Morgunblaðið - 25.06.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.06.2002, Blaðsíða 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 21 Verð frá kr. 181.000.- SLÁTTUTRAKTORAR 12,5 hp - 17 hp Utanlandsfer›ir fyrir tvo a› andvir›i 90.000 kr. • Gasgrill • Sony DVD- spilarar + 3 DVD-myndir • Sony PlayStation 2 • Tölvuleikir • NOKIA 3310 GSM-símar • Gjafabréf frá Nanoq a› upphæ› 15.ooo kr. Lúxushelgardvöl á Edduhóteli • Hlaupahjól • Línuskautar • Tjöld Engjaflykkni • Bakpokar • GPS-sta›setningartæki • Gönguskrefmælar Vei›istangasett • Nestiskörfur • Geisladiskatöskur • Vasaverkfærasett Skei›klukkur • Áttavitar • Hitabrúsar • Verkfærasett • Fer›tölvutöskur hvort fla› leynist óvæntur gla›ningur í Engjaflykkninu flínu! rt l i t t r l i r í j i í ! fiú sér› strax Vinninga skal vitja hjá Mjólkursamsölunni Bitruhálsi 1, sími 569 2200. Er v inni ngu r í l okin u? Leikurinn stendur frá mi›jum júní 2002 og fram á haust. LEIÐTOGAR Evrópusambands- ríkjanna, ESB, náðu um það sam- komulagi á fundi sínum í Sevilla á Spáni um helgina að stórherða landamæraeftirlit í því skyni að draga úr komu ólöglegra innflytj- enda til ríkjanna. Þeir samþykktu hins vegar ekki að beita refsiað- gerðum gegn þeim þriðja-heims- ríkjum, sem gera ekkert til að halda aftur af fólksflutningunum. Leið- togarnir staðfestu einnig fyrri áætl- un um að fjölga aðildarríkjunum um 10 en áhyggjur ýmissa, ekki síst Þjóðverja, af kostnaðinum við stækkunina vörpuðu nokkrum skugga á fundinn. „Við verðum að berjast gegn ólöglegum flutningi fólks til sam- bandsins og þá ekki síður glæpa- samtökunum, sem skipuleggja hann,“ sagði Jose Maria Aznar, for- sætisráðherra Spánar, en Spánverj- ar láta formennskuna í ESB af hendi við Dani 1. júlí næstkomandi. Spánverjar og Bretar lögðu til, að þau ríki, sem ekkert gerðu til að uppræta glæpaflokkana, sem selja fólki flutning til ESB-ríkjanna, yrðu beitt refsiaðgerðum, til dæmis svipt allri fjárhagsaðstoð, en um það var engin eining á fundinum. Svíþjóð, Frakkland og fleiri ríki mæltu ein- dregið gegn því og varð það að lok- um ofan á, að umræddum þriðja- heimsríkjum yrði boðið samstarf um þessi mál og þeim „umbunað“ með ýmsum hætti í staðinn. Í öllum samstarfssamningum við umrædd ríki verða hér eftir sérstök ákvæði um innflytjendamál eins og verið hefur um mannréttindi og lýðræði. Aznar, forsætisráðherra Spánar, lagði hins vegar áherslu á, að ESB áskildi sér rétt til að taka til sinna eigin ráða gegn þeim ríkjum, sem sýndu engan samstarfsvilja. Samræmdar aðgerðir Á fundinum var samþykkt, að fyrir árslok yrði búið að samræma gæsluna á ytri landamærum ESB- ríkjanna og ekki síðar en á næsta ári á að vera búið að samræma þær reglur, sem farið er eftir við af- greiðslu hælisumsókna. Sameigin- lega munu ríkin síðan standa að því að senda ólöglega innflytjendur aft- ur til síns heimalands. Innflytjendastraumurinn hefur verið vaxandi vandamál í Evrópu á síðustu árum en komst fyrst veru- lega í sviðsljósið með kosningasigri ýmissa hægriöfgaflokka í nokkrum Evrópuríkjum. Allir höfðu þeir bar- áttuna gegn innflytjendastraumn- um efst á blaði. Hinir hefðbundnu hægriflokkar hafa einnig tekið þessi mál upp á sína arma og ljóst er, að í svipinn að minnsta kosti treysta kjósendur þeim betur en vinstri- flokkunum til að finna á þeim ein- hverja lausn. Fréttaskýrendur taka þannig til orða, að á Sevilla-fundinum hafi enginn fengið það, sem hann vildi, og breskir fjölmiðlar túlkuðu nið- urstöðuna sem áfall fyrir Tony Blair forsætisráðherra þar sem ekki hefði verið samþykkt að beita ósamvinnuþýð þriðjaheimsríki refsiaðgerðum. Jack Straw, utan- ríkisráðherra Bretlands, neitaði því hins vegar alveg og sagði, að sam- þykktir fundarins myndu bera mik- inn árangur. Sagði hann, að þótt viðkomandi ríki yrðu ekki beitt beinum refsiaðgerðum, þá ættu þau allt undir því að bregðast rétt við. Hagsmunir þeirra væru í húfi hvað sem liði beinum samþykktum. Þjóðverjum ofbýður kostnaðurinn Hitt stóra málið á Sevilla-fund- inum var stækkun ESB í austur en stefnt er að því, að 10 ný ríki bætist við 2004. Var samþykkt að standa við þá áætlun en ljóst er, að áhyggj- ur af kostnaðinum við stækkunina fara vaxandi. Fara Þjóðverjar þar fremstir í flokki og sagt er, að þeir hafi farið fram á, að væntanlegum leiðtogafundi í október verði frestað en honum var ætlað að undirbúa formlega samþykkt um stækkunina á fundi í Kaupmannahöfn í desem- ber. Er það haft eftir Aznar, for- sætisráðherra Spánar, að fundinum verði hugsanlega frestað fram í nóvember. Með frestuninni vilja Þjóðverjar, sem leggja mest af mörkum allra ESB-ríkja, fá meiri tíma til að huga að kostnaðinum en það er fyrst og fremst væntanlegur styrkur við landbúnaðinn í Austur-Evrópu, sem vex þeim í augum. Á sama tíma seg- ist Jacques Chirac, forseti Frakk- lands, munu berjast fyrir því, að ríf- legir styrkir til franskra bænda verði ekkert skertir. Næstum helmingur af öllum út- gjöldum ESB fer til landbúnaðarins en samkvæmt tillögum sambands- ins munu bændur í nýju aðildarríkj- unum aðeins fá til að byrja með fjórðung þess, sem ESB-bændur fá nú. Eiga framlögin síðan að hækka í 100% á 10 árum en stefnt er að því, að þá verði almennt búið að skera styrkina verulega niður frá því, sem nú er. Ljóst er því, að viðræður um landbúnaðarmálin eiga eftir að verða mjög erfiðar og alveg sér- staklega hvað varðar Pólland. Það er eitt mesta landbúnaðarland í Evrópu og náist ekki samkomulag við stjórnvöld þar, munu þessi mál frestast gagnvart öllum nýju ríkj- unum. Tyrkneski höfuðverkurinn Annað erfitt mál, sem sífellt vofir yfir Evrópusambandinu, er krafa Tyrkja um aðildarviðræður. Ítrek- uðu þeir hana á Sevilla-fundinum og kröfðust þess, að væntanlegar við- ræður yrðu tímasettar á desem- berfundinum í Kaupmannahöfn. Gerhard Schröder, kanslari Þýska- lands, er því andvígur og Edmund Stoiber, keppinautur hans um kanslaraembætti í haust og fram- bjóðandi kristilegu flokkanna, hefur gefið í skyn, að hann vilji alls ekki, að Tyrkir fái aðild. Inn í þetta blandast síðan deilur Grikkja og Tyrkja og með það í huga, að Tyrkir eru NATO-ríki, er ljóst, að þeir munu geta gert hinum Evrópuríkjunum lífið leitt, til dæm- is hvað varðar samstarf NATO við nýju, evrópsku hraðsveitirnar og einnig hvað varðar Kýpur. Leiðtogafundur Evrópusambandsríkja í Sevilla um innflytjendamál og stækkun Sevilla. AP, AFP. Landamæraeftirlit hert og reglur samræmdar Þjóðverjum óar við gífurlegum útgjöldum vegna styrkveitinga til landbúnaðarins í Austur-Evrópu AP Ólöglegur innflytjandi biðst fyrir í Sevilla. Um 400 félagar hans fóru í setuverkfall í borginni fyrr í mánuðinum og krefjast þeir þess, að spænska stjórnin útvegi þeim atvinnuleyfi og landvist. Reuters Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, á tali við Törju Halonen, forseta Finn- lands, á fundinum í Sevilla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.