Morgunblaðið - 31.10.2003, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31|10|2003 | FÓLKÐ | 11
fo
lk
id
@
m
bl
.is
Frá mánudegi til fimmtudagsSunnudagur
Russell
Crowe
Heimildarmyndin Tónleikar í
Texas sýnd í Sjónvarpinu kl.
23.15 á þriðjudagskvöld.
Um hljómsveit Russells
Crowe, Thirty Odd Foot of
Grunt.
Morgunblaðið/Júlíus
Stigið á bensínið
Körtubílaíþróttin er í miklum blóma í Reykjanesbæ, en þar er
600 metra löng malbiksbraut. Núna, yfir veturinn, er starf-
semin færð undir þak í Garðabænum, að sögn Stefáns Guð-
mundssonar hjá fyrirtækinu Go-Kart.
Stefán, er þetta vinsæl íþrótt?
„Já, þetta hefur verið feikivinsælt síðan við byrjuðum, sumarið 2000. Þá byggðum
við þessa braut, 600 metra langa og átta metra breiða malbikaða braut. Við byrj-
uðum með lítinn skúr sem aðstöðu, en stækkuðum í ár úr 40 fermetrum upp í 540
fermetra.“
Eru margir fastir viðskiptavinir?
„Maður sér mörg andlitin þarna með vissu millibili. Við höfum fengið 60.000
manns til okkar á þessu tímabili, sem segir sitt.“
Koma margir hópar til ykkar?
„Án þess að ég hafi tölulegar upplýsingar tiltækar myndi ég giska á að 90% gesta
væru í hópum.“
Eru þetta góðir bílar?
„Bílarnir eru mjög góðir. Við byrjuðum með fjórtán 200 kúbika bíla, en ári síðar
keyptum við ellefu splunkunýja bíla. Síðan bættum við fjórum 200 kúbika bílum við
og loks fengum við átta 270 kúbika bíla í sumar, glænýja. Þeir eru mjög kraftmiklir.“
Hvert er metið á hringnum?
„Á þessum 270 kúbika bílum er metið 34 sekúndur og 93 hundraðshlutar úr sek-
úndu.“
Skiptir líkamsþyngd máli?
„Þyngdin skipti meira máli á kraftminni bílunum, en þyngri menn hafa verið að ná
góðum árangri á þessum nýju.“
Hvað kostar þetta hjá ykkur?
„Hringurinn kostar 1.500 krónur, við gerum mikið af því að halda mót fyrir hópa
og þá fá menn meira fyrir peningana sína.“
Hvenær er opið hjá ykkur?
„Við erum núna að færa okkur úr Reykjanesbænum
yfir í Garðabæinn, þar sem við erum með innibraut.
Við vorum að færa alla nýju bílana þangað í vikunni.
Þar verður væntanlega opið í allan vetur, frá 16-21 á
virkum dögum og 13-19 á laugardögum og sunnudögum.
Svo opnum við hvenær sem er sólarhringsins
ef við fáum bókanir.“
|ivarpall@mbl.is
ugnablik
afna augnablikum“ er nýr þáttur Art-
Björgvins Bollasonar á Rás 1 um
kipti trúða, dára og einfeldninga að
og nýju. Fyrsti þáttur af þremur flutt-
. 10.15 og aftur á þriðjudagskvöld.
Gengið á
gullslóðir
Gengið frá Lyklafelli að bæn-
um Miðdal, sem Guðmundur
Einarsson kenndi sig við,
með Ferðafélagi Íslands. Í
landi Miðdals munaði litlu að
stofnað yrði alþjóðlegt gull-
námufyrirtæki, en fyrri heims-
styrjöldin batt enda á þær
ráðagerðir. Brottför frá BSÍ
kl. 11 með viðkomu í Mörk-
inni 6.
Heim úr geimnum
„Heim úr geimnum“ sýnd
í bíósal MÍR, Vatnsstíg
10, kl. 15. Úkraínsk
mynd frá níunda áratug
síðustu aldar undir leik-
stjórn Alexanders Súrín.
Tveir flugliðar eru valdir í
hóp væntanlegra geim-
fara og lenda í ýmsum
raunum. Aðgangur
ókeypis.
Lilja
Opnun sýningarinnar
„Lilja í garði listmál-
arans“ í safni Ásgríms
Jónssonar, þar sem
sýndar eru myndskreyt-
ingar í sænskum barna-
bókum.
Forskot
á sæluna
„Jóel Pálsson/Nordström
Kvintet“ taka forskot á
djasshátíð og spila skandin-
avískan djass á Nasa kl. á
þriðjudagskvöld 20.30.
Dúddelí dæ
„Hæ dúddelí dúddelí dæ“
er yfirskrift bókmennta-
dagskrár sem hefst kl.
20 á þriðjudag um þýð-
ingar Magnúsar Ásgeirs-
sonar á sænskri ljóðlist og
áhrif þeirra á íslenska ljóð-
list í umsjón Hjartar Páls-
sonar.
Fläskkvartetten
Sænski Fläskkvartetten
heldur tónleika kl.
20.30 á fimmtudags-
kvöld í Íslensku óp-
erunni. Þarna eru á ferð-
inni einir þekktustu
skemmtikraftar Svíþjóð-
ar; blanda af kabarett,
rokkhljómsveit og uppi-
standi.
List án
landamæra
Tvinnuð saman stutt leik-
atriði undir liðnum „List án
landamæra“. Flytjendur eru
Perlan, Leikfélag Sólheima
og leikhópar frá Ásgarði,
Borgarkoltsskóla og Fjöl-
brautaskóla Garðabæjar. Í Borgarleikhúsinu kl. 20 á þriðju-
dagskvöld.
Attenborough
David Attenborough heldur
fyrirlestur í Endurmennt-
unarstofnun á fimmtudag
kl. 18 í tengslum við út-
komu bókar sinnar Heimur
spendýranna.
Hrafninn flýgur
Íslendingasagnavestrinn
Hrafninn flýgur (’84) eftir
Hrafn Gunnlaugsson sýndur
í Kvikmyndasafni Íslands á
þriðjudag kl. 20.
Bíó og sinfónía
Sinfónían spilar á fimmtu-
dagskvöld undir stjórn
Ricks Benjamins tónlist við
fyrsta vestrann, Lestarránið
mikla, og Hershöfðingjann
eftir Buster Keaton. Teikni-myndasögur
Kristina Kolehmainen frá
Serieteket í Stokkhólmi
flytur fyrirlestur í Borg-
arbókasafninu kl. 17 á
fimmtudag um teikni-
myndasögur. Því næst
verður Passion, sýning á
teiknimyndasögum, opn-
uð á fyrstu hæð bóka-
safnsins.
Djasshátíð
Reykjavíkur
Djasshátíð Reykjavíkur verð-
ur sett formlega kl. 17 á mið-
vikudag í Ráðhúsi Reykjavík-
ur og ýmsir listamenn gefa
forsmekkinn að því sem koma
skal.
Eplaball
Milljónamæringarnir spila á Epla-
balli Kvennaskólans sem haldið
er á miðvikudagskvöld, en vik-
una fram að því verður mikið um
dýrðir í skólanum, m.a.
hæfileikakeppni og útgáfa á epladiski
með djammlögum.
Sænsk kvik-
myndavika
Sænsk kvikmyndavika hefst á
mánudag í Regnboganum
með pallborðsumræðum kl.
18.30 og frumsýningu á
„Grabben i graven bredvid“,
kl. 20. Á meðal annarra
mynda er Tsatsiki, alltaf vinir.
agles
Eagles spiluð af Epic á Gauknum
2 til 24, en á meðal meðlima sveit-
ar eru Pétur Jesú og Einar úr Dúnd-
ttum.
Réttarmorð
Heimildarmyndin Bandarísk framleiðsla
Made in the USA) eftir Sólveigu Anspach um
aftöku Odells Barnes í Texas 1. mars árið
000 sýnd í Sjónvarpinu kl. 21.55. Myndin
r byggð á vitnisburði ættingja, vina og lög-
anna Barnes og er því haldið fram að framið
hafi verið réttarmorð á honum.