Morgunblaðið - 29.06.2003, Side 6
Söguríkt umhverfi - magnað nágrenni - perlur í náttúru Íslands
- Fjölbreytt afþreying
- fjölbreytt þjónusta
- í fallegum bæ!
Velkomin í Stykkishólm!
Ef fara á um Suðurland á
næstunni er ágætt að skoða
fyrst slóðirnar
www.suðurland.net/info
NÝLEGA festu Hótelveitingar
ehf. á Akureyri kaup á rekstri hót-
els við Brautarholt í Reykjavík.
Ýmsar breytingar voru gerðar á
hótelinu sem fékk nafnið Hótel
Björk. Hildur Ómarsdóttir er hót-
elstjóri.
„Við gerðum heilmiklar breyt-
ingar þegar við tókum við rekstri
hótelsins um síðustu áramót. Mót-
takan var tekin í gegn, herbergin
lagfærð, sturtuklefar settir á öll
baðherbergi, öryggismál yfirfarin
og tölvutengingar settar upp á
herbergjunum svo dæmi séu tek-
in,“ segir Hildur. Á Hótel Björk
eru 55 herbergi og Hildur segir að
kostur hótelsins sé ekki síst sá að
herbergin séu óvenju rúmgóð og
björt. Þau eru með baðherbergi,
hárþurrku, síma, gervihnattasjón-
varpi og útvarpi. Þá eru þau nú
með módem og háhraða tölvuteng-
ingum. Einnig hafa gestir aðgang
að tölvu í móttöku hótelsins.
Hildur segir að morgunmatur sé
ávallt innifalinn í verði herbergis
en hann snæða gestir á veitinga-
húsinu Pottinum og Pönnunni en
innangengt er á veitingastaðinn
frá hótelinu. Að sögn Hildar nýta
einnig margir gestir sér að borða
þar í hádeginu af hlaðborði eða af
matseðli staðarins á kvöldin.
Önnur hótel í eigu Hótelveitinga
ehf. eru Hótel Kea, Hótel Harpa
og Hótel Norðurland á Akureyri
og nýlega tóku þeir einnig við
rekstri hótels Gígs á Mývatni.
Hótelgestir geta pantað gistingu
á Netinu en bókunarkerfið fyrir
hótelin fimm er samtengt. Hildur
segir að margir bóki beint með
þessum hætti og af og til eru á
boðstólum tilboð á gistingu á Net-
inu.
Þegar Hildur er spurð hvers
vegna forsvarsmenn þriggja hótela
á Akureyri færi nú út kvíarnar og
opni hótel bæði á Mývatni og í
Reykjavík segir hún að um hríð
hafi staðið yfir leit að hentugu
húsnæði fyrir hótel á höfuðborg-
arsvæðinu og þetta húsnæði hafi
þótt kjörið.
„Jafnframt gista flestir erlendir
gestir sem eru á hótelunum fyrir
norðan einnig í Reykjavík í upp-
hafi og lok ferðar um landið og því
er Hótel Björk kærkomin viðbót
fyrir þessa farþega.“
Hún segir að í fyrra hafi Hót-
elveitingar ehf. verið valið fyrir-
tæki ársins fyrir norðan og því
hljóti fyrirtækið að hafa ýmislegt
að bjóða sem ferðalangar kunni að
meta hvar sem þeir eru staddir.
Tölvuteng-
ingar á
öllum her-
bergjum
Morgunblaðið/Jim Smart
Hildur Ómarsdóttir hótelstjóri Hótel Bjarkar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Á hótelinu eru 55 herbergi, öll með sér baðherbergi.
Hótel Björk
Brautarholt 22-24
Reykjavík
Sími: 5113777
Fax: 511 3776
Tölvupóstfang:
bjork@keahotels.is
Vefslóð: www.keahotels.is
Eigendur Hótels KEA kaupa rekstur Hótels Bjarkar í Reykjavík
ÞEIR sem leið eiga um Mýrdalinn á
næstunni geta brugðið sér í fjór-
hjólaferð en í byrjun júnímánaðar
hóf fyrirtækið Arcanum að bjóða
slíkar ferðir frá Ytri Sólheimum í
Mýrdal.
Fólki stendur til boða að fara í
klukkustundar langar ferðir eða
lengri rúnta ef því er að skipta, en til
að aka fjórhjóli þarf viðkomandi að
hafa bílpróf.
„Við erum t.d. að fara í klukku-
stundar ferðir sem fólk getur komið
og farið í fyrirvaralaust,“ segir
Benedikt Bragason, framkvæmda-
stjóri Arcanum.
„Þá leggjum við af stað frá Ytri
Sólheimum og förum eftir Sólheima-
sandi niður að sjó. Við ökum í fjör-
unni og á leiðinni þurfum við að fara
yfir nokkra læki. Stuttur stans er
gerður hjá gömlu flugvélaflaki úr
Douglas DC 3 sem nauðlenti á Sól-
heimafjöru uppúr 1970. Við förum
síðan upp með Jökulsá og komum til
að baka að bænum meðfram Sól-
heimaheiðinni.
Við bjóðum einnig lengri ferðir
fyrir þá sem það kjósa og þá alveg
upp að Mýrdalsjökli. Þá er farin
gömul smalaleið upp frá Eystri Sól-
heimum upp á heiði og að jöklinum.“
Benedikt segir að fyrirtækið hafi í
mörg ár verið með vélsleðaferðir og
margir kjósi að fara á fjórhjóli að
jökli og þar í sleðaferð. Vinnuhópar
hafa komið til að efla liðsandann og
þá er hópeflisþrautum og leikjum
fléttað í dagskrána og jafnvel grillað
í lokin.
Hægt er að fara í klukkustundar langar ferðir en einnig í lengri túra.
Bjóða fjórhjólaferðir í Vík
Arcanum
Ytri Sólheimar 1
871 Vík í Mýrdal
Sími: 4871500
Fax: 4871496
Tölvupóstfang: snow@snow.is
Vefslóð: www.snow.is
Leiga á fjórhjóli í klukkustund
kostar 6.000 krónur.
SEINNI part sumars í fyrra var ráð-
ist í það að lagfæra veginn út að
Skoruvík á Langanesi. Fram að því
var ákaflega seinfarið um nesið og
mikið af hvössu grjóti stóð í vegi. Nú
hefur verið bætt úr þessu að sögn Sig-
fúsar Ólafssonar, ferðamálafulltrúa
Þistilfjarðar og Langaness. Mikið af
efni var borið í veginn og ræsi sett við
læki.
„ Í dag er því átakalaust að aka út í
Skoruvík á öllum venjulegum og
óbreyttum jeppum en það tekur um
klukkutíma að aka frá Þórshöfn út í
Skoruvík. Það stendur síðan til að
fara í það í sumar að laga veginn yfir í
Skálar á Langanesi. Það eru um fimm
kílómetrar á milli Skoruvíkur og
Skála og því hægt að ganga ef menn
treysta bílum sínum ekki eftir veg-
inum eins og ástand hans er í dag.
Hægt er að fara eftir jeppatroðningi
út á Font. Það er um tíu kílómetrar út
á Font en vegurinn þangað er mjög
seinfarinn.“
Sigfús segir að hægt sé að komast
að Skoruvíkurbjörgum og virða
fuglalífið fyrir sér. „Helsta aðdráttar-
aflið er súlubyggðin á Stórakarli sem
er sú stærsta á landinu eftir Eldey.
Kosturinn við björgin á Langanesi er
hversu vogskorin þau eru og því hægt
að fylgjast með fuglunum jafnt á syll-
um sínum í bjarginu og á flugi við það.
Áður fyrr var blómleg byggð víða á
Langanesi enda mikil hlunnindi af
reka, æðarvarpi og bjargfuglatekju á
nesinu. Í dag má víða sjá ummerki
þessarar byggðar. Fléttur og skófir
sem vaxið hafa í friði utan á grjótið
setja svip á umhverfið á Langanesi.“
Búið að laga veg-
inn að Skoruvík