Morgunblaðið - 25.10.2002, Page 37

Morgunblaðið - 25.10.2002, Page 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 37 ars staðar vera. Þar gátuð þið leikið ykkur úti í guðsgrænni náttúrunni undir Esjuhlíðum eða verið í stóra húsinu þar sem þið sváfuð svo vært. Og þegar þið fluttuð í Dynsalina vor- uð þið ekki lengi að aðlagast nýja skólanum og eignast góða vini og amma ykkar var þar eins og klettur í hafinu sem þið gátuð alltaf leitað til þegar mamma ykkar var að vinna. Ósjaldan voruð þið hjá henni þegar ég leit í heimsókn og alltaf sögðuð þið mér eitthvað spennandi sem hafði gerst í skólanum eða af nýustu uppá- tækjum hundanna ykkar, þeirra Dinó og Nölu. Elsku systurdætur mínar. Megi Guð varðveita ykkur á himnum þar sem þið fáið að vera með ykkar elsk- andi móður ásamt hinum alltof mörgu í fjölskyldunni sem fallnir eru frá. Bjarni frændi. Það þarf ekki langan tíma til að fullreyna sumt fólk, það skilar mann- kostum sínum án fyrirvara og skil- yrðislaust þegar á reynir. Þetta sýndir þú Þórdís þegar hún Ella Rut frænka þín lést síðastliðið vor. Stuðningur þinn við Sigrúnu systur þína var eins og þér einni var lagið, án allra fyrirvara og af öllum kröft- um. Þú varst svo áköf við að velta fyrir þér tilganginum með slíku brottkalli og oft var spurt, hvers vegna, en engin svör fengust, en áfram er spurt og enn eru engin svör. Þau fást kannski um síðir, hver veit, en eitt er víst að sá eldmóður sem þú hafðir og veittir hlutdeild í hjálpaði sorgmæddri móður þegar dalurinn var hvað dimmastur og hin andlegu skref stutt og hikandi. Allt sem þú gerðir var framkvæmt af alefli. Á Noregsárunum þínum var veru- legt tilhlökkunarefni að fá frá þér tölvupóst, því þá tókst þú oft flugið í andanum og stíllinn var svo leiftr- andi skemmtilegur og heillandi að það var oft eins og reyndur spennu- sagnahöfundur sæti við skriftir á þínum enda. Stundum hélt ég uppi smáþrefi bara til að fá svarbréf til baka, en ég vissi að með þér leyndist draumur um árangur í ritlistinni, al- veg eins og þú hafðir náð í starfi þínu, sem var eins og allt hitt kraftmikið og markvisst. Þvílík orka, þvílíkt flug. Þegar ég hitti þig síðast varstu að koma úr Laufskálarétt og renndir við í sveitinni hjá okkur Sigrúnu, þú varst uppfull af áformum og hug- myndum. Það átti að virkja ár og læki, rækta hesta, ríða út, byggja hús og girða lönd ásamt vinnu og móð- urhlutverki. Ég hefði alveg treyst þér til að gera þetta allt, því þú gast allt. Kraftbirtingarhljómur guð- dómsins felst ef til vill í því, meðal annars, að fá að kynnast fólki eins og þér, þótt aðeins sé um stutta stund. Því það eru forréttindi. Þannig mun ég minnast þín, óða- mála af hamingju og geislandi af krafti. Því hamingjusöm varstu. Megi Guð styrkja þá sem eftir standa og drúpa höfði í sorg og trega eftir þér og dætrum þínum. Far þú í friði. Gunnar. Fyrr á þessu ári fögnuðu frænkur mínar með mér tímamótum. Falleg- ar og glæsilegar og báðar fullar af lífsþrótti að búa sér gott líf, önnur með ungum dætrum sínum tveimur. Nú hefur verið klippt á lífsþráð þeirra allra. Elín Rut Kristinsdóttir fórnarlamb umferðarslyss í Amer- íku. Þá fóru tvær litlar systurdætur hennar, sem hún hafði í tvö ár verið með í Noregi, með bestu bangsana sína á leiði hennar í Lágafellskirkju- garði. Nú verða þær lagðar þar til hinstu hvílu við hlið móður sinnar Þórdísar Önnu, fórnarlömb umferð- arslyss, nú á leið frá glöðum degi í réttunum vestur á fjörðum. Er nokk- ur leið að ná utan um slíkt, hvað þá skilja? Bróðurdóttir mín, Þórdís Anna Pétursdóttir, var nýflutt heim frá Noregi og miðaði af alúð allt við að koma sér svo fyrir með dæturnar tvær, að þær mættu ná sem bestum þroska. Settist að í sama húsi og móðir hennar, Elín Bjarnadóttir, í öruggri nánd við nýjan skóla. Þar hitti ég þær síðast hjá ömmu sinni að sýna mér orku sína og færni í að stökkva heljarstökk á „trampólíni“. Elín Ísabella komin í leikfimi hjá Gerplu, ætlaði að verða fimleika- kona, og Mirra Blær að helga sig umönnun dýranna. Móðir þeirra full af bjartsýnum framtíðarvonum, orku og dugnaði. Erlendis hafði hún óvílin komið upp líkamsræktarstöð og óaf- látanlega aflað sér viðbótarmenntun- ar. Við slíku á maður aðeins lánsorð frá Jónasi Hallgrímssyni: Vonarstjarna vandamanna hvarf í dauðadjúp, en drottinn ræður. Elín Pálmadóttir. Ég veit ekki hvernig ég á að fara að því að kveðja þig, elsku Dísa mín, þið voruð teknar frá okkur svo snöggt. Þú varst litla systir hennar mömmu en varst mér alltaf líka svo góð vinkona, komst alltaf fram við mig eins og þú værir jafnaldri minn og hafði ég ætlað mér að koma fram við Elínu og Mirru á sama hátt og þú gerðir. Við fjölskyldan komum til Svíþjóðar eitt sumar til ykkar og ferðuðumst út um allt en svo fékk ég að koma til þín ein tvö önnur sumur. Fyrst var það til að hjálpa þér þegar þú varst ólétt að Elínu og svo kom ég og passaði Elínu og Mirru eitt sum- ar. Við gerðum svo margt með stelp- unum ég og þú, klöngruðumst út um allt með þær, fórum í ferðalag og svo fórum við öll saman til Grikklands. Það voru yndislegir tímar og mun ég aldrei gleyma þeim. Þið fluttust svo til Noregs en komuð alltaf reglulega til Íslands í heimsókn og vá hvað maður hlakkaði til, vildi helst vera með ykkur allan sólarhringinn. Þú varst alltaf svo hvetjandi og drífandi að það var engu líkt. Tilfinningin þegar þið voruð að fara að flytja heim til Íslands var ólýsanleg gleði, að geta bara heimsótt ykkur án þess að fara í langferðalag var æðislegt. Þið voruð reyndar nýkomnar heim þegar ég var á leiðinni út til Englands en þú varst svo ánægð með að ég hafði ákveðið að gera þetta því þú hafðir gert svipaða hluti þegar þú varst yngri. Það var erfitt að fara út þegar þið voruð að koma heim en það hugg- aði mig að hugsa um hvað ég átti eftir að eiga margar stundir með ykkur þegar ég kæmi heim. Þú varst svo yndisleg móðir, vildir allt fyrir Elínu og Mirru gera svo þeim myndi líða vel, þú lifðir svo sannarlega fyrir þær. Og þú varst orðin svo ham- ingjusöm með honum Ásgeiri að það geislaði af þér. Ég veit ekki hvernig ég á að komast í gegnum þetta en minningarnar mun ég geyma í hjart- anu og þær leiða mig áfram í gegn um lífið. „Ég er upprisan og lífið, sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.“ Þín litla frænka og vinkona, Halla Björk. Elsku besta Elín mín, það er svo erfitt að kveðja þig, snúllan mín. Við áttum svo margar minningar saman alveg síðan þú fæddist. Ég fylltist svo mikilli gleði þegar ég fékk að sjá þig sama dag og þú fæddist, pínulitla dúllu. Fékk að skipta á þér, knúsa og kyssa. Ég kom svo aftur til Svíþjóðar þegar þú varst orðin aðeins eldri og þá var Mirra líka komin í heiminn. Ég passaði ykkur allan daginn og Svíarnir héldu að ég ætti ykkur og grunaði ekki að ég væri bara 13 ára. Það var líka svo yndislegt að fá ykk- ur alltaf reglulega í heimsókn til Ís- lands en ennþá betra þegar þið flutt- uð heim við hliðina á ömmu og þú varst svo dugleg að hjálpa henni. Þú varst líka orðin svo góð í fimleikum og ætlaðir að ná langt í þeim. Þú varst yndislegur persónuleiki, ákveðin, reglusöm, passaðir og stóðst með systur þinni hvað sem á reyndi. Þú varst svo skipulögð að áð- ur en þú fórst í ferðalagið hafðirðu töskuna tilbúna svo þú þyrftir ekki að fara að pakka niður þegar þú kæmir heim aftur. Þú sendir mér svo margar teiknaðar myndir og bréf um hvað þú varst að gera á Íslandi þegar ég var í Englandi. Þú og Mirra hringduð líka í mig úti og varst það þú sem talaðir og varst búin að æfa hvað þú áttir að segja á ensku og stóðst þig alveg eins og hetja. Þú hafðir frá svo mörgu að segja og allt- af kom „ertu ekki að fara að koma heim?“ Ég held að það hafi verið erf- iðast að vera svona langt í burtu frá ykkur. Þó að það sé lengra núna veit ég að þú ert á góðum stað með Ellu, Mirru og mömmu þinni og ég hugsa til ykkar með bros í hjarta. Ég veit að þú munt vaka yfir mér og ég fer með bænina þína hverju kvöldi. Guð geymi þig, engillinn minn. Þín besta frænka, Halla Björk. Þetta eru búnir að vera erfiðustu fjórir mánuðir í lífi mínu og þurfa að kveðja þig líka, Mirra mín, fá aldrei að sjá þig stökkva til mín og segja mér eitthvað ótrúlega spennandi. Þú varst lítil í þér og það náðu ekki allir til þín innst inni. En þegar þú varst með mér varstu alveg þú sjálf og gast talað og talað. Og hvað mér leið illa þegar þú fórst næstum að gráta þeg- ar ég var á leiðinni til Englands. Spurðir mig af hverju ég gæti ekki bara lært ensku á Íslandi og lést mig fá einn af böngsunum þínum til að passa mig. Þú varst svo mikill dýra- vinur að það snerist allt um þau og fannst svo gaman að fá einn af hund- unum okkar í heimsókn og láta hann gista. Þegar ég kom til Íslands til að koma í ferminguna gat ég ekki beðið með að fá að hitta ykkur og keyrði beint frá flugvellinum til ykkar, þú opnaðir dyrnar og sjá svipinn á þér þegar þú sást mig var yndislegt. Þú ljómaðir öll og hoppaðir í fangið á mér og mamma þín vissi ekki hvað gengi eiginlega á frammi á gangi. Tilhugsunin um að geta ekki trúað því að ég eigi aldrei eftir að fá að taka ykkur með mér út um allan bæ og dekra við ykkur, því mamma ykkar þurfti aldrei að biðja mig um að passa, það var nú alltaf ég sem kom bara og spurði hana. Það vissu líka allir sem ég kynntist hverjar þið vor- uð eftir fimm mínútur og hafði ég alltaf endalaust að segja um ykkur. Þér var líka farið að líka svo vel í skólanum, búin að eignast yndislega vinkonu hana Aldísi og fullt af öðrum góðum líka. Ég fer með bænina þína á hverju kvöldi og veit að nú ert það þú sem passar mig. Það verður ótrú- lega erfitt að kyngja þessu en hugs- unin um að þú ert komin á góðan stað er ljós í mínu hjarta. Guð geymi þig, engillinn minn. Þín besta frænka, Halla Björk. Elsku frænkur mínar, það er ótrú- legt að þið skuluð vera farnar, við sem vorum svo mikið saman. Ég passaði ykkur svo oft og fannst það mjög gaman. Oftast þegar ég kom til ykkar vorum við að hoppa á stóra trampolíninu ykkar. Ykkur fannst svo gaman að gefa hestunum okkar brauð uppi í sveitinni og fara í elt- ingaleik og feluleik þegar þið voruð litlar, þið voruð alltaf svo hressar og skemmtilegar. Ég á svo margar góð- ar minningar um þig Dísa mín, manstu þegar ég kom í heimsókn til Svíþjóðar þegar ég var fjögurra ára og þú kenndir mér að búa til íssósu og eftir það gerðum við það í hvert skipti sem þú komst til Íslands. Og þegar við fórum öll saman ég, þú, mamma, Elín og Mirra út í Nauthóls- vík á línuskauta í sumar. Þetta og margar aðrar minningar um ykkur eru ógleymanlegar. Guð geymi ykk- ur. Ykkar frændi Jón (Nonni). Á vináttu okkar Þórdísar Önnu hefur aldrei fallið skuggi og var það ekki síst henni að þakka. Æskustöðvar Þórdísar voru á Kjalarnesi, við rætur Esju. Þangað var hún bundin sterkum taugum og þangað leitaði hugurinn gjarnan. Síðastliðna páska fórum við Þórdís þangað, með börnin okkar og hundana hennar, gengum upp að fossinum Míganda og áttum þar góða stund. Stund sem verður í huganum lítil mynd minninga, smámynd sem rifjast upp þegar minnst varir, hluti smámynda sem verða einskonar gluggar inn í liðna tíð. Ég á marga svona litla glugga til að líta gegnum, láta hugann reika og rifja upp góðar minningar um einstaka vinkonu. Þórdís var mjög jákvæð, þolinmóð, glaðlynd og hjálpsöm. Það var aldrei neitt mál í hennar augum. Þórdís flutti með manni sínum Kristni, til Svíþjóðar. Þar eignuðust þau litlu gullmolana sína, Elínu Ísa- bellu og Mirru Blæ. Þórdís hafði lengi haft mikinn áhuga á líkamsrækt og sífellt reyndi hún að koma mér af stað og láta mig taka á. Hún gafst ekki upp á því að láta mig mæta í tíma þótt áhugi minn væri ekki alltaf eins og hún taldi að hann ætti að vera. Hún tók einka- þjálfarapróf úti í Svíþjóð og opnaði sína eigin líkamsræktarstöð er þau Kristinn og telpurnar fluttu til Nor- egs. Alltaf kom hún heim um jól og aftur annaðhvort um páska eða sum- arið og áttum við þá margar góðar stundir saman. Þórdís og litlu dætur hennar fluttu heim sumarið 2001, nokkru eftir að þau Kristinn slitu samvistum. Hún keypti íbúð í Kópavogi og móðir hennar keypti íbúð í næsta húsi. Það var gott til þess að vita að amma væri í næsta húsi, stelpurnar hlupu oft yf- ir til að fá sér kex og gos eða bara til að heilsa upp á ömmu. Þar höfðu þær sitt herbergi sem þær kölluðu skrif- stofuna sína og þar gátu þær teiknað og litað fallegar myndir. Alltaf var gott að koma heim til Þórdísar og litlu dúllanna hennar. Eftir að þær fluttu heim var oft setið tímunum saman, spjallað um allt milli himins og jarðar og borðaður góður matur. Þórdís hafði gaman af því að elda góðan mat og bjóða til sín fólki, hún var meistarakokkur og var alltaf verið að malla eitthvað. Það var um miðjan september sem þær mæðgur buðu mér og drengjunum mínum í mat, Elín og Mirra höfðu farið með Höllu frænku í bíó og voru nýkomnar heim, Þórdís var að elda, horfa á sjónvarpið og senda sms skilaboð, allt á sama tíma. Þegar við löbbum inn hafði einmitt sósan brunnið við en það var ekkert mál hún gerði bara nýja. Hún hafði kynnst góðum manni, honum Ásgeiri. Lífið blasti við þeim, þær voru hamingjusamar. Vinátta og ást eru af sama meiði. Eitthvað sem þróast innra með manni. Og sé maður heppinn, verður samband vina eins og hjá okkur Þór- dísi. Vinátta okkar stóð á styrkum grunni. Við fráfall þeirra myndast tóma- rúm, tómarúm sem erfitt er að fylla. Ég lít út um einn glugga minning- anna. Minningin lifir og með tíman- um dofnar sársaukinn. Eftir stendur falleg minning um góða vinkonu og litlu fallegu telpurnar hennar. Guð styrki og blessi alla þeirra ástvini. Lára Ásgrímsdóttir. ,,Mirra! Nei, mamma.“ Oft hefur hún Aldís Eik dóttir mín ruglast og kallað mig Mirru. Mirra var besta vinkona hennar. En slysin gera ekki boð á undan sér og Mirra, besta vin- konan, er farin til Guðs og Elín og Anna líka. Mirra og Aldís Eik voru ótrúlega góðar vinkonur þrátt fyrir að vera aðeins átta ára. Þær voru óaðskilj- anlegar. Ef Aldís Eik var heima þá var Mirra hjá henni og ef hún var ekki heima var hún hjá Mirru. Mikið er ég glöð yfir að hafa boðið Mirru í mat til okkar fimmtudaginn 3. október að sjá þær bestu, vinkon- urnar, baka pítsu og skemmta sér konunglega við það. ,,Nei! Mirra, setjum ostinn hér og kannski smá skinku er það ekki?“ Síðan tímdu þær ekki að klára alla pítsuna til þess að geta haft eins nesti í skólann dag- inn eftir. Ósjaldan gistu þær stöllur saman og voru þá yfirleitt hamstrarnir með í för. Þá kom Mirra með hamsturinn sinn í tösku eða kassa, oh! Alveg frá- bært. En stundum hélt Anna pylsu- eða pítsupartý fyrir þær. Þá voru þær oft allar þrjár saman, Mirra, El- ín og Aldís Eik, leigðu spólu og höfðu það huggulegt. Oft sagði ég við Önnu: ,,Jæja, þú ert bara komin með fósturdóttur.“ „Já, svaraði Anna, þær eru svo frábærar saman, þetta er ekkert mál.“ Trampólínið ykkar var vinsælasta Í dag eru bornar til grafar bróðurdætur mínar tvær, Elín Ísabel og Mirra Blær, og móðir þeirra, Þórdís Anna. Á einu augnabliki breyttist öll tilveran á þann hátt sem engan óraði fyrir og við sem eftir sitjum skiljum ekki tilganginn. Sorgin og söknuðurinn er meiri en nokkur orð fá lýst. Við huggum okkur við að Önnu, Elínu og Mirru er ætlað æðra hlutverk á betri stað. Elsku bróðir minn, Kristinn Pétur, megi Guð styrkja þig á þessari sorg- arstundu. Hanna María, Birkir Már, Elsa Karen og Sandra, sorg ykkar er mikil en minn- ingin um þær lifir í hjörtum okkar allra. Móður Önnu, El- ínu, systkinum og fjölskyldum þeirra vottum við okkar dýpstu samúð. Ásta Kristín, Ægir Rúnar og synir. Elsku Elín, þú varst besta fimleikastjarnan í heiminum. Þú kunnir að fara flikk og varst svo flink á trampolíninu. Ég á margar góðar minningar um þig. Ég kveð þig með bæninni sem þú fórst alltaf með áður en þú fórst að sofa, Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Takk fyrir þær sam- verustundir sem við áttum. Þín vinkona Aldís Eik. Elsku Elín Ísabel. Við kynnt- umst í fimleikunum í fyrra en í sumar urðum við vinkonur þeg- ar ég flutti í hverfið þitt og nú í haust urðum við bekkjarsystur. Það var gaman að koma til þín og leika og hitta dýrin þín eða hoppa á trampólíninu þínu. Það var gott að vera samferða þér í Gerplu og þú varst svo fín í nýja fimleikabolnum þínum að ég fékk mér eins. Ég sakna þín, það er erfitt að fara í fimleikana án þín. Takk fyrir allar sam- verustundirnar. Þín vinkona Guðlaug Edda. Elsku Elín, ég sakna þín svo mikið. Það er svo erfitt að trúa því að þú sért dáin og systir þín og mamma líka. Það er svo stutt síðan við vorum allar sam- an. Ég spyr endalaust af hverju þurftu þær að deyja? Mig dreymir þig oft. Ég veit að þið eruð núna hjá guði. Ég gleymi þér aldrei. Þín vinkona Elísabet. Elsku Mirra. Ég á fullt af fal- legum minningum um allt sem við gerðum saman og ég mun aldrei gleyma þér. Ég sendi þér hér „litla kveðju“ og bið guð að passa þig og fjölskyldu þína, elsku Mirra mín. Þeir segja þig látna, þú lifir samt og í ljósinu færð þú að dafna. Því ljósi var úthlutað öllum jafnt og engum bar þar að hafna. Frá litlu hjarta berst lítil rós, því lífið þú þurftir að kveðja. Í sorg og í gleði þú senda munt ljós, sem að mun okkur gleðja. (Guðmundur Ingi Guðmundsson.) Þín vinkona Steinunn María. HINSTA KVEÐJA SJÁ SÍÐU 38

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.