Morgunblaðið - 25.06.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 25.06.2002, Blaðsíða 44
FÓLK Í FRÉTTUM 44 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                          !"#$#%  & C HRIS Dolan hefur komið víða við á rithöfund- arferli sínum. Hann hef- ur jafnt skrifað handrit fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti, samið leikrit og ljóð, skrifað smásögur og fengist við þýð- ingar. „Rithöfundar í Skotlandi geta ekki lifað á skrifunum einum saman – ég hef heyrt að það sama sé uppi á ten- ingnum hér á Íslandi,“ segir Dolan. „Ég hef því fengist við ýmislegt sem viðkemur skriftum. Ég hef mest verið að skrifa fyrir sjónvarp, bæði fyrir bresku sápuóperuna The Shore sem sýnd er á BBC og einnig fyrir þættina Machair og High Road.“ Aðspurður segist Dolan þó ekki eiga í neinum vandræðum með að gera upp á milli ritstarfa sinna. „Mér þykir þetta allt skemmtilegt en kvikmyndahandritin held ég lang- mest upp á, það er engin spurning,“ segir Dolan. „Ég hef þó aðeins unnið að handriti fyrir tvær kvikmyndir því það er erfitt að komast þar að. Það eru gerðar svo fáar kvikmyndir í Skotlandi.“ Dolan hefur verið tilnefndur til BAFTA-verðlauna fyrir sjónvarps- handrit sín. Hann vann m.a. Scotland on Sunday-verðlaunin fyrir smásög- ur sínar, árið 1995, og skosku hand- ritshöfundaverðlaunin fyrir sjón- varps- og kvikmyndahandrit árið 1992. „Já það er svona með marga rit- höfunda, þeir verða ekki þekktir fyrr en þeir vinna einhver verðlaun. Þá fyrst fá þeir viðurkenningu fyrir það sem þeir gera,“ segir Dolan og skellir upp úr. „Ég vann handritshöfundaverð- laun en myndin hefur þó aldrei verið gerð og það sýnir bara hvað lítið er að gerast í kvikmyndaiðnaðinum í Skot- landi. Þetta vill oft vera raunin. Þó að áhugi sé fyrir hendi og gott handrit þá tekst alls ekki alltaf að finna fjár- magn til að framleiða myndirnar. Þó að það sé auðvitað frábært að fá verð- laun á borð við þessi væri auðvitað skemmtilegra að fá almennilega borgað fyrir það sem maður gerir.“ Ísland skarar fram úr Í heimsókn sinni til landsins hélt Dolan fyrirlestur í Odda og einnig stóð til að hann héldi námskeið um handritsgerð en úr því varð þó ekki. „Þetta varð eiginlega bara fundur eða samkoma með íslenskum kvik- myndagerðarmönnum og dagskrár- gerðarfólki,“ segir Dolan. „Á þessum fundi myndaðist grund- völlur fyrir umræðum um hvernig Ís- land og Skotland gætu mögulega unnið saman að kvikmyndagerð í framtíðinni.“ Dolan er uppfullur af hugmyndum um hvernig samstarf Íslendinga og Skota í kvikmyndagerð gæti nýst báðum aðilum. „Mér skilst að hér á Íslandi sé eng- in eiginleg starfsstétt handritshöf- unda. Það séu yfirleitt leikstjórarnir sem skrifa handritin sjálfir. Aftur á móti er mikið framleitt af kvikmynd- um, sjónvarpsþáttum og þessháttar hérlendis og þið eigið fjöldann allan af leikstjórum. Ég tel að þarna gæti orðið úr farsælt samstarf, með hand- ritshöfundana okkar og leikstjórana ykkar,“ segir Dolan. Hann er mjög hrifinn af því sem íslenskir kvik- myndagerðarmenn hafa verið að gera: „Ísland hefur orð á sér fyrir að skara fram úr í kvikmyndagerð. Þið hafið sent frá ykkur margar góðar myndir, sérstaklega 101 Reykjavík, hana er hægt að fá á flestum mynd- bandaleigum í Skotlandi. Ég hef kannski ekki séð margar íslenskar myndir en nógu margar til að vita að hér er mikil gróska í kvikmynda- gerð.“ Reykjavík í tísku Dolan segir Reykjavík vera mikið í tísku þessa dagana um heim allan og telur borgina vera eina þá umtöl- uðustu í heimi. „Áður en ég kom hingað leitaði ég ráða hjá blaðamönnum og öðrum sem til landsins þekkja og allir voru á sama máli, að Reykjavík væri frábær borg og hefði orð á sér fyrir að vera Mekka skemmtanalífsins, ung og fjörug,“ segir Dolan, greinilega ánægður með heimsóknina hingað til lands. „Það eina sem mér þykir leið- inlegt við heimsóknina er að við náum ekki að vera hérna yfir helgi til þess að kynna okkur næturlífið margrómaða. Við bætum úr því næst þegar við komum hingað, sem verður vonandi fljótlega þar sem við erum komnir með nokkur sambönd við kvikmyndagerðarmenn hér heima.“ Aðspurður segist Dolan ekki hafa gert formlegan samning við neinn kvikmyndagerðarmann hér en sagði margar góðar hugmyndir varðandi samvinnu hafa kviknað á fundinum daginn áður. „Fyrir utan sjálfan mig þá veit ég um marga færa handritshöfunda í Skotlandi sem myndu glaðir vilja vinna með íslenskum kvikmynda- gerðarmönnum. Ég er því viss um að við getum byggt upp gott samstarf og alveg handviss um að margt gott mun koma út úr því samstarfi,“ sagði Dolan bjartsýnn að lokum. Bjartsýnn á farsælt samstarf Morgunblaðið/Kristinn Chris Dolan var ánægður með heimsóknina hingað til lands. Skoski rithöfundurinn Chris Dolan í heimsókn hér á landi birta@mbl.is Á dögunum var staddur hér á landi skoski rithöfundurinn Chris Dolan sem skrifað hefur allmörg handrit að sjónvarpsþáttum, m.a. fyrir BBC. Birta Björnsdóttir hitti Dolan og fræddist um áhuga hans á samstarfi við íslenska kvikmyndagerðarmenn. SÓLSTAFIR hafa nú verið starfandi í heil sjö ár, en þetta myndi teljast þeirra fyrsta opinbera útgáfa. Reynd- ar átti platan víst að vera komin út fyrir löngu en eitthvað stapp og stirð- leiki, m.a. vegna útgáfufyrirtækis sveitarinnar í Þýskalandi, tafði framvinduna tölu- vert. Svartþungarokk- ið er vant að læðast meðfram veggjum, sem er synd, því það er einmitt þessi undirstefna þungarokksins sem er hvað frjóust og sköpunarríkust um þessar mundir, fyrir utan mögulega harðkjarnarokkið. Á líkan hátt geng- ur íslenska svartþungarokkið fremur bljúgt fram, þó hér séu starfræktar nokkrar sveitir. Ég ætla því að nota tækifærið og vísa þeim áhugasöm- ustu á vefsetrið Svartmálm, þar sem þeir áhugasömustu geta kynnt sér þessi fræði frekar (go.to/svartmalm- ur). Sólstafir hafa oft verið kenndir við hið svokallaða víkingarokk, sem er svartþungarokk, með ríka áherslu á texta með heiðnum boðskap þar sem menn leika sér með minni úr ása- trúnni. Þetta var áberandi á fyrri hluta ferilsins hjá Sól- stöfum, og bera lagatitl- ar eins og „Ásareiðin“ og „Í helli Loka“, sem er að finna á eldri prufuplöt- um sveitarinnar, þessu vitni. Á Í blóði og anda skyggnast þeir félagar hins vegar út fyrir hell- inn og beita fyrir sig hin- um ýmsu rokk-höfrum, með oftar en ekki hinum ágætustu niðurstöðum. Svartþungarokkið er áferðarlega afar hratt og hrátt og ef vel til tekst afar melódískt. Eitt einkenni þess eru svo löng lög, flókin að uppbyggingu. Formið býður því upp á ýmsar skemmtilegar fléttur og snúninga, eitthvað sem Sólstafir nýta sér vel hér. Eiðsvarnir svartþungarokkarar taka ábyggilega andköf er þeir heyra þessa plötu. Gnístandi kalt, hefðbund- ið svartþungarokk er það ekki, þó sveitin gæti auðheyranlega lagt slíkt fyrir sig. Sólstafir neita hins vegar að láta fjötra sig, eins og Fenrisúlfur forðum, og opna svartþungarokks- formið upp á gátt og hleypa inn straumum sem ekkert endilega hafa átt samleið með því, t.d. rokki og róli í anda Motörhead (tvö fyrstu lögin) og nýbylgju, þ.e. gítarnýbylgju að hætti Sonic Youth og My Bloody Valentine (sem heyra má best í laginu „2000 ár“). Þá er lagið „Bitch in Black“ sungið að hluta með hreinni röddu, eitthvað sem margir telja vera guð- last (satanslast?) í svartþungarokks- heimi. Spilamennskan er fagmannleg og upptakan einnig og Aðalbjörn er vel að merkja frábær svartþungarokks- söngvari. Nær þessum „ópum úr iðr- um helvítis“ glæsilega. Það sem væri kannski helst ámæl- isvert er að vegna þessarar auknu fjölbreytni virðist platan nokkuð ójöfn og brotakennd í einu rennsli. En hvað veit ég, kristinn maðurinn!? Á heildina litið vel heppnuð plata sem meðlimir geta verið afar sáttir með. Tónlist Víkingarnir eru komnir Sólstafir Í blóði og anda Ars Metalli Í blóði og anda, plata svartþungarokk- sveitarinnar Sólstafa. Sveitin er skipuð þeim Aðalbirni Tryggvasyni (gítar, rödd, hljómborð), G.Ó. Pálmasyni (trommur) og Svavari Austmann (bassi). Tónlist og textar eftir Aðalbjörn og G.Ó., einn texta á Kola Krauze. Þeim til aðstoðar eru Sig- urður Harðarson (bakrödd), Sigurgrímur Jónsson (bakrödd), G. Falk (gítarsóló), Svabbi (baköskur), Pjúddi G. (baköskur), Hörður Óttarsson (píanó), Kola Krauze (rödd) og Hulda „dula“ (rödd). Stjórn upptöku var í höndum Sólstafa. Hljóðritað af Herði Óttarssyni. Hljóð- blandað og hljómjafnað af Finni Há- konarsyni. Arnar Eggert Thoroddsen SIGURVEGARI blaðberakapp- hlaups Morgunblaðsins í maí- mánuði var hinn fótfrái Steinþór Ingvarsson. Blaðberakapphlaupið fer þann- ig fram að blaðberar fá stig við upphaf og lok blaðburðar en einnig fá þeir aukastig ef þeir ljúka burðinum fyrir kl. 7. Þeir sem safna flestum stigum og standa sig best í starfi lenda svo í lukkupotti, sem dregið er úr mán- aðarlega. Steinþór vílar ekki fyrir sér að bera út í hvorki meira né minna en fjögur hverfi. „Ég bý á Þorfinnsgötunni og byrja þar, svo fer ég út Eiríksgöt- una og Barónsstíginn og svo nið- ur Egilsgötuna og Leifsgötuna. Þaðan færi ég mig niður á Lauf- ásveg, tek Tjarnargötuna niður að Ráðhúsinu og þaðan upp Suð- urgötuna,“ segir Steinþór. Eiginkona Steinþórs slæst í för með honum á hverjum morgni og hafa þau borið út Morgunblaðið í hálft þriðja ár. „Þetta er mjög góð hreyfing og puð í tvo tíma. Ég hef misst einhver 10 kíló síðan ég byrjaði á þessu,“ segir Stein- þór og bætir við: „Ég myndi mæla með þessu fyrir fullorðið fólk eins og mig. Þetta er launuð heilsu- rækt, það gerist ekki mikið betra en það.“ Sigurvegari blaðberakapphlaups maímánaðar Morgunblaðið/Jim Smart Örn Þórisson, dreifingarstjóri Morgunblaðsins, afhenti sigurvegaran- um Steinþóri Ingvarssyni verðlaunin, gjafabréf í Kringlunni. Launuð heilsurækt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.