Morgunblaðið - 07.11.2002, Side 37

Morgunblaðið - 07.11.2002, Side 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 37 NÚ stendur yfir prófkjör þar sem margir eru kallaðir en fáir verða útvaldir. Þá ríður á að velja gott fólk á lista; fólk sem alþýðan treyst- ir til góðra verka; fólk sem sýnt hefur í verki að því er treystandi. Einn þessara frambjóð- enda er Rannveig Guðmundsdóttir, sem nú sækist eftir fyrsta sætinu á lista Samfylk- ingarinnar í sínu kjördæmi. Af löngum kynnum mínum af Rann- veigu og verkum hennar veit ég að hún vinnur sín verk af heilindum og dugnaði. Þau eru ófá velferð- armálin sem hún hefur lagt nafn sitt við. Af mörgum góðum verkum hennar vil ég sérstaklega nefna baráttu hennar fyrir bættri lög- gæslu – en Rannveig hefur rétti- lega bent á að löggæslumál í kjör- dæmi hennar hafa ekki fylgt þróun mannfjölda undanfarin ár. Ég býð Rannveigu velkomna í hóp þeirra fjölmörgu landsmanna sem fara fram á eflingu löggæslu en víst er að í þeim hópi eru ekki margir þingmenn – jafnvel þótt löggæslu- mál séu eitt mesta hagsmunamál almennings. Ég hvet fólk til að veita Rann- veigu brautargengi í komandi kosn- ingum svo hún megi hér eftir sem hingað til halda áfram að berjast fyrir góðum málefnum á þingi í þágu almennings. Rannveig berst fyrir góðum mál- efnum Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir skrifar: NÚ á laugardaginn göngum við Samfylkingarfólk í Reykjavík að prófkjörsborði til að velja þá ein- staklinga sem skipa munu framboðslista okkar í alþingiskosn- ingunum í vor. Margt mjög fram- bærilegt fólk býður sig fram en ég vil vekja sérstaka at- hygli á Guðrúnu Ögmundsdóttur sem setið hefur á Alþingi síðustu fjögur ár. Guðrún starfaði innan borgarstjórnar Reykjavíkur og í fjögur ár sátum við saman í borg- arstjórnarflokki Reykjavíkurlistans. Guðrún starfaði þar m.a. í félags- málaráði borgarinnar, sem er um margt vandasamt verk. Hún sýndi það í borgarstjórn og síðar á Alþingi að hún er réttsýnn stjórnmálamaður sem hefur barist fyrir mörgum góð- um framfaramálum. Það er mjög mikilvægt að þingmannahópur Sam- fylkingarinnar í Reykjavík hafi breiða skírskotun og ég tel að Guð- rún Ögmundsdóttir eigi hiklaust er- indi til að vera áfram í þeim hópi. Látum hennar rödd heyrast áfram á Alþingi. Ég styð Guðrúnu Ögmunds Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi skrifar: ÍSLAND er lítið og Íslendingar fámennir. Við státum af gríðarlegri náttúrufegurð, dugmiklu fólki og skipum okkur í hóp ríkustu þjóða heims. Flest erum við elsk að land- inu okkar og þótt margt bendi til þess að grasið sé miklu grænna hin- um megin, þá þraukum við þorrann því hér viljum við búa. Hins vegar er lífið endalaus barátta og alltaf má betur gera. Þess vegna verðum við að spyrja okkur dag hvern í hvernig samfélagi við viljum búa, hver okkar framtíðarsýn sé – og það er einmitt þetta sem stjórnmálin snúast um. Það liggur í eðli manna að keppast við að skapa sér umhverfi sem býður upp á sem best lífskjör og sem mesta vellíðan. En þeir sem um stjórnar- taumana halda virðast hafa gleymt sér eitt augnablik, eða fleiri, og stundum er eins og þeir muni ekki að þeir eru kjörnir fulltrúar allra Ís- lendinga – ekki bara sumra. Því þegar við horfum nú yfir leik- svið íslensks veruleika blasir við sú staðreynd að á meðan lítill hópur vildarvina lifir í vellystingum, búa aðrir hópar í samfélaginu við mjög kröpp kjör og alls enga vellíðan, þeir líða jafnvel skort. Fjölmiðlar skýra okkur frá því að fátækt á Íslandi fari vaxandi og slík samfélagssýn mis- býður minni siðgæðisvitund. Hún er mér alls ekki að skapi. Fátækt á Ís- landi er staðreynd sem óhætt er að draga fram í dagsljósið. Stór hluti aldraðra, öryrkja og fatlaðra fer á mis við lífsins gæði og á bágt með að njóta þess sem Ísland hefur upp á að bjóða. Eitt af því sem veldur fátækt þess- ara hópa er óréttlátt og ógagnsætt skattkerfi. Ef þeir sem minna mega sín reyna að bjarga sér og sýna sjálfsbjargarviðleitni, er þeim refsað með tekjutengingu bóta sem er í raun tvísköttun. Meðalaldur fólks fer hækkandi og á komandi árum mun þjóðfélagið enn frekar þurfa á því að halda að sem flestir leggi sitt af mörkum til samfélagsins. Við höf- um ekki efni á því að dæma ákveðna hópa samfélagsins úr leik með kerfi sem brýtur niður vilja, sjálfstraust og sjálfsvirðingu fólks. Taka þarf til gagngerrar endur- skoðunar jaðarskatta á lágtekjufólk og lífeyrisþega. Miðað við alla þá umræðu sem átt hefur sér stað, virð- ist mér einnig löngu tímabært að hækka persónuafsláttinn. Skatta- stefna stjórnvalda er á skjön við fólk- ið í landinu og lýsir viðhorfum vald- hafa til minnihlutahópa í sam- félaginu. Okkur ber skylda til að nota þau tæki sem við höfum til að rétta kjör þeirra þjóðfélagshópa sem standa höllum fæti í samfélaginu. Höfum samhjálp að leiðarljósi og gerum öll- um kleift að njóta þeirra gæða sem landið okkar hefur upp á að bjóða. www.sigrungrendal.is Skattar á skjön við fólk Eftir Sigrúnu Grendal Höfundur er þátttakandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það liggur í eðli manna að keppast við að skapa sér umhverfi sem býður upp á sem best lífskjör og sem mesta vellíðan.“ ÞAÐ hefur stundum verið sagt að hægt sé að segja margt um sam- félagið af því hvernig komið er fram við aldraða og öryrkja. Staða öryrkja á Íslandi er slæm, sérstaklega ungra öryrkja sem hafa aldrei haft nein tækifæri til að safna í lífeyri. Hópur aldraðra hefur einnig verið dæmdur úr leik í samfélaginu sökum fátæktar og nú kemur í ljós, samkvæmt blaða- greinum lækna, að sjúklingar búi við ,,stríðsástand“ á sjúkrahúsum. Breytt forgangsröðun Stjórnmál snúast ætíð um for- gangsröðun. Forgangsröðun ríkis- stjórnarinnar sést vel gagnvart öldr- uðum sem þurfa að búa við afar ósanngjarna skattlagningu á lífeyri. Við sjáum forgangsröðunina gagn- vart öryrkjum og bótaþegum og landbúnaðarkerfið fær meira fjár- magn frá ríkinu, beint og óbeint, en allir framhaldsskólar landsins og Háskóli Íslands samanlagt. Kjósendur eiga að meta stjórn- málaflokka eftir þeirri forgangsröð- un sem þeir sýna í reynd. Heilsu- gæsla á að vera fremst í forgangsröðuninni ásamt mennta- málum, langt á undan Þjóðmenning- arhúsum, starfslokasamningum, jarðgöngum, búvörusamningum, japönskum sendiráðum og fleira í þeim dúr sem við höfum þurft að horfa upp á í tíð núverandi ríkis- stjórnar. Veljum velferð fólksins Sóknarfæri Samfylkingarinnar eru gríðarleg með réttri forgangs- röðun. Við eigum að vera stjórn- málaflokkur einstaklinga, einyrkja og smærri fyrirtækja sem byggja á mannauði. Þessir aðilar eiga ekkert skjól í öðrum stjórnmálaflokkum enda heldur tekjuskattur einstak- linga ríkinu uppi mun meira en áður á sama tíma og skattar stórfyrir- tækja lækka. Við eigum að fylkja okkur að baki neytendum og vera í fararbroddi í neytendavernd og ná matvælaverð- inu niður. Við eigum að efla menn- ingu með hugarfarsbreytingu og skattaívilnunum. Menning er mann- bætandi og arðbær og skilar t.d. meira til landsframleiðslunnar en landbúnaðurinn. Við eigum að búa til samfélag, þar sem einstaklingurinn og viðskiptalíf- ið njóta sín á sama tíma og öflugt vel- ferðar- og menntakerfi blómstrar, samfélag frjálslyndrar jafnaðar- stefnu. Samfélag frjálslyndrar jafnaðarstefnu Eftir Ágúst Ólaf Ágústsson Höfundur býður sig fram í 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Menning er mannbæt- andi og arð- bær.“ ÉG vil hvetja alla sem ætla að taka þátt í prófkjöri Samfylking- arinnar í Reykjavík að staldra við og veita athygli ungri efnilegri konu ættaðri úr Borg- arfirði sem heitir Sigrún Grendal og gefur kost á sér í 5. eða 6. sæti listans. Ég þekki hana að- allega af vettvangi félagsstarfa innan Kennarasambands Íslands en hún er formaður Félags tónlistarskóla- kennara. Af kynnum mínum af Sig- rúnu er ég þess fullviss að hún á fullt erindi inná Alþingi. Hún er fylgin sér og heiðarleg, réttsýn og ákveðin. Hún sýndi það og sannaði að hún hefur foringjahæfileika þegar hún fór fyrir tónlistarskólakennurum í löngu og erfiðu verkfalli þeirra í fyrra. Sigrún er verðugur fulltrúi nýrrar kynslóðar innan flokksins, hún er Samfylkingarkona án for- tíðar úr gömlu flokkunum. Þeir ágætu þingmenn sem nú sitja hafa allir staðið sig ágætlega og ættu skil- ið að sitja áfram, en sætin eru ekki nógu mörg fyrir alla og við verðum að huga að endurnýjun í liðinu. Sig- rún leggur áherslu á skólamál og mikilvægi menntunar í samfélaginu, á nýsköpun og skynsamlega nýtingu auðlinda og náttúruvernd. Ég hvet fólk til að fara inn á heimasíðu Sigrúnar www. sigrun- grendal.is og kynna sér hennar áherslumál og að taka þátt í próf- kjörinu á laugardaginn. Ung kona sem þorir Þröstur Brynjarsson skrifar: SAMGÖNGUR og nýjar hug- myndir í borgarskipulagi verða stór- mál næstu framtíðar á höfuðborg- arsvæðinu. Sú mikla umræða um skipu- lagsmál sem spratt upp úr grasrótinni í tengslum við kosn- inguna um framtíð Reykjavík- urflugvallar og Vatnsmýrarinnar er til marks um það. Á alþingi vantar þingmenn sem sýna borgarskipulagi áhuga og skilning. Einar Karl Haraldsson er maður sem gerir samgönguátak á höfuðborgarsvæðinu að sínu bar- áttumáli. Hann vill berjast fyrir samgöngukerfi sem hæfir borg- arbúum, bora göng, brúa sund, leggja hringveg um borgina, auka öryggi í umferðinni og skapa al- menningssamgöngum skilyrði til að þrífast. Hagkvæmara borg- arskipulag bætir mannlífið og jafnar möguleika Reykvíkinga til að njóta þess besta sem höfuðborgin hefur upp á að bjóða. Með því að kjósa Einar Karl í 4. sæti í prófkjöri Sam- fylkingarinnar 9. nóv. leggur þú þitt af mörkum til þess að gera Reykja- vík að vistlegri borg. Einar Karl í 4. sæti Lárus Ýmir Óskarsson kvikmynda- leikstjóri skrifar: flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.