Morgunblaðið - 07.11.2002, Side 40

Morgunblaðið - 07.11.2002, Side 40
MINNINGAR 40 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Einar Ásmunds-son fæddist í Reykjavík 3. nóvem- ber 1954. Hann lést á heimili sínu í Kópa- vogi 29. október síð- astliðinn. Foreldrar hans eru Ásmundur Einarsson, f. 1929, d. 1965, og Margrét Kjartansdóttir, f. 1931. Stjúpfaðir Ein- ars er Vigfús Sól- berg Vigfússon, f. 1925. Hálfbróðir Einars var Kjartan Jóhannsson, f. 1951, d. 1989. Bræður Einars eru Magn- ús, f. 1955, Ólafur, f. 1957, og Svavar Helgi, f. 1959. Einar kvæntist 9. október 1976 Hjálmfríði B. Jóhannsdóttur frá 1976–1978. Síðan stundaði hann sjómennsku og meðfram banka- störf í Neskaupstað. Árin 1986– 1987 stundaði Einar nám í útgerð- artækni við Tækniskóla Íslands. 1987–1989 vann hann sem sölu- stjóri hjá Marbakka. Árið 1989 stofnaði hann ásamt öðrum OGGA ehf. Starfar fyrirtækið við mark- aðsþjónustu í sjávarútveginum, einkum þjónustu við japanska fisk- kaupendur. Árið 1998 seldi Einar hlut sinn og starfaði sjálfstætt við markaðsþjónustu og ýmis verkefni eftir það. Aðaláhugamál Einars var hestamennska og þar starfaði hann töluvert að félagsmálum, var m.a. formaður Hestamannafélags- ins Blæs í Neskaupstað í þrjú ár og síðustu árin í stjórn Íþróttadeildar Hestamannafélagsins Fáks. Einar lék handknattleik með KR og var þar virkur félagi til margra ára. Þá var hann og félagi í Knatt- spyrnufélaginu Lunch United. Útför Einars verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Neskaupstað, f. 27.2. 1952. Hún er dóttir Jó- hanns Jónssonar, f. 1918, d. 1996, og Soffíu Helgadóttur, f. 1925, d. 2001, bæði frá Neskaupstað. Börn Einars og Hjálmfríðar eru: a) Ásmundur kennari, f. 1976, kvæntur Helgu Berg- lindi Guðmundsdóttur íþróttakennara, f. 1975. Börn þeirra eru Rósa Björk og Einar. b) Kristín Helga, nemi í hjúkrunafræði, f. 1982, unnusti hennar er Sigurður Hrannar Hjaltason, f. 1982. Einar tók stúdentspróf frá Verslunarskóla Íslands 1976. Hann var starfsmaður Sindrastáls Ef sorgin á að vera jöfn gleðinni, sem þú gafst þeim er voru nærri þér, þá verður hún að vera sár. (Sr. Bragi Skúlason.) Elsku bróðir og mágur, erfitt er að kveðja þig í blóma lífsins, við sem áttum eftir að gera svo margt saman. Góðar minningar um frábærar stundir með þér og Hjöllu, oftar en ekki í sveitinni þar sem þér leið svo vel með hestana næst þér og fjöl- skylduna þér við hlið. Þetta mun lifa í minningunni og hjálpa okkur að tak- ast á við sorgina. Aðdáunarvert hefur verið að fylgj- ast með þér berjast allt síðasta ár. Þú varst alltaf svo bjartsýnn og barst þig svo vel að auðvelt var að gleyma að þú værir veikur. Þú ætlaðir að hafa sigur og verða frískur á ný. Elsku Einar, nú vitum við að þér líð- ur vel, allar þrautir að baki og kveðj- um þig með þakklæti fyrir allt. Minn- ingin um góðan bróðir og mág geymum við í hjarta okkar. Við biðj- um þann sem öllu ræður að halda verndarhendi yfir elsku Hjöllu, Adda, Helgu, Kristínu, Sigga, mömmu og Sóla og styrkja okkur öll í þessari miklu sorg. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson.) Guð geymi þig elsku bróðir og mágur. Magnús, Ólafur, Salgerður, Víví, Svavar, Pálína og fjölskyldur. „Þakka ykkur fyrir að hafa komið, skiliði kveðju til allra,“ þetta voru síðustu orð Einars Ásmundssonar til okkar, sunnudaginn 27. september. Sama æðruleysið og kjarkurinn til síðustu stundar. Við vorum að kveðj- ast, búast á brott og hann líka, en á sitt hvorn veginn. Hann var sem fyrr rólegur og yfirvegaður og það brá fyrir gamalkunnri glettni þegar gamalt bar á góma, hugurinn var þá stundina skýr, en við vissum öll að hverju stefndi. Lokakallið kom tveimur dögum síðar, fyrr en við átt- um von á, fyrir tveimur mánuðum eða svo. Þá talaði hann um nýja lyfið sem hann átti að fá, en fékk aldrei, til þess var hann of langt leiddur. Við skiljum ekki þann kjark og það æðruleysi sem fólki er gefið þrátt fyrir að það viti að ekkert bíður þess nema dauðinn. Það æðruleysi og kjarkur sem Einar og ekki síður Hjalla og börnin sýndu meðan á öllu þessu stóð er einstaklega aðdáunar- vert. Það er hverjum manni mikilsvert að kynnast manni eins og Einari og allir verða betri fyrir bragðið. Heil- steyptur og hreinskiptinn í vináttu sinni, trúr og vinafastur og lagði aldrei nokkrum manni illt til. Við munum sakna hans sárlega. Í dag þegar hann er til moldar borinn munum við sitja í sænsku kirkjunni hér á Kanarí og hugsa til ykkar sem heima eruð. Við erum þakklát fyrir áralöng kynni okkar af Einari Ásmundssyni, sem einkennd- ust af fölskvalausri vináttu. Við kveðjum kæran mág og svila en um- framt allt traustan og góðan dreng. Elsku, elsku Hjalla okkar. Þú hefur misst svo mikið á svo stuttum tíma og þú hefur sýnt ótrúlegt æðruleysi síðustu mánuði. Við biðjum algóðan Guð að vera með þér, Adda og fjöl- skyldu og Kristínu Helgu, svo og móður og bræðrum Einars. Við biðjum Guð að blessa minn- ingu Einars Ásmundssonar og þökk- um honum samfylgdina af heilum hug. Jón Einar og Elma. Sá drekkur hvern gleðinnar dropa í grunn, sem dansar á fákspori yfir grund. Í mannsbarminn streymir sem aðfalls-unn af afli hestsins og göfugu lund. Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur. – Og knapinn á hestbaki er kóngur um stund, kórónulaus á hann ríki og álfur. Líkleg finna allir hestamenn sann- leik í Fákum, Einars Benediktsonar en fáa á kvæðið eins vel við og Einar heitinn frænda minn. Alla tíð sem ég man eftir honum var hann viðriðinn hesta. Stundaði ræktun, tamdi og keppti. Ég naut þeirrar gæfu að end- urnýja kynni mín af Einar fyrir nokkrum árum er ég tók upp á því að stunda hestamennsku kominn á miðjan aldur. Mín hestamennska var ekki í sama gæðaflokki og hjá Einari meira af áhuga en getu, og þá naut ég góðs af því að geta sótt ráð til frænda míns. Einar var ósérhlífinn og ætíð fús að liðsinna öðrum. Það var alltaf gott að umgangast hann því lundin var létt, þó ekki væri hann skaplaus. Einar og kona hans Hjálm- fríður voru einstaklega samrýnd. Greinilegt var að þau báru virðingu hvort fyrir öðru. Nutu þau þess að fara í útreiðartúra bæði langa og stutta, og var bæði skemmtilegt og fróðlegt að vera með þeim í för. Þau hjónin voru ónísk á að leyfa öðrum að prófa hestana sína, gæðingar allir með tölu, enda var Einar alltaf vel ríðandi. Fyrir rúmu ári greindist Einar með banvænan sjúkdóm. Þeg- ar hann sagði mér frá því var eins og þetta væri ekkert merkilegt. Það var lýsandi fyrir skapgerð hans að vera ekki að íþyngja öðrum með sínum eigin raunum. Við sem umgengust hann gátum ekki séð að hann væri mjög þjakaður, fyrr en undir það síð- asta. Samt hélt hann áfram að gefa af sér af sinni einstöku ósérhlífni. Einar auðgaði líf þeirra sem kynntust hon- um og við munum minnast hans með virðingu og hlýhug. Hjálmfríði konu hans, Ásmundi og Kristínu Helgu votta ég mínar inni- legust samúðarkveðjur. Árni Ingason. Við fráfall Einars, vinar og frænda, reikar hugurinn til baka yfir farinn veg. Til æskuáranna á Hverfisgötunni, vestur á Mela og til sumranna uppi við Hafravatn. Þangað var flutt í sumarbyrjun þar sem fjölskyldur okkar áttu sumarbústaði hlið við hlið. Þaðan sóttu feður okkar og bræðurnir Ásmundur og Þórður vinnu niður í Sindra. Það var ósjald- an sem við sátum fyrir þeim seinni- part dags uppi við Úlfarsfell til að fá far í bíl heim í bústað. Við Einar urðum þeirrar gæfu að- njótandi að alast upp í faðmi fjöl- skyldna þar sem fjölskyldubönd voru sterk, með miðpunktinn hjá Jakob- ínu ömmu og Einari afa, þar sem stórfjölskyldan kom reglulega sam- an. Þegar við fórum að stálpast fórum við gjarnan í ýmsar ferðir með Ein- ari afa um sveitir og óbyggðir lands- ins, hvort sem var á hestum eða ak- andi, og var þá komið við á bæjum og spjallað við heimafólk. Ekkert síðri voru heimsóknir til vina og kunn- ingja afa í bænum, sam hann tók okkur með í, þegar Einar afi og kunningjarnir komust á flug í sögu- flutningi sínum, ekki hvað síst við það að nýir hlustendur voru með í för. Sögurnar voru góðar og lær- dómsríkar hvort sem þær voru sann- ar eða kanski dálítið færðar í stílinn. Þetta voru samskipti við fólk sem við höfum sjálfsagt búið að allar götur síðan. Fyrir rúmu ári sagði Einar mér að hann hefði greinst með krabbamein, hann gerði ekki mikið úr þessu, frek- ar en hans var háttur, þetta var bara hlutur sem hann ætlaði að kljást við og sigrast á. Einar barðist við sjúk- dóm sinn með mikilli reisn fram á síðasta dag. Hann stundaði hestamennskuna sem aldrei fyrr, en í henni naut hann lífsins alltaf best. Það er með miklum söknuði sem ég kveð góðan vin í dag og geymi góðar minningar um samverustundir með mér til æviloka. Ásgeir Þórðarson. Við Einar vorum systkinabörn en ekki mjög náin í gegn um tíðina þar til fyrir rúmum tveimur árum að ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að leiðir okkar Einars og Hjöllu lágu saman þegar þau fengu aðstöðu fyrir nokkra hesta í hesthúsi bróður míns. Við systkinin fengum síðan hagabeit fyrir okkar hesta í Haga, landi þeirra hjóna. Einar og bræður hans urðu miklir áhrifavaldar í mínu lífi þegar þeir gáfu mér fyrsta hestinn minn í fermingargjöf og lögðu þannig grunninn að minni hestamennsku. Einar var mikill hestamaður, átti marga góða hesta og var á þeirri skoðun að það væri sóun á tíma og fjármunum að vera illa ríðandi enda fór það svo að hann lánaði mér til af- nota í 2 vetur gamlan gæðing sem fæddist honum og hefur þjónað fjöl- skyldunni í tæp 20 ár. Hann var á því að hesturinn gæti kennt mér það sem upp á mína hestamennsku vant- aði. Einar var óspar á góð ráð mér til handa þegar að hestamennsku kom og var virkilega gaman að stússast með honum í kring um hestana. Ég drakk í mig hvern fróðleiksmola sem frá honum kom og mun búa að þess- um tíma um ókomin ár. Einar var einstaklega hjálpsamur maður, var ætíð boðinn og búinn að hjálpa til við EINAR ÁSMUNDSSON Elskuleg móðir okkar, RÓSA ÞÓRUNN GUÐMUNDSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Víðinesi, lést að morgni þriðjudagsins 5. nóvember. Gestur Gunnarsson, Erla Gunnarsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Auður Gunnarsdóttir. Eiginmaður minn og faðir okkar, GUÐJÓN HELGASON, frá Hlíðarenda, Fljótshlíð, lést á hjúkrunarheimilinu Lundi, Hellu, mánu- daginn 4. nóvember. Þóra Ágústsdóttir og börn hins látna. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG EIRÍKSDÓTTIR, Skjóli, áður til heimilis í Gnoðarvogi 52, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 5. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Ingibergur Jón Georgsson, Sigríður Kr. Gunnarsdóttir, Eiríkur Oddur Georgsson, Ragnhildur Björk Sveinsdóttir, Georg Kristjánsson, Dóróthea Huld Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ANNES SVAVAR ÞORLÁKSSON frá Veiðileysu Álfabergi 4, Hafnarfirði, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut þriðjudaginn 5. nóvember sl. Útförin auglýst síðar. Gréta Böðvarsdóttir, Anna Þórný Annesdóttir, Þorgeir Pétur Svavarsson, Svavar Þór Annesson, Hulda Sigríður Salómonsdóttir, Gerður Guðmundsdóttir og barnabörn. JÓN ÓLAFSSON frá Hamri í Hamarsfirði, fyrrv. lögreglumaður á Eskifirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað aðfaranótt þriðjudagsins 5. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Valdís Ármann. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN SIGURÐSSON fyrrverandi kaupmaður í Straumnesi, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ miðviku- daginn 6. nóvember. Kristín Sigtryggsdóttir, Sigtryggur Jónsson, Lína Margrét Þórðardóttir, Sigurður Jónsson, Jófríður Halldórsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Róbert Melax, Ágústa Jónsdóttir, Helgi Baldvinsson, Steingrímur Jónsson, Ásta Davíðsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.