Morgunblaðið - 25.06.2002, Page 20
ERLENT
20 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
OSAMA bin Laden er á lífi og við góða heilsu,
að því er fram kom í viðtali við mann er kynnt-
ur var sem talsmaður al-Qaeda í hljóðupptöku
sem leikin var í sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera í
Katar um helgina. Talsmaðurinn, Sulaiman
Abu Ghaith, hótaði einnig fleiri hryðjuverkum
í Bandaríkjunum og sagði að al-Qaeda hefði
staðið fyrir árás á samkunduhús gyðinga á
eyjunni Djerba í Túnis í apríl. Nítján manns
létu lífið í tilræðinu, þeirra á meðal fjórtán
þýskir ferðamenn.
Forystumenn repúblikana og demókrata á
þingi Bandaríkjanna sögðu að svo virtist sem
al-Qaeda hefði sótt í sig veðrið síðustu vikur
og vöruðu við því að hryðjuverkasamtökin
gætu gert fleiri árásir hvenær sem er.
„Ég vil fullvissa múslíma um að Osama bin
Laden er við góða heilsu og allar hviksög-
urnar um að hann sé veikur og hafi særst í
Tora Bora [fjallasvæðinu í Afganistan] eru til-
hæfulausar,“ sagði Abu Ghaith, íslamskur
kennari sem fæddist í Kúveit og var sviptur
ríkisborgararétti þar þegar hann kom fram
sem talsmaður al-Qaeda eftir hryðjuverkin í
Bandaríkjunum 11. september.
Abu Ghaith bætti við að bin Laden myndi
koma fram í sjónvarpi á næstunni.
Bin Laden „líklega í
vesturhluta Pakistans“
Stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta
hefur sagt að ekki sé vitað hvort bin Laden sé
á lífi. Bob Graham, formaður leyniþjónustu-
nefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings,
sagði þó á sunnudag að bandaríska leyniþjón-
ustan gengi enn út frá því að bin Laden væri á
lífi og „líklega staddur einhvers staðar í vest-
urhluta Pakistans“ við landamærin að Afgan-
istan. Talsmaður pakistanska hersins útilok-
aði ekki þennan möguleika í gær en sagði að
engar skýrar vísbendingar hefðu komið fram
um að bin Laden væri í Pakistan.
Bandarískir leyniþjónustumenn sögðu að
þeir væru enn að rannsaka hvort röddin í
hljóðupptökunni væri rödd Abus Ghaiths.
Talsmaður Al-Jazeera sagði að sjónvarps-
stöðin væri fullviss um að svo væri eftir að
hafa borið röddina saman
við fyrri upptökur af yf-
irlýsingum al-Qaeda-
mannsins.
Abu Ghaith gat þess að
átta mánuðir væru liðnir
frá því að Bandaríkjamenn hófu hernaðinn í
Afganistan og bendir það til þess að viðtalið
hafi verið tekið upp í júní.
Abu Ghaith sagði að Bandaríkjamönnum
hefði ekki tekist að uppræta al-Qaeda, þvert á
móti hefðu samtökin eflst. „98% leiðtoga al-
Qaeda sluppu ómeiddir og stjórna ennþá
starfseminni,“ sagði hann. Talsmaður Banda-
ríkjahers, Roger King, sagði í gær að ekkert
væri hæft í þessari staðhæfingu og lýsti henni
sem „óskhyggju“.
Talsmaður al-Qaeda fullyrti að leiðtogi tal-
ibana í Afganistan, múlla Omar, og Ayman Al-
Zawahri, hægri hönd bin Ladens, væru á lífi.
Abu Ghaith hótaði einnig „nýjum árásum á
bandarísk skotmörk“ og sagði að stríðið við
Bandaríkin væri rétt að byrja. „Bandaríkja-
menn þurfa að vera viðbúnir og festa á sig
sætisólarnar. Við munum
koma þaðan sem þeir bú-
ast ekki við okkur. Við ætl-
um að gera árásir, en á
réttum tíma, á þeim stað
sem við veljum og með
þeim aðferðum sem við viljum.“
Talsmaðurinn sagði að al-Qaeda hefði
skipulagt hryðjuverkin 11. september,
sprengjuárásirnar á sendiráð Bandaríkjanna
í Kenýa og Tansaníu 1998, árásina á banda-
ríska herskipið Cole í jemensku hafnarborg-
inni Aden og á samkunduhús gyðinga í Túnis.
Síðastnefnda árásin hefði verið gerð „af
manni sem gat ekki horft upp á það að bræður
hans í Palestínu væru drepnir og niðurlægðir
á sama tíma og hann sæi gyðinga ganga um
götur Djerba, skemmta sér og stunda trú-
arathafnir sínar að eigin vild“.
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, varaði
við því á föstudaginn var að sams konar árásir
kynnu að verða gerðar „í Bandaríkjunum og
öðrum löndum, einkum á skóla og samkundu-
hús gyðinga“.
Geta skipulagt fleiri
árásir án bin Ladens
Forystumenn repúblikana og demókrata á
Bandaríkjaþingi sögðu flest benda til þess að
al-Qaeda myndi halda hryðjuverkunum
áfram. Demókratinn Bob Graham, formaður
leyniþjónustunefndar öldungadeildarinnar,
sagði að samtökin hefðu færst í aukana og svo
virtist sem þau væru færari um að gera árásir
á Bandaríkjamenn en fyrir einum eða tveimur
mánuðum.
„Þeir geta gert árásir á Bandaríkjamenn
hvenær sem er,“ sagði Richard Shelby, at-
kvæðamesti repúblikaninn í leyniþjónustu-
nefndinni.
Þingmennirnir skírskotuðu til viðvarana
sem gefnar hafa verið út í Bandaríkjunum síð-
ustu vikur, meðal annars um að hætta væri á
að hryðjuverkamenn beittu eldsneytistank-
bílum til árása á skóla og samkunduhús gyð-
inga.
Hamid Karzai, forseti Afganistans, kvaðst
hins vegar vera fullviss um að stríðið gegn
hryðjuverkastarfsemi al-Qaeda hefði borið
góðan árangur. „Þeir hafa beðið ósigur. . . þeir
eru á flótta,“ sagði hann í viðtali við frétta-
sjónvarpið CNN og bætti við að bin Laden
væri „búinn að vera“.
Bandarískir þingmenn sögðu að al-Qaeda
þyrfti ekki á bin Laden að halda til að skipu-
leggja fleiri hryðjuverk. „Þessi snákur getur
skriðið þótt hann hafi misst höfuðið og við
þurfum að gera okkur fulla grein fyrir því,“
sagði Dick Armey, leiðtogi meirihluta repú-
blikana í fulltrúadeildinni. Hann ráðlagði öll-
um Bandaríkjamönnum að vera sérstaklega á
varðbergi á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna,
4. júlí.
Bandarískir þingmenn telja að samtök bin Ladens hafi sótt í sig veðrið
Segja al-Qaeda
geta gert árásir
hvenær sem er
Talsmaður al-Qaeda segir að bin Laden sé á
lífi og hótar fleiri hryðjuverkum
Doha, Kaíró, Washington. AP, The Washington Post, AFP.
’ Þessi snákur get-ur skriðið þótt hann
hafi misst höfuðið ‘
TALIÐ er að mun færri hafi látist í
jarðskjálftanum sem reið yfir norð-
ur- og norðvesturhluta Írans á laug-
ardag en upphaflegar tölur gáfu til
kynna. Fyrst eftir skjálftann var sagt
að eigi færri en 500 manns hefðu beð-
ið bana og á annað þúsund manns
slasast í skjálftanum. Írönsk stjórn-
völd sögðu í gær um að um 230
manns hefðu farist í skjálftanum og
um 1.300 slasast en talið er að 12.000
manns séu heimilislaus eftir hamfar-
irnar. Matsnefnd á vegum Samein-
uðu þjóðanna sem fór á skjálftaslóð-
irnar á sunnudag taldi að mörg
hundruð manns hefðu farist og allt að
4.000 slasast í skjálftanum.
Mohammed Khatami, forseti Ír-
ans, heldur til skjálftasvæðanna í dag
en að sögn forsetaskrifstofunnar er
markmið ferðarinnar að meta
skemmdir eftir skjálftann og hug-
hreysta fórnarlömb hans. Alþjóða-
samfélagið, þar á meðal Bandaríkin,
sem hafa engin diplómatísk sam-
skipti haft við stjórnvöld í Teheran
frá því í íslömsku byltingunni 1979,
hafa sent Írönum samúðarskeyti og
boð um fjárhagslega og efnislega að-
stoð. Talsmaður íranska utanríkis-
ráðuneytisins, Hamid-Reza Asefi,
tók, að sögn íranska ríkisútvarpsins,
vel í boð Bandaríkjamanna. „Hið ísl-
amska Íran hefur ekki beðið neitt
land um hjálp en í aðstæðum sem
þessum bjóða önnur lönd aðstoð til að
sýna samúð sína og við munum
þekkjast þetta boð,“ sagði Asefi.
Skjálftinn á laugardag virtist
koma stjórnvöldum í opna skjöldu,
þrátt fyrir að Íran sé á einu mesta
jarðskjálftasvæði í heiminum og við-
varanir um stóra skjálfta algengar.
Um sólarhring tók að koma neyðar-
aðstoð til sumra fórnarlamba og urðu
mótmæli víða vegna seinagangsins.
Auk getuleysis stjórnvalda til að
bregðast við ástandi eins og því sem
skapaðist eftir skjálftana á laugar-
dag er ljóst að þorpin á skjálftasvæð-
unum eru veikbyggð og því illa búin
undir náttúruhamfarir, en skjálftinn
á laugardag mældist 6,3 á Richter.
Byggingum á stöðum eins og Bou-
ynzahra, sem var í miðju skjálftans,
er komið upp af íbúunum sjálfum án
nokkurs eftirlits og eru veggir þeirra
reistir án þess að grunnur sé fyrir
hendi en Bouynzahra var áður lögð í
rúst í jarðskjálfta árið 1962.
Færri fórust í skjálftan-
um í Íran en óttast var
Reuters
ÍRÖNSK fjölskylda reyndi í gær að bjarga því sem bjargað varð úr rústum heimilis síns.
Teheran, Bouynzahra, AFP.
HJÁLPARSTARFSMENN í suður-
hluta Rússlands sögðu í gær að reynt
yrði að veita fólki í Kákasushéraðinu
Tsjetsjníu aðstoð en mikil rigning
hefur valdið geysilegum flóðum víða í
suðurhluta Rússlands síðustu daga.
Vitað er að minnst 53 hafa látið lífið og
vatnsflaumurinn hefur sópað burt um
70 bæjum og þorpum. Um 45.000 hús
hafa skemmst af völdum hamfaranna,
þar af eru 1.200 ónýt. Víða eru fjalla-
héruð í Kákasus algerlega einangruð
vegna þess að vegir eru horfnir, eink-
um er ástand í samgöngumálum
slæmt í Ingúsetíu.
Fólk í Tsjetsjníu telur að flóðin séu
hin verstu síðan 1937. Tugþúsundir
rússneskra hermanna hafa undanfar-
in þrjú ár barist við uppreisnarmenn
múslíma í héraðinu og hefur mann-
tjón og skemmdir á húsum og öðrum
eignum verið svo mikið að efnahagur
héraðsins er í rúst. Margir herflokka
Rússa munu nú vera einangraðir í
fjöllunum vegna flóðanna.
Ráðherra bráðahjálpar í Moskvu,
Sergei Shoigu, sagði í gær að veður-
far hefði nú tekið stakkaskiptum og
myndi það auðvelda mjög hjálpar-
starfið. Vatnsborð lækkaði um 70
sentimetra í borginni Kíslíjar í hér-
aðinu Dagestan en á sunnudag
reyndu borgarbúar í örvæntingu að
reisa varnargarða úr mold. Um þriðj-
ungur Dagestans hefur verið undir
vatni í nokkra daga, rafmagns- og
símalínustaurar hafa fallið og mörg
hundruð hektarar af akurlendi hafa
stórskemmst.
Ættingjar fórnarlambanna hafa
gagnrýnt stjórnvöld fyrir að bregðast
of seint við og Shoigu tók undir gagn-
rýnina. „Við hefðum getað komið í
veg fyrir hluta af manntjóninu ef
kerfið hefði allt virkað vel, ég get
nefnt fyrst veðurstofurnar,“ sagði
hann. Sérlegur sendimaður Vladímírs
Pútíns Rússlandsforseta í Suður-
Rússlandi, Viktor Kazantsev, gagn-
rýndi embættismenn í umræddum
héruðum harkalega á sunnudag fyrir
sleifarlag en dró nokkuð í land í gær
og hvatti til þess að menn einbeittu
sér að því að hreinsa til eftir hamfar-
irnar.
Tugir manna
fórust í flóðum
í Rússlandi
Embættismenn gagnrýndir fyrir
að bregðast of seint við
Moskvu. AFP.
GÍFURLEGUR skógareldur nálg-
aðist í gær bæinn Show Low í aust-
urhluta Arizona-ríkis í Bandaríkjun-
um og hafa íbúar bæjarins yfirgefið
hann. Slökkviliðsmenn sögðu það
einungis tímaspursmál hvenær eld-
urinn næði til bæjarins.
Tveir skógareldar, er brunnið
hafa síðan í síðustu viku, náðu saman
á sunnudaginn, og hefur eldurinn
náð yfir um 1.230 ferkílómetra
svæði. Alls hafa um 30 þúsund
manns yfirgefið heimili sín í hálfum
tug bæja á svæðinu. Hátt í 200 hús
hafa þegar eyðilagst í eldinum.
Jim Paxon, talsmaður slökkviliðs-
ins, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að
margir slökkviliðsmannanna, er
berjast við eldinn, hefðu yfir 30 ára
reynslu af baráttu við skógarelda, en
þetta væri „sá stærsti og versti sem
við höfum tekist á við“.
Skógareldur í Arizona
30 þúsund
hafa flúið
Show Low í Arizona. AP.
♦ ♦ ♦