Morgunblaðið - 07.11.2002, Side 14
ERLENT
14 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TUTTUGU manns fórust í gær-
morgun þegar tveggja hreyfla
Fokker 50-skrúfuþota frá félaginu
Luxair brotlenti í mikilli þoku á
akri um 10 kílómetra frá Findel-
flugvelli í Lúxemborg. Tveimur
var bjargað á lífi úr flaki vélarinn-
ar en þeir eru báðir í lífshættu.
Vélin var að koma frá Berlín og
voru fimmtán þeirra sem í vélinni
voru Þjóðverjar, fimm voru frá
Lúxemborg og tveir Frakkar.
Flugstjóri vélarinnar, sem er frá
Lúxemborg, komst af en ekki er
vitað um þjóðerni hins sem komst
lífs af. Þrír voru í áhöfn, hinir
nítján voru farþegar.
Vélin hrapaði við bæinn Nieder-
anven, austan við flugvöllinn.
Svörtu kassarnir svonefndu, sem
geyma upplýsingar um flug vél-
arinnar, fundust á slysstaðnum í
gær og voru óskemmdir, að sögn
Henri Grethen, samgöngumálaráð-
herra landsins. „Flestir farþegarn-
ir dóu vegna höggsins við árekst-
urinn,“ sagði Grethen en eldur
kom upp í flakinu.
Talsmaður Luxair segir að ekk-
ert liggi enn fyrir um hugsanlega
orsök slyssins en hann benti þó á
að dimm þoka hefði verið á flug-
vallarsvæðinu, skyggni mun hafa
verið um 100 metrar. Þá sagði Guy
Schuller, talsmaður ríkisstjórnar
Lúxemborgar, að þokan hefði án
efa átt þátt í slysinu. Slík veð-
urskilyrði eru hins vegar ekki óal-
geng á þeim slóðum. Ekki mun
hafa borist neyðarkall frá flug-
manninum. Grethen sagði hann
hafa fengið leyfi til að lenda en
síðan hafi vélin horfið af ratsjá.
Flugumferð til og frá flugvell-
inum í Lúxemborg hófst aftur eftir
þriggja klukkutíma hlé eftir slysið,
sem varð laust eftir klukkan níu að
íslenskum tíma. Luxair sagðist
hins vegar hafa kyrrsett þrjár aðr-
ar Fokker 50-vélar, sem eru í flota
félagsins, að minnsta kosti fram á
fimmtudag.
Leigubílstjóri, sem varð fyrstur
á vettvang eftir slysið, reyndi án
árangurs að bjarga farþegum úr
vélinni en varð frá að hverfa vegna
eldsins. „Dyrnar að stjórnklefan-
um voru opnar. Ég heyrði hrópað
inni,“ sagði Guillaume Wainachter
við fréttamann AFP-fréttastofunn-
ar. „Ég fór nær vélinni til að reyna
að bjarga fólkinu. Undarlegur há-
vaði heyrðist og skyndilega varð
allt eitt eldhaf. Ég varð að hörfa
frá í snatri. Hrópin hættu að heyr-
ast,“ sagði hann.
Flugvélin, sem gat borið 50 far-
þega, var nýkomin úr vikulangri
skoðun en hún var tekin í notkun
árið 1991. Var það þjónustufyr-
irtæki Luxair sem framkvæmdi
skoðunina og lauk henni á mánu-
dag.
Svipað slys og í gær varð 15.
september 1995 þegar Fokker 50-
flugvél brotlenti á þorpi í Borneó
og þá fórust 34. Flugvélarnar voru
framleiddar af hollenska fyrirtæk-
inu Fokker Aviation en það varð
gjaldþrota árið 1997. Nokkrar vél-
ar af sömu gerð eru í flota Flug-
félags Íslands.
Tuttugu fórust í
Lúxemborg er
farþegavél hrapaði
Reuters
Björgunarmenn bera af slysstað lík eins þeirra, sem fórust með flugvélinni.
! "#$%%
& '$( ') $*
' + , & +-
& %
$ +.! "#
/012234
( ')
$
Lúxemborg. AFP.
AÐ MINNSTA kosti 12 manns létust
og níu slösuðust er eldur kom í fyrri-
nótt upp í hraðlest á leið frá París til
Vínar. Er þetta mesta járnbrautar-
slys í Frakklandi í fimm ár.
Slökkviliðsmenn huga hér að
brunnum vögnum en svo virðist sem
eldurinn hafi komið upp í stjórn-
borði í svefnvagni og borist þaðan í
tvo klefa. Var hann svo ákafur, að
þar brann allt, sem brunnið gat.
Hinir látnu eru fimm Bandaríkja-
menn, þar af tvö börn, þrír Þjóð-
verjar, rússnesk hjón, Ungverji og
Grikki. Níu voru flutt á sjúkrahús
með reykeitrun og brunasár.
Þegar lestin rann út af lestarstöð-
inni í Nancy tóku starfsmenn þar
eftir því, að reyk lagði út úr svefn-
vagninum. Létu þeir strax af því
vita og rufu rafmagn til lestarinnar,
sem stöðvaðist þegar. Slökkviliðs-
menn, sem komu strax á vettvang,
fengu hins vegar ekkert að gert.
Tólf lét-
ust í elds-
voða í lest
AP
ÞRÍR íslenzkir flugmenn
starfa hjá Luxair, Atli
Thoroddsen og Kristján
Hallgrímsson eru flugmenn
á Fokker 50-flugvélum fé-
lagsins – eins og þeirri sem
fórst í gær – og Ólöf Dís
Þórðardóttir, sem flýgur
Boeing 737-þotu.
Í samtali við Morgun-
blaðið segir Atli allar Fokk-
er-vélar Luxair hafa verið
kyrrsettar eftir slysið, að
minnsta kosti fram á daginn
í dag, en vélin sem fórst var
ein fjögurra Fokker 50-véla
sem notaðar voru í áætl-
unarflugi félagsins. „Við
fáum nánar að vita á morg-
un [í dag] hvað verður um
framhaldið,“ segir Atli.
„Það eru náttúrulega allir
í miklu losti út af þessu,“
segir Atli, sem áður starfaði
hjá Flugleiðum en tók til
starfa hjá Luxair fyrir mán-
uði. „Samfélagið er lítið
hérna og flestir einhvern
veginn tengdir, svipað og
við þekkjum heima á Ís-
landi.“
Fokker-
vélar Luxair
kyrrsettar
LÁVARÐADEILD breska þings-
ins samþykkti í gær, að fólk í sam-
búð, þar á meðal samkynhneigðir,
mætti ættleiða börn. Kom niður-
staðan mjög á óvart enda hafði
deildin fellt frumvarpið fyrir tæp-
um mánuði.
Lagafrumvarpið var samþykkt
eftir snarpar og tilfinningaþrungn-
ar umræður með 215 atkvæðum
gegn 184. Alan Milburn, heilbrigð-
isráðherra Bretlands, sagði í gær,
að samþykktin myndi auðvelda
mörgum börnum á upptökuheim-
ilum að eignast gott heimili en nú-
gildandi lög leyfa aðeins hjónum
eða einstaklingum að ættleiða
börn. Verður frumvarpið að lögum
er Elísabet drottning hefur und-
irritað það.
Áfall fyrir Duncan Smith
Iain Duncan Smith, leiðtogi
Íhaldsflokksins, barðist hart gegn
frumvarpinu en við atkvæða-
greiðslu í neðri deildinni greiddu
átta þingmenn flokksins atkvæði
með því og 30 sátu hjá. Er litið á
það sem hreina ögrun við hann og
forystu hans og hefur það kynt
undir nýjum vangaveltum um
framtíð hans í leiðtogasætinu.
Í fyrradag sakaði hann suma í
þingflokknum um að grafa vísvit-
andi undan sér og sagði, að Íhalds-
flokksins biði nú það eitt að „sam-
einast eða deyja“.
Breska lávarðadeildin
samþykkir umdeild lög
Samkyn-
hneigðir
mega ætt-
leiða börn
London. AFP.
ÞINGIÐ í Íran samþykkti í gær með
miklum meirihluta lagafrumvarp,
sem sviptir íhaldssamt klerkaráð
rétti til að ákveða hverjir megi bjóða
sig fram í kosningum og hverjir ekki.
Einn af helstu harðlínumönnunum
lýsti hins vegar strax yfir, að frum-
varpið yrði ómerkt, og gerði lítið úr
hótunum um, að þá myndu Mo-
hammad Khatami, forseti landsins,
og langflestir þingmenn segja af sér.
Frumvarpinu er beint gegn
klerkaráðinu, sem hefur vald til þess
að ómerkja lög og ráða flestu, sem
það vill ráða í landinu. Líta margir á
samþykktina sem síðustu tilraun
Khatamis og umbótasinna hans til að
klekkja á klerkaveldinu.
Umbótasinnar hafa einnig boðað
annað frumvarp, sem miðar að því að
gefa Khatami rétt til að ómerkja
dóma, sem taldir eru fara í bága við
stjórnarskrána, og refsa þeim, sem
þá kveða upp. Er þar um að ræða at-
lögu gegn harðlínumönnum í dóms-
kerfinu, sem nota dómsvaldið mis-
kunnarlaust gegn umbótasinnuðu
fólki, ekki síst fréttamönnum.
Golam-Hossein Elham, einn helsti
frammámaður í klerkaráðinu, sagði í
gær, að báðum þessum frumvörpum
yrði vísað á bug. Þeim væri aðeins
ætlað að greiða götuna fyrir „gagn-
byltingarmönnum“ og þeim, sem
væru andvígir klerkunum.
Ali Tajernia, umbótasinnaður
þingmaður, svaraði þessu og sagði,
að tæki íranskur almenningur
„gagnbyltingarmenn“ fram yfir
klerkana, þá hefðu klerkarnir enga
lögmæta kröfu til valda í landinu.
Bandamenn Khatamis hafa hótað,
að nái frumvörpin ekki fram að
ganga, muni hann og þingheimur
segja af sér. Erlendir sendimenn og
fréttaskýrendur segja, að það gæti
leitt til alvarlegrar kreppu og mik-
illar ókyrrðar í landinu.
Stefnir í uppgjör í Íran?
Teheran. AP, AFP.