Vísir - 05.12.1980, Blaðsíða 27

Vísir - 05.12.1980, Blaðsíða 27
Föstudagur 5. desember 1980 VÍSIR 27 BðKMENNTAKYNNING HJA EYMUNDSSON Bókmenntakynning verður í Bókaverslun Sig- fúsar Eymundssonar í dag. Hefsthún klukkan 16 og stendur til klukkan 18. Hjalti Rögnvaldsson, leikari, les úr bókum Gils Guðmundssonar, ,,Mána- silfri'' og „Frá ystu nesj- um", og bók Jóhannesar Helga, „Sigfús Halldórs- son opnar hug sinn". Höfundarnir og Sigfús Halldórsson verða stadd- ir í versluninni meðan á bókmenntakynningunni stendur og árita bækurn- ar. Slíkar bókmenntakynn- ingar eru fyrir hugaðarhjá Eymundsson á hverjum föstudegi til jóla. —ATA afntjumbókum Hvita stríöiö - Vegamflt og vopnagnýr Bókaútgáfan Skuggájá, Hafn- arfirði, hefur gefið út bókina Hvita stríðið/ Vegamót og vopna- gnýr eftir Hendrik Ottósson. Þetta eru tvær bækur endurút- gefnar i einni bók. Báðar þessar bækur, Hvita striðið og Vegamót og vopnagnýr, hafa verið ófáan- legar um langt skeiö. Hvita striðið greinir frá hinum miklu deilum, sem uröu i Reykja- vik i nóvember árið 1921, er rúss- neska piltinum Nathan Fried- mann, sem Ólafur Friðriksson hafði haft með sér hingað til lands frá Moskvu, var visað úr landi vegna sjaldgæfs augnsjúkdóms. Vegamót og vopnagnýr fjallar hins vegar um margvisleg efni og er viða komið við. Hvita striðið/ Vegamót of vopnagnýr var sett og umbrotin i Acta hf., filmuvinnu og prentun annaðist Prisma og bókin vai bundin i Bókfelli hf. Kápu geröi Auglýsingastofa Lárusar Blön- dal. Kertum og __-—fiólautubúöurá ikrau« giatav8rum \ at iólakortum. «rrnraii MÚTMÆLIN HITTU EKKI ÞINGMALIÐ Halldór Blöndal flytur nú á Alþingi tillögu um skipan nefnd- ar til að endurskoöa lög um launasjóð rithöfunda. Lögin voru sett árið 1975 og ná til stórs hóps starfandi höfunda. Þau eru þvi þýðingarmikii og má eöli- lega búast við aö löggjafarvald- ið telji ástæðu til endurskoð- unar, þegar nokkur reynsla er fengin af framkvæmdinni. á undanförnum árum. Segja má aðsæmilega hljótt hafi verið um úthlutun úr sjóönum fyrsta kastiö, enda var þar traustlega að unnið. Siöan náðu kommún- istar yfirhöndinni I Rithöfunda- sambandinu, og var þá ekki að sökum að spyrja, að eilífur ófriður hefur staðið út af úthlut- un úr sjóönum siðan, bæði frá þeim, sem fylgja Alþýðubanda- laginu að máium og hinum, sem telja sig afskipta af pólitiskum ástæðum. Endurskoðun laga um launasjóð er þvitimabær, ef hún mætti verða til að menn fengju fé úr launasjóöi án stórra mót- mæla bæði kommúnista og ann- arra. Ljóst er að stjórn Rithöfunda- sambandsins, undir for- mennsku Njaröar P. Njarövik, sem hefur verið að skrifa barnabækur upp á finnsku aö undanförnu, hefur leitað viða fanga viö að safna undirskrift- um höfunda gegn þvi ,,að Alþingi breytilögum um Launa- sjóð rithöfunda þannig aö þing- kjörin nefnd úthluti úr sjóðn- um. ” Hafa menn lagt á sig mikil ferðalög og mikinn þrýst- ing við þessa undirskriftarsöfn- un, svo gæfuleg sem hún er. Ýmis bókmenntaleg mikil- menni ljá nafn sitt undir plagg- ið, og jafnvel margir þeir, sem að óreyndu heföi verið álitiö að hefðu aðra reynslu af kommún- istum en þá að þeir tryöu einu orði af þvi sem þeir segðu. Enda er komið á daginn, aö 127 með- limir I Rithöfundasambandinu hafa verið fengnir til aö skrifa undir eitthvaö, sem alls ekki er til umræðu á Alþingi. Það hlýtur að kosta Njörð P. Njarðvik og félaga meiriháttar rökfræðilega akróbatik að sann- færa hina 127 rithöfunda um að þeir hafi verið að mótmæla rétt, þegar þeir sendu frá sér listann með banni viö úthlutun Alþingis þegar aðeins var um að ræða tillögu um endurskoðun á lög- um, sem Alþingi setti og hefur allan rétt til aö f jalla um hvenær sem þvi sýnist. Það sýnir svo vitleysuna sem rithöfundar eru Halldór Blöndal teymdir út i, af þeim öfgahópi sem stjórnaði undirskriftinni, aö næsta ósæmilegt viðhorf lýsir sér i textanum i garð Alþingis, alveg eins og hjá al- mannavaldinu sé aö finna ein- hvern djöful, sem ekki megi nálægt lögum koma. Hlýtur það aö vera umhugsunarefni fyrir hina skynsamari menn innan rithöfundasamtakanna, að láta nokkra öfgamenn lciða sig út i duldar sviviröingar um Alþingi. Umræðurnar á þingi um til- lögu Ilalldórs fóru eins og vænta mátti. Meirihluti þeirra, sem til máls tóku töldu rétt aö tillagan næði fram að ganga meö þing- legum hætti. Guðrún Ilelga- dóttir las aftur á móti þinginu pistil Njarðar P. Njarðvik svo heiftúöugur sem hann er I garð þingsins, og mun margur maðurinn ekki hafa orðib svo Htiö hissa. 1 lok umræðna stóð hógvær og virtur þingmaður upp og lýsti þeirri skoðun sinni að mótmæli rithöfundanna 127 tækju til einhvers annars en þeirrar tillögu, sem væri til umræöu og fjallaði um nefnd til endurskoðunar. Þannig lauk þessari umferð. En eftir sitja 127 rithöfundar, sem hafa heldur illilega orðið að reyna, að ekki fylgir þvi mikii gæfa að lána nafnið sitt á hvað sem er. Þeir voru einfaldlega að skrifa undir ótta og slúður stjórnar Rithöfundasambands- ins, sem hún magnar meö sjálf- um sér eins og svartkiæddar kerlingar við brunn. Óttinn og slúðrið eins ogþað kemur fram i orðalagi undirskriftalistans sannar hins vegar svo ekki verður um villst hvernig þessir karlar hafa stjórnað launa- sjóðnum. Svarthöföi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.