Morgunblaðið - 07.11.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 07.11.2002, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. OKKAR maður er farinnaf stað,“ heyrðist í tal-stöðinni í ómerktum lög-reglubíl sem var lagt í bílastæði ínágrenni Elliðaárdals- ins. Með reglulegu millibili bárust tilkynningar um staðsetningu bíls- ins, allt frá því maðurinn ók frá heimili sínu í Garðabæ og þar til hann náði í félaga sinn í Reykjavík. Fjórir lögreglumenn á tveimur ómerktum bílum fylgdust með ferðum mannanna og á meðan biðu tveir lögreglumenn átekta í ná- grenni Elliðaárdals ásamt blaða- manni Morgunblaðsins sem fékk að fylgjast með aðgerðum fíkni- efnadeildar lögreglunnar í Reykja- vík í gærmorgun. Þriggja tíma bið Fíkniefnadeildin hafði fengið vísbendingu um að verið væri að rækta kannabisplöntur í kartöflu- geymslu í Ártúnsholti. Í gærmorg- un var ákveðið að fylgjast náið með manninum sem hafði geymsluna á leigu en hann hefur nokkrum sinn- um komið við sögu fíkniefnamála. Snemma morguns komu lögreglu- mennirnir sér fyrir á sínum „póst- um“ bæði í nágrenni við heimili mannsins og í Elliðaárdal, skammt frá kartöflugeymslunum, og biðu eftir því að maðurinn færi á stjá. Lögreglan lét lítið fyrir sér fara, bílarnir að sjálfsögðu ómerktir og lögreglumennirnir óeinkennis- klæddir. Um þremur tímum eftir að lögreglan kom sér fyrir lagði maðurinn af stað og ók sem leið lá upp í Breiðholt til að ná í félaga sinn. Stuttu síðar komu þeir að kartöflugeymslunum og fóru inn í eina geymsluna. Ekki leið á löngu þar til fyrsti ómerkti lögreglubíll- inn renndi upp að geymslunni og fljótlega bættust fleiri í hópinn. Lögreglumennirnir stigu hljóðlega út úr bílunum og stilltu sér upp fyrir framan dyrnar. Ætlunin var að grípa mennina þegar þeir kæmu út úr geymslunni en eftir um 15 mínútur var lögreglunni far- ið að leiðast biðin. Knúið var dyra og fljótlega var rifa opnuð. Lög- reglumennirnir rifu þá hurðina upp, sveifluðu lögregluskjöldunum og þustu inn. Sá sem opn handsamaður við dyrnar e hans var enn að huga að isplöntunum þegar lögreg að honum. Innst inni í geymslunni v lítil „gróðurhús“ úr spóna sem höfðu verið fóðruð me Inni í þeim var vel á annað að kannabisplantna sem komnar vel á legg en ef græ eru taldir með voru um 200 í kartöflugeymslunni. Bún var þó fremur frumstæðu við það sem oft gerist, að sö reglumannanna. Mennirni voru færðir í járnum á lö stöðina við Hverfisgötu þ þeir voru yfirheyrðir í g sleppt að því loknu. Við hú öðrum þeirra fannst lítil marijúana og nokkrar töf lögregla lagði hald á, að óg handbók um hvernig á að marijúana innanhúss. Und mannsins fannst veglegur hnífur. Fíkniefnalögreglumönnum leiðist stundum biðin Blómleg kannabi un í kartöflugey Hluti af kannabisplöntunum 200 sem fundust í kartöflugeymslu í túnsholti í gær. Lögreglan lagði í gær hald á vel á annað hundrað kannabis- plöntur í Reykjavík. Það sem af er árinu hefur lögreglan lagt hald á yfir 800 slíkar plöntur. Morgunblaðið fylgdist í gær með störfum lögreglunnar. GUNNÞÓRA Ólafsdóttir, nemi í landfræði og ferðamálafræðum við Háskóla Íslands, er einn af nokkrum einstaklingum sem hlýtur Arkímedesarverðlaun Evrópusambandsins í ár sem veitt verða í München 5. desember nk. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1998 og falla í skaut nema sem leggja stund á grunnnám við háskóla. Keppendur senda inn verkefni sem tengjast vísindalegum markmiðum keppn- innar hverju sinni en Gunnþóra hlýtur verð- launin fyrir verkefni sem tengist áhrifum ferðamennsku á náttúru og samfélag. Verkefni hennar nefnist á íslensku: Nátt- úruferðamaðurinn; greining á þörfum og við- horfum ferðamanna gagnvart náttúrunni á miðhálendi Íslands og vísbendingar varðandi skipulag á ferðamannastöðum. Verkefnið vann hún upp úr BS-ritgerð sinni og fleiri verkefnum. „Það var Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við HÍ, sem benti mér á þessa keppni og hvatti mig eindregið til að taka þátt í henni. Hún vissi að ég átti efni í handraðanum þar sem ég er nánast búin að klára BS-ritgerðina mína sem tengist einu af þemum samkeppninnar í ár,“ segir Gunnþóra. Kannaði væntingar til Landmannalauga og Lónsöræfa „Ég tók þá ákvörðun að ég hefði engu að tapa og fyrst verið væri að hvetja mig til þátt- töku ætti ég að taka áskoruninni. Ég dagsetti umsóknina 2. febrúar sem er afmælisdagur sonar míns og ég taldi að það myndi færa mér lukku. Það virðist hafa virkað,“ segir hún. Verkefnin þurfa að standast mjög strangar gæðakröfur um frumleika og innlegg í fræði- lega umræðu auk þess að hafa gildi fyrir Evr- ópuþjóðir. Sérfræðingar fara yfir verkefnin og þurfa þau að fá að lágmarki 80 stig af 100 mögu- legum til að komast í undanúrslit. Í lok maí var henni tilkynnt að hún væri komin í undanúrslit og 18. október sl. voru úrslitin kunn. Hún hlýtur að launum 34 þús- und evrur, rúmar þrjár milljónir ísl. króna, sem eiga að nýtast henni við að byggja upp vísindaferil sinn. Markmið verkefnisins sem hún sendi inn er að afla upplýsinga um hvaða upplifun ferðamenn sækjast eftir á hálendi Íslands. Gunnþóra segi að slíkar upplýsingar séu nauðsynlegar til þess að hægt sé að vinna að heildarstefnumótun og skipulagi ferða- mennsku á svæðinu, sporna gegn neikvæðum áhrifum hennar og stuðla að sjálfbærri ferða- mennsku. Í slíku stefnumótunarferli þurfi að beina sjónum að öllum áhrifaþáttum ferða- mennskunnar, þ.e. hvað sé boðlegt nátt- úrunni, samfélaginu, efnahagnum og ferða- mönnunum sjálfum. Í verkefni sínu gerir Gunnþóra samanburð á viðhorfum og væntingum ferðamanna til uppbyggingar og þjónustu á tveimur fjölsótt- um ferðamannastöðum á hálendinu, Land- mannalaugum og Lónsöræfum, og kannar hvort mu hvata, m lendinu hætti; ga Helst ferðame víðerni, þurfa fer meiri up Lónsöræ bygging sem ósn Gunnþ ferðamá lifun hál séu alls e þeir mis þar um á urstöðum hraða þu Nemi í HÍ hlýtur Arkímedesarverðlaun ESB fyr Ferðamenn á hálendi ekki einsleitur hópur Gunnþó SIGUR REPÚBLIKANA Sigur repúblikana í þingkosning-um í Bandaríkjunum á þriðju-dag var um margt óvæntur. Sögulega séð eru fá dæmi um að flokk- ur sitjandi forseta bæti við sig fylgi á miðju kjörtímabili forsetans. Repúblikanar höfðu meirihluta í fulltrúadeildinni fyrir kosningarnar á þriðjudag og bættu við sig nokkrum þingsætum. Raunar hefur það einung- is gerst tvisvar sinnum í kosningum til fulltrúadeildarinnar frá lokum þræl- astríðsins. Það var árið 1934 er Franklin D. Roosevelt var forseti og árið 1998 í forsetatíð Bill Clintons. Repúblikanar endurheimtu einnig meirihluta sinn í öldungadeildinni er þeir misstu í júní á síðasta ári er James M. Jeffords, öldungadeildar- þingmaður frá Vermont, sagði skilið við flokkinn. Var það í fyrsta skipti í stjórnmálasögu Bandaríkjanna að flokkur missti meirihluta í deildinni á milli kosninga. Örfá dæmi eru um það í sögu Banda- ríkjanna að flokkur sitjandi forseta bæti við sig sætum í öldungadeildinni á miðju kjörtímabili forsetans líkt og nú átti sér stað. Það gerðist til dæmis í kosningunum 1962 er John F. Ken- nedy var forseti og árið 1971 í forseta- tíð Richards Nixons. Þessi úrslit eru fyrst og fremst mik- ill pólitískur sigur fyrir George W. Bush forseta. Þrátt fyrir að framan af þessu ári hafi fátt bent til að repúblik- anar ættu möguleika á að sigra í kosn- ingunum lagði hann mikið undir og tók virkari þátt í kosningabaráttunni víðs vegar um Bandaríkin en flestir áttu von á. Það voru ekki síst hinar miklu persónulegu vinsældir forsetans er tryggðu repúblikönum sigur í kosn- ingunum. Kjör Bush var mjög umdeilt á sínum tíma vegna kosningaklúðursins á Flórída fyrir tveimur árum. Hann hef- ur hins vegar náð að festa sig í sessi meðal bandarískra kjósenda. Er það fyrst og fremst framgöngu hans í kjöl- far atburðanna ellefta september á síð- asta ári að þakka. Þrátt fyrir að margir töldu lítið til Bush koma fram af reynd- ist hann búa yfir miklum leiðtogahæfi- leikum þegar á reyndi. Hann hefur sýnt styrk og festu í baráttunni gegn hryðjuverkum og kænsku í samskipt- um við pólitíska andstæðinga. Segja má að það hafi reynst eitt helsta póli- tíska vopn forsetans hversu vanmetinn hann hefur verið af andstæðingum sín- um. Þrátt fyrir vinsældir forsetans var þó talið líklegt að kjósendur myndu ekki styðja flokk hans í þingkosning- unum vegna stöðu efnahagsmála. For- setinn virðist hafa lítið annað fram að færa í efnahagsmálum en þá miklu skattalækkun er knúin var í gegn fyrr á árinu. Stjórn hans hefur ekki megnað að auka hagvöxt og litlar líkur þykja á að efnahagslífið taki kipp á næstunni. Þá hafa fjölmörg hneykslismál í banda- rísku viðskiptalífi dregið úr trausti fjárfesta á bandarískum hlutabréfum. Þegar upp er staðið virðast áhyggjur kjósenda af hryðjuverkum og Írak hafa vegið þyngra en áhyggjur af stöðu efnahagsmála. Repúblikanar munu ráða ferðinni í bandarískum stjórnmálum fram að næstu kosningum og ættu því að geta komið stefnumálum sínum á framfæri. Þeir munu einnig eiga auðveldara með að knýja í gegn tilnefningar í embætti og stöður, t.d. við dómstóla. Það gæti hins vegar reynst skamm- góður vermir ef repúblikönum tekst ekki að koma hjólum efnahagslífsins í gang á nýjan leik. Þeir ráða nú vissu- lega yfir báðum deildum þingsins en meirihluti þeirra er naumur. Þegar næst verður gengið til kosninga eru líkur á að hefðbundin kosningamál á borð við efnahagsmál verði efst í hug- um kjósenda. ÞYNGRI REFSINGAR FYRIR KYNFERÐISBROT GEGN BÖRNUM Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð-herra hefur lýst því yfir á Alþingi að hún muni á yfirstandandi þingi leggja fram frumvarp til breytinga á hegningarlöggjöfinni. Þar verður m.a. kveðið á um að refsirammi vegna kyn- ferðisbrota gegn börnum og ungling- um verði hækkaður. Þetta er í sam- ræmi við tillögur refsiréttarnefndar, sem í sumar sem leið lagði m.a. til að það skyldi varða allt að 12 ára fangelsi ef einstaklingur eldri en 18 ára hefur mök við barn yngra en 15 ára. Þessi ákvörðun ráðherra er ánægju- efni. Morgunblaðið hefur lýst þeirri skoðun að bil væri að skapast milli dóma dómstólanna og réttarvitundar borgaranna, ekki sízt í kynferðis- brotamálum. Það á bæði við um brot gegn börnum, en einnig hrottafengnar nauðganir og annars konar kynferð- islegt ofbeldi. Skoðun blaðsins hefur verið að annaðhvort yrði að víkka refsirammann og jafnvel kveða á um ákveðna lágmarksrefsingu fyrir til- tekin brot eða þá dómstólar að fella dóma sem væru í meira samræmi við þunga dóma í öðrum málum, t.a.m. fíkniefnamálum. Ráðherra hyggst í sama frumvarpi leggja til aukna vitnavernd, en í skýrslu refsiréttarnefndar var hvatt til þess að fórnarlömbum mansals yrði veitt vernd, þannig að þau geti snúið sér til lögregluyfirvalda án þess að ótt- ast um líf og limi. Sólveig segist aftur á móti ekki reiðubúin að svo stöddu að fara að tillögu nefndarinnar um að vændi í framfærsluskyni verði ekki refsivert, þótt ýmis rök hnígi í þá átt. Vonandi fylgir sú breyting þó fljót- lega í kjölfarið. Einstaklingar, sem stunda vændi sér til framfærslu, eru í flestum tilfellum fórnarlömb misnotk- unar af ýmsu tagi. Það að vændi sé refsivert hvetur þetta fólk ekki til að leita sér hjálpar og bent hefur verið á að nær væri að gera þann verknað refsiverðan að kaupa vændisþjónustu og nýta þar með neyð þess, sem neyð- ist til að selja sig. Í skýrslu refsirétt- arnefndarinnar kom fram að með því að fella út ákvæði um refsingar fyrir vændi í framfærsluskyni væri ekki verið að lögleiða vændi og var þar lögð megináherzla á að koma lögum yfir „vændismiðlarana“. Eins og Þorgerð- ur Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, benti á í um- ræðum á Alþingi í fyrradag, er líka ill- mögulegt að greina á milli þess hvað er vændi í framfærsluskyni og hvað ekki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.