Morgunblaðið - 27.11.2003, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
Bankaútibú í þínu fyrirtæki
Fyrirtækjabanki Landsbankans
Þú stundar öll bankaviðskipti fyrirtækisins á einfaldan og þægilegan
hátt á Netinu – hvenær sem þér hentar.
Í Fyrirtækjabanka Landsbankans býðst þér m.a. að:
• Framkvæma allar almennar bankaaðgerðir (millifæra, sækja yfirlit, greiða reikninga o.s.frv.).
• Safna greiðslum saman í greiðslubunka sem hægt er að greiða strax eða geyma til úrvinnslu síðar.
• Framkvæma greiðslur með því að senda inn greiðsluskrár úr t.d. bókhaldsforritum.
• Stofna og fella niður innheimtukröfur.
• Greiða erlenda reikninga (SWIFT).
Nánari upplýsingar um Fyrirtækjabankann getur þú fengið í næsta útibúi Landsbankans,
í Þjónustuveri bankans í síma 560 6000 eða á vefsetri bankans, www.landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
20
51
08
/2
00
3
EFNAHAGUR heimsins er að
taka við sér. Væntingar um betri
horfur eru nú þegar komnar fram
fyrir Asíu, Norður-Ameríku og
Evrópu sem og flest önnur svæði
heimsins. Þetta er meðal þess
sem fram kemur í nýrri könnun
sem Alþjóðaverslunarráðið, ICC,
birti í gær.
Yfir þúsund sérfræðingar frá
91 landi tóku þátt í könnun ICC.
Meðal þátttakenda voru hagfræð-
ingar hjá alþjóðafyrirtækjum,
hagfræðingar hjá menntastofn-
unum og stjórnendur verslunar-
ráða.
Sérstakur efnahagsstuðull,
sem ICC mælir ársfjórðungslega
og segir til um stöðuna í efnahags-
lífinu, hækkaði úr 91,3 stigum á
þriðja fjórðungi þessa árs í 100,2
stig fyrir fjórða ársfjórðung.
Stuðullinn var 83,2 á öðrum árs-
fjórðungi en 85,9 á fyrsta árs-
fjórðungi. Grunnur þessa stuðuls
var 100 stig á árinu 1995.
Þá hækkaði væntingarvísitala
sem mæld er í könnunum ICC úr
114 stigum á þriðja fjórðungi árs-
ins í 122,8 stig á fjórða ársfjórð-
ungi. Í tilkynningu frá ICC segir
að þetta sé í fyrsta skipti á þessu
ári sem mat á ástandi efnahags-
mála og væntingar til næstu sex
mánaða sé hvoru tveggja jákvætt
á sama tíma.
Fram kemur í tilkynningu ICC
að efnahagur Asíu hafi sam-
kvæmt könnuninni batnað mest
milli þriðja og fjórða fjórðungs
þessa árs af heimsálfunum, eða úr
96,3 stigum í 110,3 stig. Næstmest
breyting hafi orðið í Norður-Am-
eríku, úr 97,1 stigi í 106, og þar á
eftir komi efnahagur Evrópu, sem
hafi hækkað úr 80,2 stigum í 89,6.
Evra of sterk
Sérfræðingarnir sem þátt tóku í
könnun ICC telja, þegar á heild-
ina er litið, að evran sé of sterk
sem og sterlingspundið. Þeir telja
hins vegar að Bandaríkjadalur og
japanskt jen séu veikari en eðli-
legt geti talist. Flestir sérfræð-
ingarnir telja þó ekki miklar líkur
á miklum breytingum í gengis-
málum á næstu sex mánuðum.
Aðrar niðurstöður könnunar-
innar eru m.a. þær að sérfræðing-
arnir telja að horfur séu á því að
verg þjóðarframleiðsla í heimin-
um muni að jafnaði aukast um
2,9% á næstu þremur til fimm ár-
um. Fyrir einu ári gerðu sérfræð-
ingarnir ráð fyrir að þessi aukn-
ing myndi verða um 2,7% á þessu
tímabili. Þá áætla þeir að neyslu-
verð í heiminum muni að jafnaði
hækka um 2,9% á þessu ári.
Varðandi vexti í heiminum telja
sérfræðingarnir að sú almenna
lækkun vaxta sem verið hefur að
undanförnu hafi stöðvast. Á
næstu sex mánuðum muni vextir
hækka. Seðlabanki Bandaríkj-
anna muni væntanlega hækka
stýrivexti sína á næstunni en
breytingar verði minni í Evrópu.
Haft er eftir Gernot Nerg,
framkvæmdastjóra hjá þýska
hagrannsóknarfyrirtækinu Ifo,
sem sá um framkvæmd könnun-
arinnar, að niðurstöður hennar
gefi til kynna að efnahagslífið í
heiminum sé að taka við sér.
Í samræmi við tilfinninguna
Alþjóðaverslunarráðið var stofn-
að á árinu 1919 en höfuðstöðvar
þess eru í París. Yfir 8.000 fyr-
irtæki, samtök og stofnanir eiga
aðild að ráðinu auk þess sem
landsnefndir starfa í yfir 140 lönd-
um og þar á meðal á Íslandi.
Landsnefndin hér á landi fylg-
ist með starfinu í París fyrir hönd
íslensks atvinnulífs og geta fé-
lagsmenn því tekið beinan þátt í
starfinu þar.
Að sögn Þórs Sigfússonar,
framkvæmdastjóra Verslunar-
ráðs Íslands, tók landsnefnd Al-
þjóðaverslunarráðsins hér á landi
þátt í þeirri könnun sem kynnt
var í gær. Hann segir að megin-
niðurstöður könnunarinnar séu
mjög í samræmi við þá tilfinningu
sem Verslunarráð Íslands hafi
fyrir þróun efnahagslífsins, um að
væntingar séu frekar jákvæðar.
Margt komi þar til. Varðandi Evr-
ópu sérstaklega sé líklegt að ýms-
ir sjái tækifæri í sambandi við það
samrunaferli sem þar sé nú í
gangi.
Góðar horfur í efna-
hagsmálum heimsins
Mikil umskipti hafa orðið í efnahagslífinu í Asíu, Norður-Ameríku og Evrópu sam-
kvæmt könnun Alþjóðaverslunarráðsins, og telja sérfræðingar að horfur séu góðar
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
EIGENDUR meðalstórra fyrirtækja
víðs vegar um heiminn eru bjartsýnir um
að efnahagslífið sé á uppleið. Þetta kemur
fram í árlegri könnun endurskoðunar- og
ráðgjafarfyrirtækisins Grant Thornton, en
nýjasta könnun fyrirtækisins var birt í
þessari viku.
Umskiptin í viðhorfum eigenda með-
alstórra fyrirtækja í heiminum eru mikil frá
könnun Grant Thornton á síðasta ári. Þá
höfðu eigendur fyrirtækja, sem þátt tóku í
könnuninni, umtalsverðar áhyggjur af
efnahagshorfunum.
Könnun Grant Thornton var framkvæmd
í september og október síðastliðnum og
tóku um 6.600 eigendur meðalstórra fyr-
irtækja í 26 löndum þátt í henni.
Samkvæmt könnuninni ríkir mest bjart-
sýni um horfur í efnahagsmálum meðal eig-
enda fyrirtækja á Indlandi. Þar á eftir
koma eigendur fyrirtækja í Ástralíu og
Bandaríkjunum. Í tilkynningu fyrirtæk-
isins kemur fram að bjartsýni eigenda fyr-
irtækja í Evrópu hafi aukist nokkuð frá síð-
asta ári. Er þó nokkuð í land með að
bjartsýnin sé eins mikil og í þeim löndum
þar sem hún er hvað mest. Af Evr-
ópuþjóðum er bjartsýnin mest meðal eig-
enda fyrirtækja í Bretlandi og á Spáni.
Könnunin náði til sjö af þeim tólf löndum
Evrópu sem tekið hafa upp evruna. Fimm
af þessum sjö löndum eru meðal þeirra tíu
landa í könnuninni þar sem svartsýni er
mest. Þetta eru Þýskaland, Frakkland,
Holland, Ítalía og Írland.
Svartsýni er mest meðal eigenda fyr-
irtækja í Japan af öllum þeim löndum sem
könnun Grant Thornton nær til. Sam-
kvæmt tilkynningunni hefur þó dregið úr
svartsýninni þar í landi í samanburði við
síðasta ár en þá var Japan einnig efst á lista
yfir þau lönd þar sem svartsýni var hvað
mest. Eigendur fyrirtækja í Hong Kong
eru nú hins vegar nokkuð bjartsýnir en þeir
voru svartsýnir varðandi framtíðina í efna-
hagsmálum í fyrra.
E F N A H A G U R
Meiri bjart-
sýni en í fyrra
Eigendur meðalstórra fyr-
irtækja, sem höfðu áhyggjur af
horfum í efnahagslífinu í heim-
inum í fyrra, eru bjartsýnir nú
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Hagnaður hjá Ísfugli
Eina kjúklingafyrirtækið sem ekki tapar 4
Hlutverk kauphalla
Starfsemi og hlutverk kauphalla skoðuð 10
HAGNAÐUR DREGST
SAMAN UM 67%