Morgunblaðið - 07.11.2002, Qupperneq 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 25
ÆFINGAR eru hafnar á nýjum ís-
lenskum söngleik, Sól & Mána, eft-
ir Sálina hans Jóns míns og Karl
Ágúst Úlfsson og er frumsýningin
fyrirhuguð 11. janúar á 106. af-
mælisdegi Leikfélags Reykjavíkur.
Uppfærslan er í samvinnu við Ís-
lenska dansflokkinn, sem leikur
stórt hlutverk í sýningunni. Þetta
er ástarsaga og ævintýri með vís-
indasöguívafi og hinum ómissandi
átökum góðs og ills. Sól er ung
kona sem varð fyrir áfalli í
bernsku, en Máni er fallinn engill.
Bæði eru þau utangarðs í skrýtnu
samfélagi og örlög þeirra eru
þungamiðjan í söngleiknum.
Tónlistin í sýningunni er löngu
landsþekkt þar sem öll lögin eru af
tveimur plötum Sálarinnar, Annar
máni og Logandi ljós sem út komu
haustin 2000 og 2001. Það sem
ekki kom fram þá var hugmynd
Sálarinnar að söngleiknum Sól og
Máni, þó að glöggir hefðu greint í
lögunum ákveðinn samhljóm og
undirliggjandi söguþráð.
Hljómsveitin Sálin hans Jóns
míns með Stefáni Hilmarssyni mun
spila í sýningunni, en það eru leik-
ararnir Arnbjörg Hlíf Valsdóttir,
sem mun fara með hlutverk Sólar,
en Bergur Þór Ingólfsson leikur
Mána. Arnbjörg útskrifaðist sl. vor
úr leiklistardeild listaháskólans og
hefur farið með hlutverk Ófelíu hjá
Leikfélagi Akureyrar í sýningunni
á Hamlet nú í haust.
Aðrir leikarar eru Björn Ingi
Hilmarsson, Ellert A. Ingimund-
arson, Guðmundur Ólafsson, Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir, Katla
Margrét Þorgeirsdóttir, Sveinn
Þór Geirsson, Valur Freyr Ein-
arsson. Dansarar eru Guðmundur
Helgason, Guðmundur Elías Knut-
sen, Katrín Ingvadóttir, Katrín
Johnson, Tinna Grjetarsdóttir,
Peter Anderson, Valgerður Rún-
arsdóttir.
Leikstjóri er Hilmar Jónsson og
tónlistarstjórar Jón Ólafsson/
Guðmundur Jónsson (í Sálinni).
Leikmynd hannar Finnur Arnar
Arnarsson, búninga Þórunn María
Jónsdóttir og um lýsingu sér Elfar
Bjarnason.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leikarar, dansarar og aðstandendur söngleiksins Sól & Máni saman komin í Borgarleikhúsinu á fyrstu æfingunni.
Söngleikurinn Sól & Máni
æfður í Borgarleikhúsinu
alltaf á föstudögum
FIMMTUDAGSTILBOÐ
Suðurlandsbraut
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
Verð áður 14.994
Verð nú 7.995
Ökklaskór kvenna
frá ZINDA
Litir:
Svartur, brúnn, drappaður
Str. 36-41