Morgunblaðið - 07.11.2002, Síða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 19
AUKIÐ fylgi repúblíkana í kosning-
unum í Bandaríkjunum á þriðjudag-
inn er til marks um þá breytingu sem
orðið hefur á afstöðu almennings til
Georges W. Bush forseta síðan
hryðjuverkin 11. september í fyrra
voru framin.
Vinsældir hans nú á miðju kjör-
tímabilinu voru einhverjar þær
mestu sem bandarískur forseti hefur
notið síðan John F. Kennedy 1962.
Bush ákvað að hella sér í kosninga-
slaginn í trausti þess að hann gæti
nýtt persónulegar vinsældir sínar til
þess að auka styrk Repúblíkana-
flokksins á þinginu.
Þetta tókst honum fádæma vel. Á
þriðjudagskvöldið náði Bush sögu-
legum árangri. Hann átti þátt í því
að flokkur hans náði að koma fleiri
mönnum að í báðum deildum þings-
ins og náði þessum árangri í kosn-
ingum á miðju fyrsta kjörtímabili
hans. Síðan á tímum borgarastríðs-
ins hefur aðeins einum forseta tekist
að vinna slíkan sigur á miðju fyrsta
kjörtímabili, en það gerði Franklin
D. Roosevelt 1934.
Glatað tækifæri demókrata
Repúblíkanar bættu ekki alveg
jafn miklu við sig í kosningunum á
þriðjudaginn og demókratar gerðu
1934 og sigur repúblíkana var ekki
alger: Demókratar gátu stært sig af
því að hafa náð aftur ríkisstjórastól-
unum í fjölmennum ríkjum eins og
Michigan, Illinois og Pennsylvaníu.
Sigur demókrata í þessum ríkjum
bætti þó ekki upp vonbrigðin vegna
hinna miklu ófara í kosningunum til
þingsins. Það var mikið afrek hjá
repúblíkönum að ná aftur meirihluta
í öldungadeildinni og halda meiri-
hlutanum í fulltrúadeildinni nú, þeg-
ar kjósendur hafa miklar áhyggjur af
efnahagsmálunum. Og demókratar
glötuðu þarna mikilvægu tækifæri.
Sagan hefur sýnt, að flokkur for-
setans tapar þingsætum í kosning-
um á miðju kjörtímabili. Það hefur
aðeins gerst þrisvar á undanfarinni
öld að flokkurinn sem hefur völdin í
Hvíta húsinu auki þingmannafjölda
sinn á miðju kjörtímabili. En með
Bush fremstan í flokki gáfu repúbl-
íkanar nú sögunni langt nef. Þetta
mun vera í fyrsta sinn sem flokki for-
seta tekst að ná völdum í öldunga-
deildinni í kosningum á miðju fyrsta
kjörtímabili hans. Og þegar ný-
kjörna þingið kemur saman í janúar
verður það í fyrsta sinn í hálfa öld
sem repúblíkanar hafa völdin í Hvíta
húsinu og í báðum deildum þingsins
samtímis.
Sigur repúblíkana var mikill ágóði
af mikilli, pólitískri áhættu sem Bush
tók. Hann lagði virðingu sína að veði
með því að eyða svo að segja öllum
tíma sínum, vikurnar fyrir kosning-
arnar, í að berjast fyrir hönd fram-
bjóðenda repúblíkana. Hann lét til
sín taka í 23 ríkjum, tvisvar í sex
þeirra. Hann steig upp á svið með 24
frambjóðendum í ríkjum þar sem
mjótt var á mununum og í að
minnsta kosti 19 þessara ríkja höfðu
repúblíkanar betur á þriðjudaginn.
Snerust um leiðtogahlutverkið
Þegar leiðtogar repúblíkana fóru
sigurhring um morgunþætti sjón-
varpsstöðvanna í gærmorgun þökk-
uðu þeir ekki síst ötulli kosningabar-
áttu forsetans sögulegan árangur.
„Ég hafði á tilfinningunni að þetta
gæti gerst, en ég verð að segja að
þetta fór fram úr björtustu vonum
okkar,“ sagði Trent Lott, sem vænt-
anlega verður leiðtogi meirihluta
repúblíkana í öldungadeildinni. Lott
sagði ennfremur að hann teldi að
þessar kosningar hefðu snúist um
leiðtogahlutverk Bush „og hann kom
svo sannarlega fram af heilindum –
hann var reiðubúinn til að leggja
virðingu sína að veði“.
Fráfarandi meirihlutaleiðtogi,
demókratinn Tom Daschle, viður-
kenndi að þetta hefði verið „erfið
nótt“ og sagði að stríðið gegn hryðju-
verkastarfsemi og hugsanleg herför
gegn Írak hefðu yfirgnæft aðvaranir
demókrata um hættumerki í efna-
hagslífinu.
"#5 6$ " ', %78
!"#$!%&'&""($) ! &"*&'&"" *# !+, !#-$#+
'/%0#"
10932
',!
1 !,+,
-23)4
)5264
!"
#7
897 1 !,+,
! " # " " $ "
..;
.<
897 1 !,+,
=
<;
Bush gaf sögunni langt nef
Repúblíkanar við
völd í Hvíta hús-
inu og báðum
þingdeildum í
fyrsta sinn í 50 ár
Washington. Los Angeles Times, AP.
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.