Morgunblaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 16
ERLENT
16 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
lau. kl. 11-15
Húsgögn
Sérpantanir
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
RÚSSNESKIR kornbændur, sem
sitja enn einu sinni uppi með um-
frambirgðir og vonast til að geta
flutt framleiðslu sína út, eiga við
að etja fleira en peningaskort og
langvinna frægð sem innflytjend-
ur. Núna er vandi þeirra af verk-
fræðilegum toga. Rússneskar
hafnir, sem voru byggðar á þeim
tímum er Sovétríkin reiddu sig á
innflutt korn til þess að brauðfæða
þjóðina, eru hannaðar þannig að
kornið getur aðeins flætt í aðra
áttina – upp úr skipunum.
En nú eru rússneskir bændur,
annað árið í röð, að uppskera
meira korn en þjóðin þarf á að
halda. „Gamla vandamálið, hvar er
hægt að fá korn keypt, hefur vikið
fyrir nýjum vanda, hvar er hægt
að fá korn geymt, hvert er hægt
að selja það og hvernig er hægt að
koma í veg fyrir að verðið hrynji?“
sagði í rússneska dagblaðinu
Argumentíj í faktíj. Rússar hafa
ekki staðið frammi fyrir þessum
vanda síðan á keisaratímanum, og
landbúnaðarsérfræðingar segja
landið ekki vel í stakk búið til að
takast á við hann.
Sérfræðingarnir óttast að um-
framkornið muni flæða yfir heima-
markaðinn í Rússlandi og leiða til
þess að verðið, sem nú þegar er
lágt, hrynji gersamlega – eða það
sem verra er, kornið verði látið
maðka í geymslum og þannig missi
menn í iðnaðinum alla hvatningu
til að halda áfram framleiðslunni.
Alexander Jukis, forseti samtaka
rússneskra kornbænda, hefur
hvatt stjórnvöld til að skerast í
leikinn með því að kaupa eitthvað
af uppskerunni og lækka flutn-
ingstolla til að auka útflutning.
Stjórnvöld virðast ætla að gera
hvort tveggja og er búist við að
endanleg ákvörðun verði tekin á
næstu vikum.
Vonast til að flytja út
8,8 milljónir tonna
Um þarsíðustu mánaðamót nam
kornuppskeran í Rússlandi 94,5
milljónum tonna, samkvæmt upp-
lýsingum rússneska landbúnaðar-
ráðuneytisins. Vonast stjórnvöld
til að geta flutt út um 8,8 milljónir
tonna. Í fyrra voru flutt út 6,6
milljón tonn. En í landinu eru ekki
fyrir hendi þau tól og tæki sem
þarf við umfangsmikinn útflutning.
Í höfninni í Novorossísk við
Svartahaf, sem gæti verið mikil út-
flutningsmiðstöð, var, þar til fyrir
fáeinum árum, aðeins notast við
kornlyftur sem fluttu kornið í eina
átt. Aðeins var skipað upp, ekki út.
Það var reyndar ekki mikið mál að
gera þær breytingar sem til þurfti,
en þetta var gott dæmi um þau
vandamál sem við er að etja.
Blaðið Jezjenedelníj Zjúrnal
greindi frá því nýverið að Rússar
ættu einnig á hættu að verða af
mörkuðum í Íran vegna þess að
þeir eigi enga viðunandi höfn við
Kaspíahaf. „Opinbert fjármagn
verður að koma til,“ sagði Andrei
Syzov, framkvæmdastjóri Sov-
Econ, greiningarmiðstöðvar í land-
búnaði, á ráðstefnu er haldin var
undir heitinu: „Mikil uppskera,
mikið vandamál.“
Að koma korninu frá Rússlandi
er aðeins hluti vandans. Rússar
þurfa einnig að fá alþjóðasam-
félagið til að kaupa kornið. Í byrj-
un þarsíðasta mánaðar greindu
rússneskar fréttastofur frá því að
Kanadamenn – sem eru einhverjir
mestu kornútflytjendur í heimi –
væru að hugleiða að kaupa rúss-
neskt korn vegna slæmrar upp-
skeru heimafyrir. En Kanada-
menn voru fljótir að bera þetta til
baka.
Rússneskir landbúnaðarsér-
fræðingar viðurkenna að korniðað-
urinn eigi við eins konar ímynd-
arvanda að etja. Gæði vörunnar
hafa ekki alltaf verið áreiðanleg og
á mörgum erlendum mörkuðum
hafa menn einfaldlega ekki áhuga,
og líta fremur á Rússland sem inn-
flytjanda. Stjórnvöld hafa líka ver-
ið sein að gera sér grein fyrir
breytingunni, sögðu bændur á
fyrrnefndri ráðstefnu. Landbúnað-
arfulltrúar eru gjarnan einungis
staðsettir í rússneskum sendiráð-
um í löndum sem Rússar hafa yf-
irleitt keypt korn af, en ekki í
þeim löndum sem gætu orðið
kaupendur á rússnesku korni.
Nýtt eignarhaldsform
Helstu úflutningsmarkaðir
Rússa eru í Miðausturlöndum,
Norður-Afríku og Suður-Evrópu,
en Rússar vilja komast inn á fleiri
markaði. Sérfræðingar segja að ný
eignarhaldsfélög í landbúnaði – er
njóta stuðnings rússneskra málm-
og olíurisa – kunni að hafa nægan
vilja og reynslu til að þoka korn-
iðnaðinum í þessa átt. Samyrkjubú
frá Sovéttímanum eru enn stærstu
aðilarnir í landbúnaði, en ólíkt
þeim eru eignarhaldsfélögin rekin
áfram af hagnaðarvon. Þá eru
einnig bundnar vonir við að ef bú-
peningi fari að fjölga í Rússlandi
muni aukin fóðurþörf skapa eft-
irspurn eftir korni.
Ekki gert ráð fyrir útskipun
Rússneskir bændur geta ekki losað
sig við umframbirgðir af korni
Moskvu. AP.
’ Gamla vanda-málið, hvar er hægt
að fá korn keypt,
hefur vikið fyrir
nýjum vanda. ‘
MASOUMEH Soltanbalaqi tekur
við fargjaldinu, 3,5 krónum, um leið
og farþegarnir stíga um borð, sest
síðan undir stýri og leggur af stað.
Hún er fyrsta konan í Íran, sem
keyrir strætisvagn.
Soltanbalaqi, rúmlega hálf-
sextug, starfar í borginni Karaj,
sem er 40 km vestur af Teheran,
höfuðborginni. Konum hefur hing-
að til ekki verið gert mjög hátt und-
ir höfði í hinu íslamska lýðveldi og
því fer fjarri, að öllum löndum
hennar sé rótt. Það er hins vegar
tvennt, sem vakir fyrir Solt-
anbalaqi: Að hafa ofan af fyrir sér
og fjölskyldunni og vinna að aukn-
um réttindum kvenna.
„Konur eru ekki bara húsmæður.
Þær geta verið tæknimenn, flug-
menn og ökumenn. Hundruð
manna sjá mig í þessu starfi dag
hvern og það hefur sín áhrif. Þetta
er nýtt og það ryður brautina fyrir
aðrar konur.“
Meiri réttindi en
í arabaríkjunum
Síðan Mohammad Khatami var
kjörinn forseti Írans 1997 hafa rétt-
indi íranskra kvenna verið að
aukast smám saman. Í Sádi-Arabíu
er konum bannað að aka bíl en það
mega þær gera í Íran og njóta auk
þess ýmissa annarra réttinda um-
fram kynsystur sínar í Sádi-Arabíu
og öðrum arabaríkjum. Þær hafa
kosningarétt og kjörgengi í kosn-
ingum og eru í ýmsum stjórn-
unarstöðum. Einn af fimm varafor-
setum Khatamis er kona.
Eftir sem áður verða konur að
beygja sig undir strangar reglur á
mörgum sviðum, til dæmis hvað
varðar klæðaburð, og þær mega
ekki taka þátt í neinum athöfnum,
sem þykja óíslamskar. Í þessa múra
hafa þó verið höggvin nokkur
skörð að undanförnu. Í fyrsta sinn
frá byltingunni 1979 hefur íranskt
fyrirtæki auglýst vélhjólanámskeið
fyrir konur og í september byrjuðu
fyrstu konurnar að aka leigubíl í
hinni helgu borg Qom.
Í Íran er það venjan, að karlmenn
setjist fremst í strætisvögnunum en
konur aftast. Er það gert til að
koma í veg fyrir hugsanlega snert-
ingu milli karls og konu eins og lög-
in mæla fyrir um. Í bílnum hennar
Soltanbalaqi er þessu öfugt farið,
þar setjast konurnar fremst en
karlarnir aftast.
Mikilvægt að
tilraunin takist
Soltanbalaqi ekur bílnum milli
háskólans í Karaj og lestarstöðv-
arinnar og flestir farþeganna eru
námsmenn. Lotfollah Hemmati,
einn af yfirmönnum samgöngumála
í borginni, segir, að það hafi verið
með ráðum gert að láta hana að-
allega aka menntuðu fólki. Hætta
væri á, að hún yrði fyrir aðkasti á
öðrum leiðum en miklu skipti að
þessi tilraun tækist vel.
Sumum Írönum finnst sem Solt-
anbalaqi sé boðberi nýrra tíma en
öðrum finnst starfið hennar nið-
urlægjandi fyrir kvenþjóðina. Það
sé ekkert kvenmannsverk að keyra
strætisvagn og auðmýkjandi að sjá
konu skipta um dekk eða gera við.
Unga fólkið er hins vegar á öðru
máli.
„Konur láta til sín taka á æ fleiri
sviðum. Á aðeins einum áratug hef-
ur orðið hér róttæk, samfélagsleg
breyting,“ segir námsmaðurinn Ali
Tahmasebi og ástæðuna segir hann
vera kjör Khatamis sem forseta fyr-
ir fimm árum.
Fetar kannski
í fótspor mömmu
Eiginmaður Soltanbalaqi var
með sinn eigin fólksflutningabíl en
þegar hann veiktist á níunda ára-
tugnum tók hún við akstrinum. Hélt
hún því áfram eftir að maður henn-
ar lést og nú hleypur eldri dóttir
hennar, Zahra Moammer, stundum
undir bagga með henni sem bíl-
freyja.
„Það getur vel verið, að ég feti í
fótspor mömmu,“ segir Zahra, sem
er 21 árs. „Það er mikilvægt að
opna augu fólks fyrir réttindum
kvenna.“
Hemmati, fyrrnefndur yfirmaður
samgöngumála í Karaj, segir, að nú
hafi fjórar aðrar konur sótt um
starf hjá strætisvögnunum.
AP
Soltanbalaqi, fyrsta kona, sem keyrir strætisvagn í Íran, tekur við fargjaldinu. Yfirleitt sitja karlarnir fremst en
ekki í vagninum hennar Soltanbalaqi. Návígi karla og kvenna er enn bannað í landinu.
Táknrænn strætisvagn
Með kjöri
Mohammad Khat-
amis sem forseta
fyrir fimm árum
hefur orðið
róttæk breyting
á réttindum
íranskra kvenna
Karaj. AP.
’ Hundruð mannasjá mig í þessu starfi
dag hvern og það
hefur sín áhrif. ‘