Morgunblaðið - 07.11.2002, Page 35

Morgunblaðið - 07.11.2002, Page 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 35 FRÁ fornu fari hefur læknishjálp og heilbrigðisþjónusta beinst fyrst og fremst að því að lækna þá sem sjúkir eru og menn leituðu helst ekki læknis nema þeir væru alvarlega veikir og illa haldnir. Þetta hefur breyst í áranna rás og nútíma heil- brigðisþjónusta beinir sjónum sínum í æ meira mæli að því að koma í veg fyrir sjúkdóma eða þá að koma í veg fyrir alvarlegar afleiðingar sjúk- dóma sem fólk kann að hafa. Þessi aðferð hefur almennt verið kölluð forvarnir eða fyrirbyggjandi læknis- fræði og hefur til skamms tíma þótt góð latína hér sem annars staðar. Jó- hann Ágúst Sigurðsson prófessor hefur í viðtölum í Morgunblaðinu og ljósvakamiðlum varpað fram þeirri spurningu hvort við séum að ganga of langt í fyrirbyggjandi læknisfræði og beina sjónum heilbrigðisþjónustu of mikið að heilbrigðu fólki. Spurn- ingin er góð, en svarið flókið. „Betra er heilt en vel gróið“ segir máltækið og vissulega vildum við hvert og eitt fremur gangast undir fyrirbyggjandi rannsóknir og með- ferð heldur en að fá alvarlega sjúk- dóma. Vandinn í fyrirbyggjandi læknisfræði er hins vegar að iðulega þarf að skoða og rannsaka marga heilbrigða til að finna þá sem eru í aukinni áhættu fyrir tiltekinn sjúk- dóm eða afleiðingar sjúkdóms. Því getur verið að margir einstaklingar sem munu aldrei fá tiltekinn sjúk- dóm gangist undir skoðanir og rann- sóknir með tilheyrandi kostnaði og fái jafnvel ráðleggingar um meðferð eða lífsstílsbreytingar sem koma þeim í raun ekki að notum. En hvernig á að meta gagnsemi forvarnaaðgerða og lækninga á móti kostnaði og hugsanlegu tjóni af slík- um aðgerðum? Þetta er hægt að mæla með fjöldarannsókn sem skoð- ar annars vegar umfang og kostnað við forvarnaaðgerðir eða lækningar og hins vegar það heilsufarslega gagn eða ógagn sem af því leiðir. Heilsufarslega útkomu má mæla á ýmsan hátt. Ein aðferð sem hefur verið notuð byggist á mælieiningu sem mætti kalla „Eitt lífsgæðaár“ og kallast á ensku „Quality adjusted life year“. Í stuttu máli er mælieiningin eitt ár með miklum lífsgæðum og spurningin er hvað það kostar að veita einum einstaklingi eitt ár með lífsgæðum, þ.e. góðri líðan og heil- brigði. Eitt lífsgæðaár tekur ekki bara til lífs og dauða heldur einnig til þess hversu gott lífið er það árið, þ.e. laust við sjúkdómseinkenni og fötl- un. Þannig er hægt að nota þetta mat til að meta árangur í tengslum við sjúkdóma sem valda fötlun, en e.t.v. ekki dauða, svo sem augnsjúk- dóma, geðsjúkdóma, gigt og fleira. Þetta mat má líka nota á árangur alls konar lækningaaðgerða, bæði for- varnaaðgerða sem og annarra lækn- inga, raða þeim upp í kostnaðarlista og bera saman árangur þeirra á þessum mælikvarða. Jonathan Jav- itt, prófessor við Georgetown-há- skólann í Bandaríkjunum, hefur rannsakað hvernig ýmsar læknisað- gerðir koma út á þessum skala. Í grein sem hann birti í Annals of Internal Medicine árið 1996 kemur fram að eitt lífsgæðaár kostar 3.190 Bandaríkjadali í forvarnaaðgerðum gegn blindu í sykursýki, 5.100 dali í kransæðaaðgerðum og 250.000 dali við lifrarígræðslu, eins og sjá má í töflunni. Með slíkar upplýsingar í höndunum er tiltölulega auðvelt fyr- ir heilbrigðisyfirvöld að ákveða hvaða læknisaðgerðir og forvarnaað- gerðir hafi forgang og hverjar skyldu sitja á hakanum. Vandinn er hins vegar sá að því fer fjarri að slík- ar upplýsingar og útreikningar liggi fyrir um allar forvarnaaðgerðir og læknisverk sem unnin eru. Ákvarð- anir um forgangsröðun eru því oft teknar án þess að slíkar upplýsingar liggi fyrir og þá er hægt að efast um réttmæti einstakra aðgerða. Túlka má orð Jóhanns Ágústs Sig- urðssonar þannig að hann kalli eftir slíkum upplýsingum um forvarna- verkefni sem unnin eru á Íslandi. Þetta er rétt krafa og forsenda þess að fjármunum heilbrigðisþjónustu sé varið þar sem þeir nýtast best. Þetta kallar á fræðilega úttekt og faralds- fræðilegar rannsóknir á læknisað- gerðum og forvarnaverkefnum sem unnin eru eða fyrirhuguð á Íslandi. Slík fræðileg úttekt og undirbún- ingsvinna er að mörgu leyti svipuð hönnunarvinnu í mannvirkjagerð þar sem eyrir í undirbúningi getur sparað krónu í framkvæmdinni. Heilbrigðisyfirvöld þurfa að leggja meiri áherslu á fræðilegar úttektir og árangursmælingar í heilbrigðis- þjónustu. Slíkar rannsóknir hafa hingað til verið stundaðar af vanefn- um af einstökum fræðimönnum og læknum, og einungis á sumum svið- um heilbrigðisþjónustu, en upp og ofan hvort niðurstöður séu nýttar í framkvæmd. Tafla: Kostnaður við eitt lífsgæðaár við ýmsar læknisaðgerðir (Javitt et al., Ann Int. Med 124:164; 1996) Aðgerð kostnaður (Bandaríkjadalir) Blinduforvarnir í sykursýki 3.190 Kransæðaaðgerð 5.100 Leit að skjaldkirtilssjd. í nýfæddum 5.460 Öflug („intensive“) insúlínmeðferð 19.987 Berklaleit í skólum (Bandar.) 53.000 Blóðskilun á spítala (nýrnabilun) 65.000 Lifrarígræðsla 250.000 Forvarnir eða sjúkdómavæðing? Eftir Einar Stefánsson „Heilbrigð- isyfirvöld þurfa að leggja meiri áherslu á fræðilegar úttektir og árangursmælingar í heilbrigðisþjónustu.“ Höfundur er prófessor við lækna- deild Háskóla Íslands. EXTRAVAGANT HÁRNÁKVÆMUR MASKARI SEM MARGFALDAR AUGNHÁRIN. MÖGNUÐ AUGNHÁR, ÞÉTT, LÖNG OG AÐSKILIN. Helena Rubinstein er sérfræðingur í augnháralitum. Nú er kominn nýr magnaður maskari á markaðinn. Útsölustaðir: Ársól Grímsbæ, Gullbrá Nóatúni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi 23, Libia Mjódd, Mist Spönginni, Sara Bankastræti 8, Sigurboginn Laugavegi 80, Andorra Strandgötu Hafnarfirði, Bylgjan Hamraborg Kópavogi, Hygea Smáralind, Fína Háholti Mosfellsbæ. Landið: Hjá Maríu Glerártorgi Akureyri, Snyrtistofan Jara Hafnarstræti 104 Akureyri, Bjarg Stillholti 14 Akranesi, Hilma Garðarsbraut 18 Húsavík, Konur og Menn Hafnarstræti 9 Ísafirði, Myrra Austurvegi 4 Selfossi, Miðbær Miðstræði 14 Vestmannaeyjum. w w w .h el en ar ub in st ei n. co m                    !"  # $ %%%$ $                         !    " #$%      &    '              !(  "     !    !!    )$ $) *!"   +    $) $) *  "                    $) ) ,( " &'     (  )      * '    ' $      (  '   '  )   ++ +    )    '      ,    )       ')*  '  $   )   (   (  ) '    ,    )  *      + '      ,      * '     $       !    "  # $ %     #  $  %!   & %  '"   (  )     &      (  ) %) - %) &) ." " !       '  )    )  -  ' '   ' .    -     *   $ &  )   ' ,            *  $ /           ')  )  '  )    * $ * +     !       % , ! (   -  . ,    !        /0    (   - &) /) *0( 1!     '              *  -+  -        '    , (   ++   $ .   ' ' )     )  ,  ( , $    )  ,        '    ,        *   )     *  ,   ' (  )    * $ 1      & % 2" !  % .0  3    & % 2  - ) 0 4   & %   &%   - 2"    0'          '    1 2$  '   ( 1 3 /$ 4  Úr • Skart • Silfurborðbúnaður www.erna.is Ársskeið sterling silfur Tilvalin gjöf við öll tækifæri Sif gullsmíðaverkstæði Laugavegi 20b s. 551 4444 Gull- og silfursmiðjan Erna Skipholti 3 s. 552 0775 Verð 5.900 Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Brandtex fatnaður Nýbýlavegi 12, sími 5544433 Stretchbuxur kr. 2.90 Konubux r frá kr. 1.790 ragtir, kjólar, blús ur og pils. Ódýr nát fatna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.