Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 19

Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 19 FJÖLDI borgar- og bæjarstjóra í Kólumbíu hefur sagt af sér að und- anförnu eftir hótanir marxísku skæruliðasamtakanna FARC, sem segjast munu lífláta þá, segi þeir ekki af sér. Skæruliðarnir eru sagðir hafa haft uppi slíkar hótanir við borgar- og bæjaryfirvöld í fylkjum vítt og breitt um landið og segir um- boðsmaður mannréttindamála í Kól- umbíu, Eduardo Cifuentes, að hót- anirnar nú séu þær verstu sem FARC hafi nokkru sinni haft uppi í Kólumbíu. Hefur hann biðlað til rík- isstjórnar landsins að íhuga að af- nema tímabundið ákveðin stjórnar- skrárbundin réttindi þar sem nú ríki „uppnámsástand“ í landinu, en hér- aðsyfirvöld standa víða tæpt vegna hótana FARC. Í Santander-fylki í mið-norður- hluta Kólumbíu hefur yfirmaður lög- reglu farið þess á leit við borgar- og bæjarstjóra að þeir hunsi hótanir FARC og segi störfum sínum ekki lausum, og í Antioquia-fylki hefur starfandi fylkisstjóri, Eugenio Prieto, lýst því yfir að skoðað verði hvort fjöldauppsagnir 23 borgar- stjóra innan marka fylkisins, sem sögðu störfum sínum lausum á sunnudag, verði teknar gildar. Prieto sagði málið erfitt þar sem líf viðkomandi borgarstjóra sé í hættu, en það sé stjórn svæðisins einnig. Prieto er staðgengill kjörins ríkis- stjóra Antioquia sem rænt var af skæruliðum FARC í apríl síðastliðn- um þar sem hann fór fyrir friðar- göngu. Fulltrúi innanríkisráðuneytis Kól- umbíu hvatti þá héraðsoddvita sem hótað hefur verið af FARC til að láta ekki undan kröfum skæruliðanna og hefur ríkisstjórnin boðið þeim sem hótað hefur verið auknar öryggis- ráðstafanir, þar á meðal skothelda bíla og háþróaðan samskiptabúnað, en ýmsir þeirra sem orðið hafa fyrir hótunum telja þessar ráðstafanir ekki fullnægjandi. Héraðsoddvitar, sem ógnað hefur verið af skæruliðum FARC, eru margir hverjir í erfiðri stöðu. Þeir eiga á hættu að verða drepnir segi þeir ekki af sér, og sumir einnig þrátt fyrir afsögn. Í Arauca-fylki í austurhluta Kólumbíu eru hersveitir af hægri vængnum sem barist hafa gegn skæruliðum FARC, sagðar hafa varað borgar- og bæjarstjóra við því að segi þeir af sér, verði þeir „yfirlýst skotmörk“ hersveitanna. Skæruliðar í Kólumbíu hóta embættismönnum Líflátnir, láti þeir ekki af störfum Bogota, Kólumbía, AP KJELL Magne Bondevik, forsætis- ráðherra Noregs, setti í gær þriggja daga ráðstefnu Alþjóðabankans um fátækt í heiminum. Lögreglan í Ósló hefur gripið til umfangsmikilla ráð- stafana til að bregðast við mótmæl- um ýmissa hópa og voru rúmlega þúsund sérsveitarmenn við öllu bún- ir. Talsmenn mótmælahópanna gerðu ráð fyrir að 5.000–7.000 manns myndu taka þátt í útifundi síðdegis í gær í miðborginni sem er í um sjö kílómetra fjarlægð frá Hol- menkollen-hótelinu þar sem ráð- stefnan er haldin. Um 300 manns taka þátt í ráðstefnunni þar sem m.a. verður fjallað um milliríkjavið- skipti, þróunaraðstoð og baráttu gegn fátækt. Umferð til og frá miðborg Óslóar var undir ströngu eftirliti og bannað að leggja bílum við göturnar. Einnig var ætlunin að stöðva almennings- samgöngur meðan á útifundi mót- mælenda stæði. Þeir saka Alþjóða- bankann um að hlaða skuldaklafa á þróunarlöndin og ráðskast með efnahagsstefnu þeirra. Níu Danir sem voru á leið til Óslóar voru í gær- morgun handteknir vegna gruns um að fólkið ætlaði að skipuleggja „glæpi“ í borginni, að því er sagði í yfirlýsingu lögreglunnar. Einnig voru um tíu manns stöðvaðir við sænsku landamærin og Svíi rekinn úr landi á sunnudag. Norsk stjórn- völd komu aftur upp landamæraeft- irliti á föstudag og er það í fyrsta sinn sem gripið er til slíkra ráðstaf- ana við sænsku landamærin síðan Noregur gerðist aðili að Schengen- samstarfinu við Evrópusambandið en Svíar eru í sambandinu. Bondevik vill jafnræði eins og í knattspyrnunni Bondevik, sem er mikill áhuga- maður um knattspyrnu, vísaði til þess að þátttakendur í heimsmeist- arakeppninni væru látnir leika á sléttum velli, allir yrðu þar að hlíta sömu reglum og dómarar fylgdust með því að ekki væri haft rangt við. Hann sagði að um þróun gegndi öðru máli. „Hinir fátæku eru að mestu útilokaðir. Ekki eru til neinir dómarar sem almennt eru viður- kenndir. Reglurnar eru óljósari og misjafnt hvernig þeim er fylgt eftir. Sumir neita að spila á völlum sem þeim líkar ekki við,“ sagði forsætis- ráðherrann. Stefnu Alþjóðabank- ans mótmælt í Ósló Ósló. AFP, AP. Norska lögreglan með mikinn viðbúnað vegna ráðstefnu bankans um fátækt FERÐAMAÐUR fær sér sturtu í gosbrunni í miðborg Rómar í gær, þar sem hitinn var vel yfir 30 gráðum. Svipað var uppi á teningnum annars staðar á Ítalíu. Í Ungverjalandi var methiti, þar sem mældust 37,4 gráður í gær, og hefur hiti þar ekki mælst hærri á þess- um árstíma í heila öld. Veðurfræðingar spá því að í gær hafi hitabylgjan, sem staðið hefur undanfarið, náð há- marki. AP Kæling í Róm

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.