSIÐ við Hverfisgötu
var formlega opnað um þarsíðustu
helgi, og var þá meðal annars kaffi-
hús á fyrstu hæð hússins tekið í
notkun. Andrúmsloft kaffihússins
verður með alþjóðlegum blæ en þar
eru sæti fyrir 80 manns, að sögn
Bjarneyjar Friðriksdóttur, fram-
kvæmdastjóra Alþjóðahússins.
„Kaffihúsið verður nokkurs konar
lífæð hússins og sá hluti þess sem
mun helst ná til þeirra sem ekki
endilega eiga beint erindi í húsið, á
meðan skrifstofustarfssemin snýst
að mestu leyti um þjónustu við fólk
af erlendum uppruna sem er búsett
hér. “
Fyrstu vikuna hefur verið erill í
kaffihúsinu og hafa jafnt Íslendingar
sem erlendir gestir komið þar við, að
sögn Bjarneyjar. Matseðillinn verð-
ur breytilegur þar sem gestakokkar
frá fjarlægum löndum munu sjá um
matreiðslu eina viku í senn. „Við höf-
um verið með gestakokk frá Angóla
sem mæltist mjög vel fyrir hjá gest-
um, fólk virtist kunna vel við að fá að
prófa mat frá Afríku.“
Við opnunina fékk Alþjóðahúsið
gervihnattadisk og sjónvarp að gjöf
frá Reykjavíkurdeild Rauða kross-
ins og að sögn Bjarneyjar verður
með búnaðinum hægt að ná sjón-
varpsefni hvaðanæva að úr heimin-
um „Því verður komið fyrir inni í
setustofu niðri í kjallara þegar að-
staðan þar verður tilbúin. Stofan
verður opin gestum og gangandi sem
geta þá komið inn og horft til dæmis
á fréttir frá Afríku eða Asíu.“
Hún nefnir að einnig standi til að í
kjallaranum verði haldin matreiðslu-
námskeið fyrir almenning með kokk-
um frá fjarlægum löndum. „Þetta
verða átta manna kvöldnámskeið þar
sem fólk mun elda mismunandi rétti
með kokkinum og borða þá svo öll
saman.“
Töluverð upplýsinga- og þjónustu-
starfssemi hafði verið í Alþjóðahús-
inu síðustu mánuði fyrir hina form-
legu opnun en hún fer að mestu fram
á annarri hæð hússins. Meðal annars
er þar túlkaþjónusta þar sem 50
tungumál eru á skrá. Þar getur fólk
af erlendum uppruna fengið lagalega
og hagnýta ráðgjöf auk þess sem
haldin eru fræðslukvöld m.a. um ís-
lenskt samfélag fyrir hópa, að sögn
Bjarneyjar. Þá er boðið upp á menn-
ingar- og fordómafræðslu fyrir Ís-
lendinga sem Bjarney segir vera
nýtta af ýmis konar félagasamtök-
um, skólum og leikskólum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gestakokkar frá fjarlægum löndum sjá um matreiðsluna í kaffihúsi Alþjóðahússins sem opnaði um síðustu helgi.
Erill í kaffi-
húsinu
FÉLAGSDÓMUR felldi þann dóm
sl. sunnudag að boðaðar verkfalls-
aðgerðir Félags ungra lækna næstu
daga og vikur væru ólögmætar.
Segir í niðurstöðu dómsins að félag-
ið sé bundið af gildandi kjarasamn-
ingi fjármálaráðuneytisins og
Læknafélags Íslands.
Fjármálaráðuneytið stefndi Fé-
lagi ungra lækna og Læknafélagi
Íslands fyrir félagsdóm vegna máls-
ins. Læknafélag Íslands var sýknað
enda talið ágreiningslaust að það
ætti ekki í deilum við ráðuneytið.
Félagi ungra lækna er gert að
greiða LÍ 100.000 kr. í málskostnað
og fjármálaráðuneytinu 200.000 kr.
í málskostnað.
Félag ungra lækna hafði boðað
sólarhringsverkfall fjórum sinnum
og átti það fyrsta að hefjast aðfara-
nótt mánudagsins 24. júní. Síðan
var boðað fjögurra sólarhringa
verkfall í ágúst og allsherjarverkfall
frá 2. september. Félag ungra
lækna taldi sig ekki bundið af
kjarasamningi LÍ og fjármálaráðu-
neytis frá 2. maí sl. en hann á að
gilda út árið 2005. Hefði fulltrúi fé-
lagsins neitað að rita undir samn-
inginn þar sem ekki hefðu verið
virtar grundvallaróskir um vinnu-
ákvæði, kjör og fleira. Í framhaldi
af því var samþykkt á aukaaðal-
fundi félagsins 10. maí að það yrði
sjálfstætt stéttarfélag.
Fjármálaráðuneytið krafðist þess
að boðaðar vinnustöðvanir Félags
ungra lækna yrðu dæmdar ólög-
mætar. Læknafélag Íslands hefði
farið með samningsaðild fyrir Félag
ungra lækna allt frá stofnun þess
og við upphaf samningaviðræðna
hefði ekki verið tilkynntur fyrirvari
eða áskilnaður um breytingar á
samningsaðild eða samningsum-
boði. Fulltrúi Félags ungra lækna
hefði tekið þátt í samningaviðræð-
um.
Ekki lögformlegur
samningsaðili
Í niðurstöðu félagsdóms er vísað
til ákvæða í lögum nr. 94/1986 þar
sem kveðið er á um að stofnun nýs
félags sem fer með samningsumboð
skuli tilkynna að minnsta kosti
þremur mánuðum fyrir lok samn-
ingstímabils kjarasamninga sem
gilda fyrir félagsmenn hins nýja fé-
lags. Segir að Félag ungra lækna
hafi verið sjálfstætt aðildarfélag
Læknafélags Íslands þegar kjara-
samningur var gerður við LÍ 2. maí.
Félagið hafi ekki samkvæmt fé-
lagslögum sínum verið stéttarfélag
sem var lögformlegur samningsaðili
um kaup og kjör meðlima sinna. Af
þeim sökum sé Félag ungra lækna
bundið af kjarasamningi fjármála-
ráðuneytisins og LÍ frá 2. maí 2002
með gildistíma út árið 2005.
Málið dæmdu Helgi I. Jónsson,
Gylfi Knudsen, Erla Jónsdóttir,
Björn L. Bergsson og Kristján
Torfason.
Félagsdómur dæmir verkfallsboðun Félags ungra lækna ólögmæta
Segir félagið bundið af
kjarasamningi LÍ
„OKKUR eru eiginlega allar bjarg-
ir bannaðar. Það er búið að neyða
okkur inn í samninginn,“ sagði Jó-
hann Elí Guðjónsson, varaformaður
Félags ungra lækna, í samtali við
Morgunblaðið, og á hann þar við
kjarasamning Læknafélags Íslands
og fjármálaráðuneytis. Félag ungra
lækna hefur aflýst boðuðum vinnu-
stöðvunum í kjölfar dóms fé-
lagsdóms um að þær væru ólögleg-
ar.
Jóhann Elí segir félagið verða að
una dómnum en stjórnin hugleiði
með lögfræðingi sínum hvort unnt
sé að stefna ríkisvaldinu til að fá úr
því skorið hvort ákveðin ákvæði
kjarasamningsins um vinnutíma séu
lögmæt. „Við viljum vita hvort það
sé verið að brjóta á mannréttindum
okkar með því að svipta okkur öll-
um vinnuverndarákvæðum og lág-
markshvíldarákvæðum,“ segir Jó-
hann Elí. Segir hann líklegt að
boðað verði til félagsfundar í næstu
viku til að ræða stöðuna.
„Þetta er bara frelsisskerðing,
ríkisvaldið getur eiginlega útjaskað
okkur í vinnu,“ segir varaformað-
urinn og bendir á að tekin hafi ver-
ið út atriði í samningnum frá í vor
sem voru í fyrri samningi, m.a. um
vaktafrí eftir vaktatarnir og ákvæði
um 8 tíma lágmarkshvíld. Hann
segir þessi atriði vera í samningn-
um gagnvart sérfræðingum og
fulltrúi Félags ungra lækna hafi
lýst óánægju með það í kjaravið-
ræðunum og ekki skrifað undir
samninginn.
Uppsagnir íhugaðar
„Ég hef heyrt óánægjuraddir
meðal félagsmanna og heyrt að
menn íhugi að segja upp en ég veit
ekki í hversu miklum mæli,“ segir
Jóhann Elí og kveður stjórn félags-
ins ekki hvetja til sérstakra að-
gerða. Hann segir unglækna geta
sagt upp með venjulegum þriggja
mánaða fyrirvara og síðan gætu
vinnuveitendur framlengt þann
frest um aðra þrjá mánuði ef þeim
sýndist svo. Jóhann Elí sagði að-
spurður að unglæknar gætu sótt í
aðrar stöður, t.d. í heilsugæslunni,
þar sem vinnutími væri skaplegur
eða haldið utan til sérnáms. Sagði
hann hafa borist tilboð frá Svíþjóð
um námsstöður þar í landi.
Unglæknar óánægðir
með niðurstöðu
félagsdóms
Íhuga að
stefna
ríkinu
„Jú, þetta er bara skemmtilegt, það
er fínt að læra um önnur lönd og fá
að vita hvernig fólkið þar býr,“
sögðu þau Þórunn Friðriksdóttir og
Árni Jón Gíslason, sem voru í menn-
ingar- og fordómafræðslu í Al-
þjóðahúsinu þegar blaðamann bar
þar að garði. Þau eru bæði 14 ára
starfsmenn hjá Vinnuskóla Reykja-
víkur en hópur unglinga þaðan var
þar í fræðslu þennan dag. Þau voru
sammála um að þeim fyndist fín til-
breyting að eyða deginum þar og
mun betra en að vinna úti í rokinu.
Þau sögðust vera nýbúin að fræðast
um Ghana og Víetnam en áttu svo
eftir að læra um fleiri lönd síðar um
daginn, sumt höfðu þau heyrt áður
en annað var alveg nýtt. „Okkur er
aðallega sagt frá menningunni í
þessum löndum og kannski aðeins
frá tungumálinu. Þetta er auðvitað
allt mjög ólíkt Íslandi.“
Þórunni og Árna fannst sjálfsagt
að allir krakkar fengju fræðslu um
fordóma og voru sammála um að
þeir væru fyrir hendi hjá krökkum
og unglingum. „Ég held að kannski
séu ekki svo miklir fordómar gagn-
vart útlendingum eða öðrum kyn-
þáttum, frekar til dæmis fordómar
gagnvart þeim sem gengur vel í
skóla. Það verður til dæmis alltaf að
kalla þá nörda,“ útskýrði Þórunn
og bætti við að sér fyndust for-
dómar fáranlegir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Árni Jón Gíslason og Þórunn Friðriksdóttir.
Fordómar fáranlegir
BÍLVELTA varð við Króka-
læki á Holtavörðuheiði
skömmu upp úr hádegi í gær-
dag.
Að sögn lögreglunnar í Borg-
arnesi missti ökumaður stjórn
á bílnum með þeim afleiðingum
að hann fór út af veginum
vinstra megin og fór hann tvær
veltur.
Þrjú börn voru í bílnum auk
ökumanns og voru þau flutt
með lögreglubíl með minnihátt-
ar meiðsli á heilsugæslustöðina
í Borgarnesi.
Ökumaður og börnin þrjú
voru öll spennt í bílbelti.
Borgarnes
Bílvelta
við
Króka-
læki