Morgunblaðið - 25.06.2002, Blaðsíða 41
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 41
ÚTSALA - ÚTSALA
Dæmi um verð: Áður: Nú:
Bómullarpeysa 4.900 2.900
Jakkapeysa 4.900 2.900
Blúndubolur 3.800 2.400
Bodybolur 2.800 1.900
Dömuskyrta 3.200 1.900
Gallajakki 4.900 2.900
Túnika 3.900 2.400
Sítt pils 3.900 2.500
Dömubuxur 3.000 1.900
Kjóll 4.500 2.900
Rúskinnbuxur 7.600 4.600
Kápa pvc 6.600 3.900
Vesti m/belti 3.900 2.300
Dömuskyrta 3.300 1.900
Vatteraður jakki 4.600 2.900
...og margt margt fleira
40—70% afsláttur
Síðumúla 13, sími 568 2870,
108 Reykjavík.
Opið frá kl.10.00-18.00
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Heimsferðir opna þér leiðina til
Ítalíu í sumar á hreint ótrúlegum kjörum og bjóða nú frábært tilboð á
síðustu sætunum til þessarar fegurstu borgar Ítalíu. Síðustu sætin þann
11. og 18. júlí til Verona, þar sem þú getur notið ótrúlegrar fegurðar
hennar og sögu eða dvalið við Gardavatn í magnaðri náttúrufegurð.
Verona er í hjarta Ítalíu, frábærlega staðsett og héðan er örstutt til allra
átta og þú velur úr glæsilegustu verslunum heimsins og listasöfnum og
nýtur lífsins í þessu menningarhjarta Evrópu.
Síðustu sætin í júlí
Beint flug alla fimmtudaga
Brottför frá Keflavík
kl. 16.40
Flug heim á
þriðjudagsmorgnum
Verð kr. 24.265
Gildir 11 eða 18. júlí til Verona.
Flugsæti með sköttum, m.v. hjón með
2 börn, 2–11 ára.
Verð kr. 29.950
Flugsæti fyrir fullorðinn, fargjald A.
Skattar innifaldir.
Stökktu til
Verona
11. og 18. júlí
frá kr. 24.265
Kefla-
valtarar
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta í
dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Fríkirkjan í Reykjavík. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag, þriðjudag, kl. 12 í kapellu
safnaðarins á 2. hæð í safnaðarheimili
kirkjunnar, Laufásvegi 13. Allir velkomnir
til þátttöku.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 10–12.
Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús
kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara
í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16.
Spilað og spjallað. Blöðin liggja frammi og
heitt á könnunni. Stutt ferð á vegum
starfsins einu sinni í mánuði í sumar. Allir
velkomnir.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund með Taizé-söngvum í dag kl. 18.
Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Hveragerðiskirkja. Foreldramorgnar
þriðjudagsmorgna kl. 10-11.30.
Borgarneskirkja. TTT – tíu til tólf ára starf
alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í
kirkjunni sömu daga kl. 18.15– 19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl.
13.40.
Hvammstangakirkja. Æskulýðsfundur í
Hrakhólum í kvöld kl. 20.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Safnaðarstarf
ÞAÐ ER óhætt að segja að
frammistaða íslenska bridslandsliðs-
ins í opnum flokki á Evrópumóti hafi
komið þægilega á óvart og nú þegar
mótið er rúmlega hálfnað á Ísland
enn möguleika á að ná 5. sætinu sem
gefur keppnisrétt á HM í brids. Við
því bjuggust fáir fyrir fram enda er
íslenska liðið að mestu skipað ung-
um spilurum.
Í síðustu umferðum hefur íslenska
liðið m.a. unnið Finna 20:10, Ung-
verja 23:7, San Marínó 22:8 og
Rússa 24:6. Eftir 23 umferðir af 37
var Ísland í 8. sæti með 381 stig.
Ítalir voru komnir með ótrúlegt for-
skot, höfðu 484 stig í efsta sæti,
Búlgarar voru í 2. sæti með 415 stig,
Norðmenn höfðu 410, Pólverjar 400,
Spánverjar 393, Tyrkir 389 og Hol-
lendingar 383.
Íslenska kvennaliðinu hefur hins
vegar ekki gengið sem best og var
eftir 11 umferðir í 20. sæti með 138
stig. Þar virðast Þjóðverjar ætla að
leika sama leikinn og Ítalir í opna
flokknum og voru með 226 stig en
liðið hafði þá unnið alla leiki sína.
Danir komu næstir með 206 stig og
Englendingar 205.
Rússar yfirspilaðir
Íslensku spilararnir hafa vakið
talsverða athygli í Salsiomaggiore
og mótshaldarar hafa oft valið leiki
Íslands sem sýningarleiki. Þannig
var með leikinn við Rússa. Þessir
leikir eru jafnframt sýndir beint á
Netinu og því gátu íslenskir brids-
áhugamenn fylgst með því þegar ís-
lensku spilararnir hreinlega yfir-
spiluðu þá rússnesku.
Í tveimur spilum fengu Íslending-
ar geimsveiflu þegar þeir fundu eina
útspilið til að hnekkja samningum.
Þetta var annað þeirra:
Norður
♠ K84
♥ ÁG10
♦ D72
♣ÁD82
Vestur Austur
♠ ÁG3 ♠ 62
♥ 8763 ♥ 54
♦ G64 ♦ K1093
♣1063 ♣KG742
Suður
♠ D10975
♥ KD92
♦ Á85
♣9
Við bæði borð voru spilaðir 4
spaðar í suður. Við annað borðið
spilaði Max Khven í vestur út
hjartasjöu. Þröstur Ingimarsson
drap í borði með tíu og spilaði strax
spaða á drottninguna heima. Khven
drap með ás og hélt áfram með
hjartað og nú var eftirleikurinn auð-
veldur. Þröstur tók spaðakóng, fór
heim á hjartadrottningu og spilaði
tígli á drottningu. Austur drap með
kóng og spilaði meiri tígli en Þröstur
stakk upp ás, henti tígli í borði í
hjartakónginn og trompaði tígul í
borði. 10 slagir og 420 til Íslands.
Við hitt borðið spilaði Steinar
Jónsson hins vegar út tígulfjarka-
num. Andrei Gromov stakk upp
drottningunni og drap kóng Stefáns
Jóhannssonar með ás. Gromov gat
enn unnið spilið með því að hitta í
spaðann, en hann ákvað að svína
laufadrottningu í öðrum slag. Stefán
fékk á kóng, og síðan tók vörnin tvo
tígulslagi og fékk loks á spaðaásinn.
50 til Íslands og 10 stig.
Óvænt veisla
Í þessu spili fengu Íslendingar
óvænta veislu. Áttum er snúið:
Vestur gefur, NS á hættu
Norður
♠ Á53
♥ 1085
♦ ÁG532
♣85
Vestur Austur
♠ K98 ♠ D742
♥ ÁG42 ♥ D7
♦ K84 ♦ D10976
♣1072 ♣G9
Suður
♠ G106
♥ K965
♦ -
♣ÁKDG43
Við annað borðið fékk Stefán að
opna í 4. hönd á 1 laufi með suð-
urspilin. Vestur doblaði og Steinar í
norður sagði 1 grand. Það doblaði
austur, einhverra hluta vegna, og við
það sat. Eftir spaðaútspil fékk Stein-
ar 9 slagi, 580 til Íslands.
Við hitt borðið virtust Rússarnir
einnig vera úti á þekju:
Vestur Norður Austur Suður
Þröstur Khven Bjarni Matusko
1 grand pass pass dobl
pass pass 2 tíglar 3 lauf
pass 3 grönd dobl 4 hjörtu
dobl//
Þröstur fékk lánaðan punkt og
opnaði á veiku grandi. Rússarnir
komust síðan í 3 grönd sem Bjarni
Einarsson doblaði. Sennilega fara 3
grönd niður eftir tígulútspil og Ma-
tusko ákvað að flýja, en einhverra
hluta sagði hanní 4 hjörtu frekar en
4 lauf. Þau gat Þröstur doblað og á
endanum fór þessi samningur 3 nið-
ur, 800 til Íslands og 16 impar.
Útspilin réðu úrslit-
um gegn Rússum
BRIDS
Salsomaggiore, Ítalíu
EVRÓPUMÓT
Evrópumótið í brids er haldið í Salso-
maggiore á Ítalíu dagana 16.–29. júní. Ís-
land tekur þátt í opnum flokki og kvenna-
flokki. Heimasíða mótsins er
http://www.eurobridge.org
Guðm. Sv. Hermannsson
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar