Morgunblaðið - 07.11.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Bakhjarl
Skráning stofnfélagastendur yfir í síma575 1550
-landssamtök gegn einelti
ÁÐUR ókunn kvæði eftir Matthías
Jochumsson fundust nýverið á Sig-
urhæðum – Húsi skáldsins á Ak-
ureyri, en Þórunn
Valdimarsdóttir,
sagnfræðingur og
rithöfundur, sat þar
við skriftir í haust.
Hún hefur síðustu
misseri unnið að rit-
un ævisögu Matthías-
ar og er stefnt að því
að fyrra bindi hennar
komi út árið 2004.
Heildarútgáfa með
ljóðum Matthíasar,
Ljóðmæli, kom út ár-
ið 1936 að frumkvæði
Magnúsar, sonar
Matthíasar, og þar
birtust öll ljóð sem
menn á þeim tíma
vissu um og að und-
angenginni mikilli leit að sögn Þór-
unnar.
Eftir að safni var komið á fót í
Sigurhæðum, húsi sem Matthías
reisti og bjó í á Akureyrarárum
sínum, hafa ýmsir munir verið að
berast, m.a. bréf sem fólk hefur í
áranna rás haft í fórum sínum.
„Safn eins og þetta er afar mik-
ilvægt, m.a. vegna þess að fólk hef-
ur tækifæri til að skila hingað inn á
einn stað verðmætum sem tengjast
skáldinu,“ sagði Þór-
unn sem fann hin
óbirtu kvæði í bréfum
sem Sigurhæðum hafa
borist.
Eitt kvæðanna
fannst í bréfi sem
Matthías skrifaði Her-
dísi fóstru sinni 29.
október 1871 frá
Kaupmannahöfn,
þakkarbréf fyrir 100
ríkisdali sem fóstra
hafði sent honum á
ferðalaginu. „Þetta er
fallegt kvæði um
gleðikonurnar í
Austurgötu, fullt af
samúð með þessum
konum og mér finnst
merkilegt að hann skuli senda
fóstru sinni einmitt þetta kvæði,“
sagði Þórunn.
Hún fann einnig þrjú smákvæði
um ástina sem Matthías sendi
ónefndri vinkonu sinni frá Ed-
inborg árið 1898. Eins er um að
ræða rímu um heimsstyrjöldina
fyrri, orta við upphaf hennar, árið
1914. „Undir niðri er alvara máls-
ins, en kvæðið er ort í glannalegum
rímnastíl,“ sagði Þórunn. Loks
fann Þórunn kvæði sem fjallar um
fjórar skógarhríslur. „Þetta eru
gamanvísur um þau systkin hans
sem lifandi voru árið 1919 þegar
kvæðið var ort, en það fannst í
bréfi til Ara bróður hans,“ sagði
Þórunn en Matthías er sem kunn-
ugt er fæddur á Skógum í Þorska-
firði.
Þórunn mun flytja erindi á Sig-
urhæðum um þjóðskáldið sr. Matt-
hías næstkomandi mánudagskvöld,
11. nóvember, en þá verða 167 ár
liðin frá fæðingu hans. Eins mun
hún kynna þau kvæði sem nýlega
fundust þar. „Ég hef mjög orðið
vör við það hve Akureyringar elska
skáldin sín og sýna þeim mikla
virðingu, m.a. með hreint frábær-
um söfnum,“ sagði Þórunn og
bendir m.a. á Sigurhæðir í því sam-
bandi, Nonnahús og Davíðshús.
„Maður hefur einhvern veginn á til-
finningunni að Davíð hafi rétt
brugðið sér út í bakarí, það er nán-
ast allt í húsinu eins og hann skildi
við það, það er frábært að komast í
svo nána snertingu við þessi skáld,“
sagði Þórunn. „Mér finnst þessi ást
á skáldunum merkilegt sérkenni
hér á Akureyri,“ sagði Þórunn.
Sex áður ókunn kvæði eftir Matthías Jochumsson skáld fundust á Sigurhæðum
Elsta kvæðið ort um
gleðikonur í Kaup-
mannahöfn 1871
Morgunblaðið/Kristján
Þórunn Valdimarsdóttir með nokkur bréf Matthíasar fyrir framan sig.
Matthías
Jochumsson
Í bréfi Matthíasar til Herdísar
Benedictsen, fóstru sinnar, sem
skrifað er í Kaupmannahöfn 29.
október árið 1871, var kvæði sem
lýsir gleðikonum á Östergade.
Um Austurgötu geng ég
þá glysið er mest,
þar eru hálar hrundir
og hægt að missa prest!
Þar er sá háli heimur
með hafmeyja söng;
ungir garpar gleyma
hvað gröfin er þröng.
Og þær ungu snótir
með óminnis-draum
dável stíga dansinn
með dillandi glaum.
Vaknar þjóð að vísu
en vorið er fljótt,
þá er kominn vetur
og voðaleg nótt.
Þá er kominn vetur
en vorið er braut;
leikur léttur vindur
með lífsins dáið skraut.
Himinstjarnan hreina
á heimsins starir leik,
en yfir Austurgötu
hún er af sorgum bleik!
Þar eru
hálar
hrundir
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson, al-
þingismaður Samfylkingarinnar, hef-
ur sent Halldóri Blöndal, forseta Al-
þingis, og
varaforsetum
þingsins bréf, fyr-
ir hönd allra þing-
manna Samfylk-
ingarinnar, þar
sem hann fer þess
á leit að forsætis-
nefnd Alþingis feli
Ríkisendurskoð-
un að taka saman
skýrslu um starfs-
lok fyrrverandi forstjóra Landssím-
ans og tengd atriði.
Ríkisendurskoðun vann skýrslu
um starfslokin fyrir Símann en stjórn
fyrirtækisins hefur neitað að birta
hana opinberlega. Guðmundur Árni
hefur farið fram á það við Sturlu
Böðvarsson samgönguráðherra að
hann láti birta skýrsluna en Sturla
lýsti því yfir að ákvörðunin væri
stjórnar Símans og hann styddi hana.
Hægt að ganga frá
skýrslu með skjótum hætti
Í bréfi Guðmundar Árna er minnt á
að fyrrverandi stjórnarformaður
Símans óskaði eftir áðurgreindri
álitsgerð Ríkisendurskoðunar í fram-
haldi af því að fjárhagsleg samskipti
Símans og fyrrverandi forstjóra fyr-
irtækisins voru til opinberrar um-
ræðu m.a. á Alþingi. Það sé því eðli-
legt að Alþingi verði greint frá
niðurstöðum þeirrar athugunar sem
fram fór á málinu í kjölfar þeirrar
miklu umræðu sem varð um það á
þinginu í febrúar og mars sl. Með
hliðsjón af því að öll gögn málsins
liggi þegar fyrir hjá Ríkisendurskoð-
un sé ljóst að hægt eigi að vera að
gefa Alþingi skýrslu um fjárhagsleg
málefni fyrrverandi forstjóra Símans
með skjótum hætti.
Guðmundur Árni
Stefánsson sendir for-
setum Alþingis bréf
Krefst
skýrslu frá
Ríkisend-
urskoðun
Guðmundur
Árni Stefánsson
FRÉTT á baksíðu Morgunblaðsins í
gær um skógarþröst sem hlaut ill ör-
lög í íþróttahöllinni á Húsavík á laug-
ardag, hefur vakið hörð viðbrögð
meðal lesenda blaðsins. Í gær bárust
allmörg tölvupóstsskeyti og símtöl til
ritstjórnar blaðsins þar sem lýst var
yfir hneykslun á framferði Húsvík-
inga. Þá þótti mörgum sem frétt um
slíkt og annað eins ætti ekkert erindi
í blaðið og allra síst á baksíðuna auk
þess sem greinilegt væri að blaðið
hefði enga samúð með málstað þrast-
arins. Bentu lesendur á að þrestir
væru alfriðaðir og veiðarfærin sem
beitt var væru með ölllu ólögleg.
Í fyrradag fékk Morgunblaðið þær
upplýsingar hjá lögreglunni á Húsa-
vík að vifturnar hefðu verið settar í
gang eftir að þrösturinn flaug inn í
þær. Í gær sögðu talsmenn lögreglu
að þeim hefði ekki verið ljóst að fugl-
inn var kominn inn í vifturnar þegar
þær voru settar í gang.
Sigurður Brynjúlfsson, yfirlög-
regluþjónn á Húsavík, sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið vera undrandi á
þeirri miklu athygli sem þetta mál
hefur hlotið. Á laugardagskvöld hefði
lögregla verið beðin um aðstoð við að
koma þresti út úr íþróttahöllinn en
hann hafði villst þar inn fyrr um dag-
inn. Ítrekaðar tilraunir húsvarða til
að handsama þröstinn hefðu þá eng-
an árangur borið og lögreglu gekk
litlu betur. Allt hefði þó verið reynt til
að handsama þröstinn og koma hon-
um út og það næstum tekist. Með því
að kasta að honum boltum hefði átt að
hrekja hann út eða niður á gólf þar
sem hægt yrði að fanga hann. Skotin
úr loftbyssunni hefðu gegnt sama
hlutverki. Vitað var að þau myndu
ekki skaða þröstinn, enda kraftlítil og
fuglinn hátt uppi í rjáfri hússins.
Fuglinn hafi síðan horfið sjónum
manna og til þess að freista þess að
fæla fuglinn upp, hafi verið ákveðið að
gangsetja loftræstikerfið eins og áður
hafði verið gert þegar fuglinn settist
upp á kerfið. Þá hafi komið í ljós að
fuglinn hafði á einhvern hátt komist
inn í viftu og því hafi hann farist um
leið og kerfið var sett í gang. Þetta
hefði alls ekki verið tilgangurinn.
Ekki hafi þó annað komið til greina
en að koma þrestinum út, enda töldu
menn ljóst að fuglinn myndi valda
truflun á tónleikunum. Bæði lög-
reglumenn og aðrir hefðu viljað að
þrösturinn kæmist lífs af. Menn
hefðu þó litið á þetta sem grát-
broslega uppákomu sem hlaut sorg-
leg endalok.
Óheimilt samkvæmt
lögum að drepa þresti
Samkvæmt lögum er bannað að
drepa skógarþresti. Þeir sem það
gera hafa gerst sekir um lögbrot.
Þetta segir Jóhann Óli Hilmarsson,
formaður Fuglaverndarfélags Ís-
lands. Hann segir að þrösturinn hafi
verið friðaður á Íslandi í meira en
hundrað ár. Þá er í lögum gerð grein
fyrir því hvaða vopn megi nota til að
drepa fugla og eru loftbyssur, brenni-
boltar og loftræstikerfi ekki meðal
þeirra.
Hörð viðbrögð við
endalokum þrastarins
Morgunblaðið/Ómar
STARFSMENN tölvufyrirtækis í
Teigunum náðu í gær í tölvubúnað
á lögreglustöðina í Reykjavík.
Búnaðinum var stolið í síðustu
viku en lögregla fann hann í fyrra-
dag, falinn í bíl. Um var að ræða
afar dýran búnað, einn skjárinn
kostaði t.a.m. um 1,5 milljónir
króna og mikill verðmæti voru í
hugbúnaði.
Tveir menn sem voru handtekn-
ir á sunnudag eru í gæsluvarðhaldi
vegna málsins. Að sögn Ómars
Smára Ármannssonar, aðstoðaryf-
irlögregluþjóns í Reykjavík beinist
rannsókn málsins m.a. að því hvort
mennirnir hafi verið einir að verki
og hvort þeir hafi brotist inn víðar.
Rándýr
tölvubún-
aður end-
urheimtur
HÚSASMIÐUR skaut sig í fótinn
með naglabyssu í Naustabryggju í
Grafarvogi í gær og var fluttur á
slysadeild til aðhlynningar. Maður-
inn var að vinna við nýbyggingu þeg-
ar slysið varð og lenti þriggja tomma
nagli í fæti hans ofan hnés. Sjúkra-
flutningamenn frá Slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins sóttu hinn slasaða
upp á þak hússins á byggingakrana
og fluttu hann á Landspítalann í
Fossvogi.
Fékk 3 tomma
nagla í fótinn
♦ ♦ ♦