Morgunblaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ VÍSINDADAGAR – dagskrá fimmtudaginn 7. nóvember VÍSINDADAGAR 1. – 11. nóvember 2002 – kíktu á dagskrá Vísindadaga á www.visindadagar.is P R [p je e rr ] Háskóli Íslands Kl. 12–13 Hádegisrabb Rann- sóknarstofu í kvennafræðum, stofu 101 í Lögbergi. Hermenn og hermennska, hetjur og valkyrjur. Fyrirlesari: Baldur A. Sigurvinsson mannfræðingur. Kl. 17–19 Málstofa í Hátíða- sal, Aðalbyggingu. Islam – Vesturlönd. „Hefur um- ræðan um átökin fyrir botni Mið- jarðarhafs og atburðina 11. sept. orðið til þess að auka skilning Vesturlandabúa á trúarbragða- og menningarheimi Islam eða til þess að auka fordóma?“ Framsögu flytur Lilja Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur. Friðrik Rafns- son stjórnar pallborðsumræðum. Þátttakendur: Salmann Tamimi, Viðar Þorsteinsson og séra Þórhallur Heimisson. Kennaraháskóli Íslands Kl. 20:00–21:30 Málstofa Ný sýn á mannlega hæfileika: Fjölgreindakenningin. Erla Krist- jánsdóttir lektor fjallar um nýja sýn á mannlega greind og áhrif hennar á uppeldi og menntun. Fyrirspurnir og umræður eftir framsögu. PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ C  VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F FJÁRMÁL VERÐMÆTI FYRIRTÆKI Gus Sauter er fram- kvæmdastjóri allra vísi- tölubundinna hluta- bréfasjóða Vanguard. Hópur um aukið vinnslu- virði sjávarfangs telur að hægt sé að auka verð- mæti þess. Rætt við Friðrik M. Þor- steinsson sem rekur fisksölufyrirtæki í Grimsby. ERFITT AÐ/4 ÁFANGI/8 GRIMSBY/12 VERÐBÓLGA hefur farið ört hjaðn- andi hér á landi að undanförnu og sam- kvæmt mælingum á vísitölu neysluverðs mældist verðbólgan síðast 2,9%. Á blaða- mannafundi í Seðlabankanum í gær, þar sem stjórnendur bankans kynntu horfur í efnahags- og peningamálum í tilefni af út- gáfu ársfjórðungsrits bankans, Peninga- mála, greindi Már Guðmundsson, aðal- hagfræðingur bankans, frá því að mælingar bendi til nokkru meiri undir- liggjandi verðbólgu en vísitala neysluverðs hefur mælt. Grunnurinn að þessu mati Seðlabank- ans er tvær nýjar vísitölur. Már sagði að þegar ríkisstjórnin og Seðlabankinn hefðu gefið út sameiginlega yfirlýsingu um verð- bólgumarkmið og breytta gengisstefnu hinn 27. mars 2001, hafi verið kveðið á um að Seðlabankinn myndi í samráði við Hag- stofuna móta aðferðir til að mæla und- irliggjandi verðbólgu, sem væri hægt að hafa til hliðsjónar við mótun peningastefn- unnar. Þessari vinnu sé nú lokið og teknar hafi verið upp tvær svonefndar kjarna- vísitölur vegna þessa. Kjarnavísitala 1 er vísitala neysluverðs að undanskildu græn- meti, ávöxtum, búvöru og bensíni. Kjarna- vísitala 2 er kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu. Már sagði að næst þegar Hagstofan muni birta mælingar á vísitölu neysluverð, 12. nóvember næstkomandi, birta þessar tvær nýju vísitölur. Hann sagði að verð- bólgumarkmið Seðlabankans og peninga- stefnan muni engu að síður til lengdar miðast við vísitölu neysluverðs eins og hún hefur verið. Fram kom í máli Más að kjarnavísitala 1 hafi hækkað um 3,8% síðastliðna 12 mánuði og kjarnavísitala 2 um 4%, á með- an vísitala neysluverðs hafi hækkað um 2,9%. Þetta staðfesti það mat Seðlabank- ans á undanförnum mánuðum að und- irliggjandi verðbólga sé nokkru hærri en mæld verðbólga. V E R Ð B Ó L G A Undirliggj- andi verð- bólga hærri en mæld verðbólga BANKASTJÓRN Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans í endurhverfum viðskiptum við lánastofnanir hinn 12. nóvember næstkomandi um 0,5 prósentustig í 6,3% og er það í samræmi við væntingar fjármálastofnana. Birgir Ísleifur Gunnarsson, bankastjóri Seðla- bankans, sagði á blaðamanna- fundi í gær er nýtt ársfjórðungs- rit bankans, Peningamál, var kynnt, að ný verðbólguspá bank- ans liggi til grundvallar þessari ákvörðun sem og mat á ástandi og horfum í efnahagsmálum. Íslandsbanki tilkynnti í gær í kjölfar tilkynningar Seðlabank- ans um 0,5% lækkun á óverð- tryggðum útlánum og 0,3% lækkun á verðtryggðum lánum. Vextir af innlánum munu lækka minna. Seðlabankinn lækkaði vexti síðast um miðjan október um 0,3%. Lækkunin nú er sú níunda á þessu ári og hafa stýrivextir bankans lækkað samtals um 3,8% á árinu. Fram kemur í Peningamálum að miðað við fyrirliggjandi spár geti vextir bankans lækkað enn frekar á næstunni, ef framvindan staðfestir þær spár. Það sé þó háð þeim fyrirvara að eftir því sem vextirnir verði lægri muni bankinn þurfa að leggja frekara mat á örvunaráhrif þeirra. Þetta sé einnig háð þeim fyrirvara að ákvarðanir um stóriðjufram- kvæmdir muni leiða til endur- mats á peningastefnunni. Verðbólgumarkmið mun nást Seðlabankinn gerir ráð fyrir að verðbólgumarkmið bankans, sem sett var fyrr á árinu, náist fyrir árslok. Verðbólgumarkmiðið er 2,5% miðað við 12 mánuði. Þá gerir bankinn ráð fyrir að verð- lagsstöðugleiki ríki áfram næstu tvö árin. Birgir Ísleifur sagði á fundinum í gær að verðbólgan kunni þó að aukast tímabundið um miðbik tímabilsins. Til grundvallar verðbólguspá Seðlabankans liggur þjóð- hagsspá bankans, sem hann birt- ir nú í fyrsta skipti. Segir í Pen- ingamálum að samkvæmt þjóðhagsspánni dragist þjóðar- útgjöld saman um rúmlega 3% í ár, en hagstæð utanríkisviðskipti valdi því að hagvöxtur verði ná- lægt núlli. Hagvöxtur verði dræmur á næsta ári, eða 1½%, en muni glæðast nokkuð þegar líða tekur á árið 2004. Gæta muni vaxandi slaka í þjóðarbúskapn- um, ekki síst á vinnumarkaði. Samkvæmt þjóðhagsspá Seðla- bankans mun atvinnuleysi aukast úr 2,5% í ár í um 3,2% á næsta ári og verða um 3% á árinu 2004. Í Peningamálum segir að fjár- hagur margra heimila og fyrir- tækja sé þaninn til hins ýtrasta og megi ekki við miklum skakka- föllum á komandi árum. Við- kvæm staða margra heimila og fyrirtækja kunni að bitna á fjár- málakerfinu. Stöðugleika þess virðist þó ekki hætta búin enda hafi eiginfjárstaða helstu fjár- málastofnana styrkst frá því hún var lægst í árslok 2000. Stórframkvæmdir breyta forsendum Verðbólguspá og þjóðhagsspá Seðlabankans gera ekki ráð fyrir að ráðist verði í stórframkvæmd- ir við álbræðslur og virkjanir sem eru í bígerð. Segir í Pen- ingamálum að ekki hafi legið fyr- ir nægar upplýsingar um fram- kvæmdirnar í tíma til þess að unnt væri að leggja mat á þær. til greina kæmi að að taka nú þegar tillit til hugsanlegra fram- kvæmda við vaxtaákvarðanir. Bankinn telji það hins vegar ekki tímabært. Framleiðslu- og at- vinnutap vegna of aðhaldssam- rar stefnu, ef ekki verði ráðist í framkvæmdir á næsta ári, verði líklega meira en ef peningastefn- an yrði ekki nógu aðhaldssöm þegar ákvörðunin liggur fyrir- .Verði af framkvæmdum breytist hins vegar allar forsendur í grundvallaratriðum. Forsendur fyrir frekari vaxtalækkun Seðlabankinn lækkar stýrivexti bankans um 0,5% í næstu viku og hefur bankinn þá lækkað vextina alls níu sinnum á árinu, samtals um 3,8% Morgunblaðið/Þorkell Birgir Ísleifur Gunnarsson, bankastjóri Seðlabankans, gerði í gær grein fyrir horfum í efnahags- og peningamálum, er hann ásamt öðrum helstu stjórn- endum bankans greindi frá niðurstöðum í ársfjórðungsriti bankans, Peninga- málum.  Miðopna: Áfangi á langri leið Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 34 Erlent 14/18 Minningar 40/43 Höfuðborgin 20 Skák 45 Akureyri 21/22 Bréf 48 Suðurnes 22 Kirkjustarf 49 Landið 23 Dagbók 50/51 Neytendur 24 Fólk 54/57 Listir 25/28 Bíó 54/57 Menntun 29 Ljósvakamiðlar 58 Forystugrein 30 Veður 59 * * * Kynningar – Blaðinu í dag fylgir aug- lýsingablaðið „Sjónvarpsdagskráin“ frá Sonet ehf. Blaðinu verður dreift um allt land. TVEIR starfsmenn Morgunblaðsins hafa fengið nýjan starfsvettvang innan fyrirtækisins. Bylgja Birgisdóttir, sem verið hefur starfsmannastjóri Morg- unblaðsins, hefur verið ráðin í starf fjármálastjóra Árvakurs hf., útgáfu- félags Morgunblaðsins. Auður Ingólfs- dóttir, sem verið hefur umsjónarmað- ur launavinnslu og annast starfsmannamál Morgunblaðsins, hef- ur verið ráðin starfsmannastjóri Ár- vakurs hf. Bylgja er fædd 7. mars árið 1962. Hún lauk prófi frá viðskiptadeild Há- skóla Íslands árið 1989 og MBA gráðu frá University of Minnesota 1991. Bylgja hóf störf á Morgunblaðinu sem blaðamaður haustið 1991. Í desember sama ár tók hún við starfi starfs- mannastjóra ritstjórnar og gegndi því til ársins 1998 er hún var ráðin starfs- mannastjóri Árvakurs. Bylgja er gift Hauki Þór Haralds- syni, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Landsbanka Íslands. Eiga þau þrjá syni. Auður Ingólfsdóttir er fædd 15. júní árið 1958. Hún lauk B.Ed.-prófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1984. Auður starfaði á launa- og starfs- mannadeild Ríkisspítala á árunum 1988–1990. Hún hóf störf á Morgun- blaðinu 1. september árið 1990 og hef- ur verið umsjónarmaður launavinnslu og starfsmannamála. Auður stundar um þessar mundir nám með vinnu við viðskiptadeild Há- skólans í Reykjavík. Maður Auðar er Valgeir Valgeirs- son, forstöðumanni eignadeildar Landsbanka Íslands, og eiga þau tvö börn. Ráðið í stöður fjár- málastjóra og starfs- mannastjóra Árvakurs Bylgja Birgisdóttir Auður Ingólfsdóttir Hússjóður ÖBÍ gerir ríkinu samstarfs- tilboð í húsnæðismálum geðfatlaðra Leggur fram 100 milljóna kr. árs- tekjur úr Lottói HÚSSJÓÐUR Öryrkjabandalags Íslands vill nota 100 milljóna króna árstekjur af Lottóinu til að leysa brýnan húsnæðisvanda geðfatlaðra í samvinnu við ríkið. Hefur stjórn Hússjóðs ÖBÍ því samþykkt að bjóða samstarfsnefnd ríkisstjórnar- innar um málefni geðfatlaðra form- legt samstarf um uppbyggingu nýrra úrræða. Helgi Hjörvar, for- maður Hússjóðs ÖBÍ, segir að í sam- starfstilboðinu felist það að hússjóð- urinn byggi eða kaupi tiltekinn fjölda íbúða handa geðfötluðum þar sem leigukjör taki mið af greiðslu- getu þeirra gegn því að ríkið kosti fé- lags- og heilbrigðisþjónustu við þá inn á heimilin. Um 380 öryrkjar eru nú á biðlista Hússjóðs eftir húsnæði og innan þess hóps eru margir geðfatlaðir sem búa við algjörlega óviðunandi heimilisaðstæður. Að sögn Helga benda upplýsingar frá Geðhjálp til þess að 20 skjólstæð- ingar gætu búið í almennum íbúðum gegn því að fá tilhlýðilegan stuðning heim. Þetta sé hópur sem ekki þyrfti að vistast á stofnunum. Hússjóður hefur átt gott samstarf við félags- málaráðherra með því að kaupa og byggja sambýli fyrir mikinn fjölda fatlaðra í brýnni þörf fyrir þjónustu. „Svipuð úrræði geta nýst hluta af þeim hópi geðfatlaðra sem í mestum vanda er staddur. Talsverður hópur þeirra er húsnæðislaus og er ekki fær um að búa sjálfstæðri búsetu nema með aðstoð starfsfólks,“ segir Helgi. Stefnt er að fjárfestingum í húsnæði fyrir öryrkja fyrir hálfan annan milljarð króna á fimm árum og hefur þegar verið framkvæmt fyrir hálfan milljarð. Í vor var komið upp í Hlíðunum á vegum borgarinn- ar heimili fyrir útigangsmenn, en þar búa nú sjö einstaklingar með vakt allan sólarhringinn. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla í prófkjöri D-listans í Norðvesturkjördæmi Gagnrýni á kosningu VILHJÁLMUR Egilsson, alþingis- maður og einn þátttakenda í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Norð- vesturkjördæmi, gerði fyrir nokkrum dögum athugasemdir við framkvæmd utankjörfundarat- kvæðagreiðslu í prófkjörinu. Að sögn hans fóru starfsmenn er önn- uðust kosninguna með kjörgögn inn í fyrirtæki á Akranesi þar sem starfsmönnum var gefinn kostur á að kjósa. „Ég gerði athugasemdir við þetta, fyrst og fremst í þeim tilgangi að fá á hreint hvort þetta væri almennt heimilt, því það þurfa að gilda sömu reglur fyrir alla,“ segir Vilhjálmur. Hann segir að kosningunni í fyr- irtækinu hafi verið hætt þegar hann gerði athugasemdir við hana. „Þeir ákváðu strax að þeir ætluðu ekki að telja þessi atkvæði með sem greidd voru á þessum stað. Ég taldi það fullnægjandi viðbrögð en eftir stendur að það þarf að fara í gegn- um alla framkvæmdina þannig að menn séu alveg klárir á því hvernig þetta á að vera,“ segir Vilhjálmur. Að hans sögn verða engin eftirmál af hans hálfu vegna þessa máls. ,,Þetta var leiðrétt. Ég er ekki að álasa mönnunum og reikna með því að þeir hafi gert þetta í góðri trú en það verða að gilda sömu reglur fyrir alla,“ segir hann. Haldinn verður fundur í dag með fulltrúum frambjóðendanna, kjör- dæmisráðs flokksins og kjörnefnd- arinnar þar sem farið verður yfir málið og þær reglur sem gilda um utankjörfundarkosningu í prófkjör- inu. Jóhann Kjartansson, formaður kjörnefndar, segir að þarna hafi ver- ið um smámisskiling að ræða sem búið sé að leiðrétta. Aðspurður hvort atkvæði þau sem greidd voru í fyrirtækinu verði talin með í próf- kjörinu, sagði hann að eftir væri að taka afstöðu til þess. ,,Það er búið að leysa þetta mál. Þetta var bara smámisskilingur en er komið á hreint,“ sagði hann. Prófkjörið fer fram næstkomandi laugardag. Tíu manns eru í fram- boði. HUNDAR lifa ekki sams konar lífi og mennirnir. Þeir verða að sæta því að bíða úti meðan eigandi skreppur inn í sjoppu til að fá sér nammi. Það kann hins vegar að vera að hundurinn á myndinni hafi fengið eitthvað gott að borða þegar eigandinn kom aftur út. Morgunblaðið/RAX Hundalíf Sigur gegn Perú og Írak BÆÐI íslensku skákliðin unnu sigra á ólympíuskákmótinu í Slóveníu í gær. Karlarnir sigr- uðu lið Perú örugglega 3-1. Konurnar unnu svo lið Íraka með minnsta mun 2-1. Þrjár umferðir eru eftir og leiða Rússar í karlaflokki en Georgía í kvennaflokki. Íslenska karlaliðið er í 32.– 39. sæti með 24½ vinning og kvennaliðið er í 61.–67. sæti með 15 vinninga. BJÖRT EFNAHAGSSPÁ Seðlabankinn tilkynnti í gær að lækka ætti stýrivexti um 0,5% og gerði um leið grein fyrir björtum horfum í efnahags- og peninga- málum. Birgir Ísleifur Gunnarsson, bankastjóri Seðlabankans, sagði að með sama áframhaldi myndu mark- mið bankans um 2,5% verðbólgu 2002 nást fyrir áramót. Stórsigur repúblikana Repúblikanar í Bandaríkjunum unnu sannfærandi sigur í kosningn- unum á þriðjudag. Þeir hrifsuðu meirihluta í öldungadeild þingsins úr höndum demókrata og héldu meirihluta sínum í fulltrúadeildinni. George Bush Bandaríkjaforseta, sem var óþreytandi í kosningabar- áttunni og fór til 40 ríkja, var þakk- aður þessi árangur. Flugslys í Lúxemborg 20 manns fórust þegar flugvél af gerðinni Fokker-50 frá flugfélaginu Luxair brotlenti í svartaþoku í Lúx- emborg í gær. Tveir menn fundust á lífi í flaki vélarinnar, sem var að koma inn til lendingar. Nick Cave til Íslands Tónlistarmaðurinn Nick Cave heldur tónleika á Íslandi 9. desem- ber. Tónleikarnir verða haldnir á Broadway. Listaverkin úr eigu ríkisins Tæplega 1.200 listaverk eru í eigu Búnaðarbanka og Landsbanka. Svo virðist sem of seint sé að undanskilja listaverkin við einkavæðingu bank- anna. Ef átt hefði að halda þeim í ríkiseigu hefði þurft að ganga frá því áður en þeim var breytt í hlutafélög. Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Listasafns Akureyrar telur þetta vera dýrmætustu einkasöfn af ís- lenskri myndlist, sem til eru. Íslenskar myndir í Moskvu Stærsta yfirlitssýning, sem sett hefur verið upp á íslenskum mynd- um, var opnuð í Moskvu í gær. For- stöðumaður Ljósmyndasafns Moskvu sagði við opnunina að ís- lensku myndirnar væru í senn þjóð- legar og alþjóðlegar og hefðu greini- lega áhrif á gesti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.