Morgunblaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 6
6 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 19|9|2003 MORGUNBLAÐIÐ
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERAUM HELGINA ?
LÍNA RÓS HJALTESTED,
6 ÁRA NEMANDI Í HLÍÐASKÓLA
„Ætli ég noti helgina ekki til að hvíla mig eftir busaballið í
MR og alla þá meðferð sem því fylgir. Væntanlega hitti ég
líka vini mína og geri eitthvað skemmtilegt með þeim. Svo er
aldrei að vita nema maður læri fyrir skólann.“
ANNA KATRÍN SIGFÚSDÓTTIR,
15 ÁRA NEMANDI Í MR
„Laugardagarnir eru nú fastir hjá mér. Þá kemur Guðrún
dóttir mín úr Njarðvík og við gerum eitthvað saman. Á
sunnudögum hvíli ég mig oft eða prjóna. Stundum fer ég
líka eitthvert með einhverju af börnunum á sunnudög-
um. Ég á fullt af fólki sem vill vera með mér. Ég þarf því
alls ekki að kvarta.“
Morgunblaðið/Þorkell
GUÐFINNA HINRIKSDÓTTIR,
83 ÁRA HEIMILISMAÐUR Á GRUND
MIND SEX - DEAD PREZ
Sjaldan hafa karlrapp-
arar talað til kvenna af jafn mikilli skynsemi
og fegurð eins og í þessu lagi. Enda varla
von á öðru frá martial-arts æfandi bylting-
arsinnunum sem snerta hvorki kjöt né
áfengi og kenna sig við dauða forseta.
„YOU ARE EVERYTHING“ -
MARVIN GAYE OG DIANA ROSS
Þetta er bara mjög vel heppnuð sálar-
tónlist. Sígilt. Stórt lag, þú segir varla stærri
hluti en þetta við einhvern ... „Þú ert allt.“
BUSH KILLA - PARIS
Sígildur neðanjarðarsmellur sem var upp-
runalega saminn um George Bush I en öðl-
ast nú nýtt líf með afturgöngu Bush fjöl-
skyldunnar, G.W. Bush II. Það er von á nýrri
plötu, Sonic Jihad, frá þessum svarta par-
dus bandarísks rapps 23. september næst-
komandi. Snilldarsingull af þeirri plötu
„What would you do?“ er hægt að nálgast á
www.guerillafunk.com
I SHOT REAGAN - NON PHIXION
Þetta lag er nokkurra ára gamalt en ekki
að það breyti neinu í þeirra fari, þeir hafa
bara ekkert slakað á hörkunni. Snilld-
artextar Non Phixion og ekki slakar laga-
smíðar brjálæðingsins Necro á þessari smá-
skífu komu sveitinni vandlega fyrir á
neðanjarðarkortinu. Þessir bandarísku gyð-
ingar eru lítið spenntir fyrir hægriöfgum eins
og nafn lagsins gefur til kynna.
DON DADA (HIPHOP REMIX) - SUPER CAT
Þetta lag hef ég spilað stanslaust síðan
ég loksins hafði upp á því eftir 10 ára leit.
Dancehall-stjarnan Sean Paul nefnir Super
Cat sem sinn helsta áhrifavald þótt Super
Cat sé reyndar af töluvert öðru sauðahúsi,
mun hrárri og róttækari í tónlist og boð-
skap.
FELINA - HECTOR Y TITO
Rómanska Ameríka veit hvað þetta er.
Þetta er aðallag nýliðins sumars þar syðra.
Raggadon er rappað á spænsku og við hlið-
ina á Raggamuffin frá Karíbahafinu getur
það virkað hjáróma. Enda ekki flutt af 3
metra háum blökkumönnum frá Kingston.
Raggadon er Raggamuffin framkvæmt í stíl
Mið-Ameríkumanna.
BOSSMAN - BEENIE MAN (ÁSAMT
LADY SAW OG SEAN PAUL)
Þetta lag er svoleiðis djöfulsins djöfla-
snilld. Hérna er um Raggamuffin frá Kar-
íbahafinu að ræða. Lagið er af nýjustu plötu
Beenie Man, sem inniheldur mjög vel
heppnað og tiltölulega fjölbreytt Dancehall.
Breska „garage“-teymið So Solid Crew á
meira að segja eina lagasmíð hér.
PLANET EARTH - SIZZLA
Einn allsherjar lofsöngur til hins almátt-
uga Haile Selaisse, ljónsins af Júdeu og
fánabera Rastafari hér á jörð. Þú þarft alls
ekkert að vera skakkur til að ná því að
Sizzla er ákaflega framarlega í sínum kreðs-
um.
HORIZON VERTICAL - AKHENATON
Hinir frönskumælandi en n-afríkuættuðu
arabar í IAM eru eitt það rosalegasta sem
kemur úr hiphoppi seinustu fimmtán ára og
afsprengi teymisins eru ekkert síðri. Sóló-
plötur Freeman, Shurik’n og núna Akhen-
aton ná áður óþekktri dýpt í allri sinni með-
ferð á tónlist.
SONG FOR ASSATA - COMMON
Hljómar í fyrstu eins og enn eitt ást-
arlagið fyrir enn eina skinkuna en svo er
bara alls ekki. Khujo úr Goodie Mob og
Common segja sögu baráttukonunnar Ass-
ata Shakur sem varð að flýja pólitískar of-
sóknir FBI, pyndingar og pólitískt grundaðan
fangelsisdóm sökum baráttu sinnar fyrir
réttindum blökkumanna. Þrátt fyrir innihald-
ið er þetta mjög sálarfullt stykki fullt vonar
og sigurgleði.
Morgunblaðið/Ásdís
LAGALISTINN
ERPUR
Hljómsveitin Bob er líklega lítt þekkt meðal þjóðarinnar, en kannski verður breyt-
ing þar á innan skamms, þegar platan Bob for Dummies kemur loksins út. Friðrik
Helgason, trommuleikari, meiddist á hendi í sumar og því varð hljómsveitin að
fresta því að klára plötuna, en stefnt hafði verið að því að hún yrði tilbúin í júlí. Hún
ætti þó að koma út fyrir jólin, gangi allt að óskum.
Friðrik er elstur, 21 árs, en hin eru á aldrinum 17-20 ára. Matthías Arnalds er gít-
arleikari og söngvari, sömuleiðis Finnur Kári Jörgensson. Kolbrún Björt Sigfúsdóttir
leikur á bassa. Hljómsveitin hefur starfað í þessari mynd í eitt ár og hefur spilað þar
sem mögulegt hefur verið.
Friðrik segir að helstu áhrifavaldarnir séu vafalaust Sonic Youth, Velvet Under-
ground og Ladytron. „Samt er erfitt að njörva það niður, eins og gengur. Áhrifin
koma alls staðar að,“ segir hann.
Bob for Dummies er næstum því kláruð og stefnan er sett á að hún komi út fyrir
jól. „Við tókum upp það sem komið er í hljóðveri sem heitir Stúdíó Bjórland og eig-
um núna í viðræðum við ákveðinn mann um að taka upp restina,“ segir Friðrik.
Bob fékk Bjadddna Hell til að gera myndband, en Bjadddni hefur meðal annars
gert myndbönd fyrir Botnleðju, Ensíma og Maus. „Við vonumst til að það fái spilun
á Popptíví og Skjá einum.“
Morgunblaðið/Jim Smart
BOB-LIÐAR ERU STÓRHUGA. BOB FOR DUMMIES ER
Á LEIÐINNI, EN HÆGT ER AÐ KYNNAST SVEITINNI
Á ROKK.IS OG LISTEN.TO/BOBISNOW.
BOB FYRIR
TREGGÁFAÐA
HLJÓMSVEITIN
„Ég ætla að leika mér aðeins.“