Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 43
DAGBÓK
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Mikið úrval
af buxum
frá kr. 1.790
VELÚRGALLAR
Léttir velúrsloppar
Nóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá, Sendum í póstkröfu
Við bjóðum ódýrari gistingu
í miðri viku í júlí og ágúst
Verð:
Stúdíóíbúð kr. 5.000
2ja manna herbergi kr. 4.000
Eins manns herbergi kr. 3.000
Stúdíóíbúðir: 1 vika kr. 25.000
Morgunverður innifalinn.
Gistihús Regínu
Mjölnisholti 14, 3. hæð, sími 551 2050 gistih.regina@isl.is
Góð fyrirtæki
1. Góð framköllunarstofa sem sami eigandi hefur átt í 10 ár. Öll tæki
sem þarf auk þess innrömmunartæki, ljósmyndastúdíó og stækk-
anir. Engin fagkunnátta nauðsynleg til eignarhalds. Góðar tekjur.
Selst ódýrt vegna veikinda eiganda.
2. Frábært afþreyingafyrirtæki til sölu. Mest kvöld- og helgarvinna.
Vel tæknivætt og það eina sinnar tegundar hérlendis. Mjög vin-
sælt. Sérstakt fyrirtæki sem gefur góðar tekjur.
3. Þekkt og snyrtileg sólbaðstofa með 5 bekkjum og mjög góðri að-
stöðu fyrir naglasnyrtingu eða naglaásetningu. Eina stofan í 10
þúsund manna hverfi. Rótgróin stofa með góðri ímynd.
4. Til sölu snyrtilegur mat- og kaffisölustaður, sem er opinn aðeins
til kl. 5 á daginn og lokaður um helgar. Þægilegur vinnutími. Gott
eldhús. Góð aðstaða.
5. Til sölu fyrir fjársterka aðila hlutur í fyrirtæki, sem er að selja sína
snjöllu ímynd út um allan heim.
6. Til sölu þekkt sportskóverslun á fjölmennasta stað í borginni.
Mjög góð velta. Sanngjarnt verð. Langur húsaleigusamningur.
Góð afkoma.
7. Þekktur söluturn með tveimur bílalúgum og mikilli veltu. Mest
skyndibiti, sem er framleiddur á staðnum og gefur því betri út-
komu. Leyfi fyrir nætursölu.
Mikið af nýinnkomnum fyrirtækjum af öllum gerðum.
LJÓÐABROT
FÁKAR
Í morgunljómann er lagt af stað.
Allt logar af dýrð, svo vítt sem er séð.
Sléttan, hún opnast sem óskrifað blað,
þar akur ei blettar, þar skyggir ei tréð.
– Menn og hestar á hásumardegi
í hóp með þráðbeinum, skínandi vegi
með nesti við bogann og bikar með.
Betra á dauðlegi heimurinn eigi.
– Brúnirnar þyngjast. Þeir harðna á hvarm.
Það hrökkva af augunum neista él.
Riðullinn þyrpist með arm við arm.
Það urgar í jöxlum við bitul og mél.
Þeir stytta sporin. Þeir stappa hófum
og strjúka tauma úr lófum og glófum.
Höfuðin lyftast. Hin lifandi vél
logar af fjöri undir söðulsins þófum.
Einar Benediktsson.
ÁRIÐ 1929 setti Theodore
Lightner fram þá snjöllu
hugmynd að dobl á slemmum
ætti að nota til að benda á út-
spil og mótaði nokkrar leið-
beinandi reglur um það
hvaða lit doblarinn vildi fá út.
Reglur Lightners hafa stað-
ist tímans tönn ótrúlega vel
og eru í grundvallaratriðum
enn í gildi. Þær mikilvæg-
ustu eru þessar: Óvænt dobl
á slemmu mótherjanna biður
um útspil: (1) í hliðarlit
blinds; (2) í hliðarlit sagnhafa
hafi blindur engan nefnt; (3) í
lengsta lit útspilara ef sóknin
hefur engan hliðarlit sýnt (og
þá er doblið byggt á eyðu).
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁG764
♥ KG104
♦ 4
♣ÁG2
Vestur Austur
♠ D853 ♠ K10
♥ 73 ♥ Á9652
♦ G765 ♦ 9832
♣653 ♣97
Suður
♠ 92
♥ D8
♦ ÁKD10
♣KD1084
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 spaði Pass 2 lauf
Pass 2 hjörtu Pass 3 grönd
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 6 lauf Dobl Allir pass
Þetta spil úr bókinni Open-
ing Leads eftir Mike Lawr-
ence sýnir vel gildi Lightner-
doblsins. Austur metur stöð-
una svo að nauðsynlegt sé að
fá spaða út áður en hjartaás-
inn er rifinn af honum og do-
blar til að biðja um spaða – lit
blinds. Og það er eina útspil-
ið sem hnekkir slemmunni.
Í þessu tilfelli hefur norður
(blindur) reyndar sagt frá
tveimur litum til hliðar við
trompið, bæði spaða og
hjarta. Þegar svo er gildir sú
viðbótarregla að átt er við
FYRSTA litinn sem blindur
hefur sagt.
Á morgun skulum við
skoða hvernig yfirfæra má
Lightner-doblið á aðrar stöð-
ur.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert gáfaður og skilnings-
ríkur einstaklingur og jafn-
framt frumkvöðull. Þér er
annt um aðra og kannt að
setja þig í spor annarra.
Draumar þínir rætast oft og
ekki síst á þessu afmælisári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Spenna sem þú hefur fundið
fyrir nýlega í samskiptum við
foreldra eða yfirmann minnk-
ar. Það er komið að logninu á
eftir storminum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Dagurinn einkennist af
spennu sem fer illa við af-
slappað eðli þitt. Þú færð
kjörið tækifæri til að sýna
stillingu þrátt fyrir mikið
stress.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Áhrif síðasta fulla tungls hafa
minnkað. Þér er létt og þú ert
afslappaðari vegna þess að
vandamálin hafa minnkað eða
horfið alveg.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta er yndislegur dagur,
njóttu hans. Valið er þitt því
þú skapar að mestu leyti þitt
eigið líf.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér finnst gaman að geta ver-
ið þú sjálfur í dag. Þú færð
kærkomið tækifæri til að
njóta þín í fallegu umhverfi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Minniháttar spenna í vina-
sambandi hefur áhrif á þig.
Þetta bendir frekar til þess að
þér sé annt um vininn sem um
ræðir heldur en öfugt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Metnaðargirndin vaknar til
lífsins því þú vilt að eftir þér
sé tekið. Þetta á eftir að ræt-
ast því án sérstakrar viðleitni
áttu eftir að hafa áhrif á aðra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Heimspekilegar hugsanir
sækja að þér í dag auk for-
vitni um menningu annarra
landa. Þú átt eftir að vilja
fræðast um ókunna staði og
aðstæður.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ákveðni þín í því að bæta
sjálfan þig er aðdáunarverð.
Hvort sem þú vilt hreyfa þig
meira eða bæta matarræðið
áttu eftir að vera sáttur við að
gera svo.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ástúðlegar tilfinningar til
einhvers sem er þér nákom-
inn eru sterkar í dag. Reyndu
að tjá tilfinningar þínar því
það á eftir að gera bæði þig og
manneskjuna ánægðari.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ánægjulegt samtal við náinn
vin lífgar upp á daginn. Þú átt
ekki aðeins eftir að njóta sam-
ræðanna heldur einnig eftir
að sjá að þú ert mikils metinn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Aðdráttarafl þitt í ástarlífinu
er sterkt í dag. Tilfinningar
þínar láta þér líða vel og
hugsa um lífið á jákvæðan
hátt.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1
b5 7. Bb3 Bb7 8. d4 Rxd4 9.
Rxd4 exd4 10. e5 Re4 11.
Df3 O-O 12. Hxe4 c5 13. c4
f5 14. exf6 Bxf6 15. Rd2 Kh8
16. Bc2 bxc4 17. Rxc4 d5 18.
He2 dxc4 19. Dxb7 d3 20.
De4 He8 21. Dxc4 dxe2 22.
Be3
Staðan kom upp
á Sigeman-mótinu
sem lauk fyrir
skömmu í Málmey
í Svíþjóð. Jonny
Hector (2513)
hafði svart gegn
Hannesi Hlífari
Stefánssyni
(2598). 22. ...Hxe3!
og hvítur gafst upp
enda fátt til varnar
eftir 23. fxe3 Dd2.
Hector hefur tekið
þátt í Sigeman-
mótinu mörg ár í
röð. Í öll skiptin
lenti hann í neðsta sæti en í
ár breytti hann út af venj-
unni og fékk meira en helm-
ing vinninga og endaði í 3.–4.
sæti.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Árnað heilla
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 9. mars sl. í Hafnarfjarð-
arkirkju af sr. Sigrúnu Óskarsdóttur Katrín H. Jónsdóttir og
Jón M. Ívarsson. Heimili þeirra er í Starengi 48, Reykjavík.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Kristján
Þessir duglegu krakkar héldu hlutaveltu á Akureyri og
söfnuðu 3.465 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þau
heita Berglind Bernardsdóttir, Bjarki Bernardsson og Urð-
ur Steinunn Frostadóttir Sahr.
Með morgunkaffinu
Hjá hverj-
um var það
aftur sem
þú lærðir ?
Fertugur ítalskur karlmað-
ur vill skrifast á við íslenska
konu á svipuðum aldri á
ítölsku, ensku eða spænsku.
Rudi Cantore
28 Casi Fiori
Reano Provinzia Torino
Italia
Festus, sem er 15 ára
drengur frá Ghana, óskar
eftir íslenskum pennavini.
Hann hefur áhuga á fót-
bolta, skiptast á gjöfum,
sundi og bréfaskriftum.
Hann skrifar á ensku.
Festus Owusu Yeboah,
P.O. Box NK394,
Nkawkaw ö EIR,
Ghana - WIA.
Jaime óskar eftir íslensk-
um pennavini, konu á aldr-
inum 25–35, til að skrifast á
við í tölvupósti.
Jaime skrifar á ensku og
býr í Minnesota, U.S.A.
Netfangið er:
martinez@mail.-
winternet.com
Lena, sem er þýsk 16 ára
gömul stúlka, óskar eftir að
skrifast á við stúlku á sínum
aldri. Hún skrifar á ensku.
Lena Kettner,
Kolpingstrasse 48,
85276 Pfaffenhofen,
Germany.
Brandon er 16 ára og ósk-
ar eftir að skrifast á við
stúlku á sínum aldri. Hann
býr í Maryland í Bandaríkj-
unum.
Netfangið er:
brandolicious@-
hotmail.com
Pennavinir