Vísir - 05.12.1980, Side 1
Peníngarnir stréýnía út úr dönkunum: "j
„Enginn skortur á i
seðlum hjð okkur" i
- sagði aðalféhirðir Seðiabankans i morgun S
„Við tókum riflega út
úr Seðlabankanum i
gær, og ef við fáum
sömu fyrirgreiðslu þar
i dag, verður enginn
peningaskortur hjá
okkur”, sagði Friðrik
Weisshappel, yfirgjald-
keri Samvinnubank-
ans, i samtali við
blaðamann Visis i
morgun.
Sömu svör fengust hjá
Hannesi Þorsteinssyni, yfir-
gjaldkera Landsbankans, að
meðan birgðir endast i seðla-
geymslum Seðlabankans mun
ekki skorta peninga hjá við-
skiptabönkunum.
„Það var tekið óvenjulega
mikið út úr bankanum i gær, en
þó ekki meira en til dæmis fyrir
áramót. Það verða áreiðanlega
engin vandamál að sinna öllum
úttektarbeiðnum ”, sagði
Hannes.
En hvað segir Seðlabankinn,
er til nóg af peningum þar?
„Það verða engin vandkvæði
með að afgreiða þá peninga sem
beðið er um. Það er enginn
skortur á seðlum hjá okkur”,
sagði Stefán Stefánsson, aðaifé-
hirðir Seðlabankans, i samtali
við blaðamann i morgun.
„Það var tekið töluvert meira
út i gær en venja er til, en við
höfum engar tölur um það enn-
þá, enda þarf að safna þeim
saman hjá þeim tuttugu seðla-
geymslum, sem við höfum viðs-
vegar um landið”, sagði Stefán.
— P.M.
Baldur Þórisson aðstörfum á skjálftavaktinni, en þessi mynd var tekin i morgun og slmsend til blaðsins. (Vísism. GS)
daginn?
Bankamenn höfnuðu I gær til-
mælum, sem þeim höfðu borist
frá rikisstjórninni um að fresta
boðuðu verkfalli fram yfir ára-
mót. Hefur verið boðaður sátta-
fundur með þeim og viðsemjend-
um þeirra kl. 3 i dag.
Á fundi sinum i gær, ákvað
rikisstjórnin að beina þeim til-
mælum til Sambands Islenskra
bankamanna, að boðuðu verkfalli
yrði frestað fram yfir áramót.
Voru þessi tilmæli m.a. borin
fram vegna þess að „verkfall
myndi torvelda gjaidmiðils-
breytinguna og valda almenningi
tilfinnanlegu óhagræði á þessum
árstima” eins og sagði I ályktun
rikisstjórnarinnar.
Þessuhöfnuðu bankamenn eins
og áður sagði, á fundi sinum i
gærkvöld. Vilhjálmur Hjálmars-
son. sáttasemjari. hélt sáttafund
með bankamönnum og viðsemj-
endum þeirra i gær, en hann
reyndist árangurslaus. Hefur
annar fundur verið boðaður kl. 15
i dag.
—JSS
Landrlslð
er hæltl
Land hætti að risa I nótt á
Kröflusvæðinu, en land var þá
komið i mun meiri hæð en fyrir
eldsumbrotin I október. 1 morgun
mátti merkja á mælum að örlitið
sig var byrjað.
Skjálftavakt er á verði allan
sólarhringinn á vegum Almanna-
varna og standa vakt til skiptis
þau Baldur Þórisson, Hólmfriður
Jónsdóttir og Ingigerður Arn-
ljótsdnttir. Nokkrir jarðvisinda-
menn eru staddir hér, þar á
meðal Eysteinn Tryggvason og
Páll Einarsson. Mývetningar eru
i viðbragðsstöðu ef til eldsum-.
brota kemur en láta biðina þó
ekki raska daglegri ró sinni.
—SG/GSReynihlíð
Enginn vill bera ábyrgð
á síldarsðluhneykslínui
Hvers vegna var sala á fersk-
sild til Danmerkur ekki stöðvuð,
þegar sýnt var að verðið var
miklu lægra en vonast var eftir
og svo lágt að það stefndi mark-
aði saltsfldar i hættu?
„Sjávarútvegsráðherra ber
einn alla ábyrgð á þvi,” segir
Hjörtur Hermannsson i viðtali i
opnu i dag, en hvað segir Stein-
grimur Hermannsson.
„Strax og verðið fór að falla
beindi ég þeim tilmælum til Llú
og viðskiptaráðuneytisins að
þetta yrði stoppað. Þá skeði nú
það, sem mér fannst nú ákaf-
lega einkennilegt, það var föstu-
daginn 21., þá kom það frá
Sildarútvegsnefnd, að hún teldi
ekki þörf á að stoppa. Siðan var
haldinn fundur i Viðskiptaráðu-
neytinu 27., þar var þetta itrek-
að og Viðskiptaráðuneytið taldi
sem von var, að fengnum þess-
um ummælum saltenda, ekki
rétt að stöðva siglingarnar.
Enda var ákaflega erfitt að gera
það, þvi sjómenn og loðnumenn
yfirleitt iögðu á þetta rika
áherslu. Hefði það verið gert,
hafandi ekki ljósa umsögn
Sildarútvegsnefndar um að
þetta ætti aðstöðva, þá hefði allt
orðið vitlaust,” sagði sjávarút-
vegsráðherra.
Umsagnir annarra eru i opnu,
þar á meðal framkvæmdastjóra
Sildarútvegsnefndar.
SV
Flugmenn með
ákveðin skiiyrði
Félag islenskra atvinnuflug-
manna hefur sett það skilyrði
fyrir þátttöku I fyrirhuguðu leigu-
flugi Flugleiða i Libiu, aö endur-
ráðnir verði fjórir flugmenn sem
sagt var upp störfum fyrir nokkru
þar sem ekki voru verkefni fyrir
þá.
Sveinn Sæmundsson blaðafull-
trúi Flugleiða sagði i morgun að
fundur hæfist um málið klukkan
11. Fyrirhugað leiguflug væri
ekki það stór biti, að Flugleiðir
gætu lagt i aukakostnað hans
vegna. Ætlunin hefði verið að sex
flugmenn fengju þarna verkefni,
þar af þrir sem myndu fá ilug-
stjóraþjálfun meðan á leiguílug-
inu stæði.
—SG