Morgunblaðið - 25.06.2002, Qupperneq 14
SUÐURNES
14 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
AÐALFUNDUR Prestafélags Ís-
lands var haldinn á Egilsstöðum í lið-
inni viku og sátu hann um 70 manns.
Helstu viðfangsefni fundarins voru
kjaramál og nauðsyn þess að auka
samstarf á milli prestakalla.
Sr. Jón Helgi Þórarinsson, for-
maður Prestafélagsins, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að auk venju-
bundinna aðalfundarstarfa hefðu
kjaramál verið ofarlega á baugi.
„Það hefur verið allmikil stöðnun í
kjaramálum presta undanfarin miss-
eri, en virðist eitthvað vera að leys-
ast úr núna,“ sagði Jón Helgi. „Við
vildum t.d. fá það metið til launa að
hægt er að kalla okkur út hvenær
sem er og hefur kjaranefnd fallist á
það. Fjallað var um starfsaðstöðu
presta, ekki síst í sveitunum, sem er
um margt töluvert erfið þeim sem
búa á prestssetrum. Tryggja þarf
prestum frí með reglulegu millibili,
tækifæri til endurmenntunar og
koma í veg fyrir kulnun í starfi.
Af öðrum einstökum málum aðal-
fundarins nefndi Jón Helgi endur-
skoðun á siðareglum presta frá 1994
og umfjöllun um mikilvægi þagnar-
skyldunnar í tengslum við lög sem
löggjafinn er að setja um að
ákveðnar stéttir eigi jafnvel að
greina frá ýmsu sem þær verða
áskynja. Þá er talað um að breyt-
ingar þurfi að gera á skipan presta-
kalla. „Rýmka eða lækka þarf þessar
girðingar, getum við sagt, sem eru á
milli prestakallanna, auka samstarf-
ið og þannig gæði þjónustunnar.
Hugmyndin er að fara með þessar
hugmyndir út um land til prestanna
á næsta ári og sjá hvernig þeir
myndu vilja útfæra þetta heima í
héraði,“ sagði Jón Helgi.
Prestafélagið undirbýr nú útgáfu
guðfræðingatals ásamt sögu félags-
ins og guðfræðimenntunar á Íslandi.
Aðalfundurinn var haldinn daginn
fyrir prestastefnu en hún stóð í tvo
daga og lauk með pílagrímagöngu og
miðnæturmessu í Selskógi við Egils-
staði.
Aðalfundur Prestafélags Íslands
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Það var býsna tilkomumikið að sjá þátttakendur prestastefnu á Egils-
stöðum fylkja sér undir krossmarki í píslarvottagöngu frá Egilsstaða-
kirkju yfir í Selskóg að kvöldi síðara fundardags. Í skóginum var haldin
miðnæturmessa, sem þótti heppnast vel þrátt fyrir nokkurn kulda.
Auka á samstarf
milli prestakalla
Egilsstaðir
LC-KONUR á Húsavík stóðu fyrir
Jónsmessugöngu sl. sunnudags-
kvöld og var gengið sem leið lá frá
Gónhól að Eyvíkurfjöru eða
Höfðagerðissandi sem fjaran heitir
réttu nafni. Veðrið var eins og
best var á kosið og lék við göngu-
fólkið sem var á öllum aldri.
Um 80 manns tóku þátt í göng-
unni og þegar í fjöruna var komið
var buðu LC-konur upp á veit-
ingar, kveiktur var varðeldur og
sungið við gítarspil Sigurðar Ill-
ugasonar. Meðan þeir eldri sungu
léku börnin sér í flæðarmálinu,
reyndu m.a. að láta steinvölur
fleyta kellingar og nutu sum þau
yngri aðstoðar þeirra sem eldri
voru.
Hvort það var söngurinn sem
laðaði að aðra en göngufólkið
sjálft skal ósagt látið en meðan á
þessu stóð sást selur eða selir
fylgjast með og tvær seglskútur
komu siglandi inn með Tjörnesi
áleiðis til Húsavíkur.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Varðeldurinn logaði glatt í fjörunni á Höfðagerðissandi. Sólarlagið
var ekki til að skemma stemninguna, Lundey í baksýn.
Jónsmessuganga á
Höfðagerðissand
Húsavík
SIGURÐUR Hallmannsson í Garði
man tímana tvenna. Hann fagnar
í næsta mánuði 92 ára afmæli en
árin hafa farið um hann mjúkum
höndum, þrátt fyrir oft og tíðum
erfiða vinnu og ýmis áföll. Þeir
sem sjá hann á sínu daglega rölti
um Garðinn, mæta honum akandi
á miðri Reykjanesbraut eða kasta
á hann kveðju þar sem hann
stendur með garðklippurnar í
hendinni utan við reisulegt hús
sitt, eiga erfitt með að trúa því
að hér sé á ferðinni maður á tí-
ræðisaldri. Blaðamanni Morg-
unblaðsins lék forvitni á að vita
hvernig Sigga Hall, eins og hann
er alltaf kallaður, tekst að halda
sér svona sprækum.
„Ætli ég sé ekki bara svona
góð framleiðsla,“ segir Siggi og
kímir. Hann er heldur ekki frá
því að þrældómurinn og útiveran
sem einkennir sjómannslífið hafi
líka gert honum gott. Siggi
stundaði sjómennsku frá tímum
árabáta til stórra skipa og þegar
hann lítur yfir farinn veg hristir
hann hausinn. „Ég hef upplifað
miklar breytingar. Sumt finnst
mér alveg fráleitt, eins og
launaþróun og bilið milli verka-
manna og iðnaðarmanna,“ og þar
með er gamli verkalýðsforinginn
kominn upp í Sigga, en hann
gegndi formennsku í verkalýðs-
félagi Gerðahrepps til margra
ára. Hann segist þó ekki vilja lifa
gamla tíma aftur, þeir hafi oft
verið erfiðir.
Vel á sig kominn líkamlega
Það eru ekki nema ellefu ár
síðan Siggi hætti að vinna, en
hann hafði þá verið atvinnubíl-
stjóri í rúmlega 2 áratugi. „Ég
keypti mér vörubíl fljótlega eftir
að ég hætti á sjónum árið 1966.
Þá nennti ég þessu ekki lengur,
fannst sérstaklega erfitt að tapa
alltaf sumrunum á síldarvertíð-
inni og ég vildi geta ráðið mínum
vinnutíma sjálfur.“ Siggi var þá
orðinn ekkill, missti eiginkonu
sína, Jóneu Helgu Ísleifsdóttur,
árið 1988, en hann hefur aldrei
látið einveruna buga sinn og býr
enn í tveggja hæða húsi sem þau
hjónin reistu í Garðinum á sjötta
áratugnum. Siggi hefur einnig
séð á eftir tveimur sonum sínum.
En það er alltaf stutt í hlátur-
inn og sú mikla kímnigáfa sem
Siggi hefur á sennilega stóran
þátt í langlífi hans og góðri
heilsu. „Til hvers að vera að
barma sér,“ segir hann, „það er
enginn ávinningur í því.“ Og þeg-
ar Siggi er spurður að því hvern-
ig hann eyðir dögunum er ljóst
að hann er fullur af lífsorku og
lífsgleði. „Ég fer í gönguferðir
hérna um nágrennið, skrepp í
búðina og snyrti garðinn minn.
Ég fer líka mikið til Sandgerðis,
á höfnina, og ræði við sjómennina
þar. Þaðan reri ég lengst af þeg-
ar ég var á sjónum og ég hef
gaman af því að spjalla við menn
með sömu reynslu og ég. Stund-
um skrepp ég lengra. Ég fæ allt-
af bílprófið endurnýjað, enda er
ég ákaflega vel á mig kominn lík-
amlega, nokkuð liðugur ennþá og
viðbragðsfljótur þannig að ég
kemst allra minna ferða. Það er
bara heyrnin sem farin er að bila.
Ég les mikið og hef einnig ákaf-
lega gaman af að elda þó ég sé
einn og er bara nokkuð nýj-
ungagjarn í eldhúsinu.“
Með þessum orðum er blaða-
manni boðið í eldhúsið þar sem
heitt brauð bíður á skurðarbrett-
inu og nýlagað kaffi á könnunni.
Enginn ávinningur í því
að vera að barma sér
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Sigurður Hallmannsson eyðir mörgum stundum í að snyrta og halda við
garðinum sínum. Hann les einnig mikið og dundar sér í eldhúsinu.
Garður
STJÓRN Sparisjóðsins í Keflavík
hefur ákveðið að kæra fyrrver-
andi stjórnarformann kælivéla-
framleiðandans Thermo Plus í
Reykjanesbæ til lögreglu fyrir
rangar sakargiftir og tilraun til
fjárkúgunar og vísað vinnubrögð-
um blaðamanns DV til siðanefnd-
ar Blaðamannafélags Íslands.
Í fréttatilkynningu Sparisjóðs-
ins er sagt frá því að í desember
síðastliðnum hafi Sparisjóðurinn
höfðað mál gegn Ragnari Sig-
urðssyni og fleirum vegna
ábyrgðar þeirra á skuldabréfi að
fjárhæð 4,5 milljónir kr. Eftir
það hafi Ragnar leitast við að
koma höggi á Sparisjóðinn með
óréttmætum svívirðilegum ásök-
unum til lögreglu og Fjármála-
eftirlits um skjalafals, umboðs-
svik, fjársvik og veðsvik sem eigi
að hafa átt sér stað innan sjóðs-
ins í tengslum við meðferð hluta-
bréfa í Thermo Plus. Segir að all-
ar þessar ásakanir séu
tilhæfulausar og fráleitar. Síðasta
útspil Ragnars hafi verið að
krefjast þess að Fjármálaeftirlit-
ið svipti Sparisjóðinn í Keflavík
starfsleyfi á meðan lögregla
rannsakaði kærur hans þótt eng-
in slík rannsókn stæði yfir. Fram
kemur í tilkynningunni að Fjár-
málaeftirlitið hafnaði kröfu
Ragnars um sviptingu starfsleyf-
is og Ríkislögreglustjóri aðhafð-
ist ekkert vegna kæru Ragnars
þangað.
Í fréttatilkynningunni kemur
fram að fréttir voru ítrekað birt-
ar í DV eins og um væri að ræða
raunverulegt og alvarlegt saka-
mál en ekki hugarfóstur eins
manns. Einnig er vikið að frétta-
flutningi blaðsins af kynningar-
fundi Sparisjóðsins í síðustu viku
og talað um skáldskap í því sam-
bandi.
„Vegna þeirrar ófrægingarher-
ferðar sem rekin hefur verið op-
inberlega með óskiljanlegum
atbeina DV hefur stjórn Spari-
sjóðsins í Keflavík ákveðið að
kæra Ragnar Sigurðsson til lög-
reglu fyrir rangar sakargiftir og
tilraun til fjárkúgunar. Jafnframt
hefur vinnubrögðum blaðamanns
DV verið vísað til Siðanefndar
Blaðamannafélagsins og í fram-
haldi af því verður tekin ákvörð-
un um höfðun meiðyrðamála
gegn viðkomandi blaðamanni og
heimildarmanni hans,“ segir í til-
kynningu Sparisjóðsins frá því í
gær.
Eftirmál gjaldþrots Thermo Plus
Kæra fyrrverandi
stjórnarformann fyrir
rangar sakargiftir
Keflavík
Gjaldskrá
hitaveitunn-
ar hækkar
um 3%
Reykjanes
GJALDSKRÁ Hitaveitu Suðurnesja
hf. hækkar um 3% frá 1. ágúst næst-
komandi. Hækkunin nær til sölu á
rafmagni og heitu vatni á orkuveitu-
svæðinu sem er Suðurnes, suður-
hluti höfuðborgarsvæðisins og Vest-
mannaeyjar.
Landsvirkjun tilkynnti 3% hækk-
un gjaldskrár á rafmagni frá 1. ágúst
og í framhaldi af því samþykkti
stjórn Hitaveitunnar tillögu for-
stjóra um sömu hækkun gjaldskrár.
Ástæðan er fyrst og fremst nauð-
syn þess að halda í við verðlags-
hækkanir, að því er fram kemur hjá
Júlíusi Jónssyni forstjóra í Frétta-
veitunni, fréttabréfi Hitaveitu Suð-
urnesja. Vekur hann athygli á því að
5–6% hækkun sem kom til fram-
kvæmda í september sl. hafi verið
talsvert undir verðlagshækkunum,
sem hafi verið 8,6% frá áramótum,
og vísitala neysluverðs hafi nú þegar
hækkað um 1,5%. Segir Júlíus að
þótt gjaldskrárhækkun Landsvirkj-
unar hafi ein og sér ekki umtalsverð
áhrif á rekstur HS þá sé ljóst að
sömu undirliggjandi forsendur séu
hjá Hitaveitunni fyrir hækkun og hjá
Landsvirkjun. Loks getur hann þess
að við gerð fjárhagsáætlunar hafi
verið miðað við að gjaldskráin hækk-
aði um 4% um mitt ár og sé sú hækk-
un sem ákveðin hefur verið því minni
en gert var ráð fyrir.