Morgunblaðið - 07.11.2002, Síða 54

Morgunblaðið - 07.11.2002, Síða 54
54 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ EINHVERN tíma lýsti Jón Gnarr því yfir í Tvíhöfða að hann hefði hug á að setjast að í Gnarrenburg í fram- tíðinni, litlum hafnarbæ í Norður- Þýskalandi. Af því hefur enn ekki orðið en í millitíðinni geta áhorf- endur Stöðvar 2 barið kappann aug- um á föstudagskvöldum kl. 21.00 þar sem hann mun stjórna eigin þætti, sem einmitt er titlaður Gnarr- enburg. „Þetta verður spjallþáttur á skemmtilegum og alvarlegum nót- um,“ upplýsir Jón Morgunblaðið um. „Hann verður í sjónvarpssal með áhorfendum og gestum. Inni á milli verða svo fréttir af því sem ég tel markverðast í viku hverri.“ Jón, sem hvað kunnastur er fyrir gamanmál hvers konar, segir að honum lítist dável á hið alvarlega. „Oft er hið alvarlega ekki eins al- varlegt og margir vilja meina. Hið alvarlega og hið gamansama eru einfaldlega tvær hliðar á sama krónupeningi í mínum huga. Alvar- legt fólk er líka ekkert endilega að hugsa um alvarlegri hluti en þeir sem glaðlegri eru.“ Jón samsinnir því að hlutverk hans í kvikmyndinni Maður eins og ég hafi opnað nýjar víddir. „Ekki gagnvart mér sjálfum þó en efalaust gagnvart einhverjum öðr- um. Fyrir mér er þetta bara hluti af því sem ég geri. Lífið er of marg- slungið til að hægt sé að taka því á einfaldan hátt, sérhæfing á ekki við það. Það þarf að taka á því á breyti- legan hátt, þeir sem hafa reynt að taka því alltaf brosandi hafa séð að það gengur bara ekkert upp.“ Hann segir það vissulega hafa verið erfitt að hætta í útvarpsþætt- inum Tvíhöfða sem hann og Sig- urjón Kjartansson stýrðu í samein- ingu en Jón hvarf af þeirri braut um síðustu áramót. „Auðvitað var ég að gefa ákveðið félagslegt og fjárhagslegt öryggi upp á bátinn. En ég er bara þannig gerður að ég hef ekki áhuga á að gera það sama trekk í trekk. Ég var einu sinni í leikriti og mér var farið að leiðast í annarri sýningu!“ Að þessu gefnu er Jón ekki með neitt niðurneglt er Gnarrenburg hættir, en er þó engu að síður með ýmis járn í eldinum. „Mig langar til að fara að skrifa meira. Einnig langar mig til að gera bíómyndir. Þá er ég með ýmis lista- verk í bígerð. Það er nóg fyrir stafni.“ Nýr þáttur með Jóni Gnarr hefst á morgun á Stöð 2 Það ber margt undarlegt á góma í Gnarrenburg. Lífið í Gnarrenburgí i í ÁSTRALSKI hljómlistarmaðurinn Nick Cave heldur tónleika hér á landi mánudaginn 9. desember á Broadway. Frá því var formlega gengið í gær. Að sögn Snorra Thors, aðstandanda tónleikanna, sá hann Nick Cave og sveit hans The Bad Seeds spila í New York þar sem hann hefur verið búsettur und- anfarin tvö ár. Í kjölfarið setti hann sig í samband við umboðsmann sveitarinnar og ræddi m.a. við Cave sjálfan. Miðasala hefst um miðja næstu viku en nánari upplýsingar um hvar hún fer fram og hvert miðaverð verður liggja ekki fyrir enn. Cave kemur án hljómsveitar sinnar Fræjanna vondu en mun leika á píanó, studdur trommu-, fiðlu- og bassaleikara. Í febrúar á næsta ári kemur tólfta hljóðversskífa Caves út, Nocturama, en af þekktum plötum hans má nefna Tender Prey, The Good Son og The Boatman’s Call. Nick Cave leikur á Broadway Nick Cave Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá. FYRSTI OG SKELFILEG- ASTI KAFLINN Í SÖGU HANNIBAL LECTER anthony HOPKINS edward NORTON ralph FIENNES Sýnd kl. 8. B. i. 16. Síðustu sýningar Gott popp styrkir gott málefni 1/2 Kvikmyndir.com USA Today SV Mbl DV RadíóX Það verður skorað af krafti. Besta breska gamanmyndin síðan „Brid- get Jones’s Diary.“ Gam- anmynd sem sólar þig upp úr skónum. Sat tvær vikur í fyrsta sæti í Bretlandi.  SK RadíóX Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B. i. 16.  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 5.50 og 10.20. Síðustu sýningar Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS  HL Mbl Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá 5, 7.30 og 10. Sýnd kl. 5.30, 8, 9 og 10.30.B. i. 16. Gott popp styrkir gott málefni Sýnd kl. 3.50. með ísl. tali. 1/2Kvikmyndir.comUSA Today SV Mbl DV RadíóX 1/2Kvikmyndir.is „DREPFYNDIN“ ÞÞ. FBL Sýnd kl. 3.50 og 6. Búðu þig undir nýja til- raun í hrylling. Það geta allir séð þig og það heyra allir í þér. En það getur enginn hjálpað þér! Mögnuð hryllingsmynd. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Stórskemmtileg grínmynd frá framleiðendum The Truman Show með Óskarsverð- launahafanum Al Pacino í sínu besta formi.  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. HINN þjóðþekkti tónlistarmaður Valgeir Guðjónsson er á leið norður í land en hann ætlar að spila á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Hann ætlar að spila lög af nýrri plötu sinni, Skellum og smellum. „Platan og gömlu lögin verða í brennidepli,“ segir Valgeir, sem ætlar að sjálfsögðu einnig að slá á létta strengi. „Ég hef ekki verið mikið á ferðinni og er því mjög kát- ur með að vera kominn á þetta ról,“ segir hann og bætir við að hann hafi alltaf gaman af því að koma í aðra fjórðunga. Valgeir lætur sér ekki nægja að heimsækja Akureyringa því hann spilar á Ólafsfirði á föstudagskvöld- ið og Siglufirði á laugardagskvöldið. Allir tónleikarnir hefjast klukkan níu. Valgeir verður einn á ferð í Norð- urförinni en hann og Jón Ólafsson hafa verið með skemmtun í Kaffi- leikhúsinu á svipuðum nótum. Þeir eru ekki hættir því og verður áfram hægt að sjá þá félaga á Kaffileikhús- inu og líkast til víðar. Um helgina skilur hann Jón eftir heima. „Ég ætla að rifja upp líf mitt án Jóns og veita Norðlendingum hlut- deild í þeirri einstöku tilfinningu.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Valgeir naut m.a. stuðnings Sigrún- ar Hjálmtýsdóttur, eða Diddúar eins og hún er jafnan kölluð, á út- gáfutónleikum sínum í Salnum á sunnudaginn. Norðlensk- ir smellir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.