Morgunblaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 14
14 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 19|9|2003 MORGUNBLAÐIÐ Sigríður Soffía Sandholt lék Línu Lang- sokk fyrst leikkvenna á Íslandi, þegar Leikfélag Kópavogs setti verkið upp árið 1961. Sýningarrétturinn var þá í Kópavog- inum, en leikfélagið hafði verið stofnað árið 1957. Sigríður segir að áhuginn hafi verið mik- ill hjá leikfélaginu og samstarfsfólkið skemmtilegt. „Þetta er það skemmtileg- asta sem ég hef gert og hef ég þó gert margt skemmtilegt um ævina,“ segir hún hiklaust. Alvöru api lék apann Níels. Að sjálf- sögðu hét apinn, þ.e.a.s. leikapinn, Níels líka. „Samstarfið við hann var alveg frá- bært, þótt hann hafi átt það til að vera frekar leiðinlegur. Gæslufólkið þurfti að setja upp hanska, þegar það tók hann úr búrinu,“ segir hún, „en hann var alltaf góður og ljúfur við mig. Hann hafði vit á því að kúra sig niður þegar við biðum eftir því að fara á sviðið. Svo gerði hann vissa hluti þegar ég sagði ákveðnar setningar. Þetta var skemmtilegur api.“ ’61 Sigrún Edda Björnsdóttir lék Línu í Þjóð- leikhúsinu leikárin 1983–84 og 84–85. „Þetta var náttúrlega stórkostleg upp- lifun,“ segir hún. „Lína er eitt af uppá- haldshlutverkum mínum.“ Uppfærslan í Þjóðleikhúsinu var sú fyrsta með þeirri leikgerð sem núna er sett upp í Borg- arleikhúsinu, en áður hafði Lína verið meira í ætt við leikrit en söngleik. „Þetta var stór hópur af leikurum sem sumir hverjir voru að stíga sín fyrstu skref. Þarna var til dæmis Örn Árnason og svo fékk maður að leika með Bessa Bjarnasyni, Randveri Þorlákssyni og Sigga Sigurjóns. Þetta var rosalega skemmtilegur tími,“ segir hún. Hlutverkið krafðist mikillar orku. „Á þessum tíma var verið að frumsýna kvik- myndina Rocky III með Sylvester Stallone í aðalhlutverki. Ég sá að áður en Rocky fór í hringinn fékk hann sér orkudrykk sem samanstóð af einu hráu eggi, einni mat- skeið af þrúgusykri og grænmetissafa. Ég semsagt fékk mér þennan drykk áður en ég fór á svið; skellti þessu í blandarann,“ segir hún og skellihlær. ’83 5LÍNURNú leikur Ilmur Kristjánsdóttir Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren í Borgarleikhúsinu. Í tilefni af því tókum við tali fjórar leikkonur , sem allar hafa gegnt þessu hlutverki. |ivarpall@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Margrét Vilhjálmsdóttir var Lína í fyrstu uppfærslunni í Borgarleikhúsinu 1995. „Þetta var frábær lífsreynsla; eiginlega of góð til að vera sönn, svo maður noti orða- tiltækið. Þetta er með skemmtilegri hlut- verkum sem maður getur tekist á við. Í Línu er ákveðin orka, sem er gaman að leika sér með á sviði,“ segir Margrét. „Hún er persónugervingur frelsisins.“ Spurð um eftirminnilegt atvik segist hún minnast þess, þegar hún átti að koma fram sem Lína Langsokkur í Perlunni. „Þetta var á pitsu- og kókhátíð og ég átti að hitta ræningjana uppi á sviði. Ég lagði af stað með gullkistuna inn í Perluna og þar voru eitthvað um 10.000 krakkar að bíða eftir Línu. Fyrr en varir er farið að ýta mér að- eins til og ég farin að finna létt spörk í aft- urendann. Að lokum varð þetta algjört kraðak, því Lína er þannig að fólk safnast í kringum hana og vill snerta hana. Þetta var frekar óþægileg tilfinning, en ég komst þó við illan leik upp á svið eftir hálftíma barning.“ ’95 Guðrún Guðlaugsdóttir fór með hlutverk Línu hjá Leikfélagi Kópavogs árið 1969. Það var ógurlega gaman og mikið fjör, þótt eitt skyggði á gleði hennar. „Við fyrstu uppsetn- ingu á Línu hafði apinn Níels verið keyptur og sú stóra stund rann upp, að ég var kölluð inn í eldhús hjá fólkinu sem sá um hann og Níelsi hleypt upp úr kjallaranum. Mér brá heldur betur í brún þegar hann birt- ist. Hann var ófrýnilegur og með skemmdar tennur, þar sem honum hafði einhvern veginn tekist að hella sýru framan í sig. Við vorum skilin ein eftir í eldhúsinu. Hann hoppaði út um allar trissur, æstist þegar hann skynjaði hræðslu mína og velti kaffibollanum mínum. Á æfingum skalf ég og titraði þegar ég var með hann á öxlinni. Á endanum gerði Níels sér lítið fyrir og beit mig í höndina. Þá var farið með mig á slysadeildina og þar fékk ég stífkrampasprautu. Um kvöldið sagði ég leik- stjóranum, Brynju Benediktsdóttur, að mér væri þetta einfaldlega um megn. Þá var fenginn uppstoppaður api og ég vandaði mig sérstaklega við sönginn. Brynja sagði að ég hefði aldrei sungið eins vel með Níels á öxlinni, þannig að við yrðum að sleppa honum í uppsetningunni.“ ’69

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.