Morgunblaðið - 25.06.2002, Síða 15
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 15
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
-
IT
M
90
16
Heilir
sturtuklefar
í horn
með öryggisgleri og
segullæsingu.
Innifalið í verði:
sturtubotn með
vatnslás,
blöndunartæki með
sturtusetti.
Tilboðsverð kantaðir:
70x70 cm kr. 48.950,- stgr
80x80 cm kr. 50.250,- stgr
Tilboðsverð rúnnaðir:
80x80 cm kr. 65.780,- stgr
90x90 cm kr. 67.450,- stgr
Baðkars-
sturtuhlífar
úr öryggis-
gleri
Verð frá:
14.900,-
Handlaugar í borð
Verð frá 8.950,- stgr
Handlaugar á vegg
Verð frá 3.950,- stgr
WC með stút
í vegg eða
gólf
Með setu-
festingum
Tvöföld
skolun
Verð frá
17.250,- stgr
Inn-
byggingar
WC
Verð sett
með öllu
kr. 43.800,-
stgr
E ldhússtá lvaskar í úrval i
sumartilboðDÚNDUR
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Ný vefsíða: www.i-t.is
Baðkör
Stærðir
160x70,
170x70,
160x75 form. m. handföngum
170x75 form. m. handföngum
170x83 form. m. handföngum
180x83 form. m. handföngum
Verð frá 12.350,- stgr.
Opið:
Mán - fös 9-18
Lau 10-14
Verð frá
7.350,- stgr
AÐ venju var haldin sýning á
munum og vinnu nemenda Höfða-
skóla kringum skólaslitin nú í vor.
Að þessu sinni var sýningin með
óhefðbundnum hætti því auk
mynda og muna úr tré, járni, leir
og gifsi var leiksýning með döns-
um, söng og upplestri og Ólafur
Haukur Símonarson rithöfundur
las upp.
Skólasýningin var opnuð laug-
ardaginn fyrir sjómannadag og var
hún síðan einnig opin á sjómanna-
daginn meðan kaffisala fór fram í
skólanum á vegum björgunarsveit-
arinnar.
Við opnun sýningarinnar las
Ólafur Haukur Símonarson kafla
úr bók sinni Fólkið í blokkinni, en
krakkarnir í 3., 4., og 5. bekk
sýndu síðan leikrit byggt á bók-
inni. Það var með söngvum, dansi
og leik unnið af bekkjunum þrem-
ur undir stjórn kennaranna sinna.
Krakkarnir í fjórða bekk hafa ver-
ið að lesa bókina í vetur og verið í
tölvusamskiptum við Ólaf Hauk,
sem hefur jafnóðum svarað spurn-
ingum þeirra og vangaveltum sem
vaknað hafa við lesturinn. Var al-
menn ánægja með skemmtilega
sýningu hjá krökkunum en fullt
var út úr dyrum í félagsheimilinu
meðan hún stóð yfir.
Að leiksýningunni lokinni fóru
gestir í skólann og skoðuðu annað
það sem boðið var upp á af verkum
nemenda. Þar bauð matarhópur
nemenda fólki að smakka smárétti
og nýbakað brauð við miklar vin-
sældir. Nýgerð vídeó-stuttmynd
nemenda var sýnd nokkrum sinn-
um og vakti hún mikla athygli þótt
hún hafi verið umdeild, eins og
mörg góð listaverk eru. Sú ný-
breytni var einnig að þessu sinni
að krakkarnir í skólanum kynntu
verk sín fyrir sýningargestum og
sátu fyrir svörum ef einhverjar
spurningar vöknuðu hjá fólki.
Vel heppnuð
sýning í skólanum
Skagaströnd
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
RAUÐI krossinn afhenti nýlega
Sambýlinu í Pálsgarði á Húsavík
sérhannaðan hnakk fyrir fatlaða
og fór afhendingin fram í Hesta-
miðstöðinni í Saltvík.
Hnakkur þessi sem nefnist Seif-
ur á sér nokkuð langa sögu en
það var Guðrún Fjeldsted sem
lengi hafði boðið fötluðu fólki á
hestbak sem kom að máli við Er-
lend Sigurðsson söðlasmið og
spurði hvort ekki væri hægt að
hanna hnakk þannig að fatlaðir
gætu setið hest einir. Útkoman er
hnakkur með sérútbúið bak og á
því eru ólar sem eru spenntar ut-
an um einstaklinginn svo hann
fær þann besta stuðning sem
hægt er að veita. Þetta hefur
komið sér mjög vel fyrir þjálfara
og gjörbreytt möguleikum fatl-
aðra til þess að stunda hesta-
mennsku.
Margt fólk var samankomið í
Hestamiðstöðinni þegar afhend-
ingin fór fram enda var hnakk-
urinn prófaður strax og reyndist
mjög vel. Það var Guðjón Ingva-
son hjá Rauðakrossinum sem af-
henti gripinn og Erlendur söðla-
smiður var mættur á staðinn til
þess að leiðbeina fólkinu. Mjög
almenn ánægja ríkir hjá fötluðum
með framtak þetta.
Hnakkur fyrir fatlaða
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Bjarni Ólafsson knapi ánægður í nýja hnakknum ásamt Bjarna Páli Vil-
hjálmssyni Hestamiðstöðinni í Saltvík, Guðjóni Ingvasyni frá Rauða-
krossinum og Erlendi Sigurðssyni söðlasmið.
Laxamýri
EINS og víða annars staðar á
landinu blés köldu að norðan í
Skagafirði á þjóðhátíðardaginn, en
á þrem stöðum var efnt til hátíð-
arhalda, á Sauðárkróki, á Hofsósi
og í Varmahlíð. Hins vegar virðast
Skagfirðingar svo sem aðrir lands-
byggðarmenn hafa sloppið við all-
ar kaldar kveðjur til Fjallkonunn-
ar og önnur mótmæli, sem nú
virðast stunduð af kappi sums
staðar á landinu. Á Sauðárkróki
voru hátíðarhöldin í umsjá Ung-
mennafélagsins Tindastóls og
Skátafélagsins Eilífsbúaa, og var
dagskráin flutt inn í íþróttahúsið
vegna veðurs, á Hofsósi Íbúasam-
takanna Út að austan þar sem
dagskrá fór fram á svæðinu við
Grunnskólann og í Varmahlíð
Ungmennafélagsins Smára, en sú
dagskrá fór fram á íþróttasvæði
félagsins við Reykjarhól. Á öllum
stöðunum var hefðbundin þjóðhá-
tíðardagskrá með ávörpum og
ræðum en að venju var meginhluti
dagskrár helgaður yngstu kynslóð-
inni þar sem fram fóru leikir og
ýmislegt annað sem skemmtilegt
er. Á Sauðárkróki voru skátarnir
með Tívolí á Flæðunum, en á
Hofsósi komu leynigestir sem voru
jólasveinarnir Bjúgnakrækir og
Gáttaþefur á leið í sumarparadís
jólasveinanna í Málmey og færðu
þeir öllum krökkunum íslenska
fánann og tóku þátt í og stjórnuðu
leikjum af mikilli röggsemi. Á öll-
um stöðunum tóku hestamenn
virkan þátt í hátíðarhöldunum og
fengu allir krakkar sem vildu að
komast á hestbak og öllum hátíð-
arhöldunum lauk með grillveislum.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Bjúgnakrækir og Gáttaþefur
brugðu á leik á Hofsósi.
Kalt í
Skagafirði
Skagafjörður
FLJÓTSDALSHÉRAÐ er gjarn-
an rómað fyrir veðurblíðu, en held-
ur hefur þó verið kalsasamt á Hér-
aðsbúum undanfarna daga. Tók
steininn úr 17. júní þegar rigndi
eins og hellt væri úr fötu mest-
allan daginn og gekk á með hvöss-
um stormhviðum.
Eyvindará, sem er nokkurs kon-
ar bæjarlækur Egilsstaðabúa, var
undir kvöldið orðin mórauð mjög
og úfin og hafði vatnsborð hækkað
vel á þriðja metra í þrengingum
Eyvindarárgilsins.
Veðurhorfur næstu daga eru
fremur ókræsilegar, en heima-
menn vita sem er, að þegar sum-
arið kemur loks á Fljótsdalshérað,
fylgir því besta veður sem hugsast
getur.
Morgunblaðið/Steinunn
Vatnsborð Eyvindarárinnar hækkaði
á þriðja metra í miklum rigningum
Hryssingslegur þjóðhá-
tíðardagur á Héraði
Egilsstaðir