Morgunblaðið - 25.06.2002, Page 11

Morgunblaðið - 25.06.2002, Page 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 11 BORGARSTJÓRN hefur samþykkt að hefja vinnu við heildarstefnu- mörkun Reykjavíkur í orkumálum sem felur m.a. í sér endurskoðun á eignarhlut borgarinnar í Lands- virkjun. Er stefnumörkunin að sögn borgarstjóra gerð í framhaldi af þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað í orkumálum undanfarið og vegna þeirra breytinga og aukinnar samkeppni sem vænta má í samræmi við frumvarp til nýrra raforkulaga. Samkvæmt tillögunni mun borgar- ráð skipa sérstakan starfshóp til þess að vinna að verkefninu. Björn Bjarnason, oddviti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn, sagði að tillagan lýsti vantrausti á stjórn Orkuveitunnar og formann hennar, Alfreð Þorsteinsson. Sagði hann meirihluta borgarstjórnar ekki hafa burði til að móta stefnu í orkumálum í ljósi þeirrar þróunar sem orðið hef- ur hjá OR undanfarið, t.d. stórauk- inna skulda fyrirtækisins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, benti á að stefna orku- mála yrði að mótast á faglegum rök- um, en ekki pólitískum, og því eðli- legt að sérstök nefnd fjallaði um málið. Samkvæmt tillögunni verða horf- ur á áframhaldandi nýtingu vist- vænnar orku á starfssvæði Orkuveit- unnar kannaðar svo og möguleikar á nýjum orkuvinnslusvæðum. Þá verða áhrif breytts rekstrarum- hverfis í raforkumálum á starfsemi OR metin. Í máli borgarstjóra kom m.a. fram að frumvarp til nýrra raforkulaga gerði ráð fyrir aukinni samkeppni í viðskiptum með orku og því þyrfti að endurskoða 45% eignarhlut borgar- innar í Landsvirkjun. Borgin ætti rúm 90% í OR sem yrði keppinautur Landsvirkjunar. Borgarstjóri ræddi um hugsanlegar leiðir til að skipta Landsvirkjun upp í nokkur fyrir- tæki. Sagði hún að það mætti hugsa sér að Landsvirkjun yrði skipt upp eftir landsvæðum og gætu þá t.d. Sogsvirkjun og Nesjavellir orðið eitt fyrirtæki, hugsanlega í eigu borgar- innar. „Frumvarp til raforkulaga felur í sér heildarendurskoðun á löggjöf um vinnslu, flutning, dreifingu og sölu raforku,“ sagði Ingibjörg. „Grunn- hugmyndin er að markaðssjónarmið verði höfð að leiðarljósi við vinnslu og sölu raforku. Höfuðatriði í þessu frumvarpi er að skilja að samkeppn- is- og einokunarþætti raforkukerfis- ins.“ Í frumvarpinu er að sögn Ingi- bjargar mælt með hlutafélagavæð- ingu á orkumarkaði. Ör þróun í orkumálum Í greinargerð sem lögð var fyrir borgarstjórn vegna tillögunnar kem- ur fram að ör þróun hafi orðið í orku- málum Reykjavíkur á undanförnum árum. Þar segir að Orkuveitan hafi haslað sér völl á sviði raforkufram- leiðslu með virkjun á Nesjavöllum og undirbúið frekari gufuaflsvirkjanir á Hellisheiði. Þá hefur Orkuveitan eignast Hitaveitu Þorlákshafnar og hitaveitur á Bifröst og Svartagili. Akranesveitur, Hitaveita Borgar- ness og Andakílsárvirkjun samein- uðust Orkuveitunni á síðasta ári og á OR tæplega 80% hlut í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Í árslok 2001 voru samþykkt ný lög um Orkuveitu Reykjavíkur og með þeim breyttist OR í sameign- arfyrirtæki og Akranesbær, Borgar- byggð, Borgarfjarðarsveit, Garða- bær og Hafnarfjörður eiga nú aðild að því. Innviðir OR hafa veikst Björn Bjarnason gagnrýndi að OR hefði verið breytt í sameignarfélag. Sagði hann óeiningu innan R-listans hafa valdið því að svo var gert. Rekstrarfyrirkomulagið veikti stöðu fyrirtækisins í samkeppni við Hita- veitu Suðurnesja sem væri hluta- félag og skilaði meiri hagnaði en OR á síðasta ári. Björn sagði málefni OR hafa þróast á hættulegan hátt vegna skorts á skýrri stefnumörkun meiri- hlutans. „Innviðir fyrirtækisins hafa verið að veikjast. Kom berlega í ljós á síðasta kjörtímabili hversu vafa- samt er að stjórna fyrirtæki eins og Orkuveitunni án þess að því séu sett skýr markmið og nákvæmlega sé hægt að fylgjast með því hvernig markmiðum skuli náð.“ Sagði hann tillöguna um orkumál viðurkenningu meirihlutans á því að gagnrýni á stefnuleysi Orkuveitunn- ar og óljós markmið í rekstri hennar ættu við rök að styðjast. „Tillagan minnir á það að skortur á skýrri stefnu og lausatök við stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hafa veikt fyrirtækið andspænis væntanlegum keppninautum sínum.“ Ólafur F. Magnússon, borgar- fulltrúi F-lista, studdi tillögu R- listans en borgarfulltrúar Sjálfstæð- isflokks sátu hjá við afgreiðslu máls- ins. Tillaga samþykkt um heildarstefnumörkun borgarinnar í orkumálum Endurskoða þarf eignarhlut í Landsvirkjun PÁLL Skúlason háskólarektor sagði í ræðu við brautskráningu kandídata um helgina að Háskóli Íslands hefði verið mikilvægasta tæki íslensku þjóðarinnar til að til- einka sér og nýta alþjóðleg vísindi og tækni til að byggja upp sjálf- stætt íslenskt þjóðfélag á síðustu öld og endurnýja íslenska menn- ingu. Nú væru hins vegar runnir upp aðrir tímar og huga þyrfti sér- staklega að því hvernig menntun fólks ætti að vera í ríki sem vildi taka fullan þátt í þeirri alheims- menningu sem háskólar heimsins hefðu átt drýgstan þátt í að móta. Rektor segir að íslenska ríkið þurfi að verða menntaríki þar sem mennskan sé sett í öndvegi, ríki sem byggi á verðmætum og rétt- indum sem varði allar þjóðir, alla félagshópa og alla einstaklinga jafnt. Sjálfstæði þjóðarinnar háð menntun hennar Páll sagði að þótt hin vísinda- lega og tæknilega menntun væri forsenda þess að Íslendingar gætu eygt von um að lifa af sem sjálf- stæð þjóð og vera fullgildur þátt- takandi í alheimsmenningunni yrði hann þó að játa að sá grunur læddist æ oftar að að þau öfl, sem mestu réðu í heiminum hefðu í reynd lítinn skilning á því hvað hér væri raunverulega í húfi: „Fyrir þeim,“ sagði háskólarektor, „eru menntun, vísindi og þekking fyrst og fremst hentug tæki til að tryggja völd og áhrif. Fyrir þeim vakir að verja auðlegð og yfir- burðastöðu gagnvart fjöldanum sem krefst síaukinnar hlutdeildar í gæðum heimsins. Hér standa al- þjóðleg stórfyrirtæki og auðugar stéttir hinna ríku þjóða andspænis almenningi og fátæklingum heims- ins. Hinir ríku eiga þann draum að treysta og auka auð sinn með því að framleiða og selja enn meira. Alveg eins og valdhafa dreymir um að verja og styrkja völd sín með því að sigra í næstu kosn- ingum. Ekkert annað skiptir meira máli.“ Háskólarektor taldi að þessa takmörkuðu veraldarsýn skorti sanna menntahugsjón. Slík hugsjón liti á öll skólastigin sem eina samfellu og setti þroska ein- staklingsins ofar völdum og áhrif- um. Þá benti Páll á að skólakerfi landsins væri fjarri því að vera eins heilsteypt og skilvirkt og það ætti að vera og stærsta og mik- ilvægasta verkefnið í skólamálum landsins væri að gera sér skýra grein fyrir því hvers konar mann- eskjur Íslendingar vildu ala upp frá leikskóla til háskóla og þar með hvers konar þjóð menn vildu að byggi hér á landi í framtíðinni. „Hér skiptir mestu hvaða fyr- irmyndum, hæfileikum og verð- mætum menntakerfi okkar heldur fram og boðar börnum okkar og komandi kynslóðum.“ Rektor sagði að þróun íslenska skólakerfisins mætti greina sund- ur í þrjú skeið sem væru órofa tengd stjórnmálasögu landsins. Fyrsta skeiðið tengdist sjálfstæð- isbaráttunni og tilurð íslenska þjóðríkisins og þá hefði þurft að setja á laggirnar skóla til að mennta þær stéttir embættis- manna sem gætu borið hitann og þungann af því að halda uppi sjálf- stæðu þjóðríki. „En á 20. öld,“ hélt rektor áfram, „kom önnur hugsjón til skjalanna sem hefur ekki síður sett mót sitt á stjórnmálin og skólakerfið. Þetta er hugsjónin um velferðarríkið, ríki sem er ætlað að skapa öllum einstaklingum og fé- lagshópum skilyrði til sómasam- legra lífskjara. Forsenda þess er sú að móta öflugt og blómlegt efnahagslíf með fjölda sérhæfðra fyrirtækja og stofnana sem eru rekin af velmenntuðu starfsfólki í ótal greinum. Segja má að skóla- kerfi landsins hafi ekki haft undan við að stórauka fræðslu af marg- víslegum toga til að mæta hinum nýju þörfum þjóðfélagsins fyrir sérfræðinga og kunnáttufólk.“ Þurfum að setja mennskuna í öndvegi Háskólarektor benti hins vegar á að til þess að framangreind menntahugsjón næði fram að ganga yrðu menn að stíga þriðja skrefið og temja sér hugsunarhátt og móta menntakerfi, sem tæki ekki eingöngu mið af því hvernig menntun fólks þarf að vera til að skapa þjóðríki og byggja upp vel- ferðarríki, heldur einnig af því hvernig menntun fólks þyrfti að vera í ríki sem vildi taka fullan þátt í þeirri alheimsmenningu sem háskólar heimsins ættu drýgstan þátt í að móta. Til að skýra hvað hér er í húfi vitnaði Páll til orða franska hugs- uðarins Montesquieu: „Byggi ég yfir vitneskju um eitthvað sem gæti nýst mér vel, en gæti reynst fjölskyldu minni skaðlegt, gerði ég hana brottræka úr huga mér. Hefði ég vitneskju sem gæti verið fjölskyldu minni heilladrjúg, en skaðað gæti ættjörð mína, myndi ég reyna að gleyma henni. Vissi ég eitthvað sem nýst gæti ættjörð minni, en gæti reynst Evrópu skaðlegt, eða heilladrjúgt fyrir Evrópu en skaðlegt mannkyninu, liti ég á það sem glæp, því að ég er maður í eðli mínu en franskur ein- ungis af hendingu.“ „Þetta er sá hugsunarháttur,“ sagði rektor, „sem öllu skiptir fyr- ir framtíðina og við eigum að leggja til grundvallar í uppeldi barna okkar af því að hann er í anda sannrar menntunar og vís- inda. Íslenska ríkið á vissulega að vera þjóðríki og velferðarríki en það verður hvorugt ef því tekst ekki að verða það sem mestu skiptir, nefnilega menntaríki, ríki sem setur mennskuna í öndvegi og byggir á þeim verðmætum og rétt- indum sem varða allar þjóðir, alla félagshópa og alla einstaklinga jafnt.“ Páll Skúlason háskólarektor um menntun á tímum alheimsmenningar Ísland á að vera þjóðríki, velferðarríki og menntaríki Morgunblaðið/Jim Smart Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands,segir þörf á breyttum áherslum í menntamálum, hér rísi menntaríki þar sem mennskan sé sett í öndvegi.  HÁKON Hákonarson læknir varði doktorsritgerð sína: „Altered trans- membrane signalling and respon- siveness of asthmatic sensitized airway smooth muscle“, 22. apríl sl. Andmælendur voru Peter Barnes, prófessor við National Heart & Lung Institute, Imperial College, London og Guð- mundur Þorgeirs- son, prófessor við læknadeild Há- skóla Íslands. Reynir Tómas Geirsson prófess- or, forseti læknadeildar Háskóla Ís- lands, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Hákon er fæddur á Akureyri árið 1960. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1980 og læknaprófi frá HÍ 1986. Sérfræðingspróf í barnalækningum 1992 frá University of Connecticut og í lungnalækningum barna frá University of Pennsylvania School of Medicine árið 1996. Hákon rekur umfangsmikla rannsóknarstarfsemi við læknaháskólann í Pennsylvania og var sú rannsóknarvinna sem ligg- ur til grundvallar doktorsnámi hans í sameindalíffræði astma unnin þar á árunum 1993–98. Hákon hefur leitt lungnarannsóknarsvið Íslenskrar erfðagreiningar frá 1998 og er yf- irmaður lyfjafræðarannsókna og rannsóknasviðs bólgu og sjálfs- ofnæmissjúkdóma hjá sömu stofnun auk þess að sinna lungnalækningum við barnadeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss. Ritgerðin byggist á 10 vísindagreinum sem birtar hafa verið í virtum alþjóðlegum vísinda- tímaritum sem einkum fjalla um lungna- og ofnæmissjúkdóma. Há- kon hefur birt niðurstöður vísinda- rannsókna sinna á vísindaþingum um heim allan og hlotið viðurkenningar í formi rannsóknarstyrkja fyrir störf sín. Doktorsritgerðin fæst við grunn- rannsóknir á astma, nánar tiltekið um hlutverk öndunarvöðvans í mein- gerð astma, og var að mestu unnin við læknaháskóla Pennsylvaniu í Fíladelfiu. Hákon er kvæntur Maríu Björk Ívarsdóttur, grafískum hönnuði, og eiga þau þrjú börn, Ívar Örn, Sig- rúnu Maríu og Sólveigu Helgu. Um grunn- rannsóknir á astma Borgarnes Eldur í hjóli flutn- ingabifreiðar ELDUR kviknaði í hjóli aftanívagns flutningabifreiðar við Hreinsstaði í Norðurárdal á sunnudagskvöld. Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi virðist legan í hjólinu hafa gefið sig og hún ofhitnað með þeim afleið- ingum að dekk og loftpúði sprungu. Lögregla var kölluð á staðinn og aðstoðaði hún ökumann við að slökkva eldinn og koma tengivagni út í vegarkant. Tveir sækja um Nesprestakall TVEIR prestar sækja um embætti prests í Nesprestakalli í Reykjavík. Umsóknarfrestur rann út 14. júní síð- astliðinn. Umsækjendur eru séra Skírnir Garðarsson og séra Örn Bárður Jóns- son. Embættið verður veitt frá 1. októ- ber næstkomandi. Vígslubiskup Skál- holtsumdæmis boðar saman valnefnd prestakallsins. Í henni sitja auk hans fimm fulltrúar prestakallsins og pró- fastur Reykjavíkurprófastsdæmis vestra. Biskup Íslands skipar í emb- ættið til fimm ára samkvæmt niður- stöðu valnefndar sé hún einróma. Sóknarprestur í Nesprestakalli er séra Frank M. Halldórsson. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.