Morgunblaðið - 14.11.2003, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.11.2003, Blaðsíða 13
GÓÐIR VINIR Þau segja nauðsynlegt að vera góðir vinir en ekki bara samstarfsmenn til að láta svo nána samvinnu ganga upp. Þau sofa öll í sömu rút- unni á ferðalögum og návígið er mikið. Þau eru þó ekki ein á ferð. „Það verða ellefu manns í ferðinni en með okkur eru bílstjóri, rótari, ljósa- maður, hljóðmaður og tveir starfsmenn í miða- sölu,“ segir Andri þannig að umfangið er nokk- urt. Mikið er lagt upp úr því að hafa flott ljós og hljóðkerfi, útskýrir Hanni, en sviðsmyndin er sú sama á öllum stöðunum sem þau heimsækja þótt tækifæri gefist til að leggja meira í útgáfu- tónleikana í Austurbæ. MEIRA ROKK Nýtt upphaf heitir eftir einu lagi á plötunni en á sama tíma markar hún einhvers konar nýtt upphaf hjá sveitinni. Hún er rokkaðri en Allt sem ég sé þótt rólegri lög séu líka þarna inni á milli. Nýtt upphaf er eðlilegt framhald síðustu plötu og nefna þau að lagið „Allt sem ég sé“ hefði allt eins getað átt heima á þessari nýju plötu. Platan byrjar á kraftmiklu rokklagi, „Ég stel frá þér“, sem er í uppáhaldi hjá hljómsveit- armeðlimum. „Aðalbreytingin er að þetta er meira rokk,“ segir Vignir. „Tónlistin er svipuð og á síðustu plötu, nema örlítið harðari,“ segir hann. „Við tókum bara skrefið lengra,“ segir Birgitta. BIRGITTA LÍKA LAGAHÖFUNDUR Vignir er sem fyrr aðallagasmiður sveitarinnar en nú er sú breyting á að Birgitta er höfundur ell- efta og síðasta lagsins á diskinum sem kallast „Í annan heim“. Birgitta á meirihlutann af text- unum sem fyrr en Vignir er líka textahöfundur auk þess sem Stefán Hilmarsson og Friðrik Karlsson eiga hvor sinn textann. Eitt af því sem er heillandi í fari Birgittu er hispursleysið sem skín í gegn í textunum henn- ar. „Eigum við ekki bara að segja að það sé í bland,“ svarar hún aðspurð hvort hún leiti inn á við í textagerðinni. „Stundum leitar maður mikið inn á við og kemur með eitthvað persónulegt og stundum er ekkert persónulegt í textanum. En ég held að það sé rosalega erfitt að gera texta án þess að finna sjálfan sig eitthvað í honum. Það er alltaf einhver tenging. Ég á það til að skrifa of persónulega og er oft að reyna að bakka,“ segir hún. „Maður gefur mikið af sér. Þá finnst fólki það þekkja mann betur. Það er erfitt að hitta fólk sem þú þekkir ekki en það þekkir þig,“ segir Birgitta sem er ekki að kvarta. „Ég er bara svona manneskja og líður betur svona heldur en að vera lokuð. En auðvitað hugsa ég stundum, úps!, þarna sagði ég of mik- ið,“ segir Birgitta. „Ég hef alltaf verið að semja en hef bara ekki verið eins góður lagasmiður og Viggi og hef ekk- ert pínt strákana til að hlusta á mín lög,“ segir Birgitta, „fyrr en núna“ skýtur einhver stríðn- islega inn í. „Ég geri mér alveg grein fyrir hvað Viggi er góður lagahöfundur og ég vil miklu frek- ar hafa hann. En það var gaman að koma einu lagi, sem er virkilega persónulegt, frá sér,“ segir hún. Vignir er ánægður með framlagið. „Við hefðum aldrei sett eitthvert lag á plötuna nema það væri gott lag. Þetta virkaði vel.“ ÞÁTTUR ÞORVALDAR Platan var tekin upp að stórum hluta í Flórída. „Planið var alltaf að fara þarna út og byggja grunninn að öllum lögunum. Við fengum stílinn á plötunni þarna en þurftum að klára mikinn hluta hennar þegar heim var komið,“ segir Vign- ir. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson stjórnar upp- tökum sem fyrr en lögin eru útsett í samstarfi hans og Vignis, sem segist jafnvel hafa haft meiri áhrif á nýju plötunni en hinni. Þau eru sam- mála um að samstarfið við Þorvald hafi gengið mjög vel. „Það er rosalega gott að vinna með honum og hann nær vel til okkar,“ segir Birgitta. „Hann er þaulreyndur í þessum bransa,“ segir Vignir. „Það er bara heiður að fá að vinna með honum,“ segir Birgitta. Sumir telja „Fáum aldrei nóg“ líkjast Todmobile, en þau segja það vera tilviljun en ekki komið til vegna áhrifa Þorvalds. „Allt þetta sem á að vera líkt Todmobile kemur ekki frá Þorvaldi heldur frá Vigga,“ segir Birgitta. „En það má bæta því við að það er alls engin skömm að líkjast Todmobile,“ segir Siggi. BJÓR Í MYNDBANDI Myndbandið við þetta lag hefur verið mikið spilað en í því má sjá hljómsveitina spila í sundlaug. Það er styrkt af bjórfyrirtæki, sem lýsir sér í því að bjórflöskur sjást inn á milli í myndbandinu þótt hljómsveitarmeðlimir sötri bjórinn ekki sjálfir. Þessu svara þau sem einn maður. „Maður þarf að fá „sponsora“ til að geta gert myndbönd. Þetta er algengt í tónlistar- myndböndum. Þau eru mjög dýr. Því miður getur maður þetta ekki alveg sjálfur og þarf að fá hjálp. Við erum bara fullorðið fólk og drekkum bjór eins og svo margir aðrir. Við erum öll komin með aldur til þess. Ég held að krakkar sjái líka mömmu sína og pabba drekka bjór.“ TALA SAMAN OFT Á DAG „Ég veit ekki hvað gerðist ef bandið myndi hætta,“ segir Birgitta. „Alla daga er maður bara Írafár og hugsar sem Írafár. Þetta er orðið stór hluti af lífi manns,“ segir hún. „Við tölum saman mörgum sinnum á dag,“ segir Siggi en þau viðurkenna að samstarfið hafi þroskað þau mikið og það sem þau hafa gengið í gegnum. Þau gera það samt ljóst að þau ætli að halda sig á jörðinni hvað væntingarnar varðar. „Metnaðurinn er í tónlistinni en ekki í sölunni. Við erum ánægð með það sem við erum að gera og það skiptir mestu máli.“ |ingarun@mbl.is ÍRAFÁR Á ÆFINGU Í AUSTURBÆ ÞAR SEM ÚT- GÁFUTÓNLEIKARNIR VERÐA HALDNIR. ÍRAFÁR MIKIÐ VERÐUR LAGT UPP- ÚR ÞVÍ AÐ HAFA FLOTT LJÓS OG HLJÓÐKERFI Á TÓNLEIKAFERÐALAGINU. 14. nóvember Ný plata með Írafári kemur út MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14|11|2003 | FÓLKÐ | 13 bíóvefur mbl.is Kíktu á mbl.is og fylgstu með hvað er að gerast í bíó • Upplýsingar • Sýningartími • Söguþráður • Myndskeið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.