Morgunblaðið - 25.06.2002, Síða 22

Morgunblaðið - 25.06.2002, Síða 22
LISTIR 22 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HVER er Kári Árnason? Þess hef- ur maður spurt sjálfan sig og aðrir mann sjálfan eftir að honum skaut sem spútnik uppá íslenskan djass- himin með tónleikum í Múlanum í Kaffileikhúsinu þar sem kvartett hans lék verk eftir Wayne Shorter. Ekki síst þarsem Sigurður Flosason var einn af hljóðfæraleikurunum – hitt skólastrákar úr FÍH. Sigurður hafði leikið Shorterdagskrá fyrir margt löngu með Jazzkvartetti Reykjavíkur í listasafni Sigurjóns Ólafssonar og það voru líklega fyrstu tónleikar á Íslandi helgaðir einu er- lendu djasstónskáldi. Því miður komst ég ekki til að heyra kvartett Kára í Múlanum og heldur ekki skömmu síðar í Stúdenta- kjallaranum, þar sem blönduð dag- skrá djassverka og söngdansa var leikin. Aftur á móti var ég mættur í Hafnarbúð í Hafnarfirði 16. júní sl. þar sem kvartett Kára lék verk eftir fjögur íslensk djasstónskáld, gítarist- ann Andrés Þór Gunnlaugsson, sem nú stundar framhaldsnám í djass- fræðum í Hollandi, Pétur Grétarsson, Tómas R. Einarsson og saxófónleik- ara kvartettsins, Sigurð Flosason. Dagskráin var gleðiefni og oft hef ég hvatt íslenska djassleikara til að leika meira af verkum kollega sinna í stað þess að sækja allt vestur um haf. Ekki býst ég þó við að skrif mín hafa haft nokkuð um þessa tónleika að segja. Kári Árnason hafði einfaldlega fengið hafnfirskan styrk til að vinna að þessu verkefni og þá fékk ég að vita að drengurinn er hafnfirskur, af Ibsenættinni, og ekki ónýtt að við- halda hinni hafnfirsku trommuhefð. Þaðan er Guðmundur Steingrímsson, færasti burstamaður íslenskrar trommusögu – og um flest er stíll Kára meira í ætt við hann en jafnaldr- ana íslensku sem sprottnir eru úr rokkhefðinni þungu. Kvartettinn kom mér allnokkuð á óvart á þessum tónleikum. Af Sigurði veit maður við hverju er að búast, Ómar og Þorleif hefur maður heyrt spila nokkrum sinnum en Kára aldrei. Stíll hans er léttur og leikandi og um- fram allt músíkalskur í orðsins bestu merkingu svo á stundum kemur Jack DeJohnette í hugann þó ég ætli mér ekki að líkja Kára við meistarann. Þorleifur er nokkuð þungur bassa- leikari en tónninn fínn og ekki hef ég heyrt hann betri en þetta kvöld. Það sama má segja um Ómar gítarleikara Guðjónsson úr Garðabænum. Hann hefur aukist að þroska og tókst að skapa margan heilsteyptan sóló allt frá hinum fyrsta Parkerskotna í Ytri eftir Andrés Þór – einna bestur var hann í Lukkunnar pamfíl eftir Tómas R. þarsem trommurnar voru í for- grunni. Þetta er einn besti ,„vampari“ í íslenskum djasstónskáldskap og býr yfir dýpt í sveifluríkum einfaldleika sínum. Þegar öllu er á botninn hvolft eftir Sigurð er ekki óskylt þema þótt það sé nýboppaðra og Þungir þankar Sigurðar eru af sama meiði en blús- aðir niðrí tær. Þar voru Sigurður og Óskar í fínu formi í sólóum sínum. Tvö verk í viðbót voru á dagskránni eftir Andrés Þór; Torka og Colette þarsem Sigurður blés fallega mjúktóna. Shaman Péturs Grétarssonar var annars eðlis. Þar brá fyrir austur- lenskum blæ og dramatíkin var sterk. Kára tókst vel að koma krafti seið- skrattans til skila. Tvær ballöður firnagóðar voru á dagskránni; Hjartarætur eftir Sigurð og hinn makalausi Vangadans Tómasar R. Margir muna hve glæsilega Sigurður blés þá laglínu í barrýtonsaxófón á diski Tómasar, Nýr tónn. Að þessu sinni blés Sigurður í altó með glæsi- brag. Þetta voru fínir tónleikar og helgina eftir skrapp ég á Jómfrúar- torgið þarsem kvartettinn var að leika blöndu af efnisskrá fyrri tón- leika og var spilamennskan þar að sjálfsögðu annars eðlis en í Hafnar- borg. Á Jómfrúartorgi fyllist allt af fólki í sólskininu til að drekka bjór, spjalla, borða smörrebrauð og hlusta á léttan djass. Það var dálítið kalt fyr- ir drengina að spila þegar dró fyrir sólu, en Ísland er Ísland. Margt gerðu þeir þó skemmtilega en ekkert eins og A Foggy Day Gershwins, sem var leikið í glaðlegu tempói. Þar átti Óm- ar Guðjónsson glæsilegan sóló þar sem honum tókst að segja okkur hlustendum litla sögu og Sigurður fór á kostum í tilvitnunum úr ýmsum átt- um. Kvartett Kára Árnasonar hefur þegar auðgað íslenska djassflóru. Þrír ungir leitandi hljóðfæraleikarar og einn sem hefur skapað sinn stíl. Það er nokkuð skemmtileg blanda – og heilnæm. Hver er Kári Árnason? DJASS Hafnarborg og Jómfrúartorg Sigurður Flosason, altósaxófón, Ómar Guðjónsson, gítar, Þorleifur Jónsson, bassa, og Kári Árnason, trommur. Hafn- arborg, sunnudaginn 16. júní 2002. Jómfrúartorg, laugardaginn 22. júní 2002. KVARTETT KÁRA ÁRNASONAR Vernharður Linnet LISTAHÁTÍÐ færir okkur ým- islegt, eins og þessa litlu en athygl- isverðu sýningu, sem Ólafur Elías- son stýrði, en verk hans sjálfs er að finna í Gallerí i8, við Klapp- arstíg. Vissulega eru fimmmenn- ingarnir á Gallerí Gangi ekki held- ur óþekktar stærðir þótt sumir þeirra séu frægari en aðrir. Ítalska listakonan Monica Bonvicini er til dæmis fyrir löngu orðin kunn stærð í listaheiminum. Sem fyrr- verandi nemandi Michael Asher við Cal Arts – California Institute of the Arts – og þar áður við Kunst- Werke í Berlín – þar sem hún nam á árunum 1986 til 1994 – leggur hún stund á víðan fjölda viðfangs- efna. Keðja hennar, sem hangir nærri útidyrunum, er þó ef til vill nokkuð dæmigerð fyrir listakonuna, þótt hún sé kunnari af arkitektúrískum samsetningum sínum og högg- myndum. Á að taka gúmmíhjúpinn fremst á kúlunni fyrir kvenlega mýkt sem slævi broddinn á annars stórhættulegu drápstæki? Paschudan Buzari er berlínskur listamaður af félags-pólitíska skól- anum, sem tekur og hefur tekið mjög virkan þátt í hinum ýmsu list- rænu viðburðum og sýningum jafnt sem samræðum, og sjálfur hefur hann stjórnað fjölmörgum þingum og sýningum. Í litlu og látlausu popp-sæknu verki sínu, sem fjallar um einhvers konar umhverfispróf er hann algjör andstæða Bonvicini, með sterkri skírskotun sinni til listrænnar ábyrgðar og ákveðinni kröfu um félagslega meðvitund gagnvart umhverfinu. Aftur er breska listakonan Ceal Floyer – fædd í Karachi árið 1968 – eins og andhverfa Buzari, með fötu sína sem gefur frá sér þannig hljóð að það er sem dropi í hana með vissu millibili. Floyer, sem til- heyrir kynslóðinni sem spratt fram á seinni hluta síðasta áratugar – oft kennd við hinn margrómaða Goldsmiths-skóla í Lundúnum – reynir bersýnilega að virkja önnur skilningarvit meðfram sjóninni til að gera okkur opnari og klárari gagnvart umhverfinu. Hún segist vera hugmyndlistamaður af gamla skólanum sem endurvinni hvers- dagslegar hugmyndir til að beina athygli okkar nær nánustu tilveru og ljóðrænum töfrum þeim sem okkur sést yfir í stöðugri leit okkar langt yfir skammt. Svipað má ef til vill segja um Danann Jeppe Hein, eina Norður- landabúann í hópnum, þótt hann búi og starfi í Berlín eins og svo margir norrænir listamenn. Hein var smiður áður en hann sneri sér að listiðkun, en það hefur ekki breytt áhuga hans á því að skapa lítil ævintýri til að breyta umhverf- inu, með eilítið súrrealískum, jafn- vel fáránlegum hætti. Margir muna sjálfsagt eftir honum frá síðasta Feneyjatvíæringi – 2001 – þegar hann tók þátt í norrænu Jaspis- sýningunni með veggjum sínum sem hreyfðust í takt við hreyfingar áhorfenda. Hugmyndin hans í Gall- erí Gangi var einmitt að opna og loka útidyr- unum með vélpumpu eins og við þekkjum, til dæmis úr strætisvögn- um. Slíkur hurðargald- ur sýnir að andi Duc- hamps ríkir enn yfir vötnum. Lestina rekur Hol- lendingurinn Jereon Jacobs, spurningar- merkið í hópnum, því hann er ef til vill minnst þekktur af þessum ágætu lista- mönnunum. Þó er verk hans með þeim athygl- isverðustu á sýning- unni; samanfellt borð með sérkennilega sög- uðu tígulmynstri, sem hallast upp að veggn- um framan við útidyrn- ar. Það er auðvelt að sjást yfir þetta prýði- lega verk sökum þess hve það er látleysið uppmálað. En svo manar það upp forvitni áhorfandans og þá má segja að fjandinn sé laus. Styrkur þessarar ágætu tilraunar Ólafs Elíassonar sem sýning- arstjóra er greinilega hógværðin, sem þó fel- ur í sér óvænt hugs- ana- og hugmynda- tengsl. Miðað við hve Gallerí Gangur ræður yfir takmörkuðu plássi verður að óska aðstandendum þess til ham- ingju með þessa athyglisverðu kynningu á miður vel kynntum samtímalistamönnum úr hjarta Evrópu. Upplýsingar með sýnend- unum mættu þó vera mun meiri og betri. Halldór Björn Runólfsson Evrópsk fjöl- breytni MYNDLIST Gallerí Gangur, Rekagranda 8 Til júníloka. Opið eftir samkomulagi í síma 5518797. BLÖNDUÐ TÆKNI MONICA BONVICINI, PASCHUTAN BUZARI, CEAL FLOYER, JEPPE HEIN & JEREON JA- COBS Morgunblaðið/Arnaldur Gúmmýkt keðja eftir Monicu Bonvicini er meðal verka á Listahátíðarsýningu Gallerí Gangs við Rekagranda 8. HJÁLP! Ég er fiskur er dönsk teiknimynd þar sem aðstandendur reyna að feta í fótspor farsælustu teiknimyndagerðarmanna í heimi, þeirra hjá Disney. Og það tekst bara býsna vel. Myndin er í útliti og innri uppbyggingu öll í stíl við Disney- myndirnar. Sagan er að vísu svolítið dekkri en amerísku myndirnar eiga að sér, en í fyrsta skipti í langan tíma var ég bæði spennt og smá hrædd á barna- teiknimynd, en það þýðir ekki að krakkarnir ráði ekki við það. Sagan segir frá þremur krökkum sem hitta klikkaðan sjávarlíffræðiprófessor og breytast óvart í fiska. Myndin gerist því að mestu leyti neðansjávar, þar sem þau kynnast skemmtilegum og hættulegum heimi um leið og þau eru í leit að mótefni til að geta orðið að venjulegum krökkum aftur. Teikningarnar eru vel heppnuð blanda af fríhendis- og tölvuteikn- ingum, og sumar þeirra eru virkilega með fallegri teikningum sem ég hef séð seinustu árin. Það gleymist oft hversu virkilega fallegar myndir geta skipt miklu í stað þess að vera sífellt fyndinn, eða með rétta lagið til að slá í gegn. Í þessari mynd er það þó líka reynt. Sönglögin eru ágæt, smekkleg, en ekkert sérlega gríp- andi. Raddsetningin er til fyrirmyndar, einsog alltaf, og í heildina er myndin fallegt ævintýri um litla krakka í nýj- um heimi sem tekst að redda sér með eigin hugviti og samstöðu. Falleg og spennandi KVIKMYNDIR Háskólabíó Leikstjórn: Stefan Fjeldmark og Michael Hegnar. Handrit: Fjeldmark og Karsten Külerich. Ísl. leikstj: Jakob Þór Einars- son. Ísl. leikraddir: Grímur Helgi Gísla- son, Árni Egill, Íris Gunnarsdóttir, Stefán Karl Stefánsson, Steinn Ármann Magn- ússon, Stefán Jónsson og Laddi. 80 mín. DK/ÞÝS/ÍRL. Nordisk 2000. HJÁLP! ÉG ER FISKUR  Hildur Loftsdóttir SUMARSÝNING Listasafns Ís- lands verður opnuð í dag. Á henni eru tæplega 100 verk í eigu safnsins eftir 36 listamenn. Er þar gefið breitt yfirlit um ís- lenska myndlistarsögu á 20. öld, einkum fyrir 1980. Sýningarstjóri er Ólafur Kvaran. Sýningin skiptist í fimm hluta: Upphafsmenn íslenskrar mynd- listar á 20. öld; Koma nútímans/ módernismans í myndlist á Ís- landi; Listamenn 4. áratugarins; Abstraktlist; Nýraunsæi áttunda áratugarins. Í upphafi þróunarinnar sést hvernig náttúran var með ýmsu móti aðalviðfangsefnið í íslenskri myndlist framan af 20. öld, fyrst í málverkum frumherjanna Þór- arins B. Þorlákssonar og Ásgríms Jónssonar og síðar í annars kon- ar nálgun Jóhannesar S. Kjarval og Jóns Stefánssonar sem höfðu víðtæk áhrif á aðra listamenn. Síðar höfnuðu enn aðrir landslag- inu og fjölluðu um manninn og umhverfi hans, t.d. Ásmundur Sveinsson og Gunnlaugur Schev- ing. Um og eftir miðja öldina hurfu margir frá hlutbundinni myndlist, m.a. Svavar Guðnason og Sigurjón Ólafsson, og á sjötta og sjöunda áratugnum var ab- straktið nær allsráðandi, eins og sést í verkum Nínu Tryggvadótt- ur og Þorvalds Skúlasonar. Ungir listamenn höfnuðu svo form- hyggju abstraktsins um og upp úr 1960, t.d. Jón Gunnar Árnason og Erró, svo og konseptlista- mennirnir Magnús Pálsson, Sig- urður Guðmundsson og Kristján Guðmundsson. Á sýningunni eru mörg önnur dæmi úr íslenskri listasögu, t.d. verk Kristínar Jónsdóttur og Júlí- önu Sveinsdóttur, fyrstu íslensku kvennanna sem gerðu myndlist að lífsstarfi. Sumarsýning Listasafns Íslands Yfirlit um 20. öldina Af sumarsýningu Listasafns Íslands: Nína Tryggvadóttir, Gos (1964).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.