Morgunblaðið - 07.11.2002, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.11.2002, Qupperneq 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 11 KRINGLUFJARKI Aðeins í 4 daga Fjöldi annarra tilboða Dömur Kaðlapeysur/ bómullar 6.390 4.990 Rúllukragapeysur 6.390 4.990 Stretch buxur 8.790 6.990 Flíspeysur 6.390 4.990 Allar ullarbuxur 25% afsl. Kringlunni - sími 581 2300 Herrar Boxer nærbuxur 1.890 600 Kakibuxur 6.590 4.990 Tvennar á 8.000 Sloppar 9.990 6.990 Skyrtur 3.990 Tilboð 2 á 6.000 Jakkaföt 20% afsl. Verð áður Verð nú Verð áður Verð nú Vandaðar heimilis- og gjafavörur Kringlan 4-12, sími 533 1322. Mörg góð tilboð á Kringlufjarka Full búð af nýjum vörum Handklæði & flíshúfur Flíspeysur m. Félagsmerkjum, flísteppi o.fl. Fáið sendan myndalista Myndsaumur Reykjavíkurvegur 62 220 Hafnarfjörður Sími 565 0488 www.myndsaumur.is JólatilboðÍ 12 árSérmerkt UPP á margt skemmtilegt var boð- ið á Vísindahlaðborðinu sem nem- endum 9. og 10. bekkja grunnskóla höfuðborgarsvæðisins bauðst að sækja í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær og fyrradag. Meðal annars gafst þeim tækifæri til að mæla hljóð- styrk sinn með því að öskra í þar til gert tæki og sjá líkan af eldfjalli gjósa. Hlaðborðið samanstóð af sýn- ingabásum þar sem aðilar á vegum RANNÍS og raunvísinda- og verk- fræðideilda háskólanna sýndu krökkunum á fróðlegan og skemmtilegan hátt hvernig nýta má tækni og vísindi til ýmissa nota. Hluti af Vísindahlaðborðinu var Tæknidagar, verkefni jafnrétt- isátaks Háskóla Íslands og Jafnrétt- isstofu. Markmið þeirra var að kynna tækni og vísindi fyrir krökk- unum og þá sérstaklega stúlkum sem virðast síður sækja í raunvís- inda- og eðlisfræðideildir háskól- anna heldur en drengir. Að sögn Þóru Margrétar Páls- dóttur, verkefnisstjóra Tæknidaga, hafa krakkarnir sýnt þessu mikinn áhuga en alls komu 33 bekkir í heimsókn. „Markmið Tæknidag- anna er að sýna unglingum hvað er að gerast í vísindum á lifandi og gagnvirkan hátt. Reyna að gera þetta skiljanlegt og að opna þennan heim fyrir bæði strákum og stelp- um,“ sagði Þóra Margrét. Ýmsar tilraunir voru í gangi, m.a. reyndu krakkarnir að koma jarðskjálftamælum í gang með því að hoppa upp og niður. Í básum há- skólanna fengu þau ýmis tækifæri til að koma við það sem verið var að sýna og fengu að taka virkan þátt í tilraununum. Mikla lukku vakti t.d. tilraun þar sem krakkarnir settu blöðru fyllta með lofti ofan í fljót- andi köfnunarefni og fylgdust með því þegar loftið fraus og þar sem þau fengu hárþykkt sína mælda. Hver og einn bekkur fékk sér- stakan leiðsögumann sem kom frá nemendafélögum raunvísinda- og verkfræðideilda HÍ og var tilgang- urinn að sögn Þóru Margrétar „að kynna fyrir skólakrökkunum nem- endur sem eru að læra þessi fög, bæði stráka og stelpur, sem eru þeim hvetjandi fyrirmyndir og þau sýna þeim að þetta er alveg hægt. Þetta er bara venjulegt fólk“. Vísindi fyrir karlmenn? Krakkarnir úr 9-X í Lækjarskóla í Hafnarfirði voru ánægðir með sýninguna. Arnar Valur Jónsson sagði að sér hefði þótt þurrís- tilraunin skemmtilegust. „Ég held að strákar hafi meiri áhuga á þess- u…vísindin eru eitthvað fyrir karl- menn,“ sagði hann. Önnu Lísu Ríkharðsdóttur og Halldóru Vattnes Kristjánsdóttur fannst að það þyrfti samt að vekja athygli stelpnanna á þessu. Þeim sjálfum fyndist þó skemmtilegt í þessum fögum, sérstaklega þegar þær fengju að gera tilraunir. Þær voru sammála um að þeim fyndist, eftir sýninguna, að fleiri mögu- leikar leyndust á sviði raungreina heldur en þær höfðu áður haldið. Erni Gunnarssyni, raun- greinakennara í Lækjarskóla, fannst hugmyndin um Tæknidaga vera mjög vel til fundin. „Það er mjög gott að fá eitthvað svona sem lífgar upp á. Sérstaklega svo að þau sjái tengslin við atvinnulífið. Það er afskaplega mikilvægt því að þeim finnst stundum þetta eðlisfræði- stagl vera afskaplega fánýtt. Þau sjá stundum ekki tilganginn.“ Eftir að búið var að skoða það sem Vísindahlaðborðið hafði upp á að bjóða var farið í vettvangsferð í fyrirtækin sem ásamt öðrum höfðu unnið með jafnréttisátaki Háskól- ans. Fyrirtækin sem buðu í heim- sókn voru Eimskip, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur. Mældu öskur í Ráðhúsi Morgunblaðið/Sverrir Áhuginn skín úr andlitum stúlknanna á Tæknidögum, en þeim lauk í gær. Höfundar eru Ásta Guðrún Beck og Kolbrún Hlín Hlöðversdóttir, nemendur í hagnýtri fjölmiðlun í Háskóla Íslands. Vel heppnuðum vísindadögum HÍ lauk í gær JÓN Sigurðsson, fyrr- verandi kaupmaður í Straumnesi, til heimil- is í Árskógum 6 í Reykjavík, lést í gær á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Jón fæddist á Akur- eyri 26. ágúst 1922 og ólst þar upp. Foreldr- ar hans voru Sigurður Jónatansson og Ágústa Rósa Jósefs- dóttir. Jón lauk prófi frá Héraðsskólanum á Laugarvatni 1944, frá Samvinnuskólanum vorið 1946 og stundaði nám við samvinnuskólann í Vorgård við Stokkhólm 1947. Jón stofnaði verslunina Straum- nes við Nesveg í Reykjavík 1953 og rak hana til 1972 er hann opnaði nýja verslun með sama nafni við Vesturberg í Breiðholti, en þá versl- un starfrækti hann til 1989. Jón hefur unnið mikið að félagsmálum. Hann var félagi í Frí- múrarareglunni og heiðursfélagi í Kiwan- isklúbbnum Esju. Jón sat mörg ár í stjórn Félags matvörukaup- manna og var fjögur ár formaður Félags kjötverslana í Reykja- vík. Þá sat hann í að- alstjórn Knattspyrnu- félagsins Fram í fjölda ára og var heiðurs- félagi. Jón starfaði mikið fyrir Íþrótta- félag fatlaðra í Reykjavík og var formaður þess 1990–1993. Þá var Jón einn af stofnendum Skauta- félags Akureyrar. Jón kvæntist Kristínu Sigtryggs- dóttur árið 1954 og eignuðust þau fimm börn, sem öll lifa föður sinn. Þá eiga Jón og Kristín tólf barna- börn og eitt barnabarnabarn. Andlát JÓN SIGURÐSSON SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur skipað nýtt flugráð en það skipa Hilmar B. Baldursson flugstjóri, for- maður, Óli Jón Gunnarsson bæjar- stjóri, varaformaður, Gunnar Hilm- arsson deildarstjóri, Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri, Jón Karl Ólafsson framkvæmdastjóri og Jens Bjarnason flugrekstrarstjóri. Varamenn í flugráði eru Guð- mundur Hallvarðsson alþingismað- ur, Vigfús Vigfússon, umboðsmaður Íslandsflugs, Karvel Pálmason, fv. alþingismaður, Ómar Benediktsson framkvæmdastjóri, Friðrik Adolfs- son deildarstjóri og Hallgrímur Jónsson flugstjóri. Úr flugráði hverfa alþingismenn- irnir fyrrverandi Árni Johnsen og Karvel Pálmason en sá síðarnefndi tekur sæti varamanns í ráðinu. Voru fimm menn í því áður en ráðherra skipar sex nú. Ráðherra skipar nýtt flugráð AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Alltaf á þriðjudögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.