Morgunblaðið - 14.11.2003, Qupperneq 16
16 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 14|11|2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sony er einna þekktast fyrir það hve
fyrirtækið hefur verið snemma á ferð
með nýja tækni; segir sitt að vest-
an hafs taka menn um walk-
man þegar rætt er um ferða-
geislaspilara, en
Walkman er einmitt vöru-
merki frá Sony, fyrst notað
um TPS-L2 snældutækið
1979. Það tók þó fyrirtækið
fullangan tíma að flestra mati
að senda á markað geislaspil-
ara sem spilað getur MP3-skrár –
ræður kannski einhverju um það að
fyrirtækið er líka umsvifamikill plötuút-
gefandi.
Fyrsti Sony ferðaspilarinn sem spilaði MP3-
skrár svo ég viti var DCJ501 gerðin, en ég
keypti einn slíkan erlendis fyrir rúmu ári, mjög
skemmtilegur spilari og svínvirkaði. Hann var
þó ekki lengi í sölu, veit ekki hvort hann barst
hingað til lands, en arftaki hans eru svonefndir
ATRAC CD Walkman spilarar frá Sony, fjórar
gerðir, en auk þess að styðja MP3 er einnig
hægt að vista á þeim gögn á ATRAC-sniði sem
er uppfinning Sony og reyndar notuð á MiniDisc
spilurum fyrirtækisins. Þessi nýju ferðaspilarar
skilja ATRAC3 og ATRAC3plus auk MP3, en
með ATRAC3 þjöppun er hægt að vista allt að
30 geisladiska á venjulegum 80 mínútna
brennanlegum disk.
Hljómur í spilaranum er góð-
ur, hann spilar ýmsa þjöppun,
þar á meðal breytilega
(variable bit rate) sem
er sú besta hvað
gæðin varðar.
Hristivörnin traust
og spilarinn virkar
líka traustur þó
húsið sé úr
plasti.
Stjórn á spil-
aranum er einföld,
eftir að hann hefur
tekið smá tíma í að lesa
skráayfirlit af diskum flett-
ir maður í gegnum möppur
með þartilgerðum hnöppum, en
framan á spilaranum er einnig stýrihjól
sem hægt er að nota. Það er til að mynda
ágætt að nota það þegar maður er úti að ganga
eða á hlaupabrettinu, en tekur smá tíma að ná
tökum á því. Spilarinn les ID3-tög laga og
möppuheiti og birtir í glugga sem mætti reynd-
ar vera stærri. Einnig er hægt að setja sérstök
„bókamerki“. Rafhlöðuending er býsna góð,
samkvæmt Sony er hún 80 tímar þegar spilaðir
eru ATRAC3 brenndir diskar en 50 tímar með
venjulega diska. Nokkuð nálægt sanni að því
er mér sýnist þó ekki sé það prófað í hörgul.
Kostir: Traustur spilari með góðan hljóm og fyr-
irtaks rafhlöðuendingu.
Gallar: Engin fjarstýring, lítill gluggi með upplýs-
ingum um lög og möppur. Mætti spila hærra.
|arnim@mbl.is
Ég keypti mér D-NE511 spilara í vor til að
prófa hann og hann hefur reynst vel í alla staði.
Hljómur í ATRAC er betri en í MP3-þjappaðri
tónlist en ég nota hann aðallega til að spila
MP3-brennda diska, enda hleypur MP3-safnið
á tugum þúsunda laga og best að halda sig við
eitt gagnasnið. Með spilaranum fylgir hugbún-
aður til að „rippa“ diska í ATRAC3 eða MP3 og
síðan til að brenna á diska. Maður tínir diska í
safnið, hægt er að blanda saman ATRAC3 og
MP3 ef vill, og brennir síðan allt í einu. Ágætur
hugbúnaður og auðveldur í notkun.
GRÆJURNAR
Loksins MP3 Sony
http://www.badabing.is/
„Dóttir mín tilkynnti mér það að hún
hefði byrjað í „kynþokkafræðslu“ í
skólanum í dag. Þegar betur var að
gáð reyndist þetta ekki alls kostar
rétt og fræðslan snýst um hitt kynið,
bindi, tappa, foreldra og tilfinningar.
Ætli það sé samt langt í að kynþokka-
fræðsla verði skyldufag í grunn-
skólum?“ 5. nóvember 9.49
http://www.mikkivefur.is/gunni/
„Ég verð yfirleitt fremur ergilegur þeg-
ar ég heyri minnst á píramíta. Þá á ég
að sjálfsögðu við þessa peningapíra-
míta sem engum gagnast nema þeim
sem fyrstir koma. Þeir sem eru neðstir
fá lítið sem ekkert fyrir sinn snúð, þar
sem þeir hafa líklega verið þeir síð-
ustu til að kaupa sig inn í dæmið.“
12. nóvember 11.38
http://medicatedmoments.
blogspot.com/
„soldið stressuð en samt full af til-
hlökkun að ljúka þessu af. svo auðvit-
að að setja saman texta og læra að
flytjann upphátt... lesa í hljóðnema. í
upplestrum meðal vina get ég tjáð
mig í góðu jafnvægi og hlýða á þá
svara minni tjáningu með sinni. en fyr-
ir framan fjölmenni er nottla allt ann-
að mál. ég fæ sting í hálsstöðina.“
18.23
Kæri
blogger.com…
BÆKUR
PATRICIA CORNWELL – BLOW FLY
Enginn getur skrifað eins
skuggalega krassandi reyf-
ara og Patricia Cornwell,
sem sent hefur frá sér all-
margar bækur um réttar-
lækninn Kay Scarpetta. Í
nýrri bók um Scarpetta, Blow
Fly, hefur Scarpetta fært sig
um set, starfar nú í Flórída,
en áður en varir er hún kom-
in á kaf í harkalegt morðmál og þarf að leggja
land undir fót í leit að lausninni. Með hverri bók
verða bækurnar um Scarpetta ævintýralegri og
þessi þykir ganga enn lengra í þá átt.
DAVID DOUBLET – FISH FACE
Fiskar hafa líka andlit, í það
minnsta heldur bandaríski
ljósmyndarinn David Doubl-
et því fram og færir fyrir því
sterk rök í bókinni Fish Face
sem hefur að geyma hundr-
uð mynda af „andlitum“.
Doublet hefur tekið myndir
af fiskum síðustu 25 ár, en
hann tekur meðal annars
myndir fyrir National Geog-
raphic og hefur unnið til ýmissa verðlauna.
DVD
JOHN LENNON – LEGEND
Nú eru allir að spá í Bítlana í
tilefni af útkomu Let it Be …
Naked, og þá er við hæfi að
minnast Johns Lennons. Á
DVD-disknum Legend er að
finna öll tónlistarmyndbönd
Lennons eftir að hann sagði
skilið við Bítlana, lög eins og
Imagine, Power To The
People, Cold Turkey, What-
ever Gets You Through The
Night, Jealous Guy, Watching The Wheels, Give
Peace A Chance, Working Class Hero og Mother,
en einnig eru aðrar útgáfur myndbanda við Work-
ing Class Hero og Imagine svo dæmi séu tekin.
TÖLVULEIKUR
EA GAMES – HARRY
POTTER QUIDDITCH WORLD CUP
Harry Potter er ekki bara til á prenti, ungmenni
um heim allan bíða spennt eftir næstu Harry
Potter-kvikmynd og mörg ekki síður eftir leikjun-
um sem byggjast á söguþræðinum. Einnig eru
gefnir út leikir sem tengjast
sögunum óbeint, eins og
Harry Potter Quidditch
World Cup sem gefur spil-
endum kost á að keppa í
Quidditch.
PLÖTUR
PEARL JAM – LOST DOGS
Liðsmenn Pearl Jam eru
frægir fyrir vinnusemi sína
og nýkomin skífa, Lost
Dogs, undirstrikar það. Á
disknum safna þeir félagar
saman lögum sem ekki
hafa komist inn á plötur sveitarinnar í gegnum
tíðina, sum sem hafa fengið að hljóma á tón-
leikum þótt þau hafi aldrei komið út, en önnur
sem fáir eða engir hafa heyrt nema hljómsveit-
armeðlimir sjálfir og þeir sem standa þeim
næst. Lögin eru misjafnlega unnin, sem von-
legt er, og sum nánast prufuupptökur eða
skissur að lögum, en alls er á plötunni, sem er
tvöföld, 31 lag.
KYLIE MINOGUE – BODY LANGUAGE
Þegar Kylie Minogue kom
laginu Slow á toppinn í
Bretlandi sló hún við
Madonnu sem vinsæl-
asta tónlistarkona allra
tíma þar í landi. Engan
bilbug er að finna á Kylie,
sem komin er hátt á fer-
tugsaldurinn, en ekki er bara að hún er hætt að
eldast heldur hefur hún þor til að breyta út af í
tónlistinni, að því er gagnrýnendur segja um
skífuna, enda er hún ekki að feta hefðbundna
poppslóð.
PETER MALICK GROUP M.
NORAH JONES – NEW YORK CITY
Fáar söngkonur hafa náð
að höfða til eins stórs
hóps af fólki og banda-
ríska söngkonan Norah
Jones. Hún sló rækilega í
gegn á síðasta ári eins og
menn muna eflaust, og
kemur ekki á óvart að
sumt það sem hún tók upp áður en hún varð
heimsfræg sé nú að koma í leitirnar. Þar á með-
al er þessi diskur sem hún hljóðritaði með blús-
gítarleikaranum Peter Malick fyrir þremur árum.
Jones syngur í öllum lögum nema einu og sýnir
að hún getur sungið blús ekki síður en létt-
poppaðan djass.
ÚTGÁFAN– BÆKUR – GEISLAPLÖTUR – TÖLVULEIKIR
Alexander McCall Smith nýtur
mikillar hylli fyrir bækur sínar
um einkaspæjarann magnaða frá
Botswana, Precious Ramotswe.
Þær bækur hafa selst metsölu
um allan heim enda má segja að
þær séu nokkuð sér á báti í
heimi einkaspæjarasagna fyrir
góðlátlega kímnina sem ein-
kennir þær, nærfærnina sem höf-
undur beitir þegar hann lýsir við-
fangsefnum Mma Ramotswe,
sem hann segir þjóðlega vaxna,
og einnig yfirgripsmikilli þekk-
ingu hans á sögu Botswana og
íbúum landsins.
McCall Smith, sem er prófess-
or við lagadeild Edinborgarhá-
skóla, hefur þó ekki bara skrifað
um ævintýri Mma Ramotswe,
heldur hefur hann einnig skrifað
talsvert af lærdómsritum, þar á
meðal ýmis rit um lög og laga-
flækjur, og stuttar sögur af
þýskum prófessor, Dr. Moritz-
Maria von Igelfeld, og tveimur
samprófessorum hans. Bæk-
urnar um von Igelfeld eru þrjár,
allar gefnar út í einu og nú fáan-
legar hér á landi: The Finer
Points of Sausage Dogs, Portu-
guese Irregular Verbs og At the
Villa of Reduced Circumstances.
Allar eru þær í léttari kantinum
en kímnin ristir dýpra, gráglettin
á köflum.
Ævintýri
Dr. Moritz-
Maria von
Igelfeld