Morgunblaðið - 25.06.2002, Page 18

Morgunblaðið - 25.06.2002, Page 18
NEYTENDUR 18 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 11 - TIL LEIGU Til leigu er 3. hæðin í þessu fallega, vel staðsetta og vel þekkta húsi á Skólavörðustíg 11. Hæðin er 325 fm en mögulegt er að leigja hana út í smærri einingum. Góð skrifstofuhæð með fjölbreytta nýtingarmöguleika. Í dag er hæðin innréttuð með stórum opnum rýmum en mögulegt er að aðlaga hæðina að einhverju leyti eftir þörfum leigjenda. Lyfta. Frá hæðinni er mjög fallegt útsýni. Hæðin er laus nú þegar. Upplýsingar gefur Brynjar Harðarson á skrifstofu Húsakaupa eða í síma 896 2299. VÍSITALA lyfjaverðs hækkaði um 18,2% á síðasta ári meðan vísitala neysluverðs hækkaði um 5,9% á sama tíma. Vísitala lyfjaverðs stóð í 100,2 stigum í byrjun apríl og í 102,5 stigum í byrjun maí og er hún miðuð við hlut sjúklinga í lyfjaverði. Hagstofan hefur reiknað út 9,3% hækkun á lyfjaverði frá áramótum og 13. apríl síðastliðinn var haft eftir Gylfa Arnbjörnssyni, framkvæmda- stjóra ASÍ, í Morgunblaðinu að breyting á niðurgreiðslum Trygg- ingastofnunar ríkisins á lyfjum, sem gerð var um síðastliðin áramót, skýri hækkunina ekki að öllu leyti. Krón- an hafi styrkst verulega á tímabilinu og álykta megi að álagning lyfja- verslana hafi hækkað um 4–5%. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, sagði síðan í Morgunblaðinu 13. júní síðastliðinn að hækkun á verði lyfja frá því í nóvember á síðasta ári væri um 15%. ASÍ hefur jafnframt metið það svo að breytingar á greiðsluþátt- töku Tryggingastofnunar í lyfjaverði hafi hækkað hlut sjúklinga að með- altali um 10%. Samtök verslunar og þjónustu, sem lyfjaverslanir eiga aðild að, hafa sett saman greinargerð fyrir Morg- unblaðið vegna umræðna um þátt lyfsala og stjórnvalda í hækkun lyfjaverðs að undanförnu. „Eftir að vísitala neysluverðs í júníbyrjun 2002 lá fyrir komu fram opinberlega athugasemdir frá ASÍ varðandi hækkun á verði lyfja, ann- ars vegar í maí 2002 um 1,1% og hins vegar frá nóvember 2001 til júní 2002 um 15%. Viðurkennt var að rík- ið hefði dregið úr greiðsluþátttöku sinni um síðastliðin áramót sem hefði áhrif til hækkunar á lyfjaverði en samt var óskað eftir skýringum á þessari hækkun. SVÞ fagna því að fá tækifæri til þess að útskýra ástæður fyrir hækkuðu lyfjaverði á síðustu mánuðum og árum. Til þess að gera sér grein fyrir þróun lyfjaverðs verður að líta yfir lengra tímabil,“ segir í greinargerð frá samtökunum. Dæmi um 42–91% hærri há- marksgreiðslu 2002 en 1998 Tímabilið sem til skoðunar er nær frá desember 1998 til júní 2002 og hafa lyfsalar tekið dæmi um þróun verðs á þremur lyfjum á þessu tíma- bili, að beiðni Morgunblaðsins. Um er að ræða algengt þvagræsilyf, al- gengt geðlyf og algengt magalyf þar sem heildargreiðsla sjúklings er tek- in saman á fyrrnefndu þriggja og hálfs árs tímabili. Samkvæmt út- reikningum þeirra hefur heildar- greiðsla sjúklings fyrir þvagræsilyf- ið sem tekið er sem dæmi hækkað um 42%, heildargreiðsla sjúklings fyrir geðlyfið sem til dæmis er um 91% og heildargreiðsla sjúklings fyrir magalyfið um 50%, svo sem gerð er grein fyrir í töflu hér á síð- unni. Um er að ræða bæði B-merkt og E-merkt lyf. B-merkt lyf eru nauð- synleg lyf sem Tryggingastofnun greiðir að drjúgum hluta, E-merkt lyf eru greidd að einhverju leyti af Tryggingastofnun. Ekki er tekið til- lit til afslátta apóteka í þessum út- reikningum. „Ef vísitala lyfjaverðs er skoðuð fyrir sama tímabil kemur í ljós að hækkunin nam aðeins 34,3%, því er ljóst að apótekin hafi í gegnum tíð- ina tekið á sig lækkanir á greiðslu- þátttöku ríkisins í stað þess að fleyta þeim út í verðlagið. Nú er hins vegar svo komið að apótek hafa ekki leng- ur svigrúm til að taka á sig minnk- andi þátttöku ríkisins í lyfjakostnaði og því hafa tvær síðustu aðgerðir ríkisins til lækkunar á greiðsluþátt- töku farið beint út í verðlagið. Hinn 1. janúar síðastliðinn tók gildi reglu- gerð um breytingu á greiðslum al- mannatrygginga í lyfjakostnaði þar sem ríkið dró úr sinni þátttöku. Gólf og þak á greiðsluþátttökulyfjum (E- og B-merktum lyfjum), það er það lágmark og hámark sem sjúklingur greiðir, var hækkað um allt að 11%. Þetta hafði í raun í mörgum tilvikum í för með sér meiri hækkun til sjúk- lings en sem því nemur. Sem dæmi var hámarksgreiðsla fyrir B-merkt lyf fyrir lífeyrisþega 950 krónur í nóvember síðastliðnum en 1.050 krónur í janúar. Sá afsláttur sem apótekin veita í krónutölu frá há- marksverði hefur ekki breyst og því hefur verðið til neytanda hækkað umfram 11%. Eftirfarandi dæmi út- skýrir þetta betur. B-merkt lyf fyrir lífeyrisþega nóv. ’01 jan. ’02 breyt- ing Hámarksgreiðsla sjúklings (þak) 950 1.050 11% Afsláttur apóteks 300 300 Verð til sjúklings 650 750 15% Hinn 1. apríl síðastliðinn tók gildi ný smásöluálagning þar sem lyfjaverð- snefnd ákvað að lækka álagningu á dýrari lyfjum. Áætla má að þessi að- gerð hafi leitt til um það bil 1% hækkunar á lyfjaverði,“ segir enn- fremur en hér er átt við það að með ákvörðun um lægri álagningu minnki svigrúm lyfjaverslana til þess að gefa afslátt, sem leiði til hærra verðs til sjúklings. „Hækkun lyfja um 1,1% í maí 2002, samanber vísitölu neysluverðs, kemur einkum til vegna þess að til- tekið lausasölulyf sem hefur töluvert vægi í vísitölunni var selt með um 35% afslætti í apríl en sá afsláttur var ekki veittur í maí. Um var að ræða tímabundið tilboð á umræddu lyfi í öllum apótekum. Einnig skal hér bent á að álagn- ingarreglur í smásölu sem lyfjaverð- snefnd ákveður breyttust ekki frá 1. janúar 1997 til 1. apríl síðastliðins, þegar álagning var lækkuð eins og áður sagði. Álagningin er byggð á prósentuhækkun og fastri krónutölu og miðuð við tiltekið innkaupsverð,“ segir jafnframt. Bent er á að fasta krónutalan sem heimiluð er til álagningar hafi ekki verið uppfærð á þessu tímabili, sem líka leiði til minna svigrúms fyrir af- slátt handa sjúklingum, eins og lægri álagningarprósenta sem ákvörðuð var 1. apríl og fyrr er get- ið. „Vísitala neysluverðs hinn 1. jan- úar 1997 var 177,80 stig en 222,8 stig hinn 1. júní 2002, sem er hækkun um 25,3%. Þar sem fasta krónutalan er ekki tengd vísitölu samsvarar þessi breyting 8–13% lækkun á álagningu lyfja sem eru dýrari en 1.000 krónur í heildsölu,“ segir í greinargerð. Einnig er bent á að á sama tíma hafi rekstrarkostnaður aukist. „Þannig hefur launavísitala til að mynda hækkað úr 148,8 stigum í 225,8 stig, eða um 51,7%,“ segja Samtök verslunar og þjónustu í greinargerð sinni um þróun lyfja- verðs.                         !"       #              !"##" $%   &' $ ()%&* $"  $% &+*   &$ & ')&( %#   &'   (   !& &( "   )                *    !"       #              !"##" **% *  ,* $ ,) %#*  **% &+* *  ,'& & ()&,( $#*%   $                       !"       #              !"##" (&% * ( ,' $ (),'$* $$##+  (&% &+* & $ '(* & ')' ,-#+   +     -.         .  &( /   0 &   !  !"       #        1    $   )      (  & 1  & ( ,&      & ( ,% !"       #        1    &*         (  &, 1  & ' %      & ' %$  0 2 0 & !          Segjast ekki geta tekið á sig fleiri lækkanir Lyfjaverslanir gera grein fyrir hækkunum á lyfjaverði und- anfarin misseri LANDSBANKINN og Búnaðar- bankinn taka 430 krónur í seðilgjöld vegna skuldabréfa, samkvæmt könnun Neytendasamtakanna, sem greint er frá á heimasíðu þeirra. Næst á eftir koma Búnaðarbanki og Íslandsbanki með 410 krónur í seð- ilgjöld vegna skuldabréfa. Sama gjald er 275 krónur hjá Sjóva-Al- mennum, Tryggingamiðstöðinni og VÍS. Neytendasamtökin segja að ein- staklingur sem greiðir af þremur bankalánum og bílaláni og borgar hefðbundna reikninga fyrir síma, rafmagn, hita, námslán og svo fram- vegis geti verið að greiða 20-30.000 krónur á ári í seðilgjöld. Fram kemur að í fæstum tilfell- um sé hægt að sleppa við tilkynn- ingar- og greiðslugjöld en oft sé hægt að lækka kostnað við þau verulega. Beingreiðslur, boðgreiðslur og netskil ódýrari kostur Beingreiðslur séu til að mynda mun ódýrari kostur en að borga reikninga hjá gjaldkera eða í heima- banka á Netinu. „Með bein- greiðslum er reikningurinn skuld- færður beint af bankareikningi. Í einhverjum tilfellum falla seðilgjöld alveg niður sé notast við bein- greiðslur. Stundum lækka tilkynn- ingar- og greiðslugjöld þegar reikn- ingar eru greiddir með boðgreiðslum og einnig ef notast er við greiðsluþjónustu bankanna. Netskil eru leið til þess að borga reikninga á rafrænan hátt. Reikn- ingarnir eru þá á rafrænu formi og ekki sendir heim heldur fer maður á Netið og getur skoðað eða greitt reikningana þar. Með þessu lækkar kostnaður við tilkynningar og greiðslugjöld, eða jafnvel hverfur. Nánari upplýsingar um þessa greiðsluaðferð er að finna á www.netskil.is.“ Tilkynningar- og greiðslugjöld verði sýnileg í gjaldskrá Einnig segir í könnun Neytenda- samtakanna að nokkur fyrirtæki taki engin tilkynningar- og greiðslu- gjöld því kostnaður sem því fylgi sé reiknaður inn í rekstrarkostnað fyr- irtækjanna. Ekkert mæli gegn því í lagalegum skilningi að fyrirtæki innheimti tilkynningar- og greiðslu- gjöld. „Þessi gjöld gera ekki auð- veldara fyrir neytendur að bera saman ólík tilboð, því væri kostur fyrir neytendur ef tilkynningar- og greiðslugjöld væru innifalin í gjald- skrá fyrirtækja, rétt eins og allur annar kostnaður sem til fellur,“ segja Neytendasamtökin. Tekið er dæmi um bílalán upp á 366.000 krónur þar sem kostnaður við tilkynningar- og greiðslugjöld vegna 36 greiðslna er 9.900 krónur. Kostnaður við lánið samtals er 109.421 og mæla samtökin með því að lántakendur inni lánveitandann eftir „árlegri hlutfallstölu kostnað- ar“ þegar þeir kynna sér kjör mis- munandi lánastofnana. Tugir þúsunda í seðil- gjöld á ári Morgunblaðið/Ásdís Fjöldi stofnana innheimtir seð- ilgjald vegna reikninga. GASA hefur tekið til inn- flutnings nýja sumarilmi frá Carolinu Her- rera fyrir dömur og herra. Ilmirn- ir eru merktir 212 og nefnast On Ice, að því er segir í tilkynningu. Umbúð- irnar mynda jafnframt tvo ísmola og má nýta undir hvaðeina sem manni dettur í hug. Hugmyndin bakvið nafngiftina er „svalandi gustur í sumarhita, þegar brennandi loga- geislar hvíla á kinnum og svíður í ilj- ar undan sólvermdu malbiki“. NÝTT Ískaldur sumarilmur ÞING Neytendasamtakanna 2002 verður haldið 27.–28. september næstkomandi. Þing samtakanna er æðsta vald í málefnum þeirra og verður það haldið í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni). Þingið hefst föstudaginn 27. september klukkan 13.30 og samkvæmt lögum samtak- anna geta allir skuldlausir félagar samtakanna verið fulltrúar á þinginu, enda tilkynni þeir þátttöku með að minnsta kosti viku fyrirvara. Stjórn Neytendasamtakanna hvetur áhugasama félagsmenn til þess að tilkynna þátttöku sem fyrst, að því er segir í tilkynningu frá samtökun- um á www.ns.is. Hægt er að skrá sig á skrifstofum samtakanna. Neytendasam- tökin þinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.