Morgunblaðið - 25.06.2002, Page 13
Morgunblaðið/Kristján
Roðagyllt
miðnætursól
LENGSTI dagur ársins er nú að
baki og daginn tekur smám sam-
an að stytta. Enn geta menn þó
notið þess að vaka um bjartar
sumarnætur og fylgjast með
roðagylltum himni þar sem mið-
nætursólin leikur stórt hlutverk.
Kylfingar búa sig nú sem óðast
undir þátttöku í miðnætur-
golfmótinu Arctic Open en það
verður sett á Jaðarsvelli við Ak-
ureyri á morgun, miðvikudag.
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 13
www. .is
ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ
KÍKTU
Á NETIÐ
KARLMAÐUR um fimmtugt hefur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra ver-
ið dæmdur til að greiða 55 þúsund
krónur í sekt til ríkissjóðs, þá er hann
sviptur ökurétti í 6 mánuði og gert að
geiða sakarkostnað.
Maðurinn var ákærður fyrir um-
ferðarlagabrot með því að hafa ekið
bifreið undir áhrifum áfengis frá
Stykkishólmi áleiðis til Dalvíkur, en
hann stöðvaði för sína við sumarbú-
stað skammt sunnan bæjarins. Þar
handtók lögregla manninn. Atburð-
urinn átti sér stað í byrjun maí árið
2000.
Málið hefur tvívegis verið tekið
fyrir í héraðsdómi áður og var mað-
urinn sýknaður í bæði skiptin. Fyrst
féll dómur í málinu í febrúar árið
2001 og áfrýjaði ríkissaksóknari til
Hæstaréttar sem ómerkti héraðs-
dóminn þremur mánuðum síðar.
Dómur féll öðru sinni í október í fyrra
og var maðurinn enn sýknaður. Líkt
og áður krafðist saksóknari þess að
maðurinn yrði sakfelldur og skaut
málinu til Hæstaréttar. Niðurstaða
hans frá í mars á þessu ári var sú að
héraðsdómurinn var ómerktur og
málinu vísað heim í hérað til munn-
legrar sönnunarfærslu fyrir þremur
héraðsdómurum.
Staðhæfði að neysla hefði
hafist eftir að akstri lauk
Málsatvik eru þau að lögregluvarð-
stjóri sem leið átti um Ólafsfjarðar-
veg þekkti manninn þar sem hann
var á ferð og taldi að ekki væri allt
eins og ætti að vera varðandi akst-
urslag hans. Hafði hann sambandi við
lögreglu á vakt sem hélt að sumarbú-
staðnum og handtók manninn. Blóð-
og þvagsýni vegna alkóhólsrann-
sóknar voru tekin úr manninum á
Akureyri og reyndist maðurinn ölv-
aður. Neitaði maðurinn að hafa verið
undir áhrifum áfengis við aksturinn,
en bar að hann hefði hafið neyslu eftir
að akstri lauk. Þá staðhæfði maður-
inn að hann hefði verið í bústaðnum í
allt að 20 mínútur áður en lögreglu
bar að garði. Vitnisburður lögreglu-
mannanna tvegga var með öðrum
hætti og töldu þeir að maðurinn hefði
dvaldið þar í um eina mínútu einn.
Dómurinn komst að þeirri niður-
stöðu að fjarstæðukennt sé að ætla að
maðurinn hafi náð að neyta svo mikils
áfengis á örskömmum tíma sem raun
bar vitni samkvæmt mælingu á vín-
andamagni í blóði. Sterkar líkur séu
á, þrátt fyrir neitun mannsins, að
hann hafi ekið bifreiðinni undir áhrif-
um áfengis. Bendir dómurinn hins
vegar á að lögregla hafi ekki leitað
með skipulegum hætti að áfengi og
áfengisumbúðum í bústaðnum til að
kanna hvort eitthvað væri til í stað-
hæfingum um að neysla hefði hafist
eftir að akstri lauk.
Dóminn kváðu upp héraðsdómar-
arnir Ásgeir Pétur Ásgeirsson dóms-
formaður, Skúli J. Pálmason og Hall-
dór Halldórsson dómstjóri. Guðjón
Jóel Björnsson sýslumannsfulltrúi
sótti málið en Jón Kr. Sólnes var
verjandi mannsins.
Þriðji dómur Héraðsdóms í ölvunarakstursmáli
Tvívegis sýknaður
en nú sakfelldur
„ÞETTA var alveg stórkostlegt, við
erum í sjöunda himni,“ sagði Hall-
grímur Indriðason, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Eyfirð-
inga, en á fimmta hundrað manns
mætti í Jónsmessugöngu í Kjarna-
skógi á sunnudagskvöld.
Þetta var í þriðja sinn sem farið
er í Jónsmessugöngu í Kjarnaskógi
en á síðasta ári komu rúmlega 100
manns og var viðbúnaður við það
miðaður að ekki yrðu fleiri gestir í
göngunni nú. „Síðast bar gönguna
upp á laugardagskvöld og við áttum
von á að færri myndu slást með okk-
ur í för nú á sunnudagskvöldi,“
sagði Hallgrímur.
Auk Skógræktarfélagsins tóku
Minjasafnið, Norræna félagið,
Listasumar og Leikklúbburinn
Saga þátt í Jónsmessugöngunni nú.
Leiðsögumenn fræddu göngumenn
um gróður í skóginum, jurtir og
lækningamátt þeirra auk þess sem
fléttað var inn þjóðlegum fróðleik
tengdum Jónsmessunni. Ungmenni
í Leikklúbbnum Sögu höfðu und-
irbúið sýningu sem fór fram á hin-
um ýmsu viðkomustöðum í skóg-
inum og sagði Hallgrímur hina
kraftmiklu krakka hafa vakið verð-
skuldaða athygli. „Þetta var mögn-
uð sýning og menn voru mjög
ánægðir með hvernig til tókst,“
sagði hann um framlag Sögufélaga.
Ungmennin í samvinnu við Agnar
Jón Egilsson settu sýninguna sam-
an, en hún byggðist á goðsögnum
frá Jónsmessunótt og inn í þær var
fléttuð saga um afdrifaríka atburði.
Í ljósi þess hve mikið fjölmenni tók
þátt í göngunni nú sagði Hallgrímur
að farið yrði yfir framkvæmdina og
hugað að öðru skipulagi fyrir næstu
Jónsmessugöngu að ári. Sennilega
þyrfti að skipta mönnum upp í
smærri hópa svo að fólk gæti til
fulls notið leiðsagnarinnar.
Á fimmta hundrað manns mætti í Jónsmessugöngu
Erum í sjöunda himni
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Leikklúbburinn Saga tók virkan þátt í Jónsmessugöngu í Kjarnaskógi.
KÆRUNEFND útboðsmála
hefur gefið út bráðabirgðaúr-
skurð um að ekki verði gengið
til samninga um byggingu rann-
sókna- og nýsköpunarhúss við
Háskólann á Akureyri, á meðan
nefndin fjallar um kæru Ístaks
og Nýsis á framkvæmd útboðs-
ins. Að sögn Guðmundar Ólafs-
sonar í fjármálaráðuneytinu er
kæran til efnislegrar umfjöllun-
ar hjá kærunefndinni og er nið-
urstöðu að vænta eftir um mán-
uð.
Guðmundur, sem jafnframt á
sæti í valnefnd vegna útboðsins,
sagði að ekki hefði verið kynnt
efnisleg niðurstaða útboðsins og
málið væri enn til skoðunar hjá
Ríkiskaupum og viðkomandi
ráðuneytum. Til stóð að hefja
framkvæmdir við byggingu
hússins nú í sumar og afhenda
það fullbúið haustið 2003. Hins
vegar á eftir að koma í ljós
hvort það ferli sem nú er í gangi
kemur til með að setja þar strik
í reikninginn.
Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu á laugardag bárust
tvö tilboð í framkvæmdina að
undangengnu lokuðu útboði í
forvali, annars vegar frá Ístaki
hf. og Nýsi hf. og hins vegar frá
Íslenskum aðalverktökum hf.,
ISS á Íslandi ehf. og Landsafli
hf. Ríkiskaup stóðu fyrir útboð-
inu en um er að ræða svonefnda
einkaframkvæmd. Sérstök val-
nefnd fór yfir tilboðin en hún
hefur ekki skilað af sér, að sögn
Guðmundar.
Stefán Þórarinsson, rekstrar-
stjóri Nýsis, sagði í Morgun-
blaðinu um helgina að það mat
sem lagt var á þeirra lausnir
hefði ekki byggst á útboðsgögn-
um heldur einhverjum tilfinn-
ingum manna. Útboðsgögnin
hefðu verið mjög afgerandi um
hvernig byggingin ætti að vera
og eftir þeim hefðu Ístak og
Nýsir farið en hinir aðilarnir
ekki.
Kærunefnd útboðsmála fjallar
um kæru Ístaks og Nýsis
Ekki verði
gengið til samn-
inga á meðan
Benedikt áfram stjórn-
arformaður KEA
BENEDIKT Sigurðarson hefur
verið kjörinn formaður stjórnar
KEA svf. til tveggja ára. Aðrir
sem sæti eiga í stjórninni næstu
tvö ár eru Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir, Björn Friðþjófsson og
Haukur Halldórsson, en Tryggvi
Þór Haraldsson, Alda Traustadótt-
ir og Þórhallur Hermannsson voru
kjörin í stjórnina til eins árs á að-
alfundi KEA svf. sem haldinn var
nýlega.
„Við erum nú með gjörbreytt
samvinnufélag,“ sagði Benedikt og
benti á að KEA væri skuldlaust fé-
lag, ekki með neinn rekstur inni í
sjóði en réði yfir miklum eignum.
Hann sagði félagið þess albúið að
fjárfesta í samstarfi við aðra, fé-
lagið yrði ekki ráðandi í nýjum
fjárfestingum heldur myndi það
leitast við að laða aðra til sam-
starfs varðandi fjárfestingar.
Nýrrar stjórnar bíður nú það
verkefni að ráða nýjan kaupfélags-
stjóra en Eiríkur S. Jóhannsson
hefur látið af störfum og tekið við
sem framkvæmdastjóri Kaldbaks.
Benedikt sagðist trúa því að
KEA í breyttum farvegi yrði öfl-
ugasti byggðastuðningur sem fé-
lagssvæðið gæti fengið. Það hefði
burði til þess að efla mannlíf og
stórfjölga tækifærum ungs fólks á
svæðinu.
Júmbóþota
á Flugsafnið
á Akureyri?
FORSVARSMENN Flugsafnsins
á Akureyri eru að kanna mögu-
leika á að fá Boeing 747 breiðþotu
á safnið næsta vor, samkæmt
heimildum Morgunblaðsins. Slík
þota er engin smásmíði og verður
vafalaust erfitt að koma henni fyr-
ir við safnið á Akureyrarflugvelli.
Alltént er ekki gert ráð fyrir að
henni verði komið fyrir innan dyra,
heldur verði búkur hennar notaður
undir starfsemi safnins. Boeing-
breiðþota er um 70 metra löng og á
þremur hæðum. Eftir að búið er að
fjarlægja úr henni ónauðsynlega
hluti getur hún nýst vel til sýn-
ingahalds. Árlega eru margar risa-
þotur teknar úr flugrekstri og
þeim komið fyrir í svonefndum
flugvélakirkjugörðum.
Arngrímur Jóhannsson, eigandi
Atlanta, er í stjórn Flugsafnsins á
Akureyri og ef af verður hefur
hann tekið að sér að fljúga risaþot-
unni til bæjarins. Arngrímur er
ekki ókunnugur þessum breiðþot-
um enda með margar slíkar í
rekstri Atlanta.