Morgunblaðið - 25.06.2002, Síða 42
DAGBÓK
42 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Delphin,
Dettifoss, Albatros og
Helgafell.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag fara út Pólar Siglir
og Ozherelye.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9.00
vinnustofa, kl. 9.15 bað,
kl. 10.15 Búnaðarbanki,
kl. 13.00 vinnustofa.
Gróðursetning í Hval-
firði í dag, 25. júní.
Þriðjudaginn 25. júní
fara ungir og aldnir
saman í gróðursetning-
arferð í Álfamörk í
Hvalfirði. Lagt af stað
frá Aflagranda kl. 13.30.
Gróðursetning hófst í
Álfamörk á ári aldraðra
en þá tóku unglingar úr
félagsmiðstöðvum
Reykjavíkur og eldri
borgarar frá fé-
lagsmiðstöðvum eldri
borgara sig saman og
gróðursettu tré. Reitn-
um var gefið nafnið
Álfamörk og hefur verið
gróðursett í hann síðan.
Allir eru hjartanlega
velkomnir, eldri borg-
arar eru hvattir til að
taka barna- og barna-
barnabörnin með og
unglingar ömmur og
afa.
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð og-
baðþjónusta, kl. 13 opin
smíðastofa og handa-
vinnustofa, kl. 13.30 fé-
lagsvist. Bingó er 2. og
4. hvern föstudag í
mánuði. Púttvöllurinn
er opinn kl. 10–16 alla
daga. Allar upplýsingar
í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við bað, kl. 9–16.45 er
hárgreiðslustofan opin,
kl. 10 samverustund, kl.
14 félagsvist.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hársnyrting, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Sundleikfimin
hjá Lovísu í Sundlaug
Garðabæjar byrjar 25.
júní kl. 16 og verður á
þriðjud. og fimmtud í
þrjár vikur. Allir vel-
komnir.
Golfnámskeiðið hjá
Sturlu verður á þriðjud.
og miðvikud. kl. 13
næstu þrjár vikur í
GKG í Vetrarmýrinni.
Fótaaðgerðastofa: tíma-
pantanir eftir sam-
komulagi s. 899 4223.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag er
frjáls spilamennska kl.
13.30. Pútt á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Á
morgun, miðvikudag,
línudans kl. 11 og pílu-
kast kl. 13.30. Orlofs-
ferð að Hrafnagili við
Eyjafjörð 19.–23. ágúst,
fjórar nætur. Skoðun-
arferðir: Húsavík, Mý-
vatn, Dalvík, Ólafs-
fjörður og Siglufjörður.
Skráning og allar uppl.
í Hraunseli í síma 555-
0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Sögu-
ferð í Dali 25. júní,
dagsferð, Eiríksstaðir-
Höskuldsstaðir-
Hjarðarholt-Búð-
ardalur-Laugar-
Hvammur. Léttur há-
degisverður á Laugum í
Sælingsdal. Kaffihlað-
borð í Munaðarnesi.
Leiðsögumaður Sig-
urður Kristinsson.
Brottför frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 8.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9.45.
Þórsmörk – Langidalur
4. júlí, kaffihlaðborð á
Hvolsvelli. Leiðsögn
Þórunn Lárusdóttir.
Skráning hafin.
Hálendisferð 8.–14. júlí,
sjö dagar. Ekið norður
Sprengisandsleið, fjöl-
margir áhugaverðir
staðir skoðaðir, t.d.
Herðubreiðarlindir,
Askja, Mývatn o.fl. Ek-
ið suður um um Kjöl.
Leiðsögn Sigurður
Kristinsson.
Ferð í Galtalæk á úti-
tónleika 14. júlí 2002
með Álftagerðis-
bræðrum og Diddú. Örn
Árna og Karl Ágúst slá
á létta strengi. Lagt af
stað kl. 15 frá Glæsibæ.
Nánari upplýsingar á
skrifstofunni.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10–
12. í s. 588 2111. Skrif-
stofa félagsins er flutt í
Faxafen 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, m.a.
tréskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10 leik-
fimi, kl. 12.40 Bón-
usferð, kl. 13.15 bóka-
bíll.
Gerðuberg, félagsstarf.
Í dag kl. 9–16.30 eru
vinnustofur opnar, kl.
13 boccia. Veitingar í
Kaffi Bergi. Fim. 27.
júní: Ferðalag um Suð-
urnes. Meðal annars ek-
ið um Hafnarfjörð,
Vatnsleysuströnd,
gegnum Keflavík og út
á Garðskaga, Stafnes og
Miðnes. Kaffihlaðborð í
Golfskálanum í Leiru.
Ath. Mæting í Gerðu-
bergi kl. 12.30. Skrán-
ing hafin. Allar uppl.
um starfsemina á staðn-
um og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
kl. 14 þriðjudagsganga.
Vegna forfalla eru fjög-
ur sæti laus í ferð um
Vestfirði 15.–19. júli.
Þeir sem ekki hafa
staðfest nú þegar eru
beðnir að gera það sem
fyrst. Uppl. í síma 554-
3400.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
bað, kl. 9.45 bankaþjón-
usta, kl. 13 handavinna.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun.
Hæðargarður. Hár-
greiðsla kl. 9–17.
Hallgrímskirkja, eldri
borgarar. Farið verður
frá kirkjunni fim. 27.
júní kl. 10 að Sól-
heimum í Grímsnesi.
Kaffiveitingar á Iðufelli.
Stoppað í Skálholti og
Hveragerði. Skráning
og nánari uppl. veitir
Dagbjört milli kl. 10 og
12 í síma 510-1034 og
693-6694. Verið velkom-
in og takið með ykkur
gesti.
Háteigskirkja – eldri
borgarar. Á morgun,
miðvikudag, er samvera
og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 11, súpa í
Setrinu kl. 12, spil kl.
13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 9–17
hárgreiðsla. Allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16 al-
menn handavinna, kl. 13
spilamennska.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 morgunstund og
handmennt, kl. 10.30
boccia, kl. 14 félagsvist.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
Minningarkort
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, s. 568-
8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, s.
562-1581, hjá Kristínu
Gísladóttur, s. 551-7193,
og Elínu Snorradóttur,
s. 561-5622.
Minningarkort Sjúkra-
liðafélags Íslands eru
send frá skrifstofunni,
Grensásvegi 16,
Reykjavík. Opið virka
daga kl. 9–17. S. 553-
9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils. Minning-
arkort Kvenfélagsins
Hringsins í Hafnarfirði
fást í blómabúðinni
Burkna, hjá Sjöfn s.
555-0104 og hjá Ernu s.
565-0152.
Minningarkort Breið-
firðingafélagsins eru til
sölu hjá Sveini Sig-
urjónssyni, s. 555-0383
eða 899-1161.
Í dag er þriðjudagurinn 25. júní,
176. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Hví sérð þú flísina í auga bróður
þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum
í auga þínu?
(Matt. 7,3.)
Víkverji skrifar...
KNATTSPYRNAN er skrýtinskepna. Það höfum við séð á
heimsbikarmótinu sem senn er á
enda. Fátt færir menn betur saman,
í gleði og sorg. Þær eru ótrúlegar
myndirnar sem við höfum séð frá
Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn,
Trafalgar-torgi í Lundúnum, götum
og torgum í Suður-Kóreu og Tyrk-
landi, svo dæmi séu tekin. Að ekki sé
talað um sambasveifluna í Brasilíu.
Heilu þjóðirnar standa á öndinni.
Eitt augnablik getur sett allt úr
skorðum, nefnum gullmark Suður-
Kóreu gegn Ítalíu, sem lagði sum-
arið nánast í rúst á Ítalíu. Og aum-
ingja Spánverjar, en í leiknum gegn
Suður-Kóreu, urðu mistök aðstoðar-
dómara til þess að milljónir manna
geta ekki á sér heilum tekið. Allt
heimsins óréttlæti helltist yfir þá.
Gremja Spánverja er skiljanleg,
þeir áttu að vinna leikinn. Mistök
dómara urðu þeim að falli. En hvað
er hægt að gera? Svona er fótbolt-
inn! Kannski engin rök en svona er
það nú samt. Þetta eru ekki fyrstu
dómaramistökin sem gerð hafa verið
í sögu HM – og örugglega ekki þau
síðustu. Hvað ef mark Geoffs Hursts
fyrir England gegn Þýskalandi 1966
hefði aldrei verið dæmt gilt, hvað ef
dómarinn hefði séð „hönd Guðs“ í
leik Argentínu og Englands 1986?
Svona mætti lengi telja.
Umdeildir dómar hafa að vísu ver-
ið fleiri á þessu móti en oft áður. Í
kjölfarið hefur líka komið umræða
um að knattspyrnan taki sjónvarps-
tæknina í sína þjónustu. Vafaatriði
verði skoðuð betur í sjónvarpi meðan
á leik stendur. Víkverji er andvígur
þessu. Hvar á að draga mörkin? Á
bara að endurskoða mörk – eða öllu
heldur meint mörk – eða á líka að
endurskoða brottvísanir, rangstöðu-
dóma, leikaraskap og jafnvel eitt-
hvað fleira? Þetta yrði fljótt að vinda
upp á sig. Endurskoðun af þessu tagi
myndi hægja um of á leiknum. Leik
sem þrífst fyrst og síðast á flæði. Er
það vinnandi vegur að stöðva leik, þá
hæst stendur, til að skoða frá 25
sjónarhornum hvort boltinn fór yfir
línuna eður ei? Varla.
x x x
ÞAÐ er fleira en dómaramistöksem sett hefur svip á heimsbik-
armótið að þessu sinni, látbragðs-
leikur manna. Hann færist í vöxt. Því
miður. Víkverji hefur skömm á
ódrengskap og vill skera upp herör
gegn þessu. Þannig hefði alþjóða
knattspyrnusambandið átt að senda
Brasilíumanninn Rivaldo heim eftir
leikinn gegn Tyrklandi í riðlakeppn-
inni, þar sem hann var staðinn að því
að gera sér upp höfuðáverka er
knettinum var spyrnt í hné hans.
Skrípaleikur þessi var settur á svið í
þeim tilgangi einum að koma and-
stæðingnum í bobba. Eins og það
þyrfti, alltaf lá fyrir að Tyrkinn sá
arna yrði áminntur fyrir ódæðið.
Samt gyrti Rivaldo niður um sig,
frammi fyrir 25 sjónvarpsmyndavél-
um. Þvílíkur kappi! Mikil umræða
hlaust af en Rivaldo yppti bara öxl-
um og hélt uppteknum hætti gegn
Englendingum, þar sem hann velti
sér fram og aftur í grasinu af engu
tilefni, að því er virtist. Maðurinn
hefur enga sjálfsvirðingu.
Víkverji hefur ekkert á móti Bras-
ilíumönnum, lið þeirra er ágætt. Eigi
að síður vonar hann að þeir standi
ekki uppi sem sigurvegarar á
mótinu. Hvers vegna? Maður með
geðslag Rivaldos á það ekki skilið!
Langur vinnutími
unglækna
ÉG VAR að lesa grein í
Mbl. í dag, 22. júní, eftir
Hjalta Má Björnsson, þar
sem hann gagnrýnir þær
hugmyndir að ungum
læknum sé ætlað að þurfa
að vinna allt upp í tólf sól-
arhringa í senn án hvíldar,
skv. kjarasamningum við
sjúkrahús.
Ég hef sl. 30–40 ár átt
við viðvarandi og víðtækt
heilsuleysi að stríða og mér
er sérlega minnisstætt eitt
af þeim mörgu skiptum
sem ég lenti á sjúkrahúsi,
skyndiinnlögn í það skiptið
því að mér var að blæða út
eftir ristilspeglun sem
hafði gert gat á slagæð.
Ungur læknir sem var á
vakt tók á móti mér og
sinnti því sem sinna þurfti,
setti upp blóðvatn og blóð
og vakti yfir mér alla nótt-
ina eins og hver önnur
ungamóðir. Morguninn eft-
ir kom svo þessi sami ungi
læknir eina ferðina enn til
mín og fer að biðjast afsök-
unar á að hann treysti sér
ekki til þess að vera við að-
gerð sem gera þurfti til að
loka fyrir blóðstreymið.
Drengurinn var orðinn svo
þreyttur að hann var orð-
inn nánast ljósgrænn í
framan. Ég sagði við þenn-
an unga lækni að mér væri
mikill greiði gerður með
því að hann kæmi hvergi
nærri þessari aðgerð því að
fólk sem væri búið að vinna
upp undir 24 klst. í senn
hefði tæpast fulla dóm-
greind lengur – og ég þver-
tæki með öllu fyrir að svo
þreytt fólk ætti að bera
ábyrgð á lífi mínu. Ég bauð
honum síðan að leggjast í
rúm mitt, mér sýndist
hann hafa meiri þörf á
hvíld en ég. Ég hlyti að
geta setið á einhverjum
stól. Hann þáði auðvitað
ekki að leggja sig, dreng-
urinn, en æ síðan hefur
þetta rifjast upp fyrir mér
þegar ég heyri minnst á
langar vaktir unglækna.
Sem langtímasjúklingur
styð ég heils hugar baráttu
unglækna fyrir því að þær/
þeir séu ekki látnir vinna
lengri vaktir en 8–12 tíma í
senn. Þeir sem vilja þvinga
unga lækna til að vinna
lengur en skynsamlegt er í
einni lotu eru einfaldlega
að stefna lífi og heilsu sjúk-
linga í hættu – því hvernig
á örþreytt fólk að geta
hugsað skýrt?
Hvað er meira áríðandi í
starfi læknis en einmitt að
geta hugsað skýrt? Og
hver ætlar að taka á sig
ábyrgð á mistökum sem ör-
þreyttur læknir gerir?
Ein gömul og lasin.
Umhugsunarefni fyrir
verslunareigendur
ÉG HEF verið að skoða
sumarflíkur undanfarið,
aðallega margs konar boli.
Það sem hefur komið mér
mest á óvart er að úrvalið
er mest í stærðunum Medi-
um og Small en lítið og
sumstaðar er ekkert til af
stærðinni Large svo ekki
sé talað um XL.
Mér er sagt að stærri
stærðirnar klárist alltaf
fyrst. Það kemur ekkert á
óvart því að það eru stærð-
irnar sem flestir nota.
Hvað gerist svo þegar að
útsölum kemur? Þá eru
það minni stærðirnar sem
fara á útsölu (Small og
Medium) því hinar eru
löngu uppseldar.
Hvernig væri að versl-
unareigendur pöntuðu inn
margfalt meira í stærri
stærðunum og enn minna í
minni stærðunum?
Þá selja þeir kannski all-
ar vörurnar fullu verði –
minna fer á útsölu og minni
hætta er á að sitja uppi
með óseljanlegan lager.
Vonandi er þetta um-
hugsunarefni fyrir
verslunareigendur.
Jóna.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 broslegur, 8 hörfar, 9
odds, 10 fugl, 11 snjóa, 13
drynja, 15 húsdýra, 18
biður sér, 21 skip, 22
rófa, 23 að baki, 24 flutn-
ingatækis.
LÓÐRÉTT:
2 kvendýrið, 3 gersemi, 4
mannsnafn, 5 fléttuðum,
6 munaður, 7 fjall, 12
gagnleg, 14 hita, 15
hysja, 16 óhreint vatn, 17
fyrir aftan, 18 hugaða, 19
gleðin, 20 skoða vand-
lega.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: - 1 busla, 4 hældi, 7 gerpi, 8 ósómi, 9 rós, 11 rönd,
13 kinn, 14 álkan, 15 blað, 17 álit, 20 ell, 22 yrðir, 23 jag-
ar, 24 senda, 25 tunna.
Lóðrétt: - 1 bugur, 2 súran, 3 akir, 4 hrós, 5 ljómi, 6 ið-
inn, 10 óskil, 12 dáð, 13 kná, 15 beygs, 16 arðan, 18 lagin,
19 terta, 20 erta, 21 ljót.
EINS og útsendingum
RÚV hefur verið háttað,
bæði í hljóðvarpi og sjón-
varpi, hafa útsendingar úr
kirkjum landsins verið eft-
ir gamla laginu – sem að
sjálfsögðu er sígilt. Síð-
ustu vikur hefur verið út-
varpað úr kirkjum sem
bjóða upp á mikinn söng
og tilbeiðslu, en innan
kirkna landsins er að finna
söngraddir til dýrðar
drottni sem legið hafa í
dvala. Nú geta allir lands-
menn átt þess kost að
njóta hins mikla og vand-
aða tónlistarlífs og kær-
Útsendingar úr kirkjum
leiksboðskapar sem fyrir-
finnst í þeim kirkjum sem
hingað til hafa verið skil-
greindar allt upp í það að
vera „sértrúarsöfnuðir“,
svo undarlegt sem það nú
er. Fólk finnur nú hvað
þetta er uppörvandi og
veitir mikla gleði. Dæmi
um þetta eru samkomur
hvítasunnusafnaðarins
Fíladelfíu. Von er að þetta
megi verða upphaf ann-
arra slíkra samkomna
safnaða sem lofa drottin
með gleði og tónlist sem
aldrei fyrr.
Stefán.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16