Morgunblaðið - 19.09.2003, Page 16
16 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 19|9|2003 MORGUNBLAÐIÐ
Margir halda að réttardagurinn fari aðeins fram í
réttunum sjálfum. Þeir hefðu betur komið heim
til Sesselju Pétursdóttur og Einars Gíslasonar,
en fjölskyldurnar í Kjarnholtum tóku á móti gest-
um á laugardaginn var. Eftir að búið er að draga í
Tungnaréttum, gleðjast og syngja, þá safnast
fólk heim á bæina og þiggur kjötsúpu. Hún er eld-
uð daginn áður, svo allir geti tekið þátt í rétt-
unum. Potturinn minnir helst á þann sem Sjóðrík-
ur notaði í Gaulverjabæ, enda afar gestkvæmt.
„Það kom mjög margt fólk,“ segir Sesselja.
– Hundrað manns?
„Jájá og miklu meira en það.“
– Er kjötsúpa á mörgum bæjum í sveitinni?
„Já, á flestum bæjum.“
– En hvernig getur þá verið svona gestkvæmt,
fyrst allir fara heim til sín?
„Það koma til okkar gestir úr sveitunum í
kring, Hreppunum, Skeifunum, Tungunum, Þor-
lákshöfn og Reykjavík. Þeir koma alls staðar að.“
– Hvað seturðu ofan í pottinn?
„60 kíló af kjöti, fimm til sex kálhöfuð, sex kíló
af gulrótum, 10 kíló af rófum, sex stykki púrru-
lauk, blómkál og brokkkál. Svo set ég auðvitað
salt og vatn.“
– Hvað er talað um yfir kjötsúpunni?
„Það er aðallega sungið,“ segir hún. „Til
marks um það, þá gáfum við núna út í fyrsta
skipti mikla og góða söngbók sem heitir Rétt-
arsúpan í Kjarnholtum.“ |pebl@mbl.is
Sextíu kíló af kjöti í súpunni
Réttir eru í fullum gangi um þess-
ar mundir og gengu Tungnaréttir
vel um síðustu helgi, að sögn Ein-
ars Gíslasonar, bónda í Kjarnholt-
um, en hann segir þær hafa
breyst mikið í áranna rás. „Það er
orðið sárafátt fé og því gefst meiri
og lengri tími til veisluhalda með
söng og gleði,“ segir hann.
– Eru fleiri menn en skepnur?
„Já, mikil skelfing, – alltaf mikið
meira. Þetta hefur gjörbreyst
þannig og svo sem spurning
hversu mörg ár líða áður en þetta
líður undir lok. Sauðfjárbúin eru
alltaf að týna tölunni og fé aðeins
á nokkrum bæjum. En ég hef nú
trú á að við höldum áfram að
syngja og gleðjast saman á þess-
um degi.“
– Hvort lætur hærra í mönnum
eða fé?
„Þá áttu við þegar söngurinn
ríður yfir,“ segir hann og hlær.
„Sem betur fer þá lætur nú hærra
í mönnum.“
– Eru menn eitthvað að staupa
sig í réttunum?
„Það má aðeins marka vín á
stöku manni. En það er alls ekki
til vansa.“
– Er dansiball í restina?
„Við gerum það dálítið hér á bæ
að syngja og dansa fram á kvöld.
Það kemur til okkar heilmargt fólk.
Þeir duglegustu halda áfram og
skella sér á á réttarball í Aratungu
í lokin. Þar spilaði Geirmundur Val-
týsson á réttardansleik.“
– Ertu farinn að hlakka til næsta
árs?
„Ég get ekki neitað því að ég
hlakka alltaf til rétta.“
DREGIÐ Í DILKA
20. Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn.
Húsmúlarétt við Kolviðarhól, Árn.
Nesjavallarétt í Grafningi, Árn.
Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum.
Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dal.
21. Dalsrétt í Mosfellsdal.
Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang.
Fossvallarétt við Lækjarbotna.
Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal.
Grímslækjarétt í Ölfusi.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð. (stóð)
Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. (stóð)
Skerðingsstaðarétt í Hvammssveit, Dal.
Skrapatungurétt í A.-Hún. (stóð)
Þórkötlustaðarétt í Grindavík.
22. Selflatarrétt í Grafningi, Árn.
Selvogsrétt í Selvogi, Árn.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag.
23. Ölfusrétt í Ölfusi, Árn.
25. Áfangagilsrétt á Landmannaafrétti, Rang.
RÉTTIR Í SEPTEMBER
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Ei
na
r F
al
ur
SESSELJA PÉTURSDÓTTIR EYS
RÉTTARKJÖTSÚPUNNI FYRIR GESTI Í
KJARNHOLTUM EFTIR TUNGNARÉTTIR.