Morgunblaðið - 25.10.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.10.2002, Blaðsíða 18
AKUREYRI 18 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Herradeild Akureyri, sími 462 3599. Peysur www.islandia.is/~heilsuhorn Jurtaestrógen SENDUM Í PÓSTKRÖFU Jurtaestrógen úr rauðsmára fyrir konur á breytingaskeiði (ath. aðeins einn belgur á dag) Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889 Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum, Árnesapóteki, Selfossi og Yggdrasil, Kárastíg 1. Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi auglýsir hér með eftir aðilum, sem hefðu hug á að skipa sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu í komandi Alþingiskosningum. Nöfnum ber að skila til formanns kjörnefndar, Sigurðar J. Sigurðssonar, Lerkilundi 3, 600 Akureyri fyrir 1. nóvember nk. Kjörnefndin. Auglýsing frá kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi TVEIR staðir þykja koma helst til greina fyrir sorpurðun norðan Ak- ureyrar en það eru tún við bæinn Gása í Hörgárbyggð og svæði við Bjarnarhól í Arnarneshreppi. Sorp- eyðing Eyjafjarðar bs. hefur látið gera ítarlegan samanburð á stöð- unum tveimur og þar kemur m.a. fram að við samanburð á þeim þátt- um sem þykja skipta mestu máli varðandi val á urðunarstað, sé aug- ljóst að urðunarstaður við Gása er talinn vera betri kostur en urðun við Bjarnarhól. Á hvorugum staðn- um er gert ráð fyrir sorpförgun samkvæmt skipulagi og á tillögu- uppdrætti fyrir svæðisskipulag Eyjafjarðar 1998–2018 eru báðir staðir tilgreindir sem landbúnaðar- svæði. Það var Stuðull, verkfræði- og jarðfræðiþjónusta, sem vann skýrsluna en fleiri aðilar komu þar að málum. Guðmundur Guðlaugs- son framkvæmdastjóri Sorpeyðing- ar Eyjafjarðar sagði að skýrslan hefði aðeins verið kynnt í stjórn Sorpeyðingar en eftir væri að fjalla um málið. Þá sagði Guðmundur að einnig ætti eftir að kynna sveit- arstjórnum Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar skýrsluna. Í skýrsl- unni kemur fram að oft leiði um- hyggja fyrir umhverfi til þess að öllum tillögum um nýja urðunar- staði er hafnað og litið sé á urð- unarstaði sem umhverfisvandamál, enda þótt þeir séu í raun hluti af lausn til þess að vernda umhverfið. Algengt sé að menn bendi á óhrjá- lega og mengaða staði fyrir urð- unarstaði, t.d. gamlar námur. Þetta geti leitt til þess að valdir eru stað- ir til urðunar þar sem ekki er nokk- ur leið að vanda vinnubrögð við urðun, sem leiðir til slæmrar um- gengni. Staðsetning urðunarstaða verður að vera þannig að hægt sé að skipuleggja þá vel og að vinna við urðun verði auðveld og ódýr. Í skýrslunni kemur einnig fram að Bjarnarhóll fullnægi reglugerð- arákvæðum um 500 m fjarlægð frá bústöðum manna en íbúðarhúsið á Gásum er innan við 500 m frá mörkum líklegs urðunarsvæðis. Engin sérstök útsýnissvæði eru við Gása og hugsanlegur urðunarstað- ur er vel sýnilegur frá vegi. Einnig glittir í staðinn frá bílastæði við verslunarstaðinn að Gásum. Ekki sést til urðunarstaðarins við Bjarn- arhól nema úr talsverðri fjarlægð, þannig að hann hefur ekki áhrif á útsýnisstaði. Urðunarstaður við Bjarnarhól kemur ekki til með að hafa marktæk áhrif á ferða- mennsku, samkvæmt skýrslunni, en hugsanlegt er að urðunarstaður við Gása hafi þar einhver áhrif sem tengjast verslunarstaðnum að Gás- um. Báðir staðir hafa lítil áhrif á umferð um hringveginn. Urðunar- staður við Bjarnarhól mun hafa lítil áhrif á þjóðvegi 82, Siglufjarðar- vegi, en báðir staðirnir hafa áhrif á umferð um vegi í nágrenni sínu. Þar er umferð lítil en myndi aukast verulega vegna urðunar. Flutningskostnaður að Gásum um 10 milljónum króna lægri á ári Fornleifar eru við urðunarstað við Bjarnarhól og verður að taka tillit til þeirra við skipulagningu staðarins. Þá lenda líklega fornir landamerkjagarðar innan urðunar- svæðisins en ekki er talið að það hindri notkun þess. Á hugsanlegu urðunarsvæði við Gása eru tvær yf- irsléttaðar tóftir sem þarf að rann- saka en ekki er talið að það muni hafa áhrif á staðsetningu. Í næsta nágrenni við hugsanlegan urðunar- stað eru mikilvægar fornleifar við verslunarstaðinn á Gásum. Versl- unarstaðurinn er þó langt fyrir ut- an lögmæta fjarlægð frá urðunar- staðnum samkvæmt fornminjalögum. Urðunarstaður við Gása styttir heildar flutningsvegalengd með úr- gang umtalsvert miðað við urðun- arstað við Bjarnarhól. Gera má ráð fyrir að flutningskostnaður sveitar- félaganna með sorp verði um 10 milljónum króna ódýrari á ári fyrir flutning að Gásum. Þá er styttra í námur fyrir milliþekjur og botn- dren við Gása og þar er líka líklegt að nægt efni í lokaþekju sé fyrir hendi. Við Gása er styttri aðkomu- vegur en á móti kemur hugsanleg- ur flutningur á vegi að gamla versl- unarstaðnum. Mun styttri fráveitulögn þarf við Gása en við Bjarnarhól og hugsanlega mætti nýta hús sem fyrir eru á Gásum fyrir vélageymslu og aðstöðu fyrir starfsmenn. Í skýrslunni kemur fram að ef Sorpeyðing Eyjafjarðar nær samkomulagi um annan hvorn urðunarstaðinn, liggi fyrir að ráð- ast í frekari rannsóknir, sem séu dýrar. Sorpurðun á Glerárdal verður hætt á næsta ári Árið 1993 stofnuðu sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu Sorpeyðingu Eyjafjarðar bs. Um nokkura ára skeið fyrir þann tíma hafði sorp frá sveitarfélögunum við Eyjafjörð ver- ið urðað á Glerárdal ofan Akureyr- ar. Þar áður þjónaði urðunarstað- urinn á Glerárdal Akureyringum og hefur hann nú verið starfræktur í nær 30 ár. Í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar var ljóst að urðunar- staðurinn á Glerárdal myndi ekki endast lengur en til ársins 1996. Hann var þá stækkaður og áætlað að sú stækkun myndi endast í 7 ár. Nýtt starfsleyfi var gefið út og rennur það út á næsta ári. Bæj- arstjórn Akureyrar hefur tekið ákvörðun um að hætt skuli að urða úrgang á Glerárdal og það var þess vegna sem hafist var handa við að leita að nýjum urðunarstað fyrir Eyjafjarðarsvæðið. Samanburður á hugsanlegum urðunarstöðum fyrir sorp við Bjarnarhól í Arnarneshreppi og Gása í Hörgárbyggð í Eyjafirði                                                                                                       " # $"%&   ' (&! % !   ! )  !  * +, - Urðunarstaður við Gása talinn betri kostur SKIPULÖGÐ kynning verður á heilsurækt og heilsuvernd fyrir alla fjölskylduna næstu fjórar helgar á Akureyri, en um er að ræða heilsuræktarverkefnið sem heitir „Fjölskyldan saman, gam- an!“ Að því standa nokkrir nem- endur í fjarnámi við Kennarahá- skóla Íslands, m.a. þrír íþróttakennarar á Akureyri. Verkefnið hefst á morgun, laug- ardaginn 26. október, og verður þá lögð áhersla á íþróttir sem tengj- ast vatni og samstarf haft við Sundfélagið Óðinn og Siglinga- klúbbinn Nökkva. Ókeypis að- gangur verður í Glerárlaug en þar verður kynnt vatnsleikfimi, þrek og leikir frá kl. 10 til 10.40, tækni- æfingar í skriðsundi og baksundi fyrir alla aldurshópa frá kl. 11 til 12 og kajakróður og veltur frá kl. 13.30 til 14.30. Næstu laugardaga, þe. 2., 9. og 16. nóvember, verður boðið upp á kynningu á skátastarfi, tae- kwondo, dansi af ýmsum toga, nuddi, slökun, jóga, fimleikum, sjúkraþjálfun, vaxtarrækt, skauta- og skíðaíþróttum auk þess sem efnt verður til ratleiks og fleira. Markmiðið með verkefninu er m.a. að gera heilsuvernd og for- varnarvinnu að sameiginlegu átaki fjölskyldunnar. Fjölskyldan saman, gaman Skákfélag Akureyrar heldur skákstjóranámskeið á morgun, laugardag. Gunnar Björnsson, al- þjóðlegur skákdómari, mun koma norður yfir heiðar og fara yfir breytingar á alþjóðlegum skáklög- um auk þess að svara fyr- irspurnum frá skákáhugamönnum. Námskeiðið hefst kl. 10 um morg- uninn og stendur fram eftir degi. Öllum skákáhugamönnum er vel- komið að líta inn. Á MORGUN MÖRGUM þykir snjórinn koma með fyrra fallinu þetta haustið og hefðu kosið að nokkur bið yrði á því að jörð yrði hvít. Heldur kalt og hryssingslegt hefur verið norðan heiða um skeið og nú er fyrsti vetr- ardagur framundan, heilsar ef- laust með trekki á laugardag eins og hans er von og vísa. Börnin taka komu hans með fögnuði og bruna út í brekk- urnar alsæl með snjóþotur sín- ar. Og taka hverja salibununa á fætur annarri, rjóð í kinnum. Morgunblaðið/Kristján Vetur heilsar Heimildarmyndin Möhöguleikar sem verður sýnd í Ketilhúsinu á morgun, laugardaginn 26. október, kl. 17. Myndin fjallar um Sigurð Guðmundsson, en hann „hefur fyr- ir löngu skapað sér nafn í hinum alþjóðlega listheimi og á löngum ferli sínum hefur hann gripið til allra mögulegra aðferða til að tjá hugmyndir sínar“, segir í tilkynn- ingu um sýningu myndarinnar. Aðgangseyrir er 500 krónur. Bangsadagur verður á Amts- bókasafninu á Akureyri á morgun, laugardaginn 26. október. Þetta er fimmta árið sem dagurinn er haldinn hátíðlegur á bókasöfnum á Norð- urlöndum. Kynning verður á bangsategundum á veggjum barna- og unglingadeild- ar, bangsasögustund verður kl. 11 og boðið verður upp á bangsanammi og efnt til bangsahappdrættis. Þá fá öll börn að lita bangsamynd og allir þeir sem heita eitthvað í líkingu við björn fá ókeypis lán og felldar niður sektir þennan dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.