Vísir - 05.12.1980, Síða 4
4
Föstudagur 5. desember 1980
Nauðungaruppboð
annaö og slðasta á hluta I Iðufelli 6, þingl. eign Margrétar
Eyjdlfsdóttur fer fram eftir kröfu Inga R. Helgasonar hrl.,
Sparisj. Rvikur og nagr. Gjaldheimtunnar f Reykjavlk og
Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudag 8.
desember 1980 kl. 14:45.
Borgarfógetaembættið I Reyk ja vik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 22., 24. og 27. tb. Lögbirtingablaös 1980 á
hluta I Marfubakka 32, þingl. eign Birnu D. Benediktsdótt-
ur o.fl. fer fram eftir kröfu Guðmundar Þóröarsonar hdl. á
eigninni sjálfri mánudag 8. desember 1980 kl. 14:00.
Bórgarfógetaembættið I Reykjavlk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 22., 24. og 27. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á
hluta I Rjúpufelli 27, þingl. eign Viktórlu Steindórsdóttur
fer fram eftir kröfu tollstjórans I Reykjavik á eigninni
sjálfri mánudag 8. desember 1980 kl. 15:30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og slðasta á Seljabraut 80, þingl. eign Jóns S.
Guðnasonar fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbank-
ans, Gjaldheimtunnar I Reykjavik Jóns Ingólfssonar hdl.,
Útvegsbanka islands og Guðmundar Þórðarsonar hdl. á
eigninni sjálfri mánudag 8. desember 1980 kl. 15:00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 58., 60. og 64. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á
Ilnjúkaseli 9, þingl. eign Kristins Guðlaugssonar fer fram
eftir kröfu Magnúsar Sigurðssonar hdl., Guðmundar
Þóröarsonar hdl., Einars Viðar hrl., Skarphéðins Þóris-
sonar hrL, Veödeildar Landsbankans, Brynjólfs Kjartans-
sonar hrl. og Gjaldheimtunnar -I Reykjvik á eigninni
sjálfri mánudag 8. desember 1980 kl. 16:30.
Borgarfógetaembættið I Reykja vik.
Orðsending
til viðskiptavina banka
og sparisjóða
Ef til verkfalls starfsmanna banka og spari-
sjóða kemur hinn 8. desember n.k., verða af-
greiðslur þeirra lokaðar frá þeim tíma þangað
til verkfalli lýkur.
Varðandi lán og aðrar skuldir, sem falla í
gjalddaga á meðan á verkfalli stendur, er
skuldurum á það bent að gera skil strax og
bankar og sparisjóðir opna að loknu verkfalli.
Vakin er athygli víxilskuldara á þvi, að vixlar,
sem falla i gjalddaga og/ eða eindaga í verk-
falli bankastarfsmanna, verða afsagðir
vegna greiðslufalls í lok fyrsta afgreiðsludags
eftir verkfall. Dráttarvextir verða ekki reikn-
aðir innan ofangreinds frests. Verkfallið veld-
ur því, að ekki verður kleift að senda skuldur-
um eða ábyrgðarmönnum tilkynningar varð-
andi vixla eða aðrar skuldbindingar, er falla i
gjalddaga meðan á verkfallinu stendur.
- Víxilgreiðendum og öðrum skuldurum er bent
á að póstsenda greiðslur á sannanlegan hátt
fyrir eða i verkfalli bankamanna, til að kom-
ast hjá frekari vaxtagreiðslu.
Skv. lögum skal framvisa tékkum til inn-
lausnar innan 30 daga frá útgáfudegi. I þeim
tilvikum, að sýningarfrestur renni út meðan á
verkfalli stendur, ber að framvísa þeim þegar
að verkfalli loknu.
Um skuldabréf og vixla i innheimtu gilda
sömu reglur og áður greinir um slik skjöl.
Meðferð annarra innheimtuskjala, svo sem
kaupsamninga, fellur niður, meðan á verk-
falli stendur. Vaxtauppgjör fer eftir efni
skjala, en skuldarar geta komist hjá vanskil-
um með því að gera skil beint til skuldareig-
anda gegn nauðsynlegum kvittunum.
Lokun banka og sparisjóða um lengri eða
skemmri tíma hlýtur að leiða af sér margvís-
leg vandamál, bæði fyrir peningastofnanir og
viðskiptamenn þeirra. Utilokað er að gera
tæmandi grein fyrir þeim, enda sum þeirra
ófyrirsjáanleg. Samvinnunefnd banka og
sparisjóða vill því beina til alls almennings, að
fólk reyni að gera sér grein fyrir þeim vanda,
sem að hverLum og einum snýr i þessu tilliti og
gera viðeigandi ráðstafanir.
Samvinnunefnd banka og sparisjóða
VtSIR
Þar er vatniö olí-
unni verðmætara
„Vatn er verðmæti. Sóið ekki
heldur sparið vatnið! ” segir i á-
skorunum þess opinbera, sem
birtast hvert kvöld i israelska
sjónvarpinu.
A meðan fótgangandi hér
yggla sig yfir vatnspollunum
eftir rigninguna, er vatn mikið
hitamál i tsrael.
Þriöjungur landsins er eyöi-
mörk, þar sem úrkoman fer
niður fyrir 25 mm þurrustu árin.
t norðurhluta tsraels er árleg
úrkoma einhvers staðar á milli
500 og 750 mm. En einu og einu
ári bregður inn á milli, þar sem
þurrkurinn vindur allt og úr-
koman verður alls ófullnægj-
andi fyrir ávaxtaframleiðsluna.
Vaxandi iðnaður og landbún-
aður tsraels heimtar þó stöðugt
með hverju árinu sem liður
meira vatn. 20% vatnsneyslu
sinnar fullnægja tsraelsmenn
með þvi að taka vatn á vestur-
bakka árinnar Jórdan. (Það er
ekki að ástæðulausu, sem hart
er deilt um þann jarðarpart).
tsraelsmenn hafa að visu játast
á að Palestinuarabar á vestur-
bakkanum skuli fá sjálfsstjórn,
ensetja það sem algert skilyrði,
að tsrael hafi þó áfram umráð
yfir vatninu.
Mikilvægasta vatnsupp-
spretta tsraels er vatnið i
Galileu, en um það stendur
einnig nokkur styrr. Ýmsir
visindamenn segja, að þar sé
verið að kæfa allt lif með meng-
un vatnsins, þar sem Pétur
fiskimaður reri forðum. Aðrir
halda þvi fram, að það séu ýkjur
einar og fjarri þvi að mengun
nálgist þar neitt hættumark.
Telja þeir ekki einu sinni ástæðu
til neinna sérstakra ráðstafana
nærri strax.
1 viðtali við Alan Elsner,
fréttamann Reuters, segir Yoel
Gaifman, forstöðumaður vatna-
mælingarstofnunarinnar i Gali-
leu. að ekkert lifsmark verði
finnanlegt i vatninu að 20 árum
liðnum. Hann segir að sam-
yrkjubúin dæli úrgangnum i
vatnið, sem auki algae innihald
vatnsins, en það eyðir súrefn-
inu.
Annar visindamaður, dr.
Moshe Gofen úr hafrannsóknar-
stofnun ísraels, heldur hinu
gagnstæða fram. Segir hann
engin merki sjáanleg þess, að
vatnalifið sé að deyja út. Hinu
er hann þö sammála, að meng-
un i vatninu aukist iskyggi-
lega. — Stjórnvöld hafa þó i bi-
gerð að mynda einskonar safn-
lón sem safnað verði i öllu
óhreinu aðrennslisvatni, og það
hreinsað, áður en þvi verður
hleypt áfram i aðalvatnið.
- 4. v.
foý 4 *
Vatnsskorturinn stendur jarðarbótum fyrir þrifum.
En gyðingarikið hefur litið
breyst frá timum bibliunnar,
hvað þvi viðvikur að menn
verða þar ekki svo glatt spá-
menn. Ekki til að halda athygli
manna, eins og umhverfis-
verndarsinnar leitast við varð-
andi mengunina i Galileuvatni.
Meiri gaumur er á meðan gef-
inn vatnsuppsprettunni á
vesturbakkanum, vegna hinna
striðandi hagsmuna væntanlegs
sjálfsstjórnarrikis Palestinu-
araba og ísraelsmanna.
Vatniö er Israelsmönnum lifs-
nauðsyn. Um það þarf ekki að
þræta. Það er einnig sama lifs-
nauðsynin varðandi alla fram-
tiðaruppbyggingu framtiðar-
rlkis Palestinuaraba. Enginn
skoðanamunur er um það.
tsraelsmenn sækja sér árlega
0,3 milljarða rúmmetra af vatni
til Yarkon-Taninim á vestur-
bakkanum. (Arleg vatnsnotkun
þeirra er 1,7 milljarðar.) Vatnið
á vesturbakkanum þykir bæði
hoilt og gott, sérdeilis tært, sem
er sjaldgæft i þessum heims-
hluta, þar sem sérhver fúa-
pyttur þykir guðsblessun. Þar
að auki liggur það sérdeilis vel
við til nýtingar fyrir Israels-
menn. Af hagkvæmnisástæðu
einum er það mjög fýsilegt til
vatnsveitu, þóttnægt vatn fynd-
ist annarsstaðar.
En ef uppbyggingin I Israel
kallar á meira vatn, þá hefur
ekki minnkað vatnsþörf ibú-
anna á vesturbakkanum á
meðan heldur. Fólksfjölgun er
þar nefnilega mjög ör. Fram-
tiðarspár gera ráð fyrir, að
vesturbakkabúar muni þurfa 23
milljónir rúmmetra meira vatn
árið 1985 til drykkjar en þeir
nota i dag.
Þá er aðeins litið á drykkjar-
notkun vatnsins.
A hinu hafa menn þó
augastað lika, að á vesturbakk-
anum veita menn ekki vatni yfir
nema 4% ræktunarlands. Það
væri hægðarleikur að stækka
ræktunariandið um 10 þúsund
hektara með stækkun ræktunar-
landið um 10 þúsund hektara
með stækkun áveitukerfis. Slik
framkvæmd krefðist þó 200
milljón rúmmetra meiri vatns-
notkunar. Ef tekið af Israels-
mönnum, mundi það leggja i
auðn ófá býli.
Sadat Egyptalandsforseti
hefur boðið Israel að fá 1 millj-
ón rúmmetra af vatni árlega úr
Nii, sem hugsanlegt væri að fá
yfir Negev-eyðimörkina. Með
þvi vildi hann greiða fyrir lausn
á Palestinuvandamálinu. Isra-
elsmenn eru þó ekki yfir sig
hrifnir af hugmyndinni. Þótt
þeirtreysti kannski Sadat, þá er
aldrei að vita, hve lengi hans
nyti við, eða hver við tæki, og
þykir þeim ekki góð tilhugsun
að vita Egypta færa um að
skrúfa fyrir kranann, þegar
þeim byði svo við að horfa.
Möguleikar þykja vera á þvi
að gera vatnsveitur frá Yar-
mouk og Litani-ánum. Israels-
menn deila sem stendur vatni
með Jórdönum úr Yarmouk
samkvæmt sérstöku samkomú-
lagi frá sjötta áratugnum, en
hafa nú áhyggjur af stiflu-
gerðaráætlunum, sem Jórdanir
luma á til þess að tryggja sér
meira vatn úr ánni. — Litani-
áin er i Libanon, og eins og
stjórnmálaástandið er þar i
landi, er ekki eygjanlegur i ná-
inni framtið möguleiki á, að
Israelsmenn fái með samn-
ingum vatn þaðan.
Siðavendni á
kinversku
leiksviðl
Um þessar mundir er verið að
sýna leikritið „Macbeth” eftir
VVilliam Shakespeare I Peking, og
er það I fimmta sinn á siðustu 15
árum.sem Shakespeare-leikrit er
fært þar upp. Uppfærslan er með
handbragði Bao Guoans, og nokk-
ur staðfærsla hefur átt sér stað I
uppsetningunni.
Ahorfendur þykjast þekkja I
lafði Macbeth ekkjuna Jiang
Quing, sem nú situr á sakabekk,
og átökin i leiknum eru látin
draga dám af pólitiskum átökum
I Kina.
Nýlega var sýnt i Peking
„Kaupmaðurinn frá Feneyjum”,
og vakti nokkuð fjaðrafok, að i
einni senunni kysstust maður og
kona opinskátt á sviðinu. Það
þykir æði mikil dirfska I Kina. —
Og raunar hefur vakið nokkuð
umtal, áð I Macbeth-uppfærslunni
faðmar Macbeth að sér lafði sin a.
En hann kyssir hana þó ekki.
Misjafnir forfeður
Eins og bandariskra blaða-
manna er háttur, hefur nú verið
vclt við hverjum steini I fortið
Ronalds Reagans og jafnvel for-
feðra hans, eftir að hann náði for-
setakjöri.
Þetta grúsk hefur m.a. leitt i
ljós, að með miklum vilja má
kannski rekja ætt hans til kon-
unga. Og annaðkom fram.sem er
þó alveg pottþétt, að einn frænda
lians, Dan að nafni, var i hópi
þeirra, sem lifðu af hrakningana i
Donnerskarði i Kaliforniu um
aldamótin.
Þær mannraunir hafa orðið til-
efni mikilla skrifa i gegnum tið-
ina. 36 manneskjur fennti I kaf I
skarðinu og fórust, en þcir, sem
komust af, héldu tórunni með
þvi að leggjast á náina.
Poweii skefur
ekkl utan ai ðvi
Þaðhefur farið minna fyrir hin-
um ofstækisfulla Enoch Powell,
eftir að hann sagði sig úr breska
íhaldsflokknum og bauð sig fram
á irlandi. Hann tekur þó jafnstórt
upp I sig sem fyrrum, þegar við
borð lá, að hann æsti upp kyn-
þáttaóeirðir i Bretlandi.
„Sérhver Englendingur, sem
kærir mál sitt til mannréttinda-
dómstóls Evrópu, er föðurlands-
svikari,” sagði Powell nýlega.
Hann vill ekki einu sinni undan-
skilja ráðherra.
„Fari menn framhjá krúnunni
meö mál sin til stofnana erlendis,
er ekki hægt að lita á það sem
neitt annað en föðurlandssvik,”
sagði hann i tilefni klögumáls,
sem lagt var fyrir mannréttinda-
dómstólinn vegna hungurverk-
falls IRA-fanganna sjö.