Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
C vítamín 500 mg
Eflir varnir.
Allt vítamínið í töflunni
nýtist þér. C vítamín forði í 12 klst.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
Gasol®
Heimsendingarþjónusta ÍSAGA
nær til Stór-Reykjavíkursvæðisins.
Heimsendingargjald er kr. 500,-
Afgreiðslan Breiðhöfða 11
er opin virka daga frá kl. 8 til 17.
800 5555
Hluti af Linde Gas Group
ÍSAGA ehf. • Breiðhöfða 11
Sími 577 3000 • Fax 577 3001
www.aga.is
FÓTBOLTAFÁRIÐ sem nú
skekur heiminn lætur lands-
menn síður en svo ósnortna og
má víða sjá Beckham-klippta
fótboltakappa etja kappi líkt
og átrúnaðargoðin í heims-
meistarakeppninni.
Popparar landsins hafa síður
en svo farið varhluta af fárinu
og reyndu þeir á laugardaginn
með sér í keppni sem skar úr
um hver væri þeirra skotfast-
astur.
Til leiks í HM-heimi Vetrar-
garðsins í Smáralindinni mættu
Hreimur Örn Heimisson úr
Landi og sonum, Valur Sæv-
arsson úr Buttercup, Kristján
Grétarsson úr Englum og
Kristján Gíslason úr Spútnik.
Leikmennirnir fengu fimm
tilraunir til að skjóta á markið.
Hreimur skaut öllum hinum
poppurunum ref fyrir rass og
skaut í fyrstu tilraun 100 km/klst
og í annarri 101 km/klst. Næstur
á eftir honum kom Eyjamaðurinn
Kristján Gíslason en þeir Valur
og Kristján ráku svo lestina.
Sveinn Waage, einn af fyndnari
mönnum landsins, lýsti keppninni
fyrir viðstöddum og gerði óspart
grín að félögum sínum.
Hreimur kom,
skaut og sigraði
Kristján Grétarsson, Hreimur Örn Heimisson,
Kristján Gíslason og Valur Sævarsson.
Keppnin um skotfastasta popparann í Smáralindinni
Morgunblaðið/Jim Smart
Hreimur fór fimlega með knöttinn.
LEIKKONAN Angela
Bassett hafnaði boði um að
leika aðalhlutverkið í
myndinni Monster’s Ball
vegna þess að hún taldi að
ástarsambandið sem per-
sónan stóð í væri lítillækk-
andi og byggðist á stöðl-
uðum ímyndum um
þeldökkar konur.
„Þetta snýst um per-
sónuleika, elskan,“ sagði
Bassett í samtali við blaða-
mann tímaritsins News-
week. „Ég vildi ekki leika
vændiskonu í kvikmynd. Ég gat
það ekki vegna þess að það byggist
á svo staðlaðri ímynd um þeldökk-
ar konur og kynferði.“
Leikkonan tekur skýrt
fram í viðtalinu að hún vilji
ekki gagnrýna Halle
Berry, sem leikur vansæla
þjónustustúlku sem á í ást-
arsambandi við böðul eig-
inmanns síns. Berry fékk
Óskarsverðlaun fyrir hlut-
verkið.
Bassett er ekki eina
leikkonan sem afþakkaði
hlutverk í myndinni Mon-
ster’s Ball. „Þetta snýst
um að gefa eitthvað af sér
sem maður getur verið
stoltur af eftir tíu ár,“ sagði Bas-
sett. „Meryl Streep fékk Óskars-
verðlaunin án þess að þurfa að
gera allt þetta.“
Staðlað og lítillækkandi
Angela Bassett
vill geta horft
stolt um öxl
eftir 10 ár.
ÞAÐ var öllu hressilegri stemmning
um helgina við steinana stóru hjá
Stonehenge í Bretlandi en vant er.
Rúmlega 16 þúsund manns söfn-
uðust þar saman síðastliðinn föstu-
dag til að fagna sumarsólstöðunum,
lengsta degi ársins.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd skemmti fólk sér almennt vel
og var ekki að sjá á þessum Bretum
að þeir tækju brottfall sinna manna
úr heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu nærri sér.
Tvö ár eru síðan þessi sumar-
sólstöðuhátíð var haldin í fyrsta sinn
en hún er sögð einkennast af friði,
náttúruverndarsinnum, berrössuðu
fólki og þungum daun af kannabis-
efnum!
Sumarsól-
stöður á
Stonehenge
Reuters
Strípalingar á Stonehenge.
Tugir þúsunda fögnuðu lengsta degi ársins
TÍSKUVÖRUVERSLANIR lands-
ins leggja nú hver af annarri lín-
urnar um hvernig landsmenn eigi
að klæða sig í sumar til að vera
samkvæmt nýjustu tísku.
Skóframleiðandinn X-18 stóð á
dögunum fyrir tískusýningu í
Kringlunni á því nýjasta sem
hann hefur upp á að bjóða í skó-
fatnaði fyrir konur og karla.
Fjöldi föngulegra ungmenna
sýndi skótau og var ekki annað
að sjá en að áhorfendum litist vel
á sumartískuna í skófatnaði.
Morgunblaðið/Þorkell
Skófatnaðurinn var af ýmsum toga, fyrir bæði konur og karla.
Bundin í
báða skó
Áhorfendur létu vel af skótísku
sumarsins.
X-18 kynnir sumartískuna í skófatnaði