Morgunblaðið - 07.11.2002, Síða 47

Morgunblaðið - 07.11.2002, Síða 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 47 Efla prófkjör stjórnmálaflokka? Félag stjórnmálafræðinga boðar til fundar um prófkjör stjórn- málaflokka og hvaða áhrif þau hafi á flokksstarf þeirra. Fundurinn verð- ur haldinn í dag, fimmtudaginn 7. nóvember á efri hæð Sólon Íslandus, klukkan 20:30. Frummælandi er Svanborg Sig- marsdóttir, stundakennari við Há- skóla Íslands. í pallborðsumræðum taka þátt Björn Ingi Hrafnsson, upplýsingafulltrúi Framsóknar- flokksins, Magnús Árni Magnússon, aðstoðarrektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, alþingismaður og Ög- mundur Jónasson, alþingismaður. Í DAG STJÓRNMÁL Rannsóknardagur Háskólans í Reykjavík. Á árlegum rannsókn- ardegi Háskólans í Reykjavík föstu- daginn 8. nóvember kl. 12–17 verða haldnir 14 opnir fyrirlestrar um rannsóknir á fræðasviðum lögfræði, tölvunarfræði/upplýsingatækni og viðskipta. Kennir þar fjölmargra grasa, s.s. pælingar um upplýs- ingaskyldu og trúnaðarskyldu, út- tekt á íslenskum heimasíðum og rannsókn á innri hagvexti og end- urnýjanlegum náttúruauðlindum, segir í fréttatilkynningu. Rann- sóknir verða sífellt veigameiri þáttur í starfi Háskólans í Reykjavík. Má sem dæmi nefna nýstofnaða Evr- ópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík undir forystu Einars Páls Tamimi og Þekkingarsetrið, rann- sóknarstofu í netkerfum og netþjón- ustu sem m.a. vinnur að rann- sóknum á margvarpshnútum sem gætu valdið tímamótum í boðmiðlun á internetinu. Á rannsóknardaginn gefst fólki gott tækifæri til þess að kynnast mörgum af þeim rann- sóknum sem unnið er að og ræða við rannsakendurna. Hver fyrirlestur er um 45 mín. og milli fyrirlestra gefst tóm til að spjalla við fundargesti yfir kaffibolla og kökusneið. Fyrirlestrarnir verða haldnir á 3. hæð skólans frá kl. 12–17 og eru allir velkomnir. Verðmætasköpun í afþreying- ariðnaði Jakob Frímann Magn- ússon tónlistarmaður og varaþing- maður heldur fyrirlestur í Lögbergi á morgun, föstudag, kl. 12.15. Jakob Frímann mun m.a. fjalla um ný sóknarfæri til verðmætasköpunar í íslenskum vitundariðnaði, eflingu út- rásar íslenskra fyrirtækja og virkj- un ímyndunaraflsins. Rætt verður um þær opinberu leiðir sem til greina koma, í formi skattabreyt- inga, frumkvöðlasjóða, markaðssókna og fleiri opinberra aðgerða. Að loknum fyrirlestrinum fara fram umræður. Með Jakobi Frímanni á fyrirlestr- inum verður Bubbi Morthens tón- listarmaður. Hann mun taka nokkur lög í lokin. Málþing hjúkrunarfræðideildar Föstudaginn 8. nóvember verður op- ið málþing í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Það fer fram í Eir- bergi við Eiríksgötu og stendur kl. 8:30–12:00. Þennan sama dag, kl. 13–17, verður opið hús og kynning á starfsemi og verkefnum Lífefna- og sameindalíffræðistofu læknadeildar í húsnæði stofnunarinnar Lækna- garði, Vatnsmýrarvegi 16. Allir eru velkomnir. Á MORGUN Vistvæn byggingarstarfsemi Ráðstefna um vistvæna bygging- arstarfsemi verður haldin á Grand Hótel 14. nóvember nk. Á ráðstefnunni verður tekið á mál- um sem hafa verið lítið til umræðu hér á landi hingað til, verður m.a. fjallað um meðferð bygging- arúrgangs og endurnýtingu. Ljóst er að Íslendingar eru á eftir öðrum þjóðum Evrópu hvað þessi mál varð- ar, segir í fréttatilkynnngu. Meðal fyrirlesara verða Edda Lilja Sveinsdóttir, mann- virkjafræðingur hjá Rann- sóknastofnun byggingaiðnaðarins, Björn Marteinsson, arkitekt og verkfræðingur, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, og Ronald Rovers, stjórnarmaður iiSBE (Int- ernational Initative for a sustainable built environment), hann mun fjalla um ýmsar hliðar á sjálfbærri þróun byggingarmála á breiðum grund- velli. Að ráðstefnunni standa umhverf- isráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Staðardagskrá 21, Framkvæmdasýsla ríkisins, Samtök iðnaðarins, AÍ, VFÍ, TFÍ, Rann- sóknarstofnun byggingariðnaðarins og aðrir aðilar að verkefninu „Bygg- ingarúrgangur á Íslandi“. Landvinningar hjá Lýðskólanum Lýðskólinn hefur undanfarin tvö ár haft möguleika á að starfa í sam- vinnu við danska lýðskóla. Á næsta ári hefur Lýðskólinn tryggt sér fleiri samstarfsaðila sem gefa íslenskum nemendum á ýmsum aldri fjöl- breytta möguleika á námi í Dan- mörku. Skólarnir eru 7 talsins, einn á Sjálandi, tveir á Fjóni og fjórir á Jótlandi. Nýtilkomið er samstarf við unglingalýðskóla sem tekur nem- endur á sautjánda ári. Á þeim fjórum misserum sem Lýð- skólinn hefur starfað ytra hafa 76 nemendur nýtt sér þennan valkost. Skólagjöld nema um 40.000 krónum á mánuði þar sem öll kennsla, fæði og húsnæði er innifalið. Á hverri önn er farið í námsferð sunnar í álfuna og kostar hún um 25.000 krónur. Næstkomandi sunnudag klukkan 15.00 verður fundur í Norræna hús- inu til að kynna þessa nýju landvinn- inga Lýðskólans. Allir eru velkomn- ir. Einnig er hægt að fá allar upplýsingar hjá Oddi Albertssyni um möguleika til lýðskólanáms á Ís- landi. Heilsuhringurinn Haustfundur Heilsuhringsins verð- ur haldinn í Norræna húsinu laug- ardaginn 9. nóvember kl. 14. Fyr- irlesarar verða Brynjólfur Snorrason sjúkranuddari, en fyr- irlestur hans nefnist „Er rafmengun hugarburður eða staðreynd?“, Valdemar G. Valdemarsson raf- eindavirkjameistari fjallar um raf- segulsvið. Ráðstefna um hönnun og ræktun „Hönnun og ræktun“ er yfirskrift ráðstefnu til heiðurs Jóni H. Björns- syni landslagsarkitekt og Óla Val Hanssyni, fyrrverandi garð- yrkjuráðunaut, sem verður haldin föstudaginn 15. nóvember í sal KFUM og K í Laugardal, á Holta- vegi 28, Reykjavík. Þeir hafa báðir starfað við íslenska garðyrkju í hálfa öld og verksvið þeirra hefur spannað alla þætti garðyrkjunnar. Tveir erlendir fyrirlesarar verða með erindi, Jukka Reikikainen, for- stöðumaður grasagarðsins Mustila í Finnlandi, og Rainer Stange, lands- lagsarkitekt frá Ósló. Aðilar að ráðstefnunni eru Garðyrkjuskól- inn, Félags íslenskra landslags- arkitekta, Garðyrkjufélag Íslands, Skógrækt- arfélagi Íslands og Rannsóknarstöð Skógræktarinnar á Mógilsá. Ráð- stefnan hefst kl. 10:45 og lýkur kl. 17:00 en þá hefst hátíðardagskrá í garðskála Grasagarðsins í Reykja- vík. Skráning og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Garðyrkjuskólans eða á heimasíðu hans; www. reyk- ir.is Félagsfundur nýrnasjúkra verður haldinn laugardaginn 9. nóv. í kaffiteríunni í Hátúni 10 B (jarðhæð) kl: 15. Fundurinn er ætlaður fyrir alla fjöl- skylduna m.a. spilað bingó. Vakin er athygli á því að jólakortin verða til sölu hjá Þjónususetri líkn- arfélaga og einnig á fundinum. Á NÆSTUNNI Jón H. Björnsson (t.v.) og Óli Valur Hans- son, sem báðir fagna 80 ára afmæli á árinu og verða heiðraðir á ráðstefnunni 15. nóvember. NEMENDUR Fjölbrautaskóla Suðurlands halda árlega söng- keppni sína í kvöld, fimmtudags- kvöld, kl. 20.30. Keppnin fer fram í fokheldum Menningarsal Suður- lands á Hótel Selfossi. 30 kepp- endur taka þátt í keppninni og um 50 manns koma að undirbún- ingnum. mDómarar verða Berg- þór Pálsson, Kristjana Stef- ánsdóttir, Arnaldur F. Haraldsson, Jasmín Ólsen og Rak- el Magnúsdóttir. Söngkeppnin er fastur og líflegur liður í félagslífi nemenda og þeir leggja mikinn metnað í að vel takist til. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Nemendur voru að vinna að smíði leikmyndar fyrir söngkeppnina þegar menntamálaráðherra kom ásamt fylgdarmönnum í heimsókn til að skoða Menningarsalinn. Söngkeppni Fjöl- brautaskóla Suður- lands haldin í kvöld LÖGREGLAN í Reykjavík lýs- ir eftir vitnum að ákeyrslu á hvíta Opel Astra fólksbifreið (NS-948) við Týsgötu 7 nýlega. Bifreiðinni var lagt þar í stæði um kl. 20.30 1. nóv. en aðfara- nótt þess 3. uppgötvaðist að ek- ið hafði verið á hana. Miklar skemmdir eru á vinstra fram- horni hennar. Tjónvaldur er ókunnur og því er hann eða aðrir sem geta gefið frekari upplýsingar beðn- ir að snúa sér til umferðardeild- ar lögreglunnar í Reykjavík. Lýst eftir vitnum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.