Morgunblaðið - 07.11.2002, Síða 48
48 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG fór einu sinni til Afríku. Mig
hafði langað þangað síðan ég var
pínulítil. Ætli það hafi ekki haft eitt-
hvað að gera með það að Afríka var
svo spennandi, hættuleg og fram-
andi. Ég hafði heyrt um ljónin í Afr-
íku, mannæturnar, hitann og svelt-
andi börnin. Ég vissi að ég ætti eftir
að fara þangað einhvern tímann, ég
bara varð. Ég var því ekki lengi að
grípa tækifærið þegar það gafst
sumarið 1997, þegar ég var nítján
vetra gömul. Loksins, loksins, hugs-
aði ég. Ég skyldi þó ekki vera ein á
ferð í myrkviðum Afríku. Ég fór með
tólf manna hópi og leiðsögumanni á
slóðir kristniboða í Kenýa, sem er í
Austur-Afríku. Við kynntumst lífi og
starfi kristniboðanna og fengum að
taka þátt í því mikla boðunarstarfi
sem þar fer fram. Lengstan hluta
ferðarinnar bjó hópurinn okkar í
Pókot-héraði. Þetta var engin venju-
leg túristaferð. Við vorum í mikilli
nálægð við Pókotbúana og fengum
að sjá og kynnast menningu þeirra
frá fyrstu hendi. Okkur var jafnvel
margsinnis boðið í kaffiboð og mat-
arboð í litlu moldarkofana þeirra.
Þetta var frábær ferð og frábært
fólk sem ég fékk að kynnast. Það
sem þó snerti mig mest af því sem
gerðist í ferðinni var hversu vinaleg-
ir og gestrisnir Pókotbúarnir eru.
Ég man jafnvel eftir því að hópnum
mínum var boðið til veislu niðri á
sléttunni. Við vissum vel að uppsker-
an hafði ekki verið mikil hjá fólkinu
og að það lifði naumt hvað mat varð-
ar. Þess vegna var við því búist að
veigar veislunnar yrðu hið dæmi-
gerða kenýanska te sem kallað er
chai og er bruggað úr geitamjólk.
Hópurinn hafði fengið vel sinn
skammt af þessum dýrindis drykk
það sem af var ferðar og því bjugg-
ust allir meðlimir hans við því að
þurfa að innbyrða einn bolla í viðbót í
þessari fyrrgreindu veislu. Þegar
hópurinn svo mætir til veislunnar er
eitthvað allt annað á boðstólum. Dýr-
indis kartöflur og nýslátruð geit.
Hverjum einasta bita af þessum dýr-
indis veigum fylgdi samviskubit yfir
því að vera að borða geitina sem
hefði dugað nokkrum svöngum
Pókotfjölskyldum til matar í nokkra
daga. Pókotbúarnir vildu ekki heyra
kvart eða kvein heldur horfðu á okk-
ur borða og nutu þess að hafa getað
veitt okkur svo vel af því litla sem
þau höfðu.
Nú er ein mín nánasta vinkona
starfandi kristniboði í Pókot. Hún
hefur sent út neyðarkall til hjálpar
þessu fólki því mikill uppskerubrest-
ur hefur orðið í Pókot. Ástæðan er
skortur á rigningu og eru akrarnir
þurrir og sviðnir. Jafnvel uppi í fjöll-
unum þar sem gróðursælast er hefur
rigingin svikið og enga uppskeru
þangað að sækja. Jarðvegurinn er
svo þurr að jafnvel sáðkornin eru
fokin burt. Einnig er lítið sem ekkert
gras fyrir búpeninginn að bíta og
segir vinkona mín að ekki sé óal-
gengt að hún geti talið rifbeinin í
geitum og kúm, svo magur sé búpen-
ingurinn. Uppskerubresturinn er nú
þegar farinn að hafa áhrif á líf fólks,
það er veikburða af næringarskorti
og tíðni sjúkdóma hefur aukist.
Kristniboðar í Pókot hafa fengið
leyfi hjá æðstu ráðamönnum í Pókot
til þess að skipuleggja neyðaraðstoð
og hefja útdeilingu á mat. Ekki er þó
hægt að hefja þessa aðstoð fyrr en
fengist hafa peningar til að kaupa
mat, t.d. maís, nýrnabaunir og olíu.
Ástandið er ekki gott og það kem-
ur bara til með að versna ef ekki
kemur nein hjálp utan frá. Sú hjálp
gæti þó borist of seint fyrir margar
fjölskyldur.
Þetta er neyðarkall eftir hjálp.
Hungursneyð er í aðsigi og það vant-
ar peninga til að kaupa mat handa
sveltandi Pókotbúum. 215.000 Pók-
otbúar munu svelta ef engin hjálp
berst. Einn sekkur af maís kostar
tæplega 1.500 krónur og hann dugir
handa einni sex manna fjölskyldu í
tæpa tvo mánuði. Það kostar um 400
krónur að brauðfæða einn Pókotbúa
í heilan mánuð. Hvers virði eru þess-
ir peningar þér? Hér á Íslandi fæst
ekki mikið fyrir 1.500 krónur en fyrir
Pókotbúana er þetta spurning um líf
eða dauða og 1.500 krónur nægja til
að brauðfæða heila fjölskyldu í tvo
mánuði.
Ég er að reyna að höfða til sam-
visku þinnar og mannelsku. Gefðu til
hjálpar hungruðum. Hver einasta
króna skiptir máli. Hjálpaðu okkur
að gefa mat til Pókotbúa, vingjarn-
legasta og gestrisnasta fólks sem ég
hef hitt. Gefðu smáræði til þeirra
sem gæfu þér allt sem þau eiga ef þú
bæðir þau um það.
Opnaður hefur verið reikningur á
nafni Sambands íslenskra kristni-
boða þar sem þú getur gefið af
gnægtum þínum. Reikningsnúmerið
er: 0117-26-9000.
JÓHANNA SESSELJA
ERLUDÓTTIR,
Kambaseli 40,
109 Reykjavík.
Hjálpið hungruðum
Frá Jóhönnu Sesselju Erludóttur:
KÆRA Marta.
Bestu þakkir fyrir bréfið og áhug-
ann á mánudagsútgáfu Morgun-
blaðsins.
Við hjá Mogganum erum sífellt að
vinna að bættri þjónustu við alla
okkar áskrifendur og lesendur, m.a.
með fréttaþjónustu á Netinu alla
daga vikunnar svo og um stórhátíðir
og nú síðast fjölgun útgáfudaga
blaðsins á þessu ári.
Þannig erum við að nálgast mark-
miðið um útgáfu á mánudögum þótt
efnahagsþrengingar síðustu tveggja
ára hafi heldur tafið fyrir okkur í
þeirri viðleitni.
Við bindum nú vonir við að bjart-
ara sé framundan í starfsumhverfi
fjölmiðla og þá verður þess væntan-
lega ekki langt að bíða að þú getir
einnig átt þinn stað og þína stund
með Mogganum á mánudagsmorgn-
um eins og hina dagana í vikunni.
Með kveðju.
MARGRÉT KR.
SIGURÐARDÓTTIR,
markaðsstjóri.
Mánudagsútgáfa
Frá Margréti Kr. Sigurðardóttur: