Vísir - 05.12.1980, Blaðsíða 8

Vísir - 05.12.1980, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 5. desember 1980 VÍSIR utgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri: Davfð Guömundsson. Ritstjórar: úlafur Ragnarsson og Ellert B. Schram. Ritstjórnarfulltrúar: Bragl Guðmundsson, Ellas Snsland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammendrup, Arnl Sig- fússon. Frlða Astvaldsdóttir, Gylfl Krlstjánsson, lllugi Jökulsson, Kristln Þor- steinsdóttir, Páll Magnússon. Svelnn Guðjónsson, Ssmundur Guðvlnsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaöamaöur á Akureyri: Glsll Slgurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson. Sigmundur O. Stelnarsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Elln Ell .ertsdóttir, Gunnar V. Andrésson, Krlstján Arl Elnarsson. ÚtUtsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson. Ritstjóm: Slðumúli 14, slmiöóóll 7 llnur. Auglýsingar og skrifstafur: Slðumúla 8. slmar 86611 og 82260. Afgreiösla: Stakkholtl 2—4, slmi 86611. Askriftargjald kr. 7.000 á mánuöi innanlands og verð i lausasölu 350 krónur eintak-. ið. Visirerprentaöuri Blaöaprenti hf.,Siöumúla 14. Stjórnleysiö I sjávarútvegsmálunum leiöir af sér hvert hneyksliö eftir annaö á sviöi veiða, sölumála og skipakaupa, en sjávarútvegsráöherra viröist ekki þora aö stjórna málaflokki sinum og lætur sifellt undan þrýstingi. En hve lengi getur þetta gengiö svona? Stefnu- og stjórnleysið í sjávarútvegsmálum hefur nú náð þvi marki að menn hljóta að spyrja: Verður lengra gengið í hirðuleysi um þjóðarverðmætin án þess að almenningur, sem af- leiðingarnar lenda á fyrr eða síðar láti frá sér heyra? Ráðherra sjávarútvegsmála Steingrímur Hermannsson segir Fiskiþingi að hann ætli ekki að móta neina stefnu, hann ætli að- eins að leggja fram hugmyndir. Orðréttsagði hann: „Ég hef eng- an hug á að berja fram stefnu sem ekki fæst breið samstaða um". Hann leggur aðeins fram hugmyndir, en eftirlætur útvegs- mönnum að bítast um beinin í sjónum á þann hátt sem þeir kjósa og án stefnumörkunar af hans hálfu. Hvert hneykslið rekur annað á vettvangi sjávarútvegsmála. í upphaf i setu sinnar í stóli sjávar- útvegsráðherra, hélt Steingrímur Hermannsson því fram að fiski- skipastóllinn væri hæfilega stór. En ef tir að Vísir leiddi rök að því i vor að afkastageta f lotans væri a.m.k. tvöföld, liklegra þó enn meiri, á við þarfir, hefur hann komist að sömu niðurstöðu, sem öllum er Ijóst að er rétt. Samt sem áður heldur þessi sami ráðherra áfram að veita sam- þykki sitt fyrir stöðugri stækkun flotans. Hann segist vilja sporna við stækkuninni, en samþykkir hverja ósk um nýtt skip, vegna „byggðasjónarmiða"eða annarra „sérstakra kringumstæðna". Hann ætlar ekki að „berja fram stefnu". Áður hefur verið fjallað hér um togarakaupaævintýri N- Þingeyinga, þar sem „byggða- sjónarmið" eru látin réttlæta skipakaup, sem eiga enga stoð í heilbrigðri skynsemi, hvorki frá atvinnulegu né rekstrarlegu sjónarmiði og ráðherrann gat ekki einu sinni fundið rauðmaga- horn til að senda úr landi í staðinn, þóekki væri til annars en að halda andlitinu gagnvart tryggustu fylgismönnum sínum. Að minnsta kosti sex togarar eru nú í smíðum og liðlega 300 manna byggðarlag í kjördæmi ráðherr- ans þar sem fyrir eru 7 ára gam- all togari og liðlega 100 tonna bát- ur, fyrir utan marga smábáta er að semja um smíði á nýjum togara innanlands. Það verður f róðlegt að heyra rök ráðherrans fyrir þeirri nýsmíði. Ef'til vill má kalla það lítið mál sem að framan er rakið hjá þvi sem er að gerast í markaðsmál- um. Við nánari skoðun er þó hér eitt og sama málið á ferð. I til- raun til að skapa annars verk- efnalausum flota einhverja tekjumöguleika, (útgerðarmenn krefjast þess og ráðherra vill ekki berja fram stefnu) er skipunum leyft að sigla með ísaða síld til landa, þar sem ötulir menn hafa byggt upp góð viðskiptasambönd við innflytj- endur saltsíldar og markaðirnir fullur? eru lagðir i rúst um ófyrirsjáan- lega framtíð. Togáraflotinn eys upp fiski sem vinnslustöðvar ná ekki að vinna meðanhann erennferskur, þrátt fyrir mikið innflutt vinnu- afl, kaupendur kvarta undan slæmri vöru og keppinautar okk- ar sækja stöðugt á í sam- keppninni. Síldveiðiskipin selja isaða síld á smánarverði, þjóðum sem áður hafa gert samning við okkur um kaup á saltsíld á mjög góðu verði. Auðvitað verða þeir kaupendur æfir og segjast ekki tala við okkur oftar og segja ís- lensk stjórnvöld heimsk. Kórónan á vitleysunni er þegar einum báti er leyft að sigla til Þýskalands með slatta af ísaðri síld og selja þar fyrir smáaura og eyðileggja þar með síldar- markaði okkar þar í landi. Eins og ekki hafi verið nóg að gert í Danmörku og Svíþjóð. Og sjávarútvegsráðherra þjóðarinn- ar vill ekki marka stefnu. En það er engu líkara en al- menningur láti sig þessi mál litlu skipta. Það er kannski ekki von, að launafólk í landinu skynji til hlítar hvaða afleiðingar það hefur fyrir lífskjör þess að hlaða skefjalaust kostnaði á öflun og vinnslu sjávarfangs, á meðan stjórnmálamennirnir sem kjörn- ir eru til að hafa forystu fyrir þjóðinni láta sem þeim komi það ekki við. r „Núverandi ástand i þessum efnum er óþolandi. Hér er uni slikt sanngirnismál aö ræöa að isienskur iönaður sættir sig ekki viö aðgcrðarleysi stjórnvalda”. Þetta kemur meðal annars fram i greinargerð Félags ís- lenskra iönrekenda sem Visi' hefur borist varöandi aö- flutningsgjöld af aöföngum til iönfyrirtækja. Þar segir einnig aö enn séu mörg dæmi um aö iðnfyrir- tækjum sé gert að grciöa aö- flutningsgjöld af aöföngum sín- um, þótt nærri ár sé liöiðfrá þvi að aðlögunartfmanum aö EFTA lauk. Þaö sem hér um ræðir eru rekstrarvörur, hráefni, hjálpar- efni, umbúöir, vélar, tæki, hlut- ar til véla og tækja og varahlut- RfKISSTJÚRNIN HEFIIR ENN EKKI FELLT NIDUR AÐFLUTNINGSGJðLD AF AÐFðNGUM TIL IDNADARINS - Pótt ár sé liðið trð ðví að aðiögunartimanum að EFTA lauk. segja tðnrekendur Greinargeröin i heild fer hér á eftir. Mörg dæmi I samræmi viö samninginn um aöild íslands að EFTA eru erlendar iönaöarvörur nú flutt- ar til tslands tollfrjálst. Til aö skapa fslenskum iönaöi aöstöðu til eölilegrar samkeppni við inn- flutning voru aöflutningsgjöld af aöföngum iönaöarins smám samanfelldniður aö mestu leyti á aölögunartimanum aö EFTA. Var þetta í fyrsta lagi gert með beinni niöurfellingu aö- flutningsgjalda samkvæmt toll- skrá og i ööru lagi meö þvi aö beita sérstökum heimildar- ákvæöum i tollskrá og fjárlög- um. Nú er nærri eitt ár liöiö frá þvi aölögunartimanum lauk og þótt ótrúlegt sé eru enn mörg dæmi um, að iönfyrirtækjum er gert aö greiöa aðflutningsgjötd aö aöföngum sinum. Þessu veldur annars vegar þaö aö aöföngin falla i svokölluö blönduö toll- skrárnúmer, þ.e. aðföng iönaöar falla i tollskrámúmer, sem aö verulegu leyti innifela vörur til annarra notenda en iönfyrirtækja. Fjármálaráöu- neytiö hefur ekki talið sér fært aöfella niður tolla i viðkomandi tollskrárnúmerum vegna tekju- sjónarmiða rikissjóðs. t annan staöerástæðansúað3.grein 12, i tollskrárlögunum, eru túlkuð of þröngt til aö töluliöurinn nái þvi að heimila niðurfellingu allra aðflutningsgjalda til iðnaöar. Starfsskilyrði Félag islenskra iönrekenda telur einsýnt, að islenskur iðnaöur getur þvi aðeins stað- ist erlenda samkeppni, að hann fái sambærileg starfsskilyrði og keppinautarnir. I því skyni er nauösynlegt aö fella endanlega niöur greiðslu allra aöflutnings- gjalda (tolls, sölugjalds, vöru- gjalds, jöfnunargjalds og aö- lögunargjalds) af aðföngum þeirra iönfyrirtækja, sem eiga i beinni samkeppni við innfluttar vörur, eöa óbeinni samkeppni, þegar fluttar eru inn vörur, sem komiö geta i staö þeirra, sem hér eru framleiddar þótt ekki sé um nákvæmlega sams konar vörur aö ræöa. Vorið 1979 fluttu alþingis- mennimir Friörik Sophusson, Arni Gunnarsson, Ingvar Gisla- son og Kjartan ólafsson frum- varp til laga um breytingu á lögum nr. 120/1976 um tollskrá o.fl. Tilgangur frumvarpsins var aö fella endanlega niður greiöslu aöflutningsgjalda af aðföngum iðnfyrirtækja. Frum- varp þetta fékk efnislega góöar undirtektir á Alþingi og nefnd sú, sem um málið fjallaði á Al- þingi varsammála um að þarna væri á ferðinni sanngirnismál, sem leysa þyrfti. Með tilliti til þess, að fram hefðu komið ábendingar til nefndarinnar að betur mætti ganga frá þessu máli lagatæknilega séð, lagði nefndin til viö Alþingi aö málinu yröi visaö til rikisstjórnarinnar. Að lokum fór svo aö Alþingi samþykkti samhljóöa vorið 1979 að fela rikisstjórninni aö semja frumvarp til laga, sem tryggöi aöfelldyröu endanlega niður öll aðflutningsgjöld af aöföngum til iönaðar. Skyldi frumvarp þessa efnis flutt á næsta Alþingi, þ.e. haustiö 1979. Nú, einu og hálfu ári siðar, hefur sllkt frumvarp ekki séö dagsins ljós. Það er jafnframt vitað.að aldrei hefur veriö unn- iðaö samningu sliks frumvarps. F j á rm ál a ráðun e y tið og Iönaðarráöuneytiö hófu könnun þessa máls sl. vetur og var þá ákveðiö að reyna að leysa málið meö svonefndri „sérstakri aug- lýsingu”. Var samtökum iðnaöarins gefinn kostur á, að koma á framfæri ábendingum um þau tollskrárnúmer sem málið snerti. I aprílmánuði sendu Félag íslenskra iönrek- enda og Landssamband iðnaðarmanna tillögur sínar til Iðnaðarráðuneytisins. Þar er vakin athygli á um 230 toll- skrárnúmerum, sem slík aug- lýsing þyrfti aö ná til. Er 1. okt ekki kominn? 20. ágúst sl. birti Iönaðar- ráöuneytið fréttatilkynningu sem fjallaði um „hagsbætur fyrir iðnað”. Þar segir i lið 3: ,,Nú er unniö aö endurskoöun á auglýsingu nr. 284/1978 um niðurfellingu eða endurgreiöslu tolls og/eða sölugjalds af ýms- um aöföngum til samkeppnis- iönaöar á vegum Iðnaðar- og Fjármálaráðuneytis. Hefur samtökum iðnaöarins gefist kosturá að kynna si'n sjónarmið i þessu sambandi. Hér er um mörg álitamál að ræða sem skilgreina verður og nýjar greinar bætast við sem gera kröfur til að flokkast undir sam- keppnisiðnaö. Er ákveðið stefnt að þvi að ljúka þessari endur- skoðun fyrir 1. október nk”. Félag islenskra iðnrekenda hefur hvað eftir annað reynt að þrýsta á framgang þessa máls en þvi miöur fást einungis þau svör hjá Fjármálaráðuneytinu að málin séu i athugun vegna þess tekjutaps sem rikissjóður gæti hugsanlega orðið fyrir. Félag islenskra iðnrekenda sendi Iðnaöarráðuneytinu siðast bréf um þetta atriði 3. nóvem- ber sl., þar sem þvi er lýst yfir að núverandi ástand i þessum efnum sé óþolandi. Hér sé um slikt sanngirnismál aö ræöa að islenskur iðnaður sætti sig ekki við aðgerðarleysi stjórnvalda. Dráttur sem orðið hefur á af- greiðslu málsins sé óskiljanleg- ur. Er jafnframt skorað á Iönaðarráöuneytið að tryggja nú þegar endanlega lausn máls- ins. Með aðgerðarleysi sinu hundsar rikisstjórnin einróma samþykkt Alþingis frá 1979. Félag islenskra iðnrekenda lýs- ir furðu sinni á slikum vinnu- brögðum og þvi ef Alþingi sættir sig við að vilji þess sé að engu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.