Morgunblaðið - 07.11.2002, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 45
...með Uppskeruhátíðina sem verður
haldin á Grand Hóteli Reykjavík
dagana 11. og 12. nóvember nk. og...
...með þá ákvörðun að setja sér metnaðarfulla
vottaða umhverfisstefnu.
Við óskum
ferðaþjónustubændum
til hamingju...
Af því tilefni bjóðum við ferðaþjónustubændum og gestum þeirra að koma
og skoða það sem við höfum upp á að bjóða í umhverfisvænum vörum
á Grand Hóteli Reykjavík frá kl. 15.30 til 17.30 mánudaginn 11. nóvember nk.
Góða skemmtun!
Landbúnaðarháskólinn
Hvanneyri
EFTIR þrjú jafntefli í röð og svo
tap gegn Ítölum náði íslenska karla-
liðið að sigra Mexíkó í 10. umferð Ól-
ympíuskákmótsins. Hannes Hlífar
Stefánsson og Þröstur Þórhallsson
sigruðu í sínum skákum, Helgi Ólafs-
son gerði stutt jafntefli, en Jón Garð-
ar Viðarsson missti sína skák í tap eft-
ir að hafa átt góða jafnteflismögu-
leika.
Hannes Hlífar hefur fengið 6½
vinning í 8 skákum á fyrsta borði og
samsvarar árangur hans 2.771 skák-
stigum. Hann hefur allt mótið verið í
hópi þeirra skákmanna sem bestum
árangri hafa náð og eftir 10 umferðir
hafa aðeins 9 skákmenn náð betri ár-
angri. Næsti maður fyrir ofan hann,
með örlítið betri árangur, er sjálfur
heimsmeistarinn Ruslan Ponomariov,
þannig að Hannes er í góðum fé-
lagsskap.
Einstök úrslit urðu sem hér segir
hjá karlasveitinni:
1. Hannes Hlífar Stefánsson – D.
Aldama (2.443) 1–0
2. Helgi Ólafsson – J. Gonzalez
(2.416) ½–½
3. Þröstur Þórhallsson – R. Esp-
inosa (2.414) 1–0
4. Jón G. Viðarsson – F. Garmend-
ez (2.408) 0–1
Kvennaliðið tapaði fyrir Brasilíu
með ½ vinningi gegn 2½. Það var
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sem
gerði jafntefli, en Harpa Ingólfsdóttir
hvíldi:
1. S. Chang (2.147) – Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir ½–½
2. T. Duarte (2.130) – Aldís Rún
Lárusdóttir 1–0
3. I. Santana – Anna B. Þorgríms-
dóttir 1–0
Karlaliðið er nú í 44.–50. sæti í opn-
um flokki með 21½ vinning, sem er
nokkuð í samræmi við styrleika þess
miðað við önnur lið. Kvennaliðið er í
65.–67. sæti, en það er í 75. sæti í
styrkleikaröðinni, þannig að enn er
liðið aðeins fyrir ofan það viðmið.
Rússar halda forystunni í opna
flokknum og eru með 28½ vinning.
Ungverjar koma næstir með 27½
vinning, en Englendingar og Þjóð-
verjar deila 3.–4. sæti með 26 vinn-
inga. Í kvennaflokki hefur Georgía 24
vinninga og er með 2½ vinning í for-
skot á Kína sem er í 2. sæti með 21½
vinning. Bandaríkin og Rúmenía eru í
3.–4. sæti með 20½ vinning.
Keppt við Katalóníu
Taflfélag Garðabæjar og Skáksam-
band Katalóníu hafa að undanförnu
unnið að skipulagningu á keppni milli
úrvalsliðs Katalóníu, sem hefur sterk-
ur liði á að skipa, og liðs frá Íslandi.
Keppnin fer fram í Girona, sem er
klukkutíma lestarferð frá Barcelona.
Keppt verður á átta borðum, þar af
verða tveir unglingar og tvær konur.
Teflt verður 12.–13. nóvember. Aðal-
lið Íslands verður þannig skipað:
1. IM Jón V. Gunnarsson (2.369)
2. FM Sigurður D. Sigfússon
(2.367)
3. FM Bragi Þorfinnsson (2.357)
4. FM Arnar Gunnarsson (2.343)
Tveir keppendur verða undir 20
ára aldri:
1. Davíð Kjartansson (2.224)
2. Halldór B. Halldórsson (2.168)
Fulltrúar kvenþjóðarinnar verða:
1. Guðlaug Þorsteinsdóttir (1.900)
2. Áslaug Kristinsdóttir (1.600)
Sigur gegn Mexíkó
á Ólympíumótinu
SKÁK
Bled, Slóvenía
35. ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ
25. okt.–10. nóv. 2002
Daði Örn Jónsson
Bridsfélag Selfoss og nágrennis
Fimmtudaginn 31. október sl.
hófst keppni í Hraðsveitakeppni BS
2002. Alls taka 7 sveitir þátt í mótinu
og var pörunum raðað niður í sveit-
irnar með það fyrir augum að þær
yrðu sem jafnastar að styrkleika.
Mótið er þrjú kvöld.
Efstir fyrsta kvöldið er staða
sveitanna þessi:
Anton, Pétur, Garðar og Helgi 607
Þröstur, Þórður, Birgir og Össur 568
Kristján, Björn, Guðrún og Páll 564
Ólafur, Guðjón, Sturla og Birgir B. 548
Gunnar, Bjarni, Gísli Þ. og Grímur M. 523
Höskuldur, Jón Smári, Guðmundur S.
og Hörður 500
Brynjólfur, Guðmundur T., Gísli H.
og Magnús 470
Meðalskor er 540.
Ásamt því að keppa til verðlauna í
sveitum verða þau pör sem standa
sig best verðlaunuð.
Staða efstu para er þessi:
Anton Hartmannss. – Pétur Hartmannss. 51
Kristján M. Gunnarss. – Björn Snorras. 45
Garðar Garðarsson – Helgi Hermannss. 22
Þröstur Árnason – Þórður Sigurðsson 21
Sturla Þórðarson – Birgir Bjarnason 7
Ólafur Steinason – Guðjón Einarsson 7
Annað kvöldið í Hraðsveitakeppn-
inni verður spilað fimmtudaginn 7.
nóvember. Spilað verður að venju í
Tryggvaskála og hefst spilamennska
kl. 19.30.
Bridskvöld byrjenda
Fyrsta bridskvöld byrjenda verð-
ur fimmtudaginn 7. nóvember kl. 20.
Nú er tækifæri fyrir alla sem eru
að taka sín fyrstu skref í brids-
íþróttinni. Alla fimmtudaga í nóvem-
ber verður létt spilamennska í Síðu-
múla 37, 3. hæð, spilamennska hefst
kl. 20. Leiðbeinandi verður Sigur-
björn Haraldsson. Hann tekur vel á
móti öllum og aðstoðar þá sem vilja
við að finna spilafélaga.
Íslandsmót kvenna
í tvímenningi
Mótið fer fram helgina 9.–10. nóv-
ember í húsnæði BSÍ í Síðumúla 37.
Spilaður verður barómeter allir
við alla og keppnisstjóri er Sigur-
björn Haraldsson. Spilamennska
hefst kl. 11 báða dagana. Skráning er
hafin í s. 587 9360 eða www.bridge.is.
Íslandsmót (h)eldri
og yngri spilara
Íslandsmót yngri spilara í tví-
menningi verður haldið 16.–17. nóv-
ember. Í flokki yngri spilara eru
þátttakendur fæddir 1. jan. 1978 eða
síðar.
Þátttaka er ókeypis.
Íslandsmót (h)eldri spilara í tví-
menningi fer einnig fram sömu helgi.
Lágmarksaldur er 50 ár og sam-
anlagður aldur parsins minnst 110
ár.
Bæði mótin eru haldin í Síðumúla
37 og byrja kl. 11 báða dagana.
Keppnisstjóri er Björgvin Már.
Skráning er hafin í s. 587 9360 eða
www.bridge.is.
Bridsfélagið Muninn Sandgerði
Fimmtudaginn 31. okt. var spilað
annað kvöld í firmakeppni Bridge-
félagsins Munins í Sandgerði, en
spilað var með hraðsveitarfyrir-
komulagi, þ.e. allar við allar á hverju
kvöldi.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1. sæti: sveit Stuðlabergs með 496 stig
2. sæti: sveit Sjóvár-Almennra með 486 stig
3. sæti: sveit Íslandsbanka með 447 stig
Heildarstaðan er því:
1. sæti: sveit Sjóvár-Almennra með 963 stig
Í sveitinni spila:
Guðjóns Svavar Jensen - Karl Her-
mannsson/Arnór Ragnarsson, Gísli Torfa-
son - Jóhannes Sigurðsson. Í öðru sæti er
sveit Stuðlabergs með 938 stig.
Í sveitinni spiluðu:
Randver Ragnarsson - Gunnar Guðbjörns-
son, Kjartan Ólason - Óli Kjartansson. Í
þriðja sæti er sveit Olís með 873 stig.
Í sveitinni spila:
Ævar Jónasson - Jón Gíslason, Trausti Þórð-
arsson - Ingimar Sumarliðason/Þórir Hrafn-
kelsson
Fimmtudaginn 7. nóv. kl. 19:30,
verður þriðja spilakvöld af fjórum í
firmakeppninni.
Spilað er á Mánagrund (við hest-
húsin, milli Garðs, Sandgerðis og
Keflavíkur), í félagsheimili brids-
félaga á Suðurnesjum og hesta-
manna.
Það er alltaf heitt kaffi á könnunni
og eru allir hvattir til að mæta, brids-
spilarar sem aðrir áhugamenn og
áhorfendur.
Bridsfélag Kópavogs
Hafinn er fimm kvölda barómeter-
tvímenningur með þátttöku 24 para.
Formaður félagsins tók að sér að
leiða hópinn, svona fyrsta kvöldið
a.m.k.!
Staða efstu para:
Garðar V. Jónsson – Loftur Þ. Pétursson 79
Eggert Bergss. – Unnar A. Guðmundss. 63
Eðvarð Hallgrímsson – Þorsteinn Berg 49
Erla Sigurjónsdóttir – Sigfús Þórðarson 46
Friðjón Margeirss. – Valdimar Sveinss. 40
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Mánudaginn 4. nóv. sl. var spilað-
ur eins kvölds tvímenningur, Howell.
Meðalskor 210. Röð efstu para var
eftirfarandi:
Guðjón Sigurjónss. – Gylfi Baldurss. 253
Anna Guðl. Nielsen – Guðlaugur Niels. 243
Steinberg Ríkharðsson – Villi jr. 241
Jón Stefánsson – Magnús Sverrisson 234
Jón Guðmar Jónss. – Friðjón Margeirss. 224
Mánudaginn 11. nóv. hefst Hrað-
sveitakeppni sem spiluð verður 4
mánudagskvöld.
Skráning á spilastað, Síðumúla 37,
ef mætt er stundvíslega fyrir kl.
19.30 mánudaginn 11. nóv. nk. Þátt-
taka er öllum heimil.