Vísir - 05.12.1980, Blaðsíða 21

Vísir - 05.12.1980, Blaðsíða 21
Föstudagur 5. desember 1980 VÍSIR 21 ÞýsKurpitliöfunflupÍes upp úr verkum sínum Nú er stödd hér á landi Ingeborg Drewitz, þýskur rithöfundur Hún er að vísu ekki á meðal þekktustu nafna í þýskum bók- menntum, en það stafar þó ekki af þvi, að ritstörf hennar séu i lakara lagi, heldur hefur hún starfað á fleiri sviðum en á bók- menntasviðinu, og er þvi ekki eins afkastamikil og sumir starfsbræður hennar. Hún er fædd 1923, stundaði nám i þýsku, heimspeki og sögu, og tók doktorspróf i heimspeki 1945. Hún er gift kona og á þrjú börn. Hún heldur þvi sjálf fram, að fjöl- skyldan hefur aldrei verið ,,á móti hennar störfum”, en kannski hafi timinn stundum ekki verið nægilegur. Hún byrjaði fyrstá að skrifa útvarpsleikrit, en seinna meir skrifaði hún smásög- ur og skáldsögur, og fékk mörg bókmenntaverðlaun fyrir fram- lagsitt(m.a. Goethe-verðlaunin). Auk þess sem áður var nefnt, hefur hún helgað miklu af tima sinum mikilvægum störfum inn- an rithöfundasambandsins, meðal annars lagt mikla áherslu á aö efla þjóðfélagsgagnrýnar bókmenntir. Frá árinu 1968 hefur ,hún verið i stjórn þýsku deildar alþjóðlega rithöfundasambands- ins PEN Þar að auki hefur Inge- borg Drewitz fengist mjög mikið við ýmisleg þjóðfélagsleg vanda- mál, til dæmis vandamál fanga. Hún gat út 2 bækur i ljóðum og óbundnu máli eftir fanga. Hún hefur alltaf verið mjög gagnrýn og opinská i skoðunum og ekki hikaðvið að láta til sin heyra, þar sem henni sýndist brýn nauðsyn bera til. Þó gerir hún greinarmun á bókmenntalegu framlagi sinu og öðrum starfa: „Þegar ég skrifa, þá beiti ég ekki neinum pólitiskum áróðri, og þvi siður legg ég hann persónum minum i munn. Ég reyni að lýsa mönnum eins og þeir tala, hugsa eða bregðast við i veruleikanum.” Það er enginn vafi á þvi, aö Ingeborg Drewitz er mjög sérstök og óvenjuleg persóna, bæði sem maður og rithöfundur. Hún er jafnframt fyrsti þýski kvenrit- höfundur, sem kemur hingað á vegum Þýska bókasafnsins. Hún mun lesa úr bókum sinum „Der eine der Andere” (smásagna- safn) og „Gestern war heute” (skáldsaga) Upplesturinn verður i kvöld klukkan 20.30 i stofu 101, Lögbergi. Vanlar fólk til að lesa jólabækurnar ínn á kassettur fyrlr bllnda og sjónskerta Um þessar mundir eru liðin 5 ár siöan Borgarbókasafn og Blindrafélagiö hófu samstarf um framleiðslu og dreifingu hljóð- bóka. Meðal þess sem Blindrafé- lagið leggur fram er aðstaða til hljóðupptöku, og fer innlestur bókanna fram i hljóðbókagerð Blindrafélagsins að Hamrahlið 17, Reykjavik. A siðustu mánuð- um hefur verið unnið að stórfelld- um endurbótum á húsakynnum og tækjakosti hljóðbókagerðar- innar að tilstuðlan Lionsklúbbsins Njarðar sem gaf þangað fullkom- inn upptökubúnað, svo að nú er fyrir hendi aðstaða sem er fylli- lega sambærileg við það sem ger- ist i bestu hljóðbókageröum á Norðurlöndum. Allur lestur bóka fer fram i sjálfboðavinnu. Vegna þess að starfsemin hefur legið niðri um nokkurt skeið vantar nú fólk sem vildi taka að sér lestur á nýútkomnum bókum. Blindir og snjónskertir njóta aðeins þeirra jólabókmennta sem lesnar eru inn hjá Hljóðbókasafninu eða ættingjar lesa fyrir þá. Það er alkunna að nýjar bækur eru meðal helstu umræðuefna um jól, en komist jóiabækurnar seint eða alls ekki á kassettur fyrir blinda og sjónskerta eru þeir af- skiptir þeirri umræðu. Þvi er mjög brýnt að sem mest sé lesið sem fyrst — með leyfi höfunda — af nýútkomnum bókum. Það væri þvi vel þegið að fólk sem tóm hef- ur til að deginum gæfi sig fram til lestrar á svo sem einni jólabók. Upplýsingar eru gefnar i Hljóð- bókasafninu að Hólmgarði 34 i sima 86922 eða i hljóðbókagerð Blindrafélagsins að Hamrahlfð 17, simi 33301. Atriði úr Annað h vert kvöld, sem Leikféiag Neskaupstaðar frumsýnir I kvöld. J Lelkfélag Neskaupsslaðar frumsýnir: „ANNAÐ HVERT KVÖLD” í KVÖLD Leikfélag Neskaupstaðar frumsýnir i kvöld leikrit- ið Annað hvert kvöld eftir Francois Campaux. Verkið, sem er gamanleikur, er þýtt og staðfært af Lofti Guðmundssyni. Leikarar eru 7 þau Guðmundur Bjarnason, Lilja Karlsdóttir, Anna M. Jónsdóttir, Elin Guðmunds- dóttir, Þröstur Rafnsson, Svala Guðmundsdóttir og Ágúst Jónsson. Leikstjóri er Magnús Guðmunds- son. Leikfélag Neskaupstaðar er stofnað 1950 og er þetta 32. verkefni félagsins. SIMI 18936 Risakolkrabbinn (Tentacles) íslenskur texti Afar spennandi, vel gerö amerisk kvikmynd i litum, um óhuggulegan risakol- krabba með ástriðu i manna- kjöt. Getur það i raun gerst að slik skrimsli leynist við sólglaðar strendur. Aðalhlutverk: John Huston, Shelly Winters, Henry Fonda, Bo Hopkins. Sýndkl. 5 —7 — 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára VERDLAUNAGRIPIR ^ OG FÉLAGSMERKI » Fyrir allar tegundir iþrotta. bikar- Sar. styttur. verölaunapeningar — Framleiðum télagsmerki ^ ^Mag TÆj Liugtvi nús E. Baldvinssonj l«ugav*gi Q - R*vk|»vik - Simi 22904 | | LAUGARÁ8 B I O Sími 32075 Árásin á Galactica Ný mjög spennandi banda- risk mynd um ótrúlegt stríð milli siðustu eftirlifenda mannkyns við hina króm- húðuöu Cylona. íslenskur texti Aðalhlutv erk: Richard Hatch, Dirk Benedict, Lorne Greene og Lloyd Bridges. Sýnd kl: 5 - 7 og 9 Leiktu Misty fyrir mig Endursýnum þessa einstöku mynd með Clint Eastwood i aðalhlutverki. Sýnd kl.ll Hin æsispennandi litmynd, eftir samnefndri sögu sem komið hefur I isl. þýðingu. Leikstjóri: Mark Robson. Robert Shaw — Lee Marvin Islenskur texti Bönnuð innan 14 ára Sýndkl. 5,7, 9 og 11. m Simi50249 LouísdeFunés 8reste irce tosset mester |r Bráðskemmtileg frönsk gamanmynd með gamanleikaranum Louis de Funes i aðalhlutverki. Mynd fyrir alla fjölskylduna. Sýnd kl. 9. tsl. texti. Slagveðurs- mottan Tvær stæröir: 46.6 x 54 cm og 43 x 50,8 cm. Þríc fallegir litir. Fást í þremur litum. Skoðaöu slagveðursmotturnar | á næstu bensínstöð Shell. Heildsölubirgðir: Skeljungur hf-Smávörudeild Laugavegi 180-sími 81722 -,§(§)Oot ÍONBOGflj tX 19 OOÓ ' 1 A ? .§@illyíf 'A- Trylltir tónar VILLAGE PEOPLE VALERIE PERRINE BRUCE JENNER Vföfræg ný ensk-bandarisk músik og gamanmynd, gerð af Allan Carr, sem geröi „Grease”. — Litrlk, fjörug og skemmtileg með frábær- um skemmtikröftum. Islenskur texti. Leikstjóri: Nancy Walker Sýnd kl. 3-6, 9 og 11.15 Hækkað verö. Systurnar What the Devil hath joined together let no man cut asunder! jSérlega spennandi og sér- “stæð og vel gerð bandarisk litmynd, gerð af Brian de Falma.með Margot Kidder — Jennifer Salt tslenskur texti — Bönnuö innan 16 ára Endursýnd kl. 3,05, 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05 -soOw ,C- Hjónaband Maríu Braun Spennandi — hispursláus, ný þýsk iitmynd gerð af Rainer Werner Fassbinder. Hanna Schygulta — Klaus Lowitsch Bönnuð innan 12 ára Islenskur texti Sýnd kl. 3, 6, 9 og 11,15 -------------------------- Valkyrjurnar Hressilegaspennandi banda- risk litmynd, um stúlkur sem vita hvað þær vilja — tslenskur texti Bönnuð innan 14 ára. Endursýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15, 9.15 og 11.15. ÍÆJARBiP -*■ Simi 50184 Skjóttu fyrst — spurðu svo. Æsispennandi mynd úr villta vestrinu, gerð eftir handriti E.B. Clucher, höfund Trini- tymyndanna. Sýnd kl. 9.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.