Morgunblaðið - 07.11.2002, Page 39

Morgunblaðið - 07.11.2002, Page 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 39 VIÐ eigum öll eitt sameiginlegt: Við viljum meira. Mörg okkar eiga annað sameiginlegt; við þurfum ekki meira. Með miklu ríkidæmi virðast fylgja fleiri þing- menn. Gegn fátækt- inni fylgja fáir þing- menn. Jóhanna Sigurðardóttir virðist vera ein af fáum þingmönnum lands- ins sem er ekki að raka eld að sinni grýtu og er fullkomlega heiðarleg og hugrökk með afbrigðum. Alein hefur hún staðið uppi í hárinu á hroka- fullum, háðskum stórkörlum og fellt þá úr fílabeinsturnum sínum, knúin áfram af sannfæringu og réttlæt- iskennd sem er sjaldséð meðal koll- ega hennar. Það hefur aldrei leikið vafi á því hvers vegna hún er á þingi. Alþingi Íslands á ekki að vera sam- kunda braskara og hagsmunahópa sem hafa það ágætt enn vilja aðeins meira. Hendum þeim út úr húsi okk- ar. Það er meira en nóg til af verald- legum auði handa öllum en andleg fátækt okkar kemur í veg fyrir jafna skiptingu. Þannig er það. Heiðarlegir þingmenn í útrýmingarhættu Kristján Kristjánsson hljómlistarmaður (KK) skrifar: SÍÐUSTU sveitarstjórnarkosn- ingar sýndu að sameining vinstri- manna var mun lengra komin í Hafnarfirði en ann- ars staðar. Það er ekki síst að þakka að menn höfðu átt sam- leið löngu áður en kom að stofnun Samfylkingarinnar og fundið að það var mun meira sem sameinaði menn en sundraði. Þegar Guðmundur Árni Stef- ánsson varð bæjarstjóri í Hafn- arfirði um miðjan níunda áratuginn hófst mjög farsæl samvinna Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags. Þegar kom að því að sameina þessi öfl var búið að ryðja flestum hindrunum úr vegi. Guðmundur Árni átti stóran þátt í þessu og má segja að strax á níunda áratugnum hafi verið lagður grunn- urinn að stórsigri Samfylking- arinnar í Hafnarfirði í síðustu sveit- arstjórnarkosningum. Nú þegar valið er á framboðslista er mikilvægt að efsta sætið skipi ein- staklingur sem getur leitt listann fram til sigurs. Einstaklingur sem setur velferðarmálin í öndvegi og er vanur að taka til hendinni. Því hvet ég Samfylkingarfólk til að velja Guð- mund Árna í 1. sæti í flokksvalinu 9. nóvember nk. Guðmund Árna í fyrsta sæti Sigurður Á. Friðþjófsson, upplýsinga- og fræðslufulltrúi, skrifar: TÆKIFÆRIÐ til þess að láta ferskan andblæ leika um Alþingi stendur flokks- mönnum Samfylk- ingarinnar til boða í prófkjöri flokksins þann 9. nóvember. Þá fara fram tveir einstaklingar sem hafa sýnt að þeim er annt um þjóðarhag og eru tilbúnir til þess að standa vörð um fólkið í land- inu. Hér er átt við Bryndísi Hlöðvers- dóttur alþingismann og Ágúst Ólaf Ágústsson, formann Ungra jafn- aðarmanna. Bæði hafa þau barist dyggilega – hvort á sínum vettvangi – fyrir rétt- indum námsmanna og að Íslendingar skilgreini samningsmarkmið sín í að- ildarviðræðum við ESB, óski eftir samningum og gefi síðan þjóðinni kost á því að velja eða hafna aðild að ESB. Ein helsta auðlind Íslands er vel menntað fólk. Að tryggja Íslend- ingum aðgang að menntakerfi á heimsmælikvarða er nokkuð sem tryggir Íslandi sess í fylkingarbrjósti þjóðanna um aldur og ævi. Með því að setja Ágúst Ólaf í fjórða sætið og Bryndísi í annað sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fær- umst við skrefi nær þessu takmarki. Bryndísi í annað sætið, Ágúst í fjórða Ómar R. Valdimarsson, ritstjóri vefrits Ungra jafnaðarmanna, Pólitík.is, skrifar: HÉR með skora ég á Samfylking- arfólk í Suðvesturkjördæmi að styðja Þorlák Oddsson ekki neðar en í 4. sæti listans í prófkjörinu 9. nóv- ember. Ég heyrði fyrst af Þorláki sem hörðum baráttumanni fyrir bættum kjörum og aðbúnaði verkafólks hjá ál- verinu. Það var sagt að hann væri óhefl- aður og færi um margt óhefðbundnar leiðir í samskiptum við yfirmenn, þó fann ég gæta þar hlýju í hans garð og þótti mér það í mótsögn við hið fyrra. Seinna kynntist ég Þorláki vel á öðrum vettvangi, kom mér þá á óvart hvað hann var opinn og hlýr í sam- skiptum við alla, háa sem lága, og að hann var með litróf mannlífsins á hreinu. Við þurfum kraftmikinn og hlýjan alþýðumann á Alþingi – Þorlák á þing. Þorlák á þing Gerður Jóelsdóttir skrifar: ÉG hvet alla sem fylgst hafa með störfum Ástu Ragnheiðar Jóhann- esdóttur á Alþingi að kjósa hana í þriðja sæti í próf- kjöri Samfylking- arinnar 9. nóvember. Ég hef fylgst með henni og notið góðs af þrotlausu starfi hennar fyrir rétt- indum sjúklinga og annarra sem komnir eru upp á sam- hjálp samfélagsins. Þetta hefur hún gert með flutningi frumvarpa á Al- þingi, skrifum í blöð, erindaflutningi á vegum samtaka þeirra sem þurfa á velferðarkerfinu að halda, og ekki síst aðstoð við einstaklinga sem eiga erfitt með að fóta sig í frumskógi regluverks opinberrar þjónustu. Á Alþingi og opinberri umræðu er ekki ötulli talsmaður og bar- áttumaður en Ásta Ragnheiður, fyr- ir þessi samtök og þetta fólk, að öðr- um góðum liðsmönnum ólöstuðum. Prófkjörið er opið öllum sem skrá sig í Samfylkinguna og það má gera um leið og kosið er. Ásta R. er ómiss- andi á Alþingi Rósa Jónída Benediktsdóttir, öryrki og stjórnarmaður í Gigtarfélaginu, skrifar: 4.- 6. sæti Birna Lárusdóttir Munið prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi laugardaginn 9. nóvember ENGINN einn stjórnmálamaður á ríkari þátt í því að Samfylkingin er nú orðin það mikla afl sem vonir stóðu til en Margrét Frímanns- dóttir. Atorka Margrétar og iðju- semi í þau hartnær sextán ár sem hún hefur átt sæti á Al- þingi er ljós öllum þeim sem gefið hafa stjórnmálum minnsta gaum. Með ötulli baráttu og ósérhlífni hefur hún markað spor sín í stjórnmálasöguna og er óhætt að fullyrða að íslensk alþýða á ekki öfl- ugri málsvara nú. Málflutningur hennar á þingi ber því glöggt vitni. Og á þeim vettvangi á Margrét fyrsta sætið algerlega óskipt. Mar- grét sækist eftir fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og er það eðlileg og óhjákvæmileg krafa eftir afar farsælt starf. En að fyrsta sæti Margrétar hef- ur verið sótt í aðdraganda komandi flokksvals. Þykir mér það afar miður og er ekki ein á þeirri skoðun. Kjós- endur verða að bera gæfu til að tryggja samfellu og ýtrasta styrk flokks síns og velja þá sem skara fram úr. Skora ég því á kjósendur Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi að tryggja Margréti Frímanns- dóttur fyrsta sætið. Þar á hún heima. Tryggið Margréti fyrsta sætið Elín Brimdís Einarsdóttir sjúkraliði skrifar: Moggabúðin Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.