Morgunblaðið - 20.10.2002, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 37
Þverás — einbýlishús
Borgarfasteignir,
Vitastíg 12, 101 Reykjavík
Símar 561 4270 og 896 2340.
Þórarinn Jónsson hdl., löggiltur fasteignasali. Halldór Guðjónsson.
Sérlega glæsilegt um 110 fm einbýlishús á einni hæð
ásamt ca 39 fm bílskúr samtals 149 fm. Húsið
skiptist í anddyri, stofu og borðstofu, 3—4 herbergi,
eldhús, þvottahús, búr og baðherbergi. Parket á
gólfum, vandaðar innréttingar. Falleg lóð með
sólverönd. Verð 19,4 millj.
Opið hús í Grasarima 22, Grafarvogi,
í dag milli kl. 14 og 16
Glæsilegt 166 fm raðhús
ásamt innb. 27 fm bílskúr.
4 svefnherbergi, stofa og
borðstofa. Fallegt parket á
gólfum nema einu herbergi.
Glæsilegt aðalbaðherbergi
með flísum á gólfi og
veggjum, sér sturtuklefi og
baðkar. Rúmgott þvotta-
herbergi með. Innangengt í
bílskúrinn. Áhvílandi hagstæð lán. Verð 21,5 millj.
Upplýsingar veitir sölufulltrúi
Remax,
Páll Höskuldsson, GSM 864 0500.
FASTEIGNASALAN GIMLI, GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - 570 4810
SKAFTAHLÍÐ 10
Falleg og töluv. endurn. 4ra herb. enda-
íbúð alls 112 fm á 4. hæð með fallegu
útsýni. Eikarparket á öllum gólfum fyrir
utan baðherb. sem er flísalagt. Þrjú rúm-
góð svefnherb. Stór stofa með útg. á
svalir í vestur. Verð 13,2 millj.
Baldur og Þórný taka á móti ykkur
í dag á milli kl. 14 og 16.
OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAGINN, 20. OKTÓBER
GIMLI I LIG
EINBÝLI
Tjaldanes
Glæsilegt tvílyft 300 fm einbýlishús með
tvöföldum bílskúr. Húsið skiptist m.a. í
góðar stofur, sólskála, eldhús og svefn-
herbergisálmu á efri hæðinni. Á neðri
hæðinni er vandað fjölskyldurými, sauna
og baðherbergi. Mjög góðar geymslur.
Hiti í plani. Verðlaunalóð. V. 33,5 m.
1858
HÆÐIR
Glaðheimar - sérhæð
Erum með í einkasölu fallega og bjarta
u.þ.b. 135 fm sérhæð á eftirsóttum stað.
Hæðin er í góðu ástandi og er með stóru
eldhúsi og búri. Steypt bílskúrsplata. V.
16,3 m. 2786
4RA-6 HERB.
Hverfisgata - 5-6 herb.
Björt íbúð á 1. hæð í járnklæddu timbur-
húsi. Íbúðin skiptist í tvær samliggjandi
stofur, tvö herbergi, eldhús og bað. Í
kjallara fylgja tvö herbergi sem innan-
gengt er í. V. 11,5 m. 2779
3JA HERB.
Hvassaleiti - 1. hæð
Erum með í einkasölu fallega og bjarta
80 fm íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli.
Parket og góðar innréttingar. Vestursval-
ir. Hús og sameign í góðu ástandi. V.
11,3 m. 2785
Tómasarhagi - sérinngangur
Falleg og björt u.þ.b. 72 fm íbúð í kjall-
ara í góðu húsi og með sérinngangi.
Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð,
m.a. eldhús, bað og parket. Falleg íbúð
á eftirsóttum stað. V. 10,5 m. 2780
Laugarnesvegur - laus fljót-
lega
Snyrtileg og björt u.þ.b. 78 fm íbúð í
kjallara í fallegu fjölbýli. Góðar innrétt-
ingar. Sérgeymsla og sameiginlegt
þvottahús. Íbúðin getur verið laus fljót-
lega. V. 9,9 m. 2778
2JA HERB.
Reykás - falleg íbúð
Erum með í einkasölu u.þ.b. 69 fm íbúð
á jarðhæð í litlu og vönduðu fjölbýli. Frá-
bært útsýni. Góðar innréttingar. Hús og
sameign í góðu ástandi. V. 9,9 m. 2787
Sérlega falleg og mikið endurnýj-
uð 3ja herbergja íbúð í risi í 3-
býlishúsi. Íbúðin skiptist þannig:
Stofa, tvö herbergi, eldhús, bað-
herbergi og hol. Geymsla fylgir í
kjallara. Risloft er yfir allri íbúð-
inni. Nýtt rafmagn er í íbúðinni
svo og rafmagnstafla. Uppruna-
leg lökkuð og slípuð gólfborð eru
á öllum gólfum. Miklir kvistir eru í
íbúðinni. V. 12,9 m. 2794
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, milli kl. 13 og 16.
Ingólfsstræti 10 - sérlega falleg
miðbæjaríbúð - OPIÐ HÚS
Erum með í einkasölu fallegar og
bjartar tvær 3ja herbergja íbúðir á
1. og 2. hæð í steinsteyptu tví-
býlishúsi. Á neðri hæðinni er 3ja
herbergja 63 fm nýinnréttuð íbúð
með parketi og nýjum innrétting-
um í eldhúsi og á baði. Á 2. hæð
er 3ja herbergja falleg og björt 72
fm íbúð með fallegu parketi, nýrri
mahóní eldhúsinnréttingu, bað-
herbergi með flísum og nýjum skápum. Í húsinu hefur nánast allt verið end-
urnýjað svo sem gler, járn á þaki, raflögn og pípulögn. Sameign er máluð
og nýlega teppalögð. Ekki hefur verið búið í íbúðunum sem eru tilbúnar til
afhendingar. Útigeymsla fylgir. Góð lóð til vesturs. Verð eru 10,2 millj. á
neðri hæð og 10,8 millj. á efri hæð. Hentar vel fyrir viðbótarlán. 2665
Mjölnisholt 4
OPIÐ HÚS í dag á milli kl. 13-15
Fallegt um 82 fm einb. á eftirsótt-
um stað. Í kjallara er herbergi,
þvottahús/geymsla og hol. Á
hæðinni er stofa, eldhús, baðher-
bergi og forstofa, en svefnloft er í
risi. Húsið hefur allt verið tekið í
gegn að utan og lítur vel út. Hita-
lagnir og gler hefur verið endur-
nýjað. Mjög skemmtileg eign. V.
12,5 m. 2677
Húsið verður til sýnis í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 17.
Grettisgata 33 - lítið, fallegt einbýli
OPIÐ HÚS
Þar voru nokkrir mjög stórir, 15
og 16,5 pund.
Rólegheitaveiði virðist hafa
verið í Eldvatni í Meðallandi og
byggjum við það á samtölum við
nokkra veiðimenn sem þar
veiddu. Steindauði var þar þó ekki
og eitthvað dorguðu menn upp af
vænum fiski. Sama er að segja um
Eldvatnsbotna og Eldvatn á
Brunasandi, en á báðum stöðum
var þó einhver reytingur af
bleikju í bland. Hverfisvötn áttu
sín góðu skot og við fréttum af
nokkrum veiðimönnum sem fengu
góðan afla og væna fiska, sérstak-
lega þar sem Laxá og Brúará
blandast jökulvatni Djúpár.
Þá má segja að óvenjumikið
hafi verið af laxi í umræddum ám,
t.d. veiddust allnokkrir bæði í
Hörgsá, Geirlandsá og Tungu-
fljóti.
Afturþung Black Ghost
Við greindum frá stórfiski sem
Einar Bragi Þorláksson veiddi í
Fossálum nú síðla hausts, rúm-
lega 12 punda birtingur var þar á
ferðinni, grútleginn krókmikill
höfðingi. Allnokkrir stórbirtingar
hafa lotið í gras í haust en flestir
þeirra hafa veiðst á spón. Fæstir á
flugu. Guðjón Reynisson fékk þó
einn 16,5 punda á Snældu og ofan-
greindur Einar Bragi notaði
Black Ghost straumflugu. Hér
fylgir mynd af flugunni hans Ein-
ars, þetta er eins og sjá má engin
venjuleg Black Ghost, því Einar
hefur þyngt á henni bossann með
tveimur kúlum sem menn sjá
venjulega skeytt framan á haus
flugna til að þyngja þær. Einar
segist hafa fengið þessa hugmynd
er hann egndi fyrir stórurriða í
Laxá í Laxárdal í sumar og þá
með djúpa straumþunga staði
eins og Sogin í huga. Að vísu skil-
aði hin afturþunga straumfluga
engum fiski á land við það tæki-
færi, en hún fékk aftur tækifæri
til að láta ljós sitt skína í Fossál-
unum á dögunum. Og það á eftir
spæni. „Mér datt í hug að fluga
með þungamiðjuna svona aftar-
lega gæti gefið nýjan vinkil og
ætti þar að auki að geta fest betur
í fiskinum. Þetta hreif og flugan
var rótföst í kjaftvikinu,“ sagði
Einar Bragi Þorláksson.
Morgunblaðið/Golli
Black Ghost-straumfluga Einars
Braga Þorlákssonar. Afturþung
með afbrigðum.