Morgunblaðið - 25.06.2002, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 25.06.2002, Qupperneq 30
MINNINGAR 30 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Anna GuðrúnHalldórsdóttir fæddist í Reykjavík 28. júní 1952. Hún andaðist á heimili sínu í Reykjavík hinn 13. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Halldór Sigur- jónsson flugvirki, f. 4. desember 1917, d. 6. mars 1981, og Hall- dóra V. Elíasdóttir húsmóðir, f. 18. mars 1922. Föðurforeldrar hennar voru hjónin Sigurjón Gíslason verkamaður og Anna Ágústa Halldórsdóttir húsmóðir. Þau bjuggu í Reykjavík. Móðurfor- eldrar hennar voru hjónin Elías Dagfinnsson bryti og Áslaug Kristinsdóttir hárgreiðslumeist- ari. Þau bjuggu í Reykjavík. Bróð- ir Önnu er Kristinn Halldórsson, f. 29. febrúar 1948, kvæntur Fjólu Björnsdóttur. Börn þeirra eru Halldór, Áslaug og Eva. Hinn 22. júní 1977 giftist Anna Jean Noel Lareau, flugvélstjóra hjá flugfélaginu Atl- anta, f. í Reykjavík 28. maí 1956. Dóttir þeirra er Þórdís Jó- hanna Lareau, f. 19. október 1976, við- skiptafræðinemi í Háskóla Íslands. Foreldrar Jean eru Jean Noel Lareau og Þórdís Jóhanna Árnadóttir. Anna tók gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar og hóf þá störf á Hagstofu Íslands þar sem hún starfaði í um 24 ár. Anna var lengst búsett í Eskihlíð 7 en bjó á árunum 1978 til 1982 í Los Angeles í Bandaríkjunum. Útför Önnu fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Veðrið í vikunni fyrir miðjan júní var með eindæmum gott. Fuglarnir á Seltjarnarnesinu undu glaðir við sitt og kollurnar voru í óða önn að flytja ungana sína út á sjó. Allt var að lifna við og nýtt líf að fæðast. Morguninn, sem hún systir mín lést, hinn 13. júní, skörtuðu veður- guðirnir sínu fegursta. Síðan varð allt öðruvísi um að lítast, sjórinn úfinn undan norðanáttinni og kollurnar reyndu að koma sér og ungunum í var. Það er erfitt að horfa á líf sinna nánustu fjara út, en huggun harmi í að horfa á nýtt líf kvikna. Anna Guðrún fæddist í Eskihlíð 7, þar sem hún bjó mestan hluta ævinn- ar og hún lést í sama herberginu og hún fæddist í, fyrir rétt tæpum fimm- tíu árum. Í þá daga var oft líf og fjör í Eskihlíðinni, amma og afi bjuggu á efstu hæðinni, þá móðurbróðir okkar ásamt fjölskyldu sinni á miðhæðinni og fjölskylda okkar á neðstu hæðinni. Fjölskyldufeðurnir störfuðu allir við flugið og sögur voru sagðar af mönn- um og ferðum yfir úthöfin. Anna Guð- rún ólst upp í Hlíðunum, en gekk í Landakotsskóla, þótt hann væri lengst vestur í bæ. Síðan fór hún í Hlíðarskóla og tók gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Strax eftir nám, enn á unga aldri, fór hún að vinna á Hagstofu Íslands og vann þar í um 24 ár eða þar til hún hætti 1996. Eftir á að hyggja var hún eflaust farin að finna fyrir veikindum þá, þótt hún talaði ekki mikið um það við mig. Ung giftist hún Jean Noel Lareau flugvélstjóra og eiga þau eina dóttur, Þórdísi Jóhönnu, nema við Háskóla Íslands, sem hefur nú fetað í fótspor móður sinnar og hafið sumarstörf á Hagstofunni. Þó upphaf og endir lífs Önnu Guð- rúnar hafi verið í Eskihlíð 7 ferðaðist hún mikið og hafði mjög gaman af. Sem barn ferðaðist hún með foreldr- um okkar um Ísland, en síðar með manni sínum og dóttur til fjarlægra landa. Þau bjuggu um fjögurra ára skeið í Los Angeles. Anna Guðrún átti marga vini. Hún hélt alltaf tryggðaböndum við fyrrverandi sam- starfsfólk sitt og naut samverustunda með því. Vinir hennar voru á öllum aldri, börn og gamalmenni. Hún hafði gaman af hljómlist og hafði sérstakt dálæti á Rolling Stones. Kímnigáfan var í lagi og kom hún í gegn alveg fram á síðustu stundu. Fyrir rúmu ári greindist Anna Guðrún með krabbamein. Slíkar fréttir eru öllum þungbærar. Fyrir Önnu Guðrúnu var ekkert um annað að ræða en að berjast. Hún reyndi fram á síðustu stund að halda í lífið og það kom ekki til greina að gefast upp. Hún sýndi einstakan styrk og stað- festu fram í andlátið. Nú hefur hún systir mín fengið hvíldina, langt um aldur fram, kominn á æðra tilverustig eins og hún trúði sjálf á. Á þessum tímamótum er mér efst í huga þakk- læti til allra þeirra er studdu hana og önnuðust í veikindunum. Sérstaklega vil ég þakka Ragnheiði frænku okkar, sem stóð eins og klettur með okkur og öllu því frábæra fólki, sem starfar í heimahlynningu Krabbameinsfélags- ins. Ég bið um styrk til handa Jean, Dísu dóttur hennar og móður okkar, en þeirra er missirinn mestur. Guð blessi minninguna um góða konu, sem öllum vildi gott gera, bæði mönn- um og dýrum. Kristinn Halldórsson. Elsku Anna. Nú er baráttu þinni við illvígan sjúkdóm lokið. Þú barðist eins og sönn hetja í veikindum þínum. Þú bugaðist aldrei, né gafst upp, þrátt fyrir neikvæðar niðurstöður frá læknum. Þú gerðir allt sem í þínu valdi stóð til að sigrast á sjúkdómnum með hjálp frá Grjóna og Dísu. Það var ótrúlegur baráttuvilji þinn og þraut- seigja sem mun hjálpa okkur hinum þegar á móti blæs. En núna líður þér betur og ert komin til afa og Nökkva. Við minnumst mikillar góð- mennsku þinnar. Þú vildir vera viss um að öllum liði vel í kringum þig. Gott dæmi um það er þegar þú varst orðin mjög veik og amma kom inn til þín og settist hjá þér. Þú varst ekki lengi að biðja einhvern um að ná í púða fyrir hennar veika bak. Það lýsir mikið hvernig manneskja þú varst og hugsaðir alla tíð vel um þitt fólk. Þú varst einnig mikill dýravinur og hlakkaðir mikið til að hitta Nökkva. Húmorinn var heldur aldrei langt undan. Þegar Eva kom til þín rétt áð- ur en þú lést sagðir þú við hana: „Farðu nú og finndu þér einhvern sætan.“ Þú sýndir okkur krökkunum mikinn áhuga á öllu því sem við gerð- um og vildir alltaf vita hvernig okkur gengi. Þú hafðir mikla trú á okkur og sagðir alltaf að við gætum allt sem við vildum. Við munum sakna þín mikið. Elsku Grjóni, Dísa, amma og pabbi, guð veri með ykkur og gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það, en samt ég verð að segja, að sumarið það líður allt of fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Halldór, Áslaug og Eva. Þegar ég frétti andlát Önnu Guð- rúnar frænku minnar þá kom mér það ekki á óvart. Ég var stödd erlend- is þegar Kristinn bróðir hennar hringdi og tilkynnti mér andlát henn- ar. Anna Guðrún hafði barist við ill- vígan sjúkdóm sem því miður alltof oft sigrar, sama hvað barist er, en það er ekki ofsögum sagt að Anna barðist eins og hetja, eins lengi og hún gat, og þar stóðu hennar nánustu sem klettar við hlið hennar. Ég kvaddi hana viku áður en ég fór, sagði henni frá væntanlegu fríi mínu og eins og alltaf gladdist hún fyrir hönd annarra, óskaði mér góðr- ar ferðar og sagði: „hafðu samband frá Grikklandi og leyfðu mér að fylgj- ast með þér og hafðu það gott Magga mín“. Þegar ég hugsa til baka þá lýsir þetta Önnu vel. Við erum ekki stór fjölskylda, „föðurfólkið“ eins og við köllum okkur, þess vegna er mikið skarð að missa svona unga og góða konu sem Anna Guðrún var úr okkar hópi. Það er ekki langt síðan við hittumst fjölskyldan, þá hafði ábyrgðinni verið varpað á mig að finna stað og stund. Fyrsta sem ég gerði var að hringja í Önnu og nokkrum dögum síðar var hún búin að finna staðinn og ákváðum við báðar daginn sem var 24. apríl sl. og var þetta mikill gleðifundur hjá okkur öllum, mikið hlegið og margt rifjað upp. Anna Guðrún var lágvaxin kona með stórt hjarta og létta lund, hún var skírð eftir ömmu okkar og ömmusyst- ur sem voru miklar persónur í augum okkar bræðrabarnanna og margar minningar frá Þórsgötu 6 þar sem þær bjuggu báðar ásamt afa okkar og Hönnu frænku. Þar hittist fjölskyldan oftast, fyrir utan stundirnar í sum- arbústaðnum við Elliðavatn. Önnu Guðrúnu frænku mína kveð ég með virðingu og söknuði og þakka henni samfylgdina í þessu lífi. Þar sem ég verð ekki stödd á Ís- landi til að kveðja Önnu Guðrúnu mun ég fara í fallega kirkju á Sifnos og kveikja á kerti til minningar um hana. Eiginmanni hennar, dóttur, móð- ur, bróður og mágkonum, svo og öðr- um ástvinum hennar sem eiga nú um sárt að binda, votta ég mína dýpstu samúð. Margrét Ólafsdóttir. Í dag kveðjum við Önnu frænku en hún lést langt um aldur fram eftir erf- ið veikindi. Af þeirri hörku og dugn- aði sem einkenndi hana barðist hún hetjulega og af bjartsýni. Við Anna ólumst upp í sama húsi í Eskihlíð 7 og síðar í nágrenni við hvort annað þegar mín fjölskylda flutti í Mjóuhlíðina. Við vorum eins og ein fjölskylda og var Anna því í raun sem uppeldissystir. Áslaug amma og Elías afi bjuggu á efstu hæðinni og vorum við krakkarnir því oftast út um allt hús. Þar áttum við góðar stundir með foreldrum hvors annars, afa, ömmu eða Gæja sem bjó uppi í risi. Ýmislegt var brallað og var Anna oft með frumkvæði og þor þótt Kiddi stóri bróðir hafi reynt að hafa vit fyrir henni. Anna var alltaf jákvæð og hug- hreystandi. Meira að segja í lokin þeg- ar hún var orðin mjög veik tók hún þátt í umræðunni með jákvæðum hætti. Anna dvaldi heima allt til hinsta dags í faðmi fjölskyldu sinnar og hef- ur það örugglega verið henni ómet- anlegt. Þegar hugsað er til Önnu kemur upp í hugann þessi hressa stelpa sem var alltaf til í að hafa það skemmtilegt og gera það besta úr hlutunum. Hún var glaðvær að eðlisfari og alltaf stutt í hláturinn (tístið). Elsku Grjóni, Dísa, Dóra, Kiddi og fjölskylda, ykkar missir er mikill og við vottum ykkur innilega samúð. Við kveðjum kæra frænku með þakklæti og söknuð í hjarta. Oss héðan klukkur kalla svo kallar Guð oss alla til sín úr heimi hér, þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum Í húsi því, sem eilíft er. (V. Briem.) Blessuð sé minning Önnu. Haukur, Anna Lísa og börn. Fyrir hvern skrifum við minning- argreinar? Á Íslandi er það góður sið- ur sem við eigum að viðhalda sem virðingu og minningu við hinn látna. Hins vegar hefur það færst í vöxt að fólk skrifar minningargrein til að vinna sig í gegnum sorgina, biðja hinn látna og aðstandendur fyrir- gefningar, að segja þau orð sem aldr- ei voru sögð í lifanda lífi en voru oft á vörum viðkomandi. Minningargrein- ar eru því ekki síður fyrir okkur sem fáum að njóta lífsins áfram. Það er erfitt fyrir nánustu aðstandendur að tala um það á þessu augnabliki að njóta lífsins þegar sorgin heltekur hug þeirra allan. Við sem fáum að njóta lífsins áfram ættum að staldra við og hugsa um tilgang lífsins. Við ANNA GUÐRÚN HALLDÓRSDÓTTIR G amall kunningi minn virtist afar miður sín þegar við hittumst fyrir skemmstu. Hann er Akureyr- ingur. Gott ef ekki KA-maður. „Mér þykir þú kaldur; að setja saman svona Víkverja, rétt áður en þú flytur norður,“ sagði hann. – Ha! Hvað meinarðu? Hvaða Víkverja? sagði ég undrandi. „Um það þegar KA varð Ís- landsmeistari í handbolta í vor og hvað þér fannst hræðilegt að vera sífellt óskað til hamingju með það, sem Akureyringi.“ – Ég? Hvers vegna heldurðu að ég hafi skrifað það? „Ja, mér var sagt það. Og svo skildi ég pistil á heimasíðu KA þannig að þetta værir þú.“ – Nei, það getur ekki verið. Það var ómögulegt að túlka hann sem svo að skrifari ætti við mig. Eða hvað? Á nefndri heimasíðu stóð sem sagt m.a. 15. maí síðastliðinn: „Mikið var gaman að lesa Vík- verja í Mogganum á þriðjudaginn. Þar rakti blaðamaður raunir sínar eftir sigur KA á Íslandsmótinu í handbolta um helgina og óbragðið sem heillaóskir honum til handa sem Akureyringi hafa skilið eftir í hans sjúka huga. Blessaður mað- urinn rekur síðan í skemmtilegu máli ríginn sem ríkir á Akureyri milli KA og Þórs og fagnar því að búa nú í Reykjavík þar sem færri KA-mönnum er að mæta. Þá fer hann háðulegum orðum um hand- boltann sem hann telur tæpast til íþrótta, enda getur það ekki verið merkileg grein sem KA nær topp- árangri í. Ætli hann hafi gleymt Íslandsmeistaratitli KA-manna í knattspyrnunni um árið, eða úr- slitaleikjunum í bikarnum? Það er nokkuð sem hans ástsæla félag hefur enn ekki getað státað af. Blessaður drengurinn, sem mig grunar raunar hver er, hafði á yngri árum brennandi áhuga á íþróttum þótt hann gæti aldrei neitt í þeim sjálfur. [ ] Annars lík- ar mér mjög vel við ríginn sem er rótfastur á Akureyri milli KA og Þórs, en þó svona á efri árum hef- ur maður haft örlitla samúð með þeim rauðu sem hafa fengið mun minna af sviðsljósinu bæði í fót- bolta og handbolta. Í fyrrasumar var ánægja þeirra af sigri í 1. deild eyðilögð með bikarúrslita- leiknum sem KA fékk auk þess sem KA-liðið komst ásamt Þór í efstu deild og það sem meira er, þeir virðast hafa öflugra liði á að skipa. Þeir gerðu síðan mikið úr árangri handboltaliðsins í vetur sem komst í fyrsta sinn í 8-liða úr- slitin. Sú ánægja var skammvinn og rækilega skotin niður með Ís- landsmeistaratitli KA-manna.“ Hvernig var hann aftur, þessi óskaplegi Víkverji? Rétt að endurbirta upphafið: „Víkverji er Akureyringur. Hann er líka Þórsari. Þess vegna leiðist honum fátt meira en þegar honum er óskað til hamingju með sigra KA. „Hvað ertu ekki Ak- ureyringur?“ spyrja menn hvumsa þegar Víkverji hvessir brún og berar tennur. Vitaskuld. En skilja menn hérna syðra ekki að það að vera Akureyringur er ekki endilega það sama og að vera KA-maður? Á að giska annar hvor maður á Akureyri er raunar KA- maður en hinn er Þórsari. Blóð hans er rautt, ekki gult. Þannig er því farið með Víkverja. Hann gleðst því ekki yfir sigrum KA. Öðru nær.“ Skapti Hallgrímsson er vissu- lega Akureyringur. Og meira að segja Þórsari. Getur ekkert að því gert, eins og ég orða það stund- um, að hafa fæðst inn í Þórs- fjölskyldu en ekki í einhverja KA- ættina. Þannig er það nú bara En rétt er að árétta fáein atriði:  Skapti, höfundur þessa pistils, býr ekki í Reykjavík, eins og Víkverji lýsti yfir, heldur á Sel- tjarnarnesi og hefur gert í 15 ár.  Það er hárrétt að Skapti hafði brennandi áhuga á íþróttum á yngri árum. Hann starfaði í hálfan annan áratug sem íþróttafréttamaður á Morg- unblaðinu, lungann úr þeim tíma sem einhvers konar yf- irmaður og var m.a.s. titlaður fréttastjóri síðustu árin. En þó hann hafi látið af umfjöllun um íþróttir og snúið sér að öðrum verkefnum á blaðinu fyrir fjór- um árum telur Skapti sig enn hafa brennandi áhuga á íþrótt- um.  KA-maðurinn segir Víkverja aldrei hafa getað neitt í íþrótt- um. Það var fyrst þarna sem Skapti sannfærðist endanlega um að ekki væri átt við sig. Telur það öldungis ómögulegt. Hann var nefnilega mjög góð- ur í íþróttum; fór bara óvenju leynt með það. Umræddan Víkverja var lík- lega best að lesa sem kerskni. En öllu gamni fylgir nokkur alvara og þegar útskýrt var fyrir KR-ingi að það, að óska (a.m.k. sumum) Þórsurum til hamingju með Ís- landsmeistaratitil KA, væri eins og óska KR-ingi til hamingju ef Valur yrði Íslandsmeistari í fót- bolta, skildi viðkomandi hvað Vík- verji var að fara. Skapti umræddur hefur eflaust skrifað marga metra um Knatt- spyrnufélag Akureyrar á ferli sín- um sem blaðamaður síðustu tvo áratugi, eins og önnur íþrótta- félög þessa lands, og hefur a.m.k. ekki, hvað sem Víkverja líður, gleymt Íslandsmeistaratitli KA í knattspyrnu og bikarúrslitaleikj- unum. Heldur ekki því þegar KA- menn urðu fyrst Íslandsmeistarar í handbolta. Það var ógleymanleg stund í KA-heimilinu á Akureyri. Gott ef hann skrifaði ekki bara nokkuð skemmtilega grein af því tilefni! Skapti Hallgrímsson ber sem sagt ekki kala til Knatt- spyrnufélags Akureyrar frekar en annarra íþróttafélaga. Víkverji er nafnlaus dálkur og því ekki gefið upp hver skrifar hann. Og ætti þess vegna heldur ekki að gefa upp hver skrifar hann ekki. En ég brýt hér með þá reglu. Kannski átti KA-maðurinn alls ekki við mig, en best að taka þetta samt fram, til öryggis. Amen. Að hengja bakara … Það er gömul saga og ný að bakarar eru hengdir fyrir smiði, hvernig sem á því stendur. En hvað sem hver heldur ber Þórsarinn sem þetta skrifar hvorki kala til KA eða annars íþróttafélags á Íslandi. VIÐHORF Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.