Morgunblaðið - 07.11.2002, Page 29

Morgunblaðið - 07.11.2002, Page 29
„HVERN einasta dag þurfum við að glíma við ákvarðanir af ýmsu tagi og með nokkrum rétti má segja að líf manns sé einungis röð ákvarðana,“ skrifar Sveinn Guð- marsson um veru sína í Grikk- landi sem Erasmus-nemi. Hér fer brot úr frásögn hans, en Sveinn var einnig fulltrúi Íslands á hátíð- arsamkomu ESB í Brussel vegna Erasmus núna í október. Hann er í guðfræðideild Háskóla Íslands: „Þótt flestar þeirra [ákvarð- ana] séu afar smávægilegar ligg- ur fyrir okkur öllum að afráða eitthvað sem á eftir að hafa mikla þýðingu fyrir líf okkar. Ég get kinnroðalaust sagt að ekkert sem ég hef ákveðið hefur haft jafn- ánægjuleg áhrif á líf mitt eins og að fara til Grikklands sem Erasmus-nemi. Sérkennilegt stafróf Haustið 1997 var ég 23 ára guð- fræðistúdent sem hafði búið í for- eldrahúsum alla ævina. Ég vissi lítið um þetta heillandi land sem átti eftir að vera heimili mitt næstu tíu mánuðina og því var ég að vonum kvíðinn en jafnframt fullur eftirvæntingar. Allt var svo frábrugðið því sem ég átti að venjast, ekki síst tungumálið með sínu sérkennilega stafrófi. Fyrstu tvo mánuðina dvaldi ég í borginni Patra og nam gríska tungu. Þess- ir tveir mánuðir voru bæði gagn- legir og umfram allt ánægjulegir. Ég náði tökum á grundvall- aratriðum tungumálsins og sömu- leiðis kynntist ég grískri menn- ingu og siðum. Síðast en ekki síst eignaðist ég þar marga góða vini og við marga þeirra held ég sam- bandi enn þann dag í dag. Nokkrum vikum síðar fluttist ég til Þessalóníku, en svo nefnist önnur stærsta borg Grikklands og þar er Aristótelesar-háskólinn, fjölmennasti háskóli landsins. Nemendur við skólann eru tífalt fleiri en við Háskóla Íslands. Mér leist ekki á blikuna til að byrja með, allt var með öðrum hætti en heima og að sjálfsögðu voru fyr- irlestrar og bækur á grísku. Vinir frá mörgum löndum Vitaskuld fór þó allt á besta veg, ég komst upp á lagið með námið, einkum fyrir atbeina hinna ágætu kennara sem leið- beindu mér. Það var þeim kapps- mál að mér liði vel í landinu þeirra og ég kæmi heim með góð- ar minningar í farteskinu fremur en að ég sæti sveittur yfir skrudd- unum. Ég lærði margt spennandi við guðfræðideildina í Þessalóníku sem ég hefði ekki getað numið annars staðar. Samt tel ég að þeg- ar upp er staðið hafi verið lær- dómsríkara fyrir mig að kynnast svo mörgu fólki frá ólíkum lönd- um og raun bar vitni. Þannig voru mínir nánustu vinir frá löndum á borð við Írland, Portúgal, Svíþjóð og Ítalíu sem sýnir glögglega hve litlu máli landamæri og þjóðerni þurfa að skipta í samskiptum fólks. Ennfremur kynntist ég í bókstaflegri merkingu hve heim- urinn er lítill þar sem við fé- lagarnir ferðuðumst vítt og breitt um nágrannalöndin, ýmist í rútu eða lest, til dæmis um Tyrkland og Búlgaríu. Kynntist verðandi konu sinni Það sem var hins vegar best við þessa dvöl í Grikklandi og án efa mikilvægast var að ég kynntist stúlku sem í dag er konan mín. Rétt eins og ég var hún þátttak- andi í Erasmus-áætluninni en hún var þá við nám í breskum háskóla. Í dag búum við hér á landi en hyggjum á frekara nám – að sjálf- sögðu í Evrópu,“ skrifar Sveinn Guðmarsson. Frásögn Erasmus-nema í Grikklandi Nám í ókunnu landi TENGLAR ............................................ http://www.iris.siu.no/ MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 29 Ef þú ert að velta fyrir þér háskólanámi með vinnu í tölvunarfræði skaltu nýta þér ráðgjöf kennara tölvunarfræðideildar og náms ráð gjafa Háskólans í Reykjavík. Viðtalstímar alla daga kl. 10 – 12. Umsóknarfrestur er til 8. nóvember. Allar nánari upplýsingar á www.ru.is og í síma 510 6200. Með því að stunda háskólanám með vinnu getur þú lokið kerfisfræðiprófi HR (60 ein.) á rúmlega tveimur árum og ákveðið síðar á námstímanum að ljúka BS prófi (90 ein.) í staðarnámi. Námsráðgjöf alla daga í þessari viku kl. 10:00 – 12:00 Háskólanám Háskólanám með vinnu – þitt tækifæri til að ná lengra Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans í síma 510 6200 og á www.ru.is Bandamenn Háskólans í Reykjavík með vinnu í tölvunarfræði ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H IR 1 92 69 1 1/ 20 02 ERASMUS er sá þátturmenntaáætlunar Evrópu-sambandsins sem ætlað-ur er til að auka evrópskt samstarf á háskólastigi og efla Evr- ópuvitund háskólafólks; stúdenta, kennara og annars háskólafólks. Ný- lega fylltu þeir stúdentar sem hafa fengið Erasmus-styrk töluna millj- ón, en af þeim eru þúsund íslenskir stúdentar. Eftir þetta skólaár verða Íslendingarnir orðnir 1.300. Til þess að fagna þessum tímamótum var svokölluð Erasmus-vika haldin frá 18.–25. október í löndunum 30 sem eru þátttakendur í Erasmus. Hér fluttu Erasmus-nemar t.d. sögur af dvöl sinni erlendis. Framkvæmdastjórn ESB hélt einnig upp á þessi tímamót í Brussel með fulltrúum stúdenta frá þátt- tökulöndunum og var Sveinn Guð- marsson, Erasmus-nemi frá guð- fræðideild Háskóla Íslands, fulltrúi Íslands. Hann dvaldi í Grikklandi og má sjá frásögn hans hér á síðunni. Hugmyndafræðin á bak við menntaáætlun Evrópusambandsins er að brjóta niður múra milli landa með menntun, eða að „sá einn veit er víða ratar og hefir fjöld um farið“. Áætlunin er kennd við Sókrates og lýtur Erasmus þáttur hennar að æðri menntun, og á Ísland aðild að henni í gegnum samninginn um Evr- ópska efnahagssvæðið. Með dvöl háskólastúdenta erlend- is lærist margt annað en það sem kennt er við háskólana; tilfinningin fyrir tungumálinu verður dýpri og jafnframt sýnin á Evrópu, heiminn sem heild og jafnvel lífið sjálft. Eftir slíka dvöl hafa flestir ofið sér net vina og sambanda í landinu sem þeir dvöldu í og jafnvel víðar því oftast eru stúdentar frá mörgum þjóðum í hverjum háskóla. Þessi sambönd eru síðar notuð bæði persónulega og fag- lega, og er það liður í sameinaðri Evrópu. Búseta erlendis og það að læra að þekkja annað samfélag og tungumál af eigin raun getur einnig haft afger- andi áhrif við atvinnuleit. Kannanir sýna að reynsla sem Erasmus-stúd- entar öðlast með námi sínu erlendis hefur komið að góðum notum á vinnumarkaði og oft ráðið úrslitum við ráðningu. Víðtækt samstarf Erasmus-áætlun Evrópusam- bandsins var ýtt úr vör árið 1987 með það að markmiði að auka nem- enda- og kennaraskipti á háskóla- stigi í aðildarríkjunum. Með slíku samstarfi var ætlunin m.a. að styrkja stoðir evrópskrar háskólamenntun- ar og gera háskóla aðildarríkjanna færari um að standast vaxandi sam- keppni á alþjóðavettvangi. Annað meginmarkmið Erasmus var að stuðla að aukinni samkennd og víðtæku samstarfi íbúa ríkjanna. Íslendingar hófu þátttöku skólaárið 1992–93 og þá fóru fyrstu Erasmus- stúdentarnir héðan og þeir fyrstu komu til landsins. Í upphafi voru aðeins sjö lönd sem tóku þátt og fjöldi stúdenta fyrsta árið var um 3.000. Á fyrsta þátttöku- ári Íslendinga fóru 35 stúdentar utan en aðeins 3 komu til landsins. Í ár (02–03) munu um 110.000 stúdentar frá 30 Evrópulöndum og um 1.800 háskólum nýta sér Erasmus; þar af hátt í 200 íslenskir, en um 200 Erasmus-stúdentar munu koma til Íslands. Margir vilja koma hingað Íslenskum háskólum hefur gengið mjög vel að laða til sín Erasmus- stúdenta og nú er svo komið að í sumum skólum er tekið á móti fleiri stúdentum en sendir eru utan. Erasmus er nú ein þekktasta áætlun Evrópusambandsins og þyk- ir lýsandi dæmi um hvað best er hægt að gera á sviði evrópskrar sam- vinnu. Sókrates-áætlunin skiptist annars í 5 meginundirflokka, þ.e.: háskólamenntun (Erasmus), leik-, grunn- og framhaldsskólastig (Comenius), tungumálanám (Ling- ua), fullorðinsfræðsla (Grundtvig) og upplýsingatækni í menntamálum (Minerva). Skilyrði fyrir Erasmus-stúdenta- skiptum eru eftirfarandi: Að hafa lokið minnst 30 einingum, vera skráð/ur við íslenskan háskóla sem tekur þátt í Erasmus, að það sé samningur við gestaskólann, að dval- ið sé minnst í þrjá mánuði en mest í tólf, að heimaskólinn samþykki skiptin og þau námskeið sem fyrir- hugað er að taka. Umsóknarfrestur er svo til 15. mars ár hvert. Eyðublöð eru á heimasíðu Landsskrifstofu Erasmus. Þess má að lokum geta að íslensk- ir háskólar taka einnig þátt í Nor- dplus sem er norræn stúdenta- skiptaáætlun sem hefur verið starfrækt frá 1989. Háskólarnir hér eru jafnframt með einstaka samn- inga við hina ýmsu háskóla víða um heim. Möguleikar stúdenta á því að taka hluta af námi sínu erlendis hafa því aukist mikið á undanförnum ár- um. Erasmus/Menntaáætlun Evrópusambandsins hefur gefist mjög vel og skapað lifandi tengsl milli skóla hinna ýmsu Evrópulanda. Erasmus-þáttur áætlunarinnar lýtur að æðri menntun og hafa nú milljón stúdentar skipt um háskóla tímabundið og öðlast nýja reynslu. Framkvæmdastjórnin hélt upp á þessi tímamót í lok október og fulltrúi Íslands fór á fund til Brussel af þessu tilefni. TENGLAR .............................................. www.ask.hi.is/page/erasmus Stúdentaskiptin æ vinsælli Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hélt upp á það að milljón stúdentar hafa stundað nám í háskólum undir nafni Erasmus. Sveinn Guðmarsson sést hér á milli Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, og Prodi, forseta framkvæmdastjórnar ESB, um miðja mynd.  Kemur að góð- um notum á vinnumarkaði Evrópu.  Í sumum háskólum hér koma fleiri en sendir eru utan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.